Alþýðublaðið - 31.05.1940, Side 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ÁRQANGUR
FÖSTUDAGUR 31. MAI 1940.
124. TÖLUBLAÐ
helÉr áfran.
Bandamenn brjóta flóðgarð
ana og láta sjóinn fossa inn
báðumegin við Dunkerque.
-------------
HIN ægilega orusta í Flandern heldur áfram af sömu
heipt og áður, þótt hún færist stöðugt nær ströndinni
og fleiri og fleiri hersveitir Bandamanna séu nú fluttar frá
Bunkerque til Englands.
Þjóðverjar eru sagðir tefla fram um 1 milljón manna í
orustunni og er því ógurlegur liðsmunur. En vörn Banda-
manna er frækileg og þeir hafa ströndina frá Dunkerque í
Frakklandi til Nieuport í Belgíu enn á sínu valdi. Sagt er að
Dunkerque sér að mestu leyti í rústum eftir loftárásir Þjóð-
verja, en Bandamenn hafa brotið flóðgarðana fyrir suð-
vestan borgina, hjá Gravelines, og sömuleiðis við Nieuport,
norðaustan við hana, og sjórinn fossar þar inn yfir láglend-
ið og gerir vélahersveitum Þjóðverja og fótgönguliði ó-
mögulegt að sækja að borginni meðfram ströndinni.
Bandamenn gera sér vonir um það, að geta komið veru-
legum hluta af liði sínu undan, og það er tekið fram í til-
kynningum þeirra, að engar hersveitir hafi gefizt upp. Og
með tilliti til þess að Þjóðverjar nefna enn ekki heldur neina
tölu fanga, þykir augljóst, að hersveitir Bandamanna hafi
á undanhaldinu heldur kosið að falla en gefast upp. En
manntjón Þjóðverja er líka sagt hroðalegt. Sumsstaðar hafa
hermenn Bandamanna varizt bak við garða fallinna her-
manna.
eða verið studdir þangað. Börn
voru send út með hjólbörur til
þess að safna matvælum handa
þeim. Á þilförum skipanna var
allt þakið sjúkrabörum, og lækn-
arnir unnu þar að hinurn erfið-
ustu læknisaðgerðum og eins á
h af narbökkunum.
Hermennirnir létu allir í ljós
sárustu gremju yfir hinum grimd-
arlegu árásum Þjóðverja á flótta-
fólk og varnarlaus þorp. Segjast
hermennirnir, sem viÖ hefir verið
talað, vilja fara sém fyrst aftur
til vígstöðvanna.
Margir hafa látið í ljós mikla
aðdáun yfir þeirri vernd, sem
flotinn hefir látið í té. Sjóliðið
hefir lagt sig í hina mestu hættu,
sagði einn hermannanna. Særð-
ur sjóliði sagði frá því, að her-
skipi hans hefði verið skipað að
breyta um stefnu til þess að
bjarga opnurn bát, sem her-
menn voru í. Herskip þetta tók
svo þátt í árás á skriðdreka-
sveitir Þjóðverja á landi. Við
sáum, hvernig skriðdrekarnir
tvístruðust og brotnuðu í mél,
sagði sjóliðinn. Bátar voru send-
ir til lands til þess að bjarga
hérmönnum, og óðu hermennirnir
út i sjóinn upp undir axlir á
móti bátunum.
Á heimleiðinni voru skotnar
niður 5 þýzkar flugvélar, og hin-
ir særðu hermenn á herskipinu
hjálpuðu til að bera skotfæri að
loftvarnabyssunum. Margir her-
mannanna létu í ljós gremju yf-
ir því, aÖ þeim skyldi hafa verið
fyrirskipað að hörfa undan.
BeryapatjAii Þjóðverja.
Samkvæmt ágizkunum sér-
fróðra manna er talið, að 40%
af þeim skriðdrekum, sem Þjóð-
verjar hafa teflt fram á vestur-
vígstöðvunum, hafi verið eyði-
lagðir, en ætlað er, að Þjóðverj-
ar hafi notað í sókninni nærri
Frh. á 4. síðu.
Uppbót á ellilauo
m örorknbœtnr.
Aðeins 16.5% og borg-
að einungis fyrir júní-
mánuð.
FR AMFÆRSLU-
NEFND ákvað í
gær að greiða uppbót á
ellilaun og örorkubætur í
2. flokki, og nemur upp-
bótin 16,5% af veittum
ellilaunum og örorkubótum.
En þessi samþykkt nær
aðeins til júnímánaðar og
nær alls ekki til fyrri
hluta ársins, en það hafa
allir launþegar fengið
eins og kunnugt er.
Áður hafði Arngrímur
Kristjánsson fulltrúi Al-
þýðuflokksins í nefndinni
lagt til að fullar uppbætur
yrðu greiddar frá 1. jan-
úar. En það var ekki sam-
þykkt og er frestað að
taka frekari ákvarðanir
um uppbætur. ,
Útsvör á þurftarlaun hækka
en útsvör á eignir lækka!
-------«------
Togarafélðgln sama útsvar og 1938!
Fyrsta aflefðingin af pvf að íhaldið hef-
irfengið meirihluta i niðnrjðfnunarnefnd
FYRSTA SKIPTI síðan árið 1930 hefir Sjálfstæðis-
flokkurinn nú meirihluta í niðurjöfnunarnefnd
Reykjavíkur. Árangurinn geta menn séð af því, meðal ann-
ars, að kynna sér útsvarsskrána, sem kom út í dag.
Niðurjöfnunarnefndina skipa nú: Ingimar Jónsson,
skólastjóri, fyrir Alþýðuflokkinn, Halldór Sigfússon, skatt-
stjóri — og fyrir Sjálfstæðisflokkinn: Gunnar Viðar, hag-
fræðingur, Sigurbjörn Þorltelsson, kaupmaður og Gunnar
Thoroddsen lögfræðingur.
Þegar Sjálfstæðismenn töpuðu meirihlutanum í nefnd-
inni 1930, var skattstiganum breytt svo, að útsvarsálagning-
in kæmi ekki eins þungt niður og áður á lágar tekjur og f jöl-
skyldumenn, en þeim mun þyngra á háar tekjur og eignir.
Fyrsta verk hins nýja meirihluta í niðurjöfnunarnefnd nú var
að breyta álagningarstiganum aftur í öfuga átt. Heildarupphæð
Útsvaranna hækkar um 20% og er nú tæpar 6 milljónir króna í
stað þess að í fyrra var hún tæpar 5 milljónir króna.
Franskar hersveitir brjót
ast 1 oeon vit lille.
Á vígstöðvunum milli Lille
og Cassel, þar sem hersveitir
Frakka voru innikróaðar í gær,
liefir að minnsta kosti nokkur
hluti þeirra brotizt í gegn til
strandar að afstaðinni ægilegri
skriðdrekaárás á þýzka herinn,
sem var milli þeirra og Dun-
kerque. Þjóðverjar segjast þó
hafa tekið Prioux hershöfð-
ingja, yfirmann þessara her-
sveita, til fanga hjá Cassel í
gær.
Norðan við belgisku landa-
mærin halda Bretar uppi sömu
þrálátu vörninni og áður á und-
anhaldinu. En þúsundir Belgíu-
manna berjast einnig við hlið
þeirra, þrátt fyrir fyrirskipun
konungs síns um að gefast upp.
Samkvæmt seinustu tilkynn-
ingum Breta voru 77 þýzkar
Hermennirnir, sem komnir
eru til Englands, eru úrvinda
af þreytu, hungraðir, með blóð-
hlaupin augu, margir með sára-
bindi um höfuðið, handleggi
eða fætur, sumir að kalla ber-
fættir, með rifin og blóðug
klæði.
flugvélar skotnar niður á
vígstöðvunum í Belgíu í gær.
Allar brezku flugvélarnar
komu heim aftur heilu og
höldnu.
Brezka flugmálaráðuneytið
tilkynnir, að brezki flotinn
haldi stöðug't uppi árásum á
herlið og bækistöðvar Þjóð-
verja á ströndum Belgíu og
Frakklands og stöðugt sé mið-
að að því, að flytja særða og
ósærða hermenn frá Dunkerque
til Bretlands, þrátt fyrir stöð-
ugar loftárásir Þjóðverja. Slík-
ir herflutningar verða ekki
framkvæmdir án þess að verða
fyrir tjóni og hefir óvinaliðið
sökkt þremur brezkum tundur-
spillum, 7 litlum hjálparskipum
og 1 flutningaskipi, 689 smá-
lestir að stærð. Þetta er allt það
skipatjón, sem orðið hefir við
þessar framkvæmdir, og eru
því fregnir Þjóðverja um þetta
mjög ýktar.
Hermönirunum var fagnað af
miklum mannfjölda og af hinum
mesta innileik. Konur og börn
ruddust fram og réttu þeim
súkkulaði eða brauðsneiðar, eða
þeim var gefið te eða annað sér
til hressingar, eftir að þeir höfðu
staulast niður á haí'narbakkann
Þetta samsvarar þvl, að hvert
mannsbarn í Reykjavík borgl nú
til bæjarsjóðs um 157 krónur —
eitt hundrað fimmtíu og sjö krón-
ur!
Á öllum mönnum, sem hægt er j
að segja að hafi nokkurn veginn
þurftalaun, hækka útsvörin gíf-
urlega, og þó langsamlega mest
á þeim, sem hafa tekjur, er nema
3 þúsund til 5 þúsund krónum.
Kemur þessi hækkun þó mest
niður á einhleypingum og barn-
lausum hjónum, þó að hækkun-
in sé gífurleg einnig á öðrum
með þessar tekjur.
Persónufrádráttur hefir verið
hækkaður úr 500 kr. á barn upp
i 600 krónur, — en lítiÖ ber á
því við athugun á útsvarsskránni,
að það breyti mjög; því svo gíf-
Frh. á 4. siðu.
Hæstn Atsvðrin.
Hér fer á eftir skrá yfir þá,
sem hafa yfir 10 þúsund króna
útsvar.
Kr.
Á. Einarsson og Funk 12075
Árni Jónsson, timburverzl., 12650
Edda h/f. 28750
Edinborg, verzlun, 34500
Efnagerð Reykjavíkur 20125
Eggert Krístjánsson og Co. 14375
Egill Vilhjálmsson 18400
Eimskip 69000
Eimskipafélagið isafold 57500
Garðar Gíslason 32200
Geysir, veiðarfæraverzlun, 19550
H. Benediktsson & Co. 11500
Hamar H/F. 14950
Hampiðjan H/F. 11500
Haraldur Árnason kaupm. 25875
Héðinn, vélsmiðja, 11500
Helgafell H/. 23000
Helgi Magnússon & Co. 13225
Hið ísl. steinolíuhlutafélag 17250
Jónas Hvannberg 14950
. Brynjólfsson og Kvaran 15525
Ingibjörg Cl. Þorláksson 12650
ísafoldarprentsmiðja H/F. 32200
Frh. á 4. síðu.
Hermennirnir vilja fara sem
fyrst aftur til vígstöðvanna!