Alþýðublaðið - 04.06.1940, Blaðsíða 4
ÞBIÐJUDAGUR 4. JÚNl 1940.
Munið
Alþýðuprentsmiðjuna h.f.,
ef þér þurfið að láta prenta.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
prentar fyrlr yður
fljótt og vel.
ÞRIÐJUDAGUR
Næturlæknir er Halldór Stef-
ánsson, Ránargötu 12, sími 2234.
Næturvörður er í Laugavegs- og
Ingólfsapóteki.
ÚTVARPIÐ:
19.30 Hljómplötur: Söngvar úr
óperettum og tónfilmum.
20,00 Fréttir.
20.30 Útvarpsagan: „Ströndin
blá“, eftir Kristmann Guð-
mundsson, XV. (Höfundur-
inn.)
21,00 Tónleikar Tónlistarskólans
(úr dómkirkjunni): a) Són-
ata nr. 4, D-dúr, eftir Han-
del. b) Chaconne í g-moll,
eftir Vitali. (Fiðla: Björn
Ólafsson. Orgel: Páll ísólfs-
, son.)
21,25 Hljómplötur: Nýtízku tón-
list.
21,45 Fréttir. Dagskrárlok.
Sigurður Sigurðsson
hefir verið skipaður berklayfir-
læknir frá 1. maí að telja.
Samtíðin,
5. hefti yfirstandandi árgangs
er nýkomið út. Efni: Háskóli vor
á tímamótum, Þeir vitru sögðu, ís-
lenzk æska, eftir Oddnýju E. Sen,
Merkir samtíðarmenn, Drepsótt í
byggðinni, saga eftir Brian Edsell,
Lögmannsskemman, kvæði eftir
Jörgen frá Húsum, Hvað er svefn
leysi, eftir Paul Berra o. m. fl.
Leikfélagið
sýnir skopleikinn „Stundum og
stundum ekki“ í kvöld kl. 8.30. Er
það tuttugasta sýning.
Ice-Follies
heitir myndin, sem Gamla Bíó
byrjar að sýna í kvöld. Aðalhlut-
verkin leika Jean Crawford og
James Stewart. Ennfremur skauta-
hlaupararnir „The International
Ice-Follies.“
Gúmiskögerðin
Vopni
Aðalstræti 16. Sími 5030.
Allar gúmmíviðgerðir fljótt og
vel af hendi leystar.
Sækjum. — Sendum.
Enska.
Kenni í sumar. ?
i! ODDNÝ E. SEN, ■ j
;j Amtmannsst. 6. Sími 5687. «
Laxfoss
fer til Vestmannaeyja á
morgun kl. 10 sd.
Flutningi veitt móttaka til
kl. 6.
ST. EININGIN nr. 14. Fundur
annað kvöld. Kosnir fulltrú-
ar á Stórstúkuþing. Erindi:
Pétur Brekkan. Æ.T.
Danski sendiherrann
de Fontenay og frú hans, taka
eins og venjulega á móti gestum á
morgun, 5. júní, á grundvallarlaga-
degi Dana.
Sjómannadagurinn
var mjög víða um land haldinn
hátíðlegur með mikilli viðhöfn, en
hvergi mun þátttakan hafa orðið
eins almenn og á ísafirði. Þar
mættu á þriðja hundrað manna á
útifundi. Það þótti nýstárlegt í
Vestmannaeyjum, að reipdráttur
var háður og var togast á yfir sjó
milli tveggja byngja og urðu þeir,
sem töpuðu, að falla í sjóinn.
Hjúskapur.
í síðastliðinni viku voru gefin
saman í hjónaband á Akureyri,
ungfrú Sigríður Ólafsdóttir og
Hrólfur Sturlaugsson, rafvirki, frá
Reykjavík.
Hljómboðar
heitir nýútkomið lagasafn eftir
Þórarin Jónsson frá Háreksstöð-
um. Útgefandi er höfundur sjálfur,
prentað í Félagsprentsmiðjunni.
Hjónaband.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband frk. Laufey Jónsdóttir
og hr. Albert Pálsson, bæði til
heimilis á Ásvallagötu 11.
OLYMPIULEIKAR SEINNI
TÍMA. (Frh. af 2. s.)
ust leikarnir næst takmarki sínu
eftir að þeir voru endurreistir.
Ungir menn báru hinn helga ol-
ympiska eld frá Grikklandi til Ber
línar, og vafasamt er, að Baron
Pierre de Coubertin hafi lifað
hamingjusamari stund, en þá, þeg-
ar hann boðaði æsku heimsins til
næstu leika í Tokio, Japan, 1940.
Hann hefir varla rennt grun í það
þá, að þjóð, sem tók að sér að
halda upp hinum olympisku fána,
tákni friðarins, skyldi hefja ófrið
gegn friðsamri nágrannaþjóð. Jap-
an afsalaði sér 1940 leikunum og
Finnar áttu að fá uppfyllta sína
heitu ósk um olympíuleikana í
Hnsalelgnnefnd skip
nð að uýju.
OAMKVÆMT hinum nýju
húsaleigulögum, sem nú
eru gengin í gildi, hefir húsa-
leigunefnd verið skipuð að
nýju.
Hæstiréttur hefir tilnefnt
formann nefndarinnar ísleif
Arnason prófessor og til vara
Kristján Kristjánsson fulltrúa.
Ríkisstjórnin hefir skipað þá
Guðmund R. Oddsson forstjóra
og Guðmund Eiríksson tré-
smíðameistara og til vara Ágúst
Jósefsson heilbrigðisfulltrúa og
Ragnar Þórarinsson trésmið.
Kappleikir í kvðld.
jU’ NN varð að fresta kapp-
leiknum milli K. R. og
Fram, sem átti að fara fram í
gærkveldi.
Nú er ákveðið að halda kapp-
leikinn í kvöld.
Verður úrslitakeppnin í þess-
ari umferð síðan háð annað
kvöld milli Víkings og Vals.
sínu eigin landi. Heimsstyrjöldin
síðari brauzt út, en Finnar ætl-
uðu ekki að láta það á sig fá.
Ekkert var þeim kærara, en að fá
rússneska keppendur. Rússar
komu í veg fyrir, að úr þessu yrði
með árás sinni á Finnland. Pierre
de Coubertin lifði ekki að sjá
þessa síðustu atburði, en vonandi
koma þeir, sem halda uppi starfi
hans og láta ekki olympiska eld-
inn slokkna, þrátt fyrir ófrið og
hörmungar.
B. S. G.
LOFTÁRÁSIN Á PARÍS. Frh. af 1. síðu.
ið gerð á aðalflugvöll borgarinnar og nokkra aðra hernaðar-
lega þýðingarmikla staði. En Frakkar segja, að sprengikúl-
urnar hafi fallið víðsvegar um borgina, sérstaklega í vestur-
hluta hennar. Og því var lýst yfir í París í gærkveldi, að hjá
því gæti ekki farið, að þýzkar borgir yrðu að gjalda slíkrar
árásar.
45 manns eru taldir hafa beðið bana í loftárásinni og
149 sagðir vera meira og minna særðir.
Loftárásarmerkið var gefið í
París skömmu eftir hádegið í
gær og er fullyrt, að fólkið hafi
tekið árásinni með furðanlegri
ró. Margir hefðu þó hraðað sér
til loftvarnabyrgjanna, en aðrir
setið kyrrir í kaffihús'um og
matsölustöðum, og hvergi hrært
sig.
Loítvarnabyssur borgarinnar
hófu þegar í stað skothríð á á-
rásarflugvélarnar, en þær flugu
svo hátt, að þær sáust ekki af
götum borgarinnar. Skömmu
seinna fóru franskar orustu-
flugvélar einnig á loft og telja
Frakkar að 17 þýzkar flug-
vélar hafi verið . skotnar
niður yfir borginni og í ná-
grenni hennar áður en loftárás-
inni var hætt.
Sendiherra Bandarlk]-
anna slapp með naum-
indum.
Sprengikúlurnar komu víðs-
vegar niður á íbúðarhverfi
borgarinnar og hittu til dæmis
6skólahús og biðu 10 börn bana
í einu þeirra. Ein sprengikúlan
kom niður á veitingahús, þar
sem Mr. William Bullit, sendi-
herra Bandaríkjanna, sat við
hádegisverð ásamt Vuillemin,
flugmálaráðherra Frakka. Fór
kúlan í gegnum loft veitinga-
salsins og kom niður örskammt
frá sendiherranum, en svo ein-
kennilega vildi til, að hún
sprakk ekki.
Töluvert tjón varð á húsum
rúður brotnuðu, jafnvel inni í
miðri borginni, og götur eru
víða með djúpum gígum eftir
sprengikúlurnar.
DUNKERQUE. (Frh. af 1. s.)
er um að ræða, voru aðallega
notuð tiltölulega lítil herskip, að-
allega tundurspillar og ýms skip
smærri tegundar. Alls fórust 6
tundurspillar við flutningana og
hefir þriggja áður verið getið, !
en hinir eru „Keith“, 1400 smál. *
„Basilisk" 1360 smál. og „Ha- 1
vock“ 1340 smál. Hafa Bretar
þá misst 20 tundurspilla af 179,
sem þeir áttu í stríðsbyrjun. 4
HAIHU BIO
ICE-FOLLIES
með
JOAN CRAWFORD og
JAMES STEWART.
Enn fremur hinir heims-
frægu skautahlauparar
„The International Ice-
Follies“.
m éyja bio em
1 Hn ef al eikam el starinn
„KID GALAHAD“.
Aðalhlutverkin leika:
Bette Davis,
Edward G. Robinson,
Jane Bryan,
Humphrey Bogart og
Wayne Morris.
Börn fá ekki aðgang.
Jarðarför móður og tengdamóðir okkar, ekkjunnar
Álfheiðar Stefánsdóttur
frá Kirkjubrú á Álftanesi, sem andaðist 21. maí, fer fram frá
dómkirkjunni fimmtudaginn 6. júní og hefst með húskveðju á
heimili hennar, Laugavegi 147 A, kl. 1% e. h.
Jarðað verður í gamla garðinum.
Reykjavík, 4. júní 1940.
Fyrir hönd barna og tengdabarna. ,
Hallur Jónsson.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR.
StnndBm op stundnm ekhi
Sýning annað kvöld klukkan 8%.
LÆKKAÐ VERÐ.
Aðgöngumiðar frá 1,50 seld-
ir frá kl. 4 til 7 í dag.
Vegna Jarðarfarar verða
skrifstofur vorar lokaðar frá
kl. 12 á hádegi á morgun.
Sjóvátrygoingarfélag íslands H.f.
telja, að frekar megi spara flestar aðrar fæðu-
tegundir en
MJÓLK OG MJÓLKURAFURÐIR.
Þetta ætti hver og einn að hafa hugfast, ekki
sízt nú.
Berið mjólkurverðið saman við núverandi verð
á ýmsum öðrum fæðutegundum og minnist
þess, að verðið á skyri og mjólkurostum er enn-
þá óbreytt.
FORNSALAN, Hafnarstræti
18, kaupir og selur ný og notuð
húsgögn, lítið notuð karlmanna-
föt o. fl. Sími 2200.
ÚTSVARS- OG SKATTA-
KÆRUR skrifar Pétur Jakobs-
son, Kárastíg 12.
ÚTBREIÐIÐ ALÞÝÐUBLAÐIÐ