Alþýðublaðið - 10.06.1940, Qupperneq 3
— ALÞÝÐUBLAÐIÐ -----------------------------
Ritstjóri: F. R. Valdemarsson.
í fjarveru hans: Stefán Pétursson. Símar 4902 og 5021 (heima).
Ritstjórn: Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Símar: 4902: Ritstjóri. 4901: Innlendar fréttir. 5021: Stefán Pét-
ursson (hehna) Sellandsstíg 16. 4903: Vilhj. S. Vilhjálms-
son (heima) Brávallagötu 50.
Afgreiðsla: Alþýðuhúsinu gengið lnn frá Hverfisgötu.
Símar: 4900 og 4906.
Verð kr. 2,50 á mánuði. 10 aurar i lausasölu.
ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN H . JF .
Eimskipafélag íslands.
----4-:--
AÐALFUNDUR Eimskipafé-
lags íslands er allt af merk-
isatburður. Petta félag er eitt
þýðingarmesta og stærsta fyrir-
tæki, sem við íslendingar eigum,
og eitt af sterkustu vopnum okk-
ar til sóknar og vamar i sjálf-
stæðisbaráttu okkar afskektu
pjóöar.
EimskipafélagiÖ var stofnað,
r'étt áður en heimsstyrjöldin skall
á og byrjaði starf sitt á óvenju-
lega erfiðum tímum. Á þeim
tímum, sem nú eru, höfum við
fengið að reyna það, hve þýðing-
armikið þetta félag er fyrir okk-
ur 'öil'. Við höfum fengið að sjá,
hvar við væmm stödd, ef viö
ekki ættum Fossana okkar.
Aðalfundur Eimskipafélagsins
fyrir þetta ár var haldinn á
laugardaginn, og var þar lögð
fram skýrsla um starf félagsins á
síðasta ári. Skýrslan sýnir vax-
andi mátt þess og rnörg afrek.
Pað er aðeins eitt, sem mun
koma dálítið illa við ýmsa, að
svo virðist bæði af j>es6ari
skýrslu að dæma og skýrslum
síðustu ára, að félagið sé smátt
og smátt að færast yfir á hendur
færri og færri manna. Hlutabréf-
in lenda hjá fáum útvöldum
mönnum. — Ef þessu hekiu r á-
fram, fer ekki hjá þvi, að félagið
tapi sínum upphaflega svip,
þeim svip, sem mest hefir skapað
vinsældir þess, að það væri sam-
eign allrar þjóðarinnar. Sam-
kvæmt skýrslunni er hagur fé-
lagsins allgóður. Heildarhagn-
aður síðast liðins árs varð kr.
1 129495,01. Er það um helrn-
ingi betri útkoma en árið áður.
Þetta stafar meðal annars af
þcirri heppni félagsins, að því
tóikst að framlengja í ágústmán-
uði stríðstryggingu skipanna til
19. nóvember fyrir tiltölulega lít-
ið iðgjald. Eins Oig kunnugt er,
braUzt ófriðurinn út 1. sept. og
þá fóru vátryggingarnar tafar-
laust upp úr öllu valdi. Telur
stjórn félagsins, að þessi heppni
hafi sparað félaginu um 600
þúsundir króna. Hreinn ágóði
af rekstri félagsins síðast liðið
ár varð rúmlega 676 þúsundir
króna.
Á aðalfundinum var ákveðið
að borga hluthöfum 4°/o i arð, og
má segja, að það sé ekki tiltak-
anlega hátt, þegar á allt er litið.
Hins vegar er vitanlega nauðsyn-
Iegt á svona tímum, að hugsa
fyrst og fremst um að tryggja fé-
lagið sem allra bezt gegn áföll-
urn, og þau eru því miður fyrir-
sjáanleg. Það er til dæmis ekki
lítið'tap fyrir félagið, að Gull-
foss skuli allt af liggja aðgerða-
laus í .Kaupmannahöfn, og ó-
mögulegt er að segja, hvenær
hann losnar þaðan. Þá er það
vitanlega niikið tap fyrir félag-
ið, að siglingar við Norðurlönd
alveg stöðvaðar auk annara
landa, sem skip félagsins hafa
siglt til. Yfirleitt er ómögulegt
á þessu stigi að segja neitt um
það, hvaða leiðir verði færar fyr-
ir eimskipin okkar á næstu
mánuðum. Það getur jafnvel far-
ið svo, að siglingarnar til Ame-
ríku verði þær einu hugsanlegu.
Samkvæmt efnahagsreikningi fé-
lagsins, námu eignir þess um
áramótin kr. 4,2 milljónum eða
rúmlega það. Höfðu eignirnar
aukizt á árinu um 58 þúsund kr.
Skuldír félagsins að lilutafé með-
töldu, námu hins vegar um 2,8
milljónum, og er því hrein eign
um kr. 1,4 milljónir.
Eins og kunnugt er, var á-
kveðið, að félagið léti byggja hjá
Burmeister & Wain i Kaup-
mannahöfn nýtízku vandað far-
þegaskip, stærsta skip sitt.
Styrjöldin hefir nú orðið þar
þrándur í götu eins og annars
staðar — og þetta skip er því
enn að eins framtíðardraumur,
sem þó vonandi á eftir að ræt-
ast.
Á aðalfundinum voru mættir
Vestur-lslendingar þeir, sem hér
eru staddir, þar á meðal gestir
félagsins, Ásmundur P. Jóhann-
esson og Árni Eggertsson. Var
þeim sérstaklega fagnað á fund-
inum. Má almenningur við þetta
tækifæri minnast þess, að líklegt
er, að án hjálpar frá bræðium
ókkar vestan hafs hefði
ekkert getað oröið úr stofn-
un félagsins. Þeir réttu fram
styrka hjálpandi hönd, lögðu
fram svo mikið fé, að það nægði
t'il þess að hægt væri að gera
það, sem upphaflega var talið
nauðsynlegt. Er og áreiðanlegt,
að þessa verður lengi minnzt,
ekki aðeins í sögu Eimskipafé-
lagsins, heldur og i sögu lands-
ins.
Fyrirtæki eins og Eimskipafé-
lagið og Fossarnir þess eru þýð-
ingarmikil á svona tímum.
Við vonum aðeins að það missi
ekki hinn upprunálega tilgang
sinn, verði sameign þjóðarinnar,
rekið á lýðræðisgrundvelli, fyrir
alla hina íslenzku þjóð, en ekki i
ágóðaskyni fyrir fáa peniriga-
menn. **
DRENGJAFÖT, matrósaföt,
jakkaföt, frakkar. Sparta, —
Laugavegi 10, sími 3094.
ÚTSVARS- OG SKATTA-
KÆRUR skrifar Pétur Jakobs-
son, Kárastíg 12.
Plöntur og grænmeti selt dag-
ega frá kl. 9—12 á daginn við
Iteinbryggjuna og á laugardög-
im einriig á torginu við Njálsg.
)g Barónsstig.
Útbrciðið Alþýðublaðið.
ALI»YÐUBLAÐIÐ mánudagur 10. jUni 1940.
Miklar umbætur þarf að gera
á gisti og greiðasölustöðum
——■—♦—--
Mðrffum er svo ábótavant að þjóðarskðmm er að
HÖRÐUR BJARNASON ar-
kitékt hefir af ríkisstjórn-
inni verið skipaður til að hafa
eftirlit með greiðasölustöðum
og gistihúsum í landinu. Hann
er ráðunautur skipulagsnefnd-
ar og á að hafa þetta starf með-
iram.
í fyrrasumar var Björn
Blöndal Jónsscn lóggæziumað-
ur settur til að rannsaka ásig-
komulag gist'húsa og greiða-
sölustaða. Varin hann það verk
af mikilli kostgæfni, rannsak-
aði um 5d siika staði um land
allt og gaf ríkisstjórninni
skýrslu um ástand þeirra og að-
búnað og bar irem ýmsar 1)1-
lögur til úrbóta. — Ekki er
kunnugt um að neitt hafi verið
gert til að fara að tillögum
Bjarnar eða koma á umbótum á
gististöðunum samkvæmt um-
sögn hans, enda mun ný laga-
fyrirmæli hafa þurft tiL Ef til
vill á hinn ungi og efnilegi
frömuður bætts skipulags og
fegurðar nú að hafa fram-
kvæmdina á hendi — og væri
það vel ef svo væri. Verður og
að vona að hann taki málið föst-
um tökum, þó að það kunni að
vera óvinsælt, þar sem svo
margir menn eiga í hlut. En
líklegt er, að honum reynist erf-
itt að koma á umbótum, meðan
lög eru ekki fyrir hendi.
I fyrra sumar skrifaði ég um
nokkra greiðasölustaði, aðal-
lega hér í nágrenninu, og þá
fyrst og fremst Valhöll á Þing-
völlum, Hveragerði í Ölfusi og
Haukadal í Biskupstungum. Ég
reyndi að vera mjög sanngjarn
í þessum skrifum mínum, svo
að ekki væri hægt að segja, að
verið væri að ráðast gegn for-
ráðamönnum þessara gististaða,
enda held ég ekki, að neitt hafi
verið ofsagt og að miklu fremur
hafi of mörgu verið sleppt.
Hygg ég að það myndi sann-
ast, ef skýrsla Björns Blöndals
Jónssonar til ríkisstjórnarinnar
yrði birt, en því miður hefir
það ekki verið gert, og hefir
mér verið tjáð, að ekki sé fyrir-
hugað að birta hana, þar sem
hún sé talin trúnaðarmál. En
þess er þá að minnsta kosti að
vænta, að ríkisstjórnin sjálf
hagnýti sér þá skýrslu svo, að
gerðar verði loksins þær um-
bætur á gistihúsum og greiða-
sölustöðum, sem nauðsynlegar
eru, ef sóma okkar og heilsu
gestanna á ékki að standa hætta
af í framtíðinni.
Það er fyrir löngu vitað mál,
að gistihúsahald og greiðasala
hér á landi hefir verið okkur til
skammar og borið það orð af
okkur, að til lítlis sóma hefir
verið fyrir landið og þjóðina.
Þetta lága stig menningar okk-
ar hefir einna berlegast komið
fram í því, að á fæstum slíkum
samkomustöðum héfir verið
hæfur staður fyrir mannlegar
nauðþurftir. Hefir svo ramt
kveðið að þesu, að engu tali tek-
ur, og það jafnvel á hinum allra
—---------
stærstu og fjölsóttustu gisti-
stöðum. Verður hér mikið verk
að vinna fyrir hinn nýja eftir-
litsmann. Þá er dæmafár sóða-
skapur ríkjandi á mörgum gisti-
stöðum, hin vítaverðasta van-
hirða um drykkjarvatn, rúm
víðast hvar of lítil, meðferð á
mat hin sóðalegasta og þvottur
á matarílátum og öðrum tækj-
um á borði mjög af skornum
skammti.
Ég fullyrði það, að ef gestir
hefðu almennt vitað, hvernig
farið er með mat á sumum
gististöðum landsins, þá hefði
enginn maður heimsótt þá til
að kaupa þar mat undanfarin
sumur.
Vitanlega eiga ekki allir
gististaðir landsins hér óskilið
mál. Mörg gistihús eru ákaflega
hreinleg og fara vel með allt, en
þau eru ótrúlega mörg, sem
framanritað á við.
Ég skrifaði nokkuð um Val-
höll á Þingvöllum í fyrra sumar
og ég hafði ástæðu til að halda,
að núverandi gestgjafi þar
myndi ekki reka gististaðinn í
sumar. Engin byeyting virðist
ætla að verða á þesu, og mun
gestgjafinn þó fús til að hætta.
Ég taldi líklegt að Þingvalla-
nefnd myndi sjá sóma sinn í því
að koma þarna upp sómasam-
legum gististað þegar í sumar,
en annaðhvort virðist hana
skorta vald til þess eða vilja.
Væri enn verra, ef hið síðara
væri rétt, því að það bendir til
þess að jafnvel þeir, sem völdin
hafa, hafi ekki skilning á því,
um hve þýðingarmikið menn-
ingarmál er hér að ræða, — og
þá er engin von á umbótum.
Liggur ef til vill í þessu skýr-
ingin á því, að enn hefir ekkert
verið gert, og má þá búast við
litlum árangri af starfi Harðar
Bjarnasonar, þó að hann reynist
allur af vilja gerður til að bæta
um það, sem aflaga fer, en það
er áreiðanlega miklu fleira en
menn hafa almennt hugmynd
um.
Það er hins vegar ekki rétt
að vera með neinar hrakspár.
Ungur framadjarfur umbóta-
maður hefir nú verið settur í
þetta vandasama starf og þess
er að vænta að hann taki það
föstum tökum og fái því til leið-
ar komið, að gististaðir og
greiðasölu verði ekki framveg-
is smánarblettur á þjóðinni eins
og þeir hafa verið margir hverj-
ir undanfarið, ef það kemur þá
ekki upp úr kafinu að heimild
skorti til að gera nokkurn skap-
aðan hlut.
VSV.
Verkafélk!
Ráðningarstofa laníbúnaðar-
ins í Alþýðuhúsinu
er opin kl. 6—9 síðdegis alla
virka daga nema laugardaga.
SÍMI 13 2 7. " V5
Margar ágætar vistir i boði.
Til brúðargjafa.
Fyrsta flokks handslípaður kristall og ekta kúnst-keramik,
K. Einarsson & Björnsson
K. fi. B. S.
Syngnr nœst I Gamla Bló mið>
vlkadaginn 12. jilnf klnkkan 7,15
með áðstoð
Carls BUUch
Agönyumiðar seldir á morgun í bökaverzlun
Sigfúsar Eymunndss. og Hljöðfæráverzlun
Sigriðar Helgadóttur