Alþýðublaðið - 08.07.1940, Side 1
RITSTJORI: STEFAN PETURSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ARGANGUR
MÁNUDAGUR 8. IÚLÍ 1940.
154. TÖLUBLAÐ
Pétaii lætur her
rétt dæma de
Gaalle I fangelsi!
PÉTAINSTJÓRNIN
hefir nú látið her-
rétt í Toulouse dæma de
Gaulle hershöfðingja, sem
* stjórnar áframhaldandi
vörn Frakka utan Frakk-
lands, til fjögra ára fang-
elsisvistar .og .er . honum
gefið það að sök, að hann
hafi hvatt franska borgara
til óhlýðni við yfirvöld sín.
Þá hefir Pétainstjórnin
einnig gefið út fyrirskipun
um að handtaka frönsku
blaðamennina Pertinax
de Kerillis og Madame
Tabouis, en þau eru öll
komin til London og styðja
de Gaulle hershöfðingja
í baráttu hans fyrir frelsi
Frakklands.
Mínnihluti franska þings~
ins látinn af nema lýðræðið!
verðnr lagt niðnr og aðeins einn
stjórnniálaflokkur leyfðnr í landinn.
C AMKVÆMT þýzkum
fréttum er nú unnið
markvisst að því á Frakk-
landi, að rífa niður lýðræðið
og koma á algerri einræðis-
stjórn eftir nazistískri fyrir-
mynd.
Hefir Laval, varaforsætis-
x-áðherra Pétainsstjórnarinnar
lagt fram uppkast, a'ð nýrri
stjórnarskrá fyrir Frakkland,
þar sem gert er ráð fyrir, ,að
þingið vei'ði afnumið og Pé-
tain marskálki fengið raunveru-
legt einræðisvald. Þá er og gert
ráð fyrir því, að aðeins einn
stjórnmálaflokkur, sem stofn-
Allt að 85 pás. raál
síldar komfn á land.
•----■*--*—
Prýli!@gt weliir o§f gél w©lil
wlé Laiagænes og Hrfmsey.
¥ DAG er skínandi gott
veður fyrir Norður-
íandi, en þoka og fremur
slæmt veiðiveður er fyrir
Austurlandi.
Mikið af síld barst til verk-
smiðjanna á Siglufirði, Rauf-
arhöfn, Húsavík, Seyðisfirði
og Norðfirði um og fyrir
helgina.
I gærkveldi kl. 6 voru allar
verksmiðjurnar á Siglufirði
teknar til starfa, og var í gær, í
Wótt og í morgun unni'ð af full-
tim krafti að löndun.
í morgun snemma biðu nokkur
skip á Siglufirði eftir löndun.
Mest af síldinni barst til Rauf
arhafnar og voru í gærkveldi
komin um 30 þús. mál í þrær
heggja verksmiðjanna þar.
I dag um hádegi var enn ekki
fyrir hendi yfirlit yfir allan síld-
araflann, sem kominn er á land.
En hann er ákaflega mikill, þeg-
ar tekið er tillit til hins stuttia
tíma, sem veiðarnar hafa staðið
og einnig þess, að nú er togara-
flotinn ekki á síldveiðum.
Vérksmiðjurnar á Sigiufiröi
höfðu í dag um hádegi tekið á
móti yfir 40 þúsund ' málum. ,
í gær lönduðu þessi skip á
‘Siglufirði.
Nanna 500 mál, Fróði 400,
Sæfinnur 100, Garðar 750, Björn
400, Eggert 200, Höskuldur 300,
Heimir 350, Sæbjörg 300, Stella
30, Geir goði 130, Minnie tvisvar
samtals 800 mál, Árni Árnason
200, Freyja oig Skúli fógeti 150,
Hrönn 200, Þórir 170, Ársæll
200, Már 100, Ólafur Bjamason
1500, Jón Porláksson 300, Gulí-
toppur og Hafsteinn 550, Keflvík-
ingur 1000, Helga 530, Eldey
1000, Sæfinnur 1000, Geir 650,
Freyja 400 og Erna 900, eða
samtals um 15 þúsund mál.
Auk þessa kemur aflinn úr
þeim skipum, sem landað var
úr í morgun. En það voru þessi
skip:
Rúna 600 mál, Snorri 500,
Hrafnkell 750, Veiga & Gísli
Johnsen 600, Sæhrímnir 500,
Gunnbjörn 500, Sæbjörn 550,
Óðinn og Ófeigur 530, Gulltopp-
ur 550, Sigurfari 750, Hrefna 550,
Björn Jónsson 350, Nanna 450,
Ásbjörn 600, Huginn III. 750,
Anna og Einar úveræingur 600,
Puginn II. 750, Þorsteinn 700,
Fróði 850, Haraldur 450, Ársæll
500, Dagný 1400, Olav 650, Glað-'
ur 750, Björn og Bragi 500,
Bjarki 1100, Víðir og Jón Finns-
son 600, Vinúr og Jón 650, Hug-
inn I. 750, Valbjörn, 550, Sæ>-
hrímnir 1000, Vestri 700, Skag-
firðingur 450, Pilot 400, Vé-
björn 450, Fiskaklettur 600, Hösk-
uldur 550, Báran 350, Sæfari 600
Erlingur I. oig II. 400, Kári 550,
Keilir 850, Eggert 700, Jón Þör-
láksson 500, eða samtals um 27
þúsund mál.
Frh. á 3. síðu.
aður verði til stuðnings stjórn-
inni, fái að starfa í landinu. —
Allir aðrir stjórnmálaflokkar
verði bannaðir.
Laval er sagður hafa lýst því
yfir, að Frakkar yrðu að breyta
stjórnarfari sínu til samræmis
við stjórnarfar einræðisríkj-
anna til þess að tryggja sér
góða sambúð við þau.
LLeifar pinssios eiga
aS mæta á morgnn.
Pétain hefir stefnt báðum
deildum franska þingsins sam-
an á fund í Vieky á morgun, en
♦þar hefir nú stjórn hans tekið
sér aðsetur. Er talið víst, að þar
eigi að ræða og samþykkja
hina nýju, nazistísku stjórnar-
skrá.
En það er kunnugt, að aðeins
415 þingmenn séu. komnir til
Vicky, og að fleiri muni ekki
taka þátt í þingfundum. í báð-
um þingdeildum, fulltrúa-
deildinni, eiga hinsvegar sæti
932 þingm., og verður hin nýja
stjórnarskrá því aldrei sam-
þykkt nema af minnihluta
þingsins.
Það er ekki einu sinni gerð
tilraun til þess að leggja málið
undir dóm frönsku þjóðarinn-
ar og er þó fordæmi fyrir því,
að þingkosningar hafa farið
fram á Frakklandi, þó að tölu-
verður hluti landsins væri í ó-
vinahöndum. Það var í lok ó-
friðarins 1870—1871.
Þing Pétains verðpr því ekk-
ert annað en skrípaleikur. Alla
þekktustu og reyndustu þing-
menn og stjórnmálamenn
Frakka vantar þar, þar á meðal
sjálfan forseta fulltrúadeildar-
innar, Herriot. Ennfremur Le-
on Blum, foringja franskra
jafnaðarmanna, Reynaud fyrr-
verandi og síðasta löglega for-
sætisráðherra Frakklands, Man-
del, fyrrverandi innanríkismála
ráðherra, Daladier og Boncour
— svo að aðeins örfá nöfn séu
nefnd.
Stjðrmnálasaiibandi
við England slitið.
T AVAL tilkynnti á föstu-
dagskvöldið í nafni Pétain-
stjórnarinnar, að stjórnmála-
sambandi hefði verið slitið við
Frh. á 2. síðu.
Heimingi fleiri flng-
vélar framleiddar á
Englandi nd en I
jðnimánnði i fjrrra.
¥ ORD BEAVERBROOK, flug-
vé 1 afram 1 eiös 1 u ráðherra Bret-
lands, gerði flugvélaframleiðsl-
'una í Bretlandi að umtalsefni í
gær, og hvernig horfði um það,
að Bretar gætu framvegis fengið
allar þær flugvélar og flugvéla-
hreyfla, er þeir þarfnast til styrj-
aldarþarfa.
Lord Beaverbrook sagði, að í
júnímánuði síðast liðnum hefði
flugvélaframleiðslan í Bretlandi
verið helmingi meiri en í júní í
fyrra, ög flugvélahreyflafram-
leiðslán meira en helmmgi meiri.
Gat hann þess jafnframt, að í
júní í fyrra hefði flugvélafram-
leiðslan verið komin í hið bezta
horf.
Drjár milljðnír nndir
vopniim á Inglandi
A LAUGARDAGINN fór fram
skrásetniug í brezka herinn,
og hafa nú verið skrásettar í
hann þrjár milljónir manna sam-
kvæmt herskyldulöguniim.
Mikill hluti þessara þriggja
miiljóna hermanna hefir þegar
fengið hernaðarlega þjálfun. Auk
þess er fastaherinn, nýlenduher-
irnir og heimavarnasveitirnar.
Hefir aldrei verið meiri herafli í
Bretlandi en nú.
PETAIN.
Brezk tnndnrdufl
frá Nordkap suð
nr að Ermasnndi.
REZA flotamálaráðuneyt-
ið tilkynnir nú, að búið sé
að leggja mjög öflugar tundur-
duflagirðingar meðfram allri
Noregsströnd suður um Skage-
rak meðfram Jótlandsströndum
og norðvesturströndum Þýzka-
lands og muni fyrst um sinn
verða stórhættulegt fyrir Þjóð-
verja að gera tilraun til þess
að brjótast í gegn um þessar
tundurduflagirðingar. Þessi
lönd séu bókstaflega lokuð inni,
en brezkir kafbátar þekki renn-
ur, svo að hægt sé fyrir þá að
sigla yfir hið lokaða svæði og
herja á flutningaskip Þjóð-
verja.
Frh. á 4. síðu.
Reyna Þjóðverjar að ná
Irlandl á sitt vald?
—---.----
Uretar éttast, að írar verði ekki
Særir um að verja landið.
TT AXANDI VIÐBÚNAÐUR
® er nii á írlandi til þess að
geta vai’ið landið gegn þýzkri
innrás, ef reynd yrði.
Víða á Englandi eru þó látnar
nokkrar áhyggjur í ljós út af
því, að það muni verða írska
fríríkinu Eire, um rnegn, að
verja hendur sínar ef á það verð
ur ráðist, en hingað til hefir það
haldið fast við hlutleysi í
styrjöldinni, ekki slitið stjórn-
málasambandi við Þýzkaland
og ekki haft neina samvinnu við
England um vörn landsins. Hins-
Frh. á 4. síðu.