Alþýðublaðið - 03.07.1940, Síða 4
Alþýðuprentsmiðjan h.f.,
Alþýðuhúsinu, Hverfis-
götu 8—10. Sími 4905.
...r.,r,r,rTDAGUR 3> JÚLÍ 1940.
:ntun fljótt og
hendi leyst.
Aiþýðuprentsmiðjan h.f.
C'AMLA BÍÚ
LeyRllðgregiumaðurinol
Dularfull og framúrskar-
andi spennandi leynilög-
reglumynd, tekin af Metro
Goldwyn Mayer.
Aðalhlutverkin leika:
Melvin Douglas og
Florence Kice.
Aukamynd: Brezk hernað-
arfréttamynd, hálfsmánað-
ar gömul', sýnir m. a. loft-
árásina á París.
n nyja eio ms
*
Spilf æsMa.
(Dead End).
Joel McCrea,
Sylvia Sidney,
Aukamynd:
Orustan við Narvik.
Hernaðarmynd, er sýnir
brezka flotann leggja til
atlögu við Narvík í Noregi.
Börn fá ekki aðgang.
Móðir mín,
Salvör Aradóttir frá Syðstu-Fossum
andaðist 2. júlí í Landakotssjúkrahúsi.
Ari Gíslason.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUK.
Stnmlum og stnndnm ekki
100. sýning á leikárinu.
Sýning í kvöld kl. 8.30.
Allra síðasta sinn.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 1
í dag.
Kr. 1.78 á klst.
Kr. 2.63 á klst.
Kr. 3.31 á klst.
Kaup Dagsbrúnarverkamanna verður frá og með 1. júlí, sem hér
segir:
Dagkaup ....... .... Kr.
Eftirvinna ...... .
Helgidagavinna, sé hún leyfð.... Kr.
Leigugjald vöruflutningabifreiða verður á klst. kr. 6.34
STJÓRN DAGSBRÚNAR.
Til Hreðavatns og Bo iarness
um Hvalfjörð, Dragháls og Skorradal eru bifreiðir fimmtu-
daga kl. 9 f.h., laugardaga kl. 2 og mánudaga kl. 11 f.h.
FRÁ BORGARNESI: Föstudaga kl. 11.30, sunnudaga
kl. 6 e.h. og þriðjudaga kl. 11 Vz.
Afgreiðsla í Borgarnesi: Hótel Borgarnes. Sími 19.
BIFREIÐASTÖÐIN HEKLA. — Sími 1515.
MIÐVIKUDAGUR
Næturlæknir er Jónas Krisitj-
ánsson, Grettisgötu 67, sími 5204.
Næturvörður er í Laugavegs- og
Ingólfs-Apóteki.
ÚTVARPIÐ:
19.30 Hljómplötur: íslenzkir söng-
varar.
20.00 Fréttir.
20.30 Útvarpssagan: Þættir úr
ferðasögum (V.Þ.G.).
21.00 Strokkvartett útvarpsins: —
Lög eftir íslenzka höfunda.
21.20 Hljómplötur: Harmoniku-
lög.
Forðum í Flosaporti,
revyan 1940 verður sýnd annað
kvöld klukkan 8,30 í síðasta sinn.
Leikfélagið
sýnir stundum og stundum ekki í
kvöld kl. 8.30. Er það 100. sýning
Leikfélagsins á leikárinu.
Lúðrasveit Reykjavíkur
leikur á Austurvelli í kvöld kl.
9 marza. íslenzk lög o. fl., ef veður
leyfir.
Ungbarnavernd Líknar
opin hvern þriðjudag og föstu-
dag frá kl. 3—4. Ráðleggingarstöð
fyrir, barnshafandi konur, opin
fyrsta miðvikudag í hverjum mán-
uði kl. 3—4, Templarasundi 3.
í dag og á morgun
er sýndur nýr hökull í gluggum
Jóns kaupmarfns Björnssonar,
Bankastræti. Hann er eign Breiða-
bólsstaðarkirkju á Skógarströnd,
og saumaður af frú Magneu Þor-
kelsdóttur eftir teikningu frk.
Nínu Tryggvadóttur. Þessi hökull
mun vera alger nýjung í kirkju-
legum listiðnaði hér á landi.
Landsmót 2. flokks
hélt áfram í gærkveldi. F.H. og
Víkingar léku 1:1 og Valur og K.
R. gerðu einnig jafntefli, 0:0.
60 ára
var í gær Sigurður Kristjánsson,
VERTU EKKI HRÆDD
LITLA HJÖRÐ
Frh ,af 3. síðu.
Það fer sömuleiðis að verða
ljóst, að það er annað og meira
en skrípaleikur, þegar haldnar
eru s. k. guðþjónustur í þar til
gerðum, nýreistum húsum og
textinn valinn úr ritum Hitlers.
Þetta er farið að tíðkast, og er
bláköld alvara.
Það er heldur engin venjuleg
— barnaleg manndýrkun, þeg-
"ar myndir af Foringjanum eru
settar á stalla og þeim sýnd
lotning og tilbeiðsla eins og
guðdómur væri, eða þegar börn-
um eru kenndar borðbænir stíl-
aðar upp á Foringjann.
Ég er ekki að segja að þetta
sé allt valdboðið og opinberlega
viðurkennt af ríkisvaldinu, sem
slíku. En hitt er greinilegt, í
hvaða átt þróunin stefnir og
mér er a, m. k. ekki kunnugt
um, að Hitler hafi nokkru sinni
beitt áhrifum sínum í alvöru
gegn þessum og þvílíkum fyrir-
brigðum í þjóðlífinu. Þvert á
móti bendir allt til þess, að hann
sé sjálfur að meir eða minna
leyti á bak við þessa þróun.
Hefir ekki hann og stjórn hans
unnið að því síðan 1933 að hin
evangeliska kirkja gengi af játn
ingu sinni og játaðist undir
hina þýzku trú? Er það ekki
Hitler sjálfur, sem stóð á bak
við' Muller ríkisbiskup, Jáger
aðstoðarmann hans og kirkju-
málaráðherrann Kerrt, og hefir
ekki öll viðleitni og starfsemi
þessara manna verið ærin sönn-
un fyrir afstöðu Hitlers?
Hitler lætur það a. m. k. við-
gangast, svo ekki sé meira sagt,
að síra Niemöller sé ofsóttur og
fangelsaður og að honum sé
forstjóri Sambands íslenzkra sam-
vinnufélaga.
75 ára
er í dag séra Ófeigur Vigfússon
prófastur að Fellsmúla.
Gistihúsið Reykholt
er tekið til starfa og veitir nú
ferðamönnum viðtöku til lengri og
skemmri dvalar svo sem að undan-
förnu.
Börnin,
sem eiga að vera á barnaheimili
Vorboðans, Þingborg í Flóa, eiga
að leggja af stað frá Mjólkurfélags
húsinu á morgun kl. 2.30. Aðstand-
endur, sem eiga eftir að skila mat-
armiðum, eru áminntir um að skila
þeim þá.
Yfirherforingi Hol-
lendinga handtekinn
og flnítnr til Þýzka-
lands.
Yfirherforingi hol-
LANDS, Winkelmann, hefir
verið handtekinn og fluttur til
Þýzkalands sem herfangi. Honum
er gefið það að sök, að hafa ekki
hlýtt fyrirskipun um afvopnun
hers og flota, og hafi hf.vopn-
unin því ekki getað farið skipu-
lega fram og greiðlega, eins og
Hollendingar höfðu fallist á.
I tilkynningunni segir ennfrein-
ur, að það sé í almennings þágu,
að engar slíkar trufianir eigi sér
stað, og þar sem yfirforinginn.
sé ábyrgur fyrir því, að fyrirskip,
anir, sem samkomulag var um,
voru ekki framkvæmdar, hafi
hann verið handtekinn.
haldið í varðhaldi árum sam-
an, þvert ofan í niðurstöður
dómstóls, en gengur til hátíð-
legra sætta við Ludendorffs-
hjónin, einhverja róttækustu
heiðipgja landsins og jafnvel
allrar álfunnar, og bannar að
nokkur sýni þeim fjandskap.
Hitler lætur viðgangast, svo
enn sé vægt að kveðið, að pró-
fessor Karl Barth hrökklist úr
landi, já að rit hans séu bönn-
uð um allt Þýzkaland, en gerir
Baldur von Schirach að æsku-
lýðsleiðtoga um allt ríkið, —
manninn, sem játaði trú sína á
þessa leið: Ég er hvorki evan-
geliskur né kaþólskur. Ég trúi
aðeins á Þýzkaland.
Frh.
Sýning annað kvöld kl. 8.30.
ÓAFTURKALLANLEGA
SÍÐASTA SINN.
LÆKKAÐ VERÐ.
Aðgöngumiðar seldir í dag
frá kl. 4—7 (frá kr. 2.00 stk.)
Sími 3191.
LOFTÁRÁSIR BRETA
Frh. af 1. síðu.
hen-Gladbach og Frankfurt am
Main. Ennfremur við Rotter-
dam í Hollandi.........
Fjórar' brezkar flugvélar
komu ekki aftur úr leiðangr-
inum.
Lo{tárásiná,Scharnhorst‘
Frá loftárásinni á beitiskipið
„Scharnhorst“ í flotkvíinni í
Kíel, er skýrt á eftirfarandi
hátt:
Það er í fjórða skiftið, sem
beitiskipið ,,Scharnhorst“ verð-
• ur fyrir árásum brezkra flug-
véla eða brezkra herskipa. Her-
skipið varð fyrir nokkru fyrir
skemdum, er verið var að flytja
það frá Noregi til Þýzkalands
til viðgerðar, og lá það nú í flot-
kví í Kíel.
Brezku flugvélarnar flugu
hátt og komu Þjóðverjum alger-
lega á óvart, að því er hinir
brezku flugmenn telja. Flug-
vélarnar komu hver á fætur
annari, lækkuðu flugið, og var
svo varpað niður sprengjum,
Var þetta fáum mínútum eftir
miðnætti.
• Fyrsta sprengjan, sem varpað
var, kom niður á ,,Scharnhorst“,
en út frá öðrum kviknaði í hús-
um í grennd við flotkvína. —
Áköf skothríð var hafin og sagði
einn flugmannanna, að það
hefði verið engu líkara en allar
byssur í Kíel hefðu verið teknar
i notkun.
Þrátt fyrir það hversu áköf
skothríðin var héldu brezku
flugmennirnir áfram að varpa
niður sprengjum og urðu marg-
ar sprengingar og kom upp eld-
ur á mörgum stöðum, einkan-
lega í byggingum við höfnina.
Telja flugmennirnir að kvikn-
að hafi í flugvélaskýlum og
byggingum flotans. Flugmenn-
irnir sáu eldin úr 120 km, fjar-
lægð, er þeir voru á heimleið. .
Veður var hagstætt, svo bjart,
að flugmennirnir sáu herskip-
ið vel, þótt þeir notuðu ekki
fallhlífarblys.
FRANSKI FLOTINN
Frh. af 1. síðu.
Marseille, þar sem hann ásamt
nokkrum yfirforingjum úr flotan-
um tók franskt herskip, og sigldu
þeir því til Gibraltar. Nokkrum
dögum síðar fór hann loftleiðis
til Bretlands og hóf viðræður og
samstarf við De Gaulle.
Muselier hefir nú gefið út
dagsskipun til franska sjóliðsins
og skipað svo fyrir, að foringjar
allra franskra herskipa skuli
halda til þeirra flotahafna, sem
þeir Frakkar ráða yfir, er halda
áfram baráttunni, eða til brezkra
flotahafna.
BOÐHLAUPIÐ
Frh. af 1. síðu.
150 — Knútur Hallsson,
150 — Ásgeir Guðjónsson,
200 — Þorsteinn Magnússon,
400 — Jóhann Bernhard,
800 — Sverrir Jóhannesson,
1500 — óskar A. Sigurðsson,
Alþýðublaðshornið verður, á-
samt verðlaunum frá 17. júní,
afhent n. k. laugardag.
MAÐUR FERST AF TOGARA
Frh. af 1. síðu.
slys til, að einn hásetanna, Hall-
dór Guðmundsson, tók fyrir borð
og drukknaði. Skipverjar urðu
ekki varir við, er Halldór tók
fyrir borð.
Halldór átti heima að Kára-
stíg 11 hér í bænum. Hann flutti
til bæjarins frá Hnífsdal ?yrir fá-
um árum. Halldór var 44 ára
að aldri, kvæntur og átti ung
börn.
STÖRSTÚKUÞINGIÐ
Frh. af 3. siðu.
ina um nauðsyn þess að loka á-
fengisútsölunum, meðan erlendur
her dvelur hér í landinu.“
í nefndina voru skipaðir:
Árni Jóhannsson, Akureyri,
Friðrik Hjartar, Siglufirði,' Eirík-
ur Einarsson, fsafirði, Felix Guð-
mundsson, Reykjavík, Snæbjörn
Bjarnaso’n, Vestmannaeyjum, séra
Sveínn Víkingur, Seyðisfirði, og
Sigurgeir Gíslason, Hafnarfirði.
Nefnd þessi mun hafa gengið á
fund ríkisstjórnarinnar í dag.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
minnir meðlimi sína á skrifstofu
félagsins á 6. hæð í Alþýðuhúsinu,
opið kl. 5,15 til 7.15 alla virka
daga nema laugardaga. Þar er .tek-
ið á móti ársgjöldum félagsrnanpa
Sérstaklega vill skrifstofan biðja
hverfisstjórana að muna eftir að
innheimta ársgjöldin.