Tíminn - 08.03.1963, Side 1

Tíminn - 08.03.1963, Side 1
 ► M ► benzín eda diesel HEKLA 57. tbl. — Föstudagur 8. mari 1963 — 47. árg. ER UOSeiAHf: MB-Reykjavík, 7. marz. — Um daginn komst netabátur frá Patreksfirði í sæmilegan afla út af Bjargtöngum og var þar að huga að netum sínum. Bar þar þá að togara á norðurieið og mun togara- mönnum hafa þótt forvitni- legt að reyna þar sem bátur- inn var, og létu troliið fara. Segir svo ekki af veiðum, en tólf tímum seinna voru 27 tog Framh. á bls 15 FANN UPP VEL, SEM VEIÐIR Á HANDFÆRI KNUDSEN AЄSKJOTA“A HKL — BAKSIÐA Sýningar á nýjum kvikmyndum eftir Ósvald Knudsen eru að hefjast. F réttamenn sáu nýju myndirnar hans í gær, og þótti hafa tekizt vel. — Myndirnar eru fjórar. Ein þeirra er um Halldór Kiljan Laxness, eina Nóbelsverðlaunaskáldið okkar. Sú mynd er tekin af HKL á ferðalögum eða heima að Gljúfrasteini. Á myndinn hér að neðan er Ósvaldur að kvikmynda Laxness við heimkomuna frá Stokkhólmi. FENGU TOGARAFARM AF ÞORSKI í NÓTINA! MB-Reykjavík, 7. marz Aflaskipið Víðir II. úr Garði! hefur að öllum líkindum í dag i fengið sfærsta kast, sem sögur fara af í þorskanót. Enginn | veit með vissu, hversu mikið var í nótinni, því Ægir karl- inn fékk megnið af því aft- ur, en það sem var í pokanum! náðist og var nálægt 35 tonn- um. Skipið fékk þetta stóra kast í Reykjanesröstinni, en þar er erfitt að athafna sig, eins og gefur að skilja. Gekk illa að ná nótinni inn og mun hún eitthvag hafa rifnað í viðureigninni, en Víðir kallaði á aðra báta til aðstoðar. Voru nokkrir þeirra komnir á vettvang, um það er lauk. Voru menn á einu máli um það, að magnið hefði verið gífurlegt. Heyrzt hefur að sumir hafi gizkað | á upp undir tvö hundruð tonn,! en þótt alltaf sé varlegt að trúa • sögum um þann sem sleþpur, er; cngum blöðum um það að fletta, að magnig hefur verið mikið. Blaðið hafði í kvöld tal af Víði Sveinssyni, skipstjóra á^ Víði II. Ilann var hógvær að vanda og tsldi ekki unnt að segja til um þag með nokkurri vissu, hvert magn hefði verið í nótinni, en mikið hefði það verið. Hann kvað sig og skipverja sína telja það í hefði verið mun meira ei^ stóra 1 kastið á dögunum,- *er þeir fengu 76.5 tonn. Þeir fundu þorskatorf- una nú með lóíningum, án þess ?ð lóða á loðnu. Þarna virtist eng ín loðna vera, aðeins þorskatorfa. Hafa þeir Víðismenn ekki áður fundið slíka þorskatorfur á þorska nótaveiðunum. „Þag er erfitt að segja, hversu mikið var í nótinni", I Framh a bls 15 MB-Reykjavík, 7. marz. íslenzkur hugvitsmaður, Jón Þórðarson, verkstjóri á Reykja lundi, hefur fundið upp vél, sem notuð er á handfæraveið- um og hefur gefið mjög góða raun, þar sem hún hefur ver- ið reynd, Virðist hún geta sparað vinnuafl við „skakið" um helming. Vélar þessar taka að miklu leyti við störfum hásetans. Þær slaka færinu út i vissa lengd og síðan fylgist maður með því, hvort bit- ig hefur á. Þegar fiskur er á, þarf ekki annað en koma við handfang þá dregur vélin fiskinn upp í yfir borðið og stanzar þá sjálfkrafa, byrtur. Vélin er þanig útbúin, að Komi yfir visst átak á línunni, slakar hún sjálfkrafa á, þannig, að fkki er hætta á, að íærig slitni og einnig tekur hún slaka af. Einnig er hægt að setja í sam- band þannig útbúnað, að þegar fiskur bítur á og kippir í færið, dregur vélin sjálfkrafa upp fær- ið Þessu er þó nær ómögulegt að koma við á sjó, þar eg báturinn hlýtur alltaf að kippa nokkuð i færið, séu um öldur að ræða. Einn maður getur gætt tveggja tii þriggja slíkra véla, og maður sá, er reynt hefur þessar vélar, skipstjórinn á Kristínu, RE-45, hef ur gefig þeim mikil og góð með- mæli og telur manninn geta dreg- íð helmingi meira með slíkum vél- um en án þeirra. Þess skai getið, að vélar, er gegna sama hlutverki, hafa verið á boðstólum hér fyrr. Þær eru af erlendri gerð, en munu miklu dýr ari en hin innlenda uppfinnng, sem er vökvadrifin, kemur til með að verða. Mun a. m. k. verða helm ingsmunur á veiði hennr og sumra erlendra tækja af svipaðri gerð. Jón mun nú hafa í huga að hefja framleiðslu á þesari uppfinningu sinni og mun það ráðast fljótlega og þá verðm nánar skýrt frá henni hér í blaðinu. FL UTTIR INN MB-Reykjavík, 7. marz. f dag var flugstjórn í gamla flugturnmum á Reykjavíkur- flugvelli hætt og síðasti hluti starfseminnar fluttur yfir í nýja flugturninn. Var þar um að ræða Flugvallar og aðflugs- stjórn Reykjavíkurflugvallar. Hingað til hefur allri um ferð um Reykjavíkurflugvöll sjálfan svo og aðflugi að hon- um verið stjórnað úr gamla flugturninum. Þar hafa ag stað aldri verið tveir menn á vakt og þeir liafa „tekið við“ flugvéi unum, er þær áttu skammt eí. ir tii flugvallarins, gáfu þeim Framhald a 15 siíb Mynd þessa tók RE, þegar verið var að leggja síðustu hönd í nýja flugturninum. —

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.