Alþýðublaðið - 22.06.1940, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ÁRGANGUR
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1940.
143. TÖLUBLAÐ
Skilmálar Þjóðverja afhent-
ir Frökkum siðdegis i gær.
----«---
Á sama stað og í sama Járnbrautarvagni og
Þjóðverjum í lok heimsstyrjaldarinnar 19181
Frðkkum var tflkpot að pelr pðn að
fallasf á þá óbreytta eða hafna peim.
Æflir ð að fiytja
bðra.
RÍKISSTJÓRNIN hefir
ákveðiS að styðja á
allan hátt að því, að hörn
geti farið í sveit í sumar.
Þegar hefir verið ákveð-
ið að Ægir flytji börn, sem
eiga að dveíja í skólunum
að Núpi í Dýrafirði og að
Reykjanesi við ísafjarðar-
djúp. En auk þess verða
fleiri skólar teknir.
gæðar af svðtum
alpiagishðssins.
SAMNINGAMÖNNUM FRAKKA voru afhentir vopna-
hlésskilmálar Þjóðverja í Compiégneskógi á Norður-
Frakklandi síðdegis í gær, að Hitler viðstöddum.
Voru skilmálarnir afhentir af Keitel hershöfðingja
með þeim ummælum, að Frakkar yrðu að fallast á þá ó-
hreytta, eða hafna þeim að öðrum kosti. Tók hann það fram, ♦
að skilmálarnir væru í aðalatriðum faldir í þessu þrennu:
1) að tryggja það, að Frakkar gætu ekki aftur gripið
til vopna.
t" 2) að tryggja Þýzkalandi aðstöðu til þess, áð það gæti
haldið áfram stríðinu gegn Englandi, og
3) að skapa skilyrði fyrir friði, sem bætti úr þeim úrétti.
sem Þýzkaland hefði verið beitt.
Engar nánari fregnir hafa borizt af því, hvað skil-
málarnir hafa inni að halda.
Samningamenn Frakka hafa síðan í gær staðið í símasam-
handi og loftskeytasambandi við stjórn sína, sem enn er í Bor-
deaux. Stjórnin hélt fund þar í morgun, en ekkert hefir heldur
verið látið uppi af hennar hálfu um skilmála Þjóðverja.
Hvarvetna utan úr heimi rignir áskorunum frá Frökkum
yfir stjórnina, í Bordeaux um að halda stríðinu áfram þar til yfir
lýkur og ga'nga að tilboði hrezku stjórnarinnar um hrezk-franskt
sambándsríki.
kvölsl að Hótel Borg.
\T ESTMANNADAGUR-
® . INN er á morgun.
Hann hefst með f>ví, að Lúðra-
sveit Reykjavíkur leikur á Aust-
urvelli kl. 2, en síðan tala af
svölum alhingishússins Jakob
MöIIer fjármáiaráðherra og Gunn-
ar B. Björnsson, sem flytur
kveðju frá Vestur-íslendingum
Kl. 8,30 um kvöldið hefst kynn-
ingarkvöld að Hótel Borg. Ræð-
ur flytja Ásgeir Ásgeirsson, Ás-
munður P. Jóhannsson, Árni Egg-
ertsson og séra Friðrik Hall-
grímsson. Karlakórinn Fóstbræð-
ur syngur og flutt verður kvæði
til vestur-íslenzku gestanna, eftir
Jakob Thorarensen. Dansað verð-
ur síðan fram eftir nóttu. Auk
þessa eru mörg önnur skemmti-
atriði. Það má fullyrða, að þarna
verður mjög skemmtilegt og
frjálsmannlegt.
Þeir, sem unna aukinni vin-
áttu milli okkar og Vestur-íslend-
inga, taka öflugan þátt í Vest-
mannadeginum.
Munið, að tryggja ykkur að-
göngumiða að Hótel Borg. Þeir
eru sefdir í afgreiðslu Mgbl. í
dag og til hádegis á morgun, en
síðan að Hótel Borg og kosta
kr. 2,50.
Kort af Norður-Frakklandi.
Nokkru ofar á kortinu en París og lítið eitt lengra til hægri, þar
sem fljótin Oise og Aisne renna saman, sést bærinn Compiégne.
í skógi skammt þaðan fara samningaumleitanirnar fram.
SiMweilarnar sieta
viU»
efiast.
Stjórain ákveðnF að greiða 12 kr. á mál.
—------<.------
¥©ii mm Mseira wertl pegar
mliiffiMiiMii wili Hreta er tokll.
Það reyndist rétt, sem orð-
rómurinn bar út í gærmorgun:
Hitler valdi Compiégneskóginn
á Norður-Frakklandi, þar sem
fulltrúar Þjóðverja skrifuðu
undir vopnahlésskilmála Banda
manna þ. 11. nóvember 1918 í
lok heimsstyrjaldarinnar, sem
samkomustað fyrir samninga-
menn Frakka og Þjóðverja, sem
nú eru að ræða um vopnahlé.
En honum nægði það ekki: —
Hann hafði séð fyrir því, að
fulltrúar Frakka yrðu einnig að
hlýða á vopnahlésskilmála
Þjóðverja nú í sama járnbraut-
arvagni og fulltrúar Þjóðverja
haustið 1918. En sá járnbraut-
arvagn hefir alla tíð síðan verið
varðveittur í Compiégneskógi.
Þýzku blöðin draga enga dul
á það, að með þessu hafi átt að
lítillækka Frakka, en allt annað
fyrirkomulag fundarins í gær
var líka eftir því.
Þegar samningamenn Frakka
komu í bifreið frá París síðdeg-
is í gær, kl. 15.35, og stigu inn
í járnbrautarvagninn, var Hitl-
er þar fyrir, sitjandi við borð,
og sátu öðrumegin við hann
Göring marskálkur, von Brau-
chitsch yfirhershöfðingi og Kei-
tel yfirmaður þýzka herfor-
ingjaráðsins, en hinum megin
För Hitler af ótta
Tö REZKA útvarpið gat
þess í gærkveldi, að
í hinni opinberu frásögn
Þjóðverja um fundinn í
Compiégneslsógi héfði
vandlega verið þagað um
fulltrúa Breta, sem þar
hefðu verið viðstaddir.
Þessi umrnæli útvarps-
ins eru af ýmsum skilin á
þá leið, að hrezkar flugvél-
ar hafi verið á sveimi yfir
skóginum.
í sambandi við það er
berft á fréttina um hina
skyndilegu brottför Hit-
lers og fylgdarmanna hans
af fundarstaðnum.
von Raeder sjóliðsforingi, Ru-
dolf Hess, staðgengill Hitlers í
nazistaflokknum, og von Rib-
bentrop utanríkismálaráðherra.
Flitler heilsaði- frönsku samn-
ingamönnunum með nazista-
kveðju. Síðan gaf hann Keitel
hershöfðingja orðið, og las hann
Frh. á 4. síðu.
ö ÍKISSTJÓRNIN ákvað í
gær að greiða 12 kr. á
síldarmál í smnar og er
það óaíturkræf fyrirfram-
greiðsla.
Tilkynning ríkisstjórnarinnar
um þettá, sem gefin var út í
gærkveldi, er svohljóðandi:
„Undanfarnar vikur hefir
ríkisstjórnin unnið að því, að
tryggja rekstur síldveiðiflotans
á þessu sumri, bæði með því að
stuðla að aðdráttum nauðsynja
útvegsins, sem og með því að
láta vinna að sölu afurðanna.
Aðdrættir hafa nú að mestu
verið tryggðir, en hins vegar
hefir enn ekki tekizt að selja
afurðirnar.
Ríkisstjórninni hefir að sjálf-
sögðu verið Ijóst, að síldveiðar
mega með engu móti falla nið-
ur .Tók ríldsstjórnin því fyrir
alllöngu þá ákvörðun að gera
ráðstöfun til þess að flotinn
gæti hafið veiðar og síldarverk-
smiðjur ríkisins byrjað að veita
síld móttöku eigi síðar en í lok
þeirrar viku, sem nú er að líða,
enda þótt eigi hefði tekizt að
selja afurðirnar innan þess
tíma.
Ríkistjórnin hefir nú gert
þessar ráðstafanir og hefir
Landshanki íslands fyrir milli-
göngu ríkisstjórnarinnar heitið
því að gera verksmiðjum ríkis-
ins kleift að hefja starfrækslu
og greiða út á síldina 12 krónur
á málið, sem er óafturkræf fyr-
irframgreiðsla, en síldin verð-
ur að öðru leyti fyrst um sinn
tekin til vinnslu á áhyrgð síld-
areigenda.
Frekari upplýsingar um mál-
ið geta menn fengið hjá stjór*
síldarverksmiðja ríkisins.“
Jafnframt hefir stjórn síldar-
verksmiðja ríkisins ákveðið að
hefja starfrækslu verksmiðj-
anna nú þegar.
Eins og fram er tekið í til-
kynningu ríkisstjórnarinnar er
12 kr. greiðslan á mál bráða-
birgða lágmarksgreiðsla, en
þess er fastlega vænst, að við
endanlega samninga við Breta
takist að ná því, að unnt verði
að greiða hærra verð fyrir síld-
ina.
Eins og tekið var fram hér í
blaðinu í gær, standa enn yfir
samningar við Breta. Fyrir
nokkrum dögum kom samn-
ingatilboð frá brezku stjórninni
til íslenzku stjórnarinnar, sem
hún hefir síðan haft til ná-
kvæmrar athugunar ásamt við-
skiptanefnd, og hefir ríkis-
stjórnin svarað því tilboði með
tillögum af sinni hálfu, og mun
viðskiptanefndin síðan halda á-
fram viðræðum við brezku full-
trúana.
Talið er líklegt að vélbáta-
flotinn byrji nú síldveiðar, en
hins vegar er ekki ólíklegt að
togarar og línuveiðarar haldi
enn áfram ísfisksveiðum og
sölu.
60 ára
er n.k. mánudag, 24. þ. m., frú
Nikolína J. Þorsteinsdóttir, Ljós-
vallagötu 8.