Alþýðublaðið - 02.07.1940, Page 1
RITSTJORI: STEFAN PETURSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ÁRGANGUR
ÞRIÐJUÐAGUR 2. JÚLÍ 1940.
149. TÖLUBLAÐ
Stefnnbreyting í Rúmení
---♦.
Argesanu hershöfðingi, utan-
ríkisráðherra Rúmeníu.
---------------------------------♦
Afsalar sér ábyrgð Bret-
lands og leitar samvinnu
við Þýzkaland og Italíu.
U INN NÝI UTANRÍKISMÁLARÁÐHERRA RÚMEN-
ÍU Argesanu herforingi, skýrði frá því eftir fund,
sem stjórnin í Búkarest hélt í gær, að Rúmenía myndi taka
upp nýja stefnu í utanríkismálum vegna þeirrar nýju skip-
unar, sem verið væri að koma á í Evrópu.
Jafnframt lýsti hann því yfir, að Rúmenía afsalaði sér
þeirri ábyrgð, sem England og Frakkland hefðu tekið á sjálf-
stæði hennar, en hún átti að vera 1 því falin, að England og
Frakkland kæmu Rúmeníu til hjálpar, ef á hana væri ráðizt.
Brezkir stjórnmálamenn líta þannig á þessar yfirlýsingar,
að Rúmenía hafi nú ákveðið að leita samkomulags við Þýzka-
land, og Ítalía, ef til vill í voninni um að þau verndi hana gegn
írekari ágengni Rússlands, og að utanríkispólitík hennar verði
framvegis raunverulega stjórnað frá Berlín og Rómaborg.
Bretar gera Laugar-
nesspítala að sjfikra
hfisi fyrir hernenn!
AKVEÐIÐ hefir verið að
taka Laugarnesspítalann
fyrir hermannaspítala. Verða
holdsveikissjúklingarnir fluttir
þaðan og í Kópavogshælið, en
sjúklingarnir þaðan fara á
berklahælin og önnur sjúkra-
hús.
17 sjúklingar eru nú í Laug-
arnesspítala og hefir þeim far-
ið stöðugt fækkandi á undan-
förnum árum.
SVEINN BJÖRNSSON
sendiherra, fyrsti
formaður Rauða Kross Is-
lands, talaði í gær við blaða-
menn um starfsemi Rauða
Krossins og þýðingu hennar.
■ Rauði Krossinn var stofnaður
fyrir 15 árum og er ekki hægt
að segja, að mikill áhugi væri
fyrir stofnun deildarinnar hér,
en R. Kr. er alþjóðlegur félags-
skapur, kunnasti líknarfélags-
skapurinn, sem starfar í heim-
inum.
Rauði Krossinn hóf þó starf-
semi sína og fékk viðurkenn
ingu alþjóðaskrifstofunnar í
Genf. Smátt og smátt óx starf-
semin og efldist að vinsældum
og nú er svo komið, að hann
hefir forystu á hendi um starf-
semi, sem snertir velferð hundr-
aða heimila hér í bænum. —
Sveinn Björnsson dvaldi nokk-
uð við ófriðarástandið og að-
stöðu Rauða Krossins. Var og
skýrt frá því, að fengist hefði
leyfi til að koma á skeytaskipt-
Striði við Ungverjrtand
aístýrt i UU?
Pað vekur mikla athygli í sam-
bandi við yfirlýsingar stjórnar-
innar í Bukarest, að mjög
skyndilega virðist hafa orðið
breytkig á afstöðu Ungverja-
lands til Rúmeníu, þrátt fyrir
mjög alvarlegar skærur á landa-
mærum þeirra i fyrrinótt, sem
urðu þiemur mönnum að bana
um milli vandamanna hér og í
ófriðarlöndunum. Tilkynning
Rauða Krossins er svohljóð-
andi:
,,Með milligöngu Rauða
Krossins í London og Alþjóða-
Rauða Krossins getur Rauði
Kross íslands nú auk bréfa-
skeyta komið símskeytum til
Frh. á 4. síðu.
TILEFNI af þeirri yfir-
lýsingu Mittelhausers yf-
irhershöfðingja Frakka á
Sýrlandi, að stríðinu sé lokið
fyrir franska herinn þar, sem
skipul. var af Weygand í vet-
ur, hefir brezka stjórnin nú lýst
því yfir, að hún muni ekki
leyía, að Sýrland verði hernum-
ið af neinni þjóð, sem sé fjand-
©g tuttugu og sjö menn særðust í.
Var frá þessum árekstrum
skýrt í útvarpinu í Budapest í
gærmorgun, en fréttirnar bornar
til baka aftur í gærkveldi.
Enígær satungverska stjórnin
á fundi í 3—4 klukkutíma, og
bjuggust allir við, að almenn
hervæðing yrði fyrirskipuð í
landinu að honum loknum. En úr
því varð ekki, og nú er fullyrt,
að verið sé að semja um það
milli Ungverja og Rúmena, að
kalla liðið báðum megin burt frá
landamærunum til að afstýra
frekari árekstrum.
Það er tekið fram i fréttunum,
að Czaky greifi, utanríkismála-
ráðherra Ungverja, hafi átt við-
tai við sendiherra Þjóðverja í
Budapest, áður en ungverska
stjórnin kom saman á fund sinn.
Fréttin um þá yfirlýsingu rúm-
enska utanríkismálaráðherrans,
að Rúmenía afsali sér ábyrgð
Englánds og Frakklands, hefir
vakið' furðu í London.
Það er á það bent, að hér hafi
aldrei verið um neinn samning
að ræða milli Rúmeníu og Vest-
uiveldanna, heldur aðeins um
Frh. á 4. síðu.
samleg Bretum, né heldur að
landið verði sem bækistöð til á-
landið verði notað sem bækistöð
til árása á þau nágrannalönd
þess, sem Bretar séu skuld-
bundnir að verja eða veita lið.
Það er hinsvegar tekið fram í
yfirlýsingunni, að þótt brezka
stjórnin neyddist til þess að
Frh. á 4. síðu.
Skeytasamband við vandamenn
erlendis á vegnm Ranða kressins.
♦
England leyflr ekkl að
Sýrlandverðl hernumið
----♦--
Reykjavíkurbörn i sveit.
Fyrsti stori hópurinn af Reykjavíkurbörnum í sveit, um 160 að
tölu, lagði af stað í morgun kl. 8 norður í land. Fara 100 þeirra
að Laugum, en önnur á sveitabæi. Það var glaumur og gleði um
leið og lagt var af stað, enda er auðséð á myndinni, að litlu ferða-
langarnir hlakka til ferðalagsins.
Harðir bardagar am „belg-
an“ stað i eyðimörhn Libyu
Grazlani marskálkur eftirmaður Balbos
Tp1 REGNIR bárust til
London í gær um fyrstu
meiriháttar viðureignina
milli Breta og ítala á landi
suður í Libyu. Standa þar yf-
ir harðir bardagar um Kap-
utzovígi í eyðimörkinni á
landamærum Egiptalands og
Líbyu.
ítalir náðu Kaputzovígi fyrir
nokkru og fluttu þangað um
1000 manns og 16 skriðdreka.
En Bretar leggja kapp á að ná
víginu aftur, af því að Múham-
eðstrúarmenn þar syðra líta á
Kaputzo sem helgan stað.
Bretar hafa nú sent þangað
skriðdrekasveitir og stóðu harð-
ir bardagar um vígið í lok vik-
unnar, sem leið. Flugvélar tóku
þátt í bardögunum á báða bóga.
Fréttaritari brezka útvarps-
ins telur vera horfur á því, að
Bretar nái víginu aftur alger-
lega á sitt vald.
Italir segja, að Bretar séu
óðum að flytja lið austan úr
Asíulöndum sínum til landa-
mæra Líbyu og Egiptalands.
Iftirmaður Balbos.
Graziani marskálkur hefir nú
verið skipaður eftirmaður Bal-
bos sem landsstjóri Mussolinis
í Libyu og jafnframt verið gerð-
ur að yfirmanni alls ítalska
hersins í Norður- og Austur-
Afríku.
Var þetta tilkynnt í Róma-
borg og um leið skýrt frá því,
að hann væri þegar farinn loft-
Ræða séra Sipr-
björns Einarssonar
i Alþýðublaðinn. !;
YNODUSERINDI séra jj
Sigurbjörns Einars- jl
sonar um ofsóknirnar gegn jí
kirkju og kristindómi á j!
Þýzkalandi, sem flutt var í <!
dómkirkjunni í síðustu !;
viku og vakti mikla athygli !;
birtist hér í blaðinu á !;
morgun og fimmtudag. jj
Hefir séra Sigurbjörn j;
góðfúslega leyft Alþýðu- jj
blaðinu að birta ræðuna.
leiðis til Libyu til að taka við
hinu nýja embætti.
Graziani marskálkur er einn af
þekktustu herforingjum ftala.
Hann hefir áður fyrr um langt
skeið verið herforingi í nýlendu1-
her þeirra í Afríku og tók mik-
inn þátt í Abessiníustyrjöldinni.
Að henni lokinni var hann skip-
aður varakonungur eða land-
stjóri Itala í Abessiníu, en lét
skyndilega af bví embætti eftir
að Abessiníumaður hafði veitt
honum banatilræði með því að
varpa sprengikúlu að honum við
hátíðahöld, sem stofnað hafði
verið til af yfirmönnum ítalska
hersins undir bem lofti.
Þegar ítalir sögðu Englandi
og Frakklandi stríð á hendur, var
Frh. á 4. síðu.