Alþýðublaðið - 23.05.1940, Síða 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ÁRGANGUR FIMMTUDAG 23. MAÍ 1940 117. TÖLUBLAÐ
Látlausar orustur alla leið
frá Somme norður í Belgiu.
—--4>--
Fyrir sunnan Somme eru Frak%ar að
koma sér fyrir i sterkum varnarstððvum
STÓRORUSTUR geisa nú á öllu svæðinu sunnan frá
Sommefljóti og norður að Gent í Belgíu.
Eru orusturnar sérstaklega harðar í grennd við Cam-
bíai, sem virðist vera á valdi Þjóðverja, og við Arras, sem
Bandamenn tóku aftur af Þjóðverjum í gærmorgun.
í tilkynningum Frakka og Breta í morgun er þó sagt
frá því, að Frakkar séu aftur komnir inn í úthverfi Cam-
brai, og Bretar haldi öllum sínum stöðvum fyrir norðan
Arras, en það er viðurkennt, að Þjóðverjar hafi á einum
stað, hjá Oudenarde, komizt yfir ána Escaut í Belgíu, hér
um bil miðja vegu milli Gent og landamæra Frakklands.
Vígstöðvarnar í Belgíu eru ennþá miklu austar en þær
voru í heimsstyrjöldinni.
Óljóst er enn, hvernig ástandið er á svæðinu frá Arras
suður að Sorame, þar sem Þjóðverjar brutust með fámenn-
ar vélahersveitir í gegn í fyrradag. Segjast Þjóðverjar halda
áfram sókn sinni til Ermarsunds þar á 50 km. breiðu svæði.
Tilkynnt var hins vegar af Bandamönnum í gær, að Þjóð-
verjar hefðu verið reknir burtu úr Abbeville niður við
ósa Somme, og er það því þar með viðurkennt, að þeir
hafi komizt þangað í fyrradag.
Franskur her var í gærkveldi sagður á næstu grösum
við Amiéns, en engar nánari fregnir hafa borizt af bardög-
um þar í morgun.
Fyrir sunnan Somme eru
Frakkar sagðir vera að koma
sér fyrir í sterkum varnarstöðv-
um, sem ná þaðan austur með
fljótinu Aisne, á syðri bakka
þess, alla leið til Rethel, en þar
beygir herlínan í norðaustur til
Montmedy, sem liggur suðaust-
ur af Sedan og við enda hinnar
ciginlegu Maginotlínu.
Wesfoand vonoóður.
Reynaud, forsætisráðherra
Frakka, átti síðdegis í gær tal við
Weygand, yfirhershöfðingja, sem
þá var nýkominn til Parísar frá
vígstöðvunum í Norður-Frakk-
landi. Weygand fullvissaði for-
sætisráðherrann unr það, að hann
væri viss um úrslitasigur Banda-
Heilan mánuð á lelðinni
frá Danmðrku hingað!
-----<>--
Samtal við Svein Bjðrnsson sendiherra.
^VEINN BJÖRNSSON
^ sendiherra kom heim í
nótt með Dettifossi frá Am-
eríku. Alþýðublaðið hafði
stutt samtal við sendiherr-
ann í morgun, en þá var
hann í þann veginn að ganga
á fund ríkisstjórnarinnar.
Sveinn Björnsson fór frá
Danmörku 15 dögum eftir her-
töku landsins, fór hann um Ber-
lín, til Ítalíu og tók þar haf-
skipið „Rex“ til New York. Þar
tók hann Dettifoss hingað.
Með sendiherranum er sonur
hans Hinrik, sem undanfarið
ár hefir starfað í utanríkis-
þjónustu Danmerkur. Annars
er fjölskylda sendiherrans enn
erlendis. Sendiherrann er mjög
orðvar og verst raunverulega
allra frétta. Hann kvaðst hafa
haft tal af ýmsum forystu-
mönnum í dönskum stjórnmál-
um, þar á meðal Stauning for-
sætisráðherra og Iledtoft Han-
sen rétt áður en hann fór. Vit-
anlega ber allt líf í Danmörku
— og þá fyrst og fi£rnst í Kaup-
mannahöfn — svip hertökunn-
ar. Blöðin og útvarpið eru und-
ir ritskoðun o. s. fiv. — og erf-
iðleikar eru miklír á ýmsum
sviðum.
Ekkert kvaðst i Ændiherrann
geta sagt um þab, hve lengi
hann dveldi hér. H mn kvað öll-
um íslendingum í Danmörku
líða vel og hefði ,»ann í sam-
Frh á 4. síðu.
manna, ef hver maður gerði
skyldu sína.
Reynaud komst svo að orði, er
hann skýrði frá þessu í franska
útvarpinu, að ef Frakkar gætu
Frh. á 4. síðu.
Attlee talar á útifundi.
Róttækar ráðstafanir brezka Dings
ins til að tryggia sigur í stríðinn,
-------»------
Stjórmn fær ótakmarkað vald yfir ollum at-
vinnufyrirtækjum og ðllum vinnukrafti i landinu.
■gD REZKA ÞINGIÐ samþykkti í gær í einu hljóði, eftir
tveggja og hálfi’ar klukkustundar umræður, lög, sem
eru algert einsdæmi í sögu Bretlands.
Með lögunum er brezku stjórninni veitt ótakmarkað
vald yfir öllum auðæfum landsins, öllum fyrirtækjum og
öllum vinnukrafti, í því skyni, að embeita allri orku þjóð-
arinnar að því að sigra í styrjöldinni.
Samkvæmt lögunum tekur stjórnin við yfirstjórn allra
atvinnufyrirtækja í landinu, einnig bankanna, og fær fullt
vald til þess að ákveða bæði vinnulaurí og vinnustunda-
fjölda. Allur ágóði af rekstri fyrirtækjanna umfram það,
sem venjulegt er, verður tekinn sem skattur í ríkissjóð,
stríðságóði verður með öðrum orðum skattlagður um 100%.
Fulltrúar verkamanna og atvinnurekenda utan þings,
sambandsstjórn vex'kalýðsfélaganna og atvinnurekenda-
samtökin, hafa einnig lýst yfir fullu fylgi sínu við þessa
löggjöf og stofnað með sér sameiginlega nefnd til þess að
greiða fyrir framkvæmd hennar.
Stofnað verður sérstakt framleiðsluráð, sem ætlað er
að efla alla framleiðslu í landinu í þágu hernaðarins svo
sem frekast er unnt. Forseti þess verður Alþýðuflokksmað-
urinn Arthur Greenwood, sem nú er ráðherra án sérstakr-
ar stjórnardeildar í stríðsráðuneyti Churchills.
FramsöBoræða Attlees.
Við umræöurnar urn lagafrum-
varpið í neðri málstofu brezka
þingsins hafði Mr. Attlee, hinn
þekkti leiðtogi brezka Alþýðu-
flokksins og nú innsiglisvöröur
konungs í stríðsráðuneyti Chur-
chills, orð fyrir stjórninni.
Hann kvað frumvarpið ekki
komið frarn vegna þessj, aó
stjórnin efaðist um, aÓ yfirgnæf-
andi meirihiuti þjóðarinnar vildi
starfa fyrir land sitt á þeim
hættutímum, sem nú væru, lieldur
til þess að gefa ríkisstjórninni
nauðsynlegt vald til áð beina
starfskröftúm hvers manns að þvi
hlutverki, sem nauðsynlegt væri,
og bæri ekki að skilja það svo,
að með því þyrfti að vera átt
Greenwood.
við skotfæra- og hergagnafram-
leiðslu. Launagreiðslur yrðu í
samræmi við það, sem í gildi
væri samkvæmt samningum at-
vinnurekenda og verkamanna, en
annars það, sem sanngjarnt væri.
Um eignir manna sagði hann,
að við yfirráðum sumra þeirra
tæki ríkisstjórnin nú þegar, en
annara síðar, og rekstri neirra
öflum. Ný fyrirtæki yrðu stofnuð,
ef þurfa þætti, önnur Iögð niður
Frh. á 4. síðu.
Bretar afnema innflutningstoll á
ísnðum oo frystum Mi.
Munar milljónum króna á fisk*
sölu okkar til Bretlands.
"D ÍKISSTJÓRNINNI
barst seint í gærkveldi
svohljóðandi símskeyti frá
sendiráði íslands í London,
Pétri Benediktssyni:
Frh. á 4. síðu.