Alþýðublaðið - 25.05.1940, Side 3
LAUGARDAGUR 25. MAI 1940
ALÞYÐUBLAÐID
---------MÞTÐUBLAfilÐ ----------------------
Ritstjóri: F. R. Valdemarsson.
í íjarveru hans: Stefán Pétursson. Símar 4902 og 5021 (heima).
Ritstjórn: Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Símar: 4902: Ritstjóri. 4901: Innlendar fréttir. 5021: Stefán Pét-
ursson (heima) Sellandsstíg 16. 4903: Vilhj. S. Vilhjálms-
son (heima) Brávallagötu 50.
Afgreiðsla: Alþýðuhúsinu gengið inn frá Hverfisgötu.
Símar: 4900 og 4906.
Verð kr. 2,50 á mánuði. 10 aurar í lausasölu.
ALÞÝÐUPRENTSMIDJAN H . ,F •
Mæðradagurinn.
-----4,--—
Brú yfir hið breiða haf;
Min kynni og samvinna
landavestanhafsoganstan
----«. ...—
Tfenarit Vestur^fslendinga inn á
hwert fsienzkt heimili.
EINS og frá hefir veriÖ skýrt
hér í iilaðinu gengst Mæðra-
styrksnefndin fyrir skemmtunum
og merkjasölu á morgun, á
Mæðradaginn.
Verður ágóðanum eins og und-
anfarin ár varið til þess að kosta
dvöl fátækra mæðra og barna
í svei't, og veita þeim hvíld og
hressingu. ,Þ að þarf í raun og
veru ekki að hafa mörg orð til
þess að brýna fyrir Reykvíking-
um að bregðast vel við og
styrkja þessa starfsemi nefndar-
innar. Allir vita hve mikil og
brýn þörf er nú fyrir slíka hjálp,
allir vita hversu mjög atvinnu-
leysi og skortur hef.ir sorfið að
mörgum fjölskyidum í vetur og
altof margir þekkja af e'gin reynd
hvernig áhyggjur, úrræðaleysi,
angist og kvíði iiggur eins og
'farg á mönnum um þessar mund-
ir og þá ekki sízt öllurn þeim,
sem eiga að bera ábyrgð á lífi
og velferð annarra, svo langt eða
skammt, sem sú ábyrgð nær, þeg-
ar á reynir.
Mæðrastyrksnefndin veit að
þrátt fyrir alla erfiðleika og á-
hyggjur eru þeir margir semvilja
ltkna:. og hjálpa, svo lengi sem
imnt er. Hún treystir þvi að á
timum neyðarinnar og háskans
láti hjálpfýsi og mannúð sig
heldur ekki án vítnisburðar ogað
árangurinn af starfsemi dagsins
geri hetini fært að létta byrðar
mæðra og lítilla barna, því að
það er fyrir þessa aðila ein-
göngii, sem Mæðrastyrksnefndin
vinnur og hefir unnið á undan-
förnum árum. Með aðstoð Reyk-
víkinga og fyrir hjálpfýsi þeirra
hefir nefndinni tekist mörg und-
anfarin sumur aö koma fjölda
mörgum þreyttum fátækum mæðr
um og börnum þeirra í sumar-
hvild upp í sveit um lengri eða
skemmri tíma eftir efnum og
öðruni ástæðum. Hér í blabinu
hefir oft á undanförnum árum
verið minnst á þetta starf og
bent á það hve þý'ðingarmikið
það er fyrir hin fátækustu al-
þýðuheimili, sem fáa eiga úr-
kosti um sumarhvíld og upp-
lyftingu, eftir þrotlausa baráttu
kaldra vetrarmánaða við at-
vinnuleysi, kulda og ýnuskönar
skort. í blaðinu hafa birzt um-
mæli mæðra sem hafa orðið þess-
arar starfsemi aðnjótandi og not-
ið nokkurra vikna hvíldar á á-
gætum stöðum. 1 fyrra sumar
hafði Mæ'ðrastyrksnefndin umráð
yfir Reykholtsskóla í Biskups-
fungum. Er það hinn ágætasti
staður og lí'kaði öllum dvölinþar.
framúrskarandi vel. Alþýðublað-
in’u er ekki kunnugt þegar þetta
er ritað hvort Mæ'ðrastyrksnefnd-
in hefir umráð yfir þessum skóla
í sumar, en nefndin mun velja
þann stað, sem hún á' völ á og
telur bezían.
Eins og minnst er á í uþphafi
þessarar greinar eru nú alveg
sérsíakir tímar. Mörgum þykir á-
standið ískyggilegt og hættusamt.
Þó að það kunni að miklu leyti
að vera óþarfa ótti, þá er ekki
því að neita að tímarnir skapa
kví8& hjá fólki og má gera ráð
fyrir að sá kvíði komi íyrst og
fremst niður á þeim heimiJum,
sem fyrst og fremst eiga við
öryggisleysi að berjast, atvinnu-
leysi, kulda og skort, en það
hafa mörg heimili hér í Reykja-
vík átt við að stríða siðastlibinn
vetur.
Úr þessum kviða óg úr þess-
um ótta er ekki hægt að draga
til fullnustu, en með mæðradeg-
inum má þó' skapa vörn gegn
honum, létta honum að nokkru
leyti af fátækustu heimilunum.
Ef dæma má eftir þeim undir-
tektum, sem starfsemi Mæðra-
styrksnefndarinnar hefir fengið
hjá bæjarbúum undanfarin ár má
vænta þess, að þær varði góð-
ar, en eins og bent var
á í sambandi við Barnadaginn
verður einnig nú að minna á
það að nú er enn meiri þörf
en nokkru sinni áður og að nú
þarf meira fé en undánfarin ár
til þess að halda starfseminni
uppi.
Alþýöublaðiö vill hvetja les-
endur sína til að kaupa merki
Mæðradagsins á morgun og
styðja alla starfsemi dagsins eins
og þeir geta.
1. flokks-mótið:
K.R. vann Val 1:0.
Fram vann Víking 3:1
IGÆRKVELDI voru háSir
tveir kappleikir í 1. flokks
mótinu. Kepptu K. R. og Valur
fyrst, og vann K. R. með 1 : 0.
Síðari leikurinn var milli Fram
og Víkings og vann Fram með
3 : 1.
Svo virðist sem 1. flokks lið
K. R. sé einna bezt, mestur
samleikur og liðið að ýmsu sam-
valdara en lið hinna félaganna.
Allmikið kapp var í báðum
leikjunum og oft illa leikið.
Annað kvöld kl. 8V2 verður
háður þriðji kappleikurinn í
meistaramótinu og keppa þá K.
R. og Valur.
Það eru gömlu pólarnir í
knattspyrnunni, sem nú eigast
við.
DRENGJAFÖT, matrósaföt,
' jakkaföt, frakkar. Sparta, —
Laugavegi 10, sími 3094.
Bókabúð Æskunnar er í
Kirkjuhvoli. Sími 4235,
A LLT bendir til þess, að
vaxandi samhugur og
aukin kynni séu nú að hefjast
milli Vestur-dnsínlegi vbgk em
okkar hérna heima. Má
miða upphaf þessarar auknu
kynningar, sem svo mjög hefir
gert vart við sig síðastliðið ár
við 20 ára fullveldisdaginn,
þegar við hér heima hlýddum
í þögulli hrifningu á ávörp og
ræður og söng landa okkar
vestur í Kanada.
Síðan hafa kynnin aukist
mjög, samhugurinn vaxið og
vináttan tengst fastari bönd-
um. Þetta er gleðilegt. Báðir
eru af sama meiði sprottnir og
hvor aðilinn fyrir sig getur fært
hinum merka reynslu, menn-
ingárverðmæti og annað, sem
getur orðið til uppbyggingar.
Hér var í haust stofnað Þjóð-
ræknisfélag íslendinga og er
því ætlað það hlutverk fyrst
og fremst að auka kynni og
samstarf milli þjóðarbrotsins
vestra og okkar hérna heima.
Þetta félag hefir að vísu ekki
enn starfað mikið og þó liggur
ýmislegt eftir það. Ýmislegt
veldur því, að félagið er enn
ekki orðið nógu fjölmennt, en
það má fyllilega gera ráð fyrir
því, að ekki líði á löngu þar til
það nái mikilli útbreiðslu og
geti orðið sá tengiliður milli
okkar, sem því er ætlað að
verða. En stofnun þess er einn
ávöxtur hinnar nýju kynningar
og vináttuhreyfingar.
Samgöngur milli íslands og
Ameríku eru nú greiðari en þær
hafa verið áður. Ekki er hægt
að gera ráð fyrir því, að svona
verði framvegis, eftir að ófriðn-
um líkur, en þetta hefir nú haft
þau áhrif meðal annars, að hér
dvelja allmargir þekktir Vest-
ur-íslendingar, og það menn, —
sem standa mjög framarlega í
öllum félagsskap Vestur-ís-
lendinga. Þremur þessara
manna og frúm þeirra hefir
verið boðið hingað, einum af
Þjóðræknisfélaginu og tveimur
af Eimskipafélagi íslands.
Fjórði maðurinn'— og ekki
þeirra ómerkastur, Sophonías
Thorkellsson verksmiðj ueigandi-
er kominn hingað fyrir nokkru
og ætlar að dvelja hér á landi
sumarlangt. Enn er hann hér í
bænum, en í sumar ætlar hann
að stunda slátt upp á gamla
mátann heima í sveitinni, þar
sem hann sleit barnsskónum.
Sophonías Thorkelsson kom
hingað með allmikið af Tíma-
riti Þjóðræknisfélags íslend-
inga vestra.
Hann sagði nýlega við þann
sem þetta ritar:
„Ég hygg, að Tímarit Þjóð-
ræknisfélagsins geti unnið mik-
ið hlutverk í þá átt, að auka
kynnin milli okkar. Ritið hefir
enn mjög litla útbreiðslu hérna
heima, en pkkur vestra er það
ákaflega mikið áhugamál að
auka útbreiðslu þess hérna sem
allra mest og helzt að koma því
inn á hvert heimili í landinu.
Þetta er ekki fjárhagsatriði í
fyrsta lagi fyrir okkur, heldur
miklu fremur að við teljum að
útbreiðsla ritsins hér heima sé
skilyrðið fyrir því að þið skilj-
ið líf okkar, starf og viðfangs-
efni, sem búum fjarri ættjörð-
inni. Ritið er spegill menning-
arviðfangsefna, sem við höfum
með höndum og sá, sem les það
kynnist aðstöðu okkar.“
Sá, sem þetta ritar, veit, að
Tímarit Þjóðræknisfélagsins er
mjög lítið kunnugt hér á landi
og má segja, að skömm sé að.
Má þó ef til vill afsaka okkur
með því, að útgefndurnir hafi
ekki fyrr en nú gert mikið að
því að útbreiða það hér á landi.
Nú mun Sophonías hafa út.-
vegað útsölumann fyrir ritið
hér heima, Egil Bjarnason,
starfsmann við afgreiðslu
Tímans, og geta menn snú-
ið sér til hans til að fá rit-
ið. Tímaritinu fyrir síðastliðið
ár hefi ég haft tækifæri til að
kynnast og er það hið prýðileg-
asta að öllum frágangi. Ritstj.
þess var dr. Rögnvaldur Péturs-
son og var hann nýbúinn að
leggja síðustu hönd á það, þeg-
ar hann létzt. Nú er talið lík-
legt, að dr. Richard Beck verði
ritstjóri þess.
Til þess að gefa almenningi
hugmynd um efni síðasta heft-
is tímaritsins, skal ég hér á eftir
birta efnisyfirlit þess:
Alþýðuskáldið Valdimar
Briem, eftir séra Jakob Jóns-
son, Birnir, kvæði eftir Gutt-
orm J. Guttormsson, Bréf frá
Tweedsmuir lávarði tiÞ Þjóð-
ræknisfélagsins, Frank North,
saga eftir Jóhann Magnús
Bjarnason, Frá þeim yngri, eft-
ir dr. Stefán Einarsson, Iceland,
a sonnet, eftir J. C. Royle, ís-
lenzkar bókmenntir í Canada,
eftir séra Guðmund Árnason, ís
lenzkir vesturfarar, eftir dr.
Rögnvald Pétursson, Leyndir
straumar, eftir Sigurð Ólafsson
frá Ytra-Hóli, Móðir mín, kvæði
eftir Gísla Jónsson, Ragnar E.
Kvaran, minningarorð, eftir sr.
Guðmund Árnason, Salt jarðar,
sagar eftir Guðrúnu Finnsdótt-
ur, Sumar, kvæði eftir Þ. Þ. Þ„
Til Vestur-íslendinga, kvæði,
eftir Sigurð Jónsson frá Hellu-
vaði, Vornótt, söngvísa eftir
Gísla Jónsson, Þú söngst mér
lag, kvæði eftir Pál S. Pálsson,
Örn Arnarson skáld, eftir dr.
Richard Beck.
Auk þessa er í ritinu ýms
fróðleikur um starf og félags-
líf Vestur-íslendinga. Eins og
sjá má á efnisyfirlitinu er
Tímaritið mjög fróðlegt og
girnilegt til lesturs og það er
Frh. á 4. síðu.
Rafbylgjuofninn
ER ÍSLENZK UPPFINNING.
I þeim löndum, þar sem raftækjasamkeppnin er mjög hörð, svo
sem Englandi og Noregi, hefir rafbylgjuofninn verið „patent-
eraður“ mótmælalaust. — Getur nokkur bent á betri með-
mæli? — Rafbylgjuofninn verður framleiddur úr vandaðasta
efni, sem völ er á.
Minni pantanir afgreiddar úr vöruskemmu, stærri eftir sam-
komulagi.
Að gefnu tilefni skal bent á, að lægtsu taxtar til upphitunar
húsa hér í Reykjavík, hinir svonefndu tilraunataxtar, hafa
fengizt þar, sem rafbylgjuofninn er notaður. — Gefið upplýs-
ingar um stærð herbergja og húsakynni, þá fáið þið þann ofn
afgreiddan, sem yður mun bezt henta.
Sími Rafbylgjuofnsins er: 5740.
Skrifstofa min
er enn á sama stað í Hafnarhúsinu á 1. lofti, sími 5980.
Tbeódór Jakobsson,
skipamiðlari.
Reykjavíkurmótið.
MEISTARAFLOKKUR.
Á morgun kl. 8,30
keppa hinir gömlu
og góðu keppendur
K. R. - VALUR
Leikurinn sem allir vllja sjá