Alþýðublaðið - 19.06.1940, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 19. JONÍ 1940
Öll prentun fljótt og
vel af hendi leyst.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
»
MIÐVIKUDAGUR
Næturlæknir er Kristín Ólafs-
dóttir. Ingólfsstræti 14. sími 2161.
Næturvörður er í Laugavegs- og
Ingólfsapóteki.
ÚTVARPIÐ:
19.30 Hljómplötur: Frægar söng-
konur.
20.00 Fréttir.
20.30 Erindi: Þorvaldur Bjarna-
son prestur að Melstað; 100
ára minning (dr. Jón Helga-
son biskup).
20,55 Útvarpshljómsveitin leikur.
21.10 Erindi: 19. júní 1915 (ung-
frú Inga Lárusdóttir).
21,35 Útvarpshljómsveitin leikur.
MæÖi'astyrksneínil
hefir í hyggju að halda úppi 1
sumar starfsemi með líku sniði og
að undanförnu. Meðal annars með
því að starfrækja heimili fyrir
mæður og börn, eins og hún hefir
gert undanfarið. Frekari upplýs-
ingar verða gefnar á skrifstofu
nefndarinnar, Þingholtsstræti 18,
kl. 5—7 daglega. Nánar verður
sagt frá þessu í blaðinu á morgun.
„Forðum í Flosaporti“
revyan 1940 verður sýnd annað
kvöld kl. 8/2 vegna áskorana.
Leikfélagið
sýnirs skopleikinn „Stundum og
stundum ekki“ í kvöld kl. 8%.
Gullbrúðkaup
eiga í dag Guðrún Baldvinsdótt-
ir og Halldór Magnússon, Klöpp í
Selvogi.
Önnur umferð
Reykjavíkurmótsins hefst í
kvöld með kappleik milli Víkings
og K. R.
Vegna fjölda áskorana víðs
vegar að verður
Sýning annað kvöld kl. 8V2.
Aðgöngumiðar seldir í dag frá
kl. 4—7. Sími 3191.
ST. EININGIN nr. 14. Fundur
í kvöld kl. 81/a. Nýtt tríó:
Systur úr stúkunni syngja.
STÚKAN MÍNERVA nr. 172.
Fundur í kvöld á venjulegum
stað kl. 8,30. Félagsmenn
fjölmennið.
Æðsti templar.
I ........... ... ...
Plöntur og grænmeti selt dag-
lega frá kl. 9—12 á daginn við
Steinbryggjuna og á laugardög-
um einnig á torginu við Njálsg.
og Barónsstíg.
Karlmannsarmbandsúr fund-
ið. Upplýsingar hjá Jóni A-
gústssyni, Alþýðuprentsmiðj-
unni til kl. 5.
i------------------------
Atvinna.
Atvinnufyrirtæki til
sölu. Tpygg atvinna
Sími 3749.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.,
Alþýðuhúsinu, Hverfis-
götu 8—10. Sími 4965.
Morgunn,
1. hefti tuttugasta og fyrsta ár-
gangs er nýkomið út.
\
Gagnfræðaskóla Reykvíkinga
var sagt upp nýlega. Um 130
nemendur stunduðu nám í skól-
anum í vetur. Undir gagnfræða-
próf gengu 64 nemendur. Hæstu
einkunn hlaut Kristín Matthías-
dóttir, 8,41. Alls fengu 17 gagn-
fræðingar 1. einkunn, þar af 3 yfir
8 í aðaieinkunn. 26 nemendur
fengu 2, jeinkunn frá 6 upp í 7,25.
17 hluífcu 3. einkunn, en fjórir stóð-
ust ekki prófið.
Silfurbrúðkaup
eiga í dag frú Dagmar Finn-
bjarnardóttir og Sigurður Sig-
urðsson vélameistari, Skólavörðu-
Stíg 46,
Sigurður Sigurðsson.
Vetrarbraut 15 á Siglufirði, varð
99 ára í fyrradag. Hann er nú og
hefir verið um skeið rúmfastur.
Sjónina missti hann fyrir nokkr-
um árum. en er þó enn ern í anda
og fylgist vel með öllu, sem ger-
ist. Hann bjó lengst af á Þórustöð-
um í Kaupangssveit, en síðastliðin
15 ár hefir hann dvalið hjá dóttur
sinni- Valgerði og tengdasyni sín-
um Guðmundi Bíldal.
Snmarðvöi Reykja-
vfkarbarna.
FORELDRAR, sem hafa
óskað eftir fyrirgreiðslu
Rauða Kross íslands til þess að
koma börnum sínum til sumar-
dvalar í sveit, eru beðnir að
vera við því búnir í dag og
næstu daga að útfylla umsókn-
areyðublöð, sem kennarar
koma með heim á heimilin, og
svara eftirfarandi fyrirspurn-
um í því sambandi:
Um sveitaheimili:
a) Hefir framfærandi auga-
stað á heimili?’
b) Er heimilt að ráðstafa
barninu á heimili, sem talið er
heilbrigt og gott?
c) Getur framfærandi búið
barnið í sveitina og kostað ferð-
ir og dvöl?
Um sumarhæli:
a) Hvað getur framfærandi
greitt á mánuði?
b) Getur barnið haft með sér
koddaver, sængurver og lök
(ein til tvenn)?
Skrifstofa Rauða krossins
svarar fyrirspurnum í síma
5063 og 4658 kl. 10—12 og 2—5.
Framkvæmdanefndin.
leflQtaskéliBR á Ak-
ureyri Aískrifaði 3$
stUeata I lor.
¥ FYRRADAG var Mennta-
skólanum á Akureyri slitið.
AIls útskrifuðust 38 stúdentar,
16 úr stærðfræðideild og 22 úr
máladeild.
Hæstu einkunn í máladeild
hlaut Haraldur Kröyer, 7,33
stig og í stærðfræðideild Ragn-
ar Thorarensen, 7,15 stig.
77 gagnfræðingar voru út-
skrifaðir, þar af 11 utan skóla.
Hæstu einkunn hafði Úlfar
Ragnarsson, 7,13 stig.
Fyrsti hersveitir San
adamanna komnar
til ísiands.
Töj/S’ ACKENZIE KING, for-
sætisráðherra Kanada,
skýrði frá því í ræðu á þingi í
Ottawa í gær, að fyrstu her-
sveitir Kanadamanna, sem
sendar yrðu til íslands, væru nú
komnar þar á land.
Frumvarp til laga um her-
skyldu hefir nú verið lagt fyrir
Kanadaþingið, og er búizt við
að það verði afgreitt sem lög
þegar í dag.
Rðtíðahöld á Aknr-
eyri 17. jðní.
A HÁTÍÐAHÖLDUNUM á
•*"*■ Akureyri 16. og 17. júní
voru það gömlu mennirnir, sem
settu svip sinn á íþróttakeppn-
irnar.
I knattspyrnu kepptu menn frá
40 ára og uppyfir séxtugt við
mikinn fögnuð áhorfenda.
Þá kepptu í boðsundi menn á
sama aldri. Sigraði sveit Snorra
Sigfússonar slSðilastjóra. T’ór
keppnin slysalaust fram, en á
aðalæfingunni sökk einn maður-
inn tvisvar og. varð sundkennar-
inn að bjarga honum.
STRÍÐIÐ í FRAKKLANDI.
Frh. af 1. síðu.
megin við Orleans, viö Blois að
suðvestan verðu og Nevers, all-
langt fyrir suðaustan Orleans.
Austar eru þeir komnir til Aut-
un og Chalon sur Saöne. Og
enn austar reyna Pjóðverjar að
sækja fram suður með landamær-
um Sviss og hefir franska her-
stjórnin gert ráðstafanir til þess
að girða fyrir þá hættu, sem
Alpaher þe’rra kann að stafa af
því,
1 fregnum Frá Frakkla'ndi seg-
•ir, að Þjóöverjar hafi tekið upp
á því, að nota hvíta fána f
blekkingarskyni, á vigstöðvunum.
Herlið Bandamanna, flugher og
floti, hefir Verið aðvarað og það
er tekiÖ skýrt fram að ekkert
vopnahlé hefir enn verið samið.
ÁVARP FRANSKS HERFOR-
INGJA I LONDON.
Frh. af 1. síðu.
framhaldandi baráttu gegn Hit-
Ier, hvað sem gerist á Frakk-
landi.
Það bezta er aldrei of gott!
Daglega nýtt
Nautakjöt
Hakkað kjöt
Hangikjöt
Kjötfars
Kjöt af fullorðnu.
Kindabjúgu
Miðdagspylsur
Folaldakjöt
Enn fremur allan áskurð.
Jén Mathiesen.
Símar 9101 — 9102.
amerísk kvikmynd. Aðal
hlutverkin leika:
LUISE RAINER og
PAULETTE GODDARD.
NVJA BIO 1
Fléítinn írð Spáni.
Spennandi og viðburðarík
amerísk kvikmynd frá
FOX, er gerist á Spáni um
það leyti er borgarastyrj-
öldin brauzt þar út. Aðal-
hlutverkin leika:
LORETTE YOUNG og
DON AMECHE.
„BORRAH MINEVITCH1.
LEIKFELAG REYKJAVIKUR.
Stiiudiioi og stDttdnm ekki
Sýning í kvöld klukkan 8%.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl.
1 í dag.
w©riiir aH Hófel Rergf IfiMfiida^
inn 20. |úní kfiukkan 10 e.li.
Aðgongnmidar á kr. 3,5® seldir vlð
suðurdyr héfelsins frá kl. 2 sama dag, og
við tnnganglnn.
MraOferOir alla dagu
Bifrefðastðð Aknreirar. Bifreiðastðð Stemðórs.
Ávarp til Hafnlirðinga.
SVO sem yður er kunnugt er verið að gera ráðstafanir til þess
að koma börnum burtu úr bænum vegna ófriðarhættu og
fá handa þeim griðastaði úti í sveitum.
Þessar ráðstafanir kosta mikið fé, og foreldrar margra þeirra
barna, sem koma þarf í burt, eru ekki svo efnum búnir, að þeir
geti greitt dvalarkostnað þeirra.
Reynt verður að afla fjár til þessa með ýmsu móti, og meðal
annars verður leitað eftir frjálsum samskotum meðal borgara
bæjai'ins.
Næstu daga munu skátar og kennarar koma til yðar og leita
eftir, hvað þér getið látið af mörkum, og væntum vér þess, að
þér leggið þann skerf til þessarar mannúðarstarfsemi, sem þér
sjáið yður fært að hafa hann drýgstan. Ekkert framlag er svo
smátt, að ekki muni, og enginn mun geta miðlað svo miklu, að
ekki sé brýn þörf fyrir meira.
Vér væntum þess, að allir Hafnfirðingar tíregðist vel við
þessari beiðni og drengilega, því að sjaldan mun hafa verið heit-
ið á þegnskap þeirra og rausn til stuðnings þarfara máli.
í skólanefnd: í Barnaverndarnefnd:
Valdimar Long. Eiríkur Björnsson.
Ingvar Gunnarsson. Björn Jóhannsson.
Ólafur Þ. Kristjánsson. Ragnheiður Jónsdóttir.
Stefán Jónsson. Sigurgeir Gíslason.
Stefán Júlíusson.
Guðjón Guðjónsson.
skólastjóri.