Alþýðublaðið - 09.07.1940, Page 1
RITSTJORI: STEFAN PETURSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ARGANGUR
ÞRIÐJUDAGUR* 9. JOLÍ 1940.
155. TÖLUBLAÐ
ðlDla
eiosi-
P©Ir
samtafis 14® pslsimd kréii®rf sem
piirSfl fil werklegra framkvæmda.
En hér í Reykjavík eru togararnir látnir greiða
sama útsvar og árið 1938, þegar verst gekk!
Aiiiúii veaaviBHa:
NiUar nmbætnr
Hellisheiðarveii.
RÍKISSTJÓRNIN hef-
ir ákveðið að verja
allmikilli aukafjárveitingu
til vegagerðar í sumar.
Er þetta bæði gert vegna
mjög aukinnar umferðar
og til þess að auka atvinn-
una.
Aðalframkvæmdirnar
: verða á Hellisheiði. Þar
: verða ýmsar breytingar og
! Iagfærslur gerðar á vegin-
um. 35 verkamenn eru
; þegar byrjaðar að vinna
’ þar, en alls verða Iátnir
! vinna þar 50 verkamenn.
SAMKOMULAG hefir tekizt milli bæjarstjórnar Hafn-
arfjarðar og togaraútgerðarfélaganna þar, um út-
svarsgreiðslu þeirra til bæjarsjóðs. Greiða togaraútgerð-
arféiögin í útsvar samtals um 140 þúsundir króna og er
það allmiklu meira en þeim ber samkvæmt lögum.
Það fer ekki hjá því, að þessar fréttir frá Hafnarfirði veki
mikla athygli hér í Reykjavík. í bæjarstjórn Reykjavíkur var
mikið deilt um útsvarsgreiðslur togaranna um það leyti, sem
verið var að ákveða hækkun útsvaranna og lögðu fulltrúar Al-
þýðuflokksins í bæjarstjórn það til, að þess yrði farið á leit við
útgerðarmenn, að þeir féllust á að greiða hærri útsvör til bæj-
arsjóðs en þeim bæri samkvæmt lögum. En Sjálfstæðisflokks-
meirihlutinn í bæjarstjórn fylgdi sömu línu í þessu máli og
þingmenn Sjálfstæðisflokksins á alþingi, hann þverneitaði að sam-
þykkia tillögu Alþýðuflokksins.
Afleiðingar þess geta menn meðal annars séð á hinni ný-
útkomnu útsvarsskrá. Þar hafa útgerðarfélögin sama útsvar og
1938, þrátt fyrir milljónagróða sinn síðan stríðið hófst, en allur
almenningur stórhækkuð útsvör síðan í fyrra.
í vetur börðust þingmenn
Alþýðuflokksins fyrir því, að
Segir Lebrun Frakk
landsf orseti af sér ¥
----♦---
Péfalai naarskálkiar á ad verða
eInsM@ii^r Wrsme® F'rakMands.
PÉTAINSTJÓRNIN gefck í
gær frá hinu nýja fasist-
íska stjórnarskrárfrumvarpi,
sem lagt verður fyrir nokkurn
hluta franska þjóðþingsins í
dag í Vichy.
í sambandi við stjórbarskrár-
breytinguna skrifar blað eitt í
Grenoble, sem talið er vera mál-
gagn Pétainstjórnarinnar, að
Lebrun Frakklandsforseti kunni
að segja af sér, og muni Pétain
marskálkur þá fá svipaða stöðu
og þá, sem Franco hefir á
Spáni. En eins og kunnugt er,
var Pétain sendiherra Frakka á
Spáni, þegar Reynaud bauð
honum sæti í frönsku stjórninni
seinnipartinn í maí.
Franska stjórnin hefir tekið
sér einkunnarorðin: „Starf,
heimili, föðurland,“ og munu
þau eiga að koma í stað orð-
anna: „Frelsi, jafnrétti,
bræðralag,“ sem hafa verið eink
unnarorð frönsku þjóðarinnar,
síðan á dögum stjórnarbylting-
arinnar miklu.
Frakklaed framvegis
tjrzb matvælanílenda
Brezk og amerísk blöð harma
það, hversu mjög Frakkar hafa
orðið að beygja sig undir ok
nazismans.
Blaðið „Times“ segir, að á yf-
irborðinu verði fyrirkomulag allt
frekar með fasistasniði en naz-
ista, en Bretar verði að gera sér
ljóst, að blákaldur sannleikurinn
sé, að nazistar hafi öll ráð
Frakka í hendi sér, franska þjóð-
in verði hér eftir að framleiða
hergögn og matvæli handa Þjóð-
verjum, og utanríkismálastefna
Frh. á 3. síðu.
Síldarverksmiðjurnar á Siglufirði í gangi. Myndin er tekin úr
flugvél yfir höfninni.
LaUberðsr a! síld frá
Alnfirl til
togaraútgerðarfélögunum ■ yrði
gert að skyldu að fara á saltfisk-
veiðar í 4 — 5 vikur. Var stefnt
að þessu í þeim tilgangi að bæta
úr hinu mikla atvinnuleysi með-
al manna.
Þetta mætti harðri mótstöðu
frá þingmönnum Sjálfstæðis-
flokksins og hafði sjálfur at-
vinnumálaráðherrann, Olafur
Thórs, orð fyrir þeim. Hélt hann
þá meðal annars fram, að ef tog-
urunum yrði gert að skyldu að
fara á saltfiskveiðar myndu
þeir tapa 1600 kr. á dag. Fram-
sóknarmenn sem virtust fylgja
málinu í upphafi heyktust á því.
Þá báru Alþýðuflokksmenn
fram tillögu um breytingar á
útsvarslögunum, sem stefndi að
afnámi útsvarsfrelsis togaranna.
En þetta var líka drepið, enda
hélt atvinnumálaráðherrann því
fram, að ef þetta yrði sam-
þykkt, væru útgerðarmenn
sviknir. Hinsvegar var leyfilegt
að leggja á togarana ekki hærra
útsvar en 1938, en þá var af-
koma þeirra, eþis og kunnugt er,
afar slæm. Alþingi skildi þann-
ig við þessi mál í algjörðu öng-
þveiti.
FrnmkvæOl Bæjarðtgerð-
ar flafoarfjarfiar.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
Frh. á 4. síðu.
PSstiIf|Hii*ðHip, Eakkafjdrðiip og
Yopnafjifrliiip ælveg fnlilr æf sfild
------_♦--------
T ANDRURÐUR er af síld á Siglwfirði og öðrum
bræðslustöðvum þaðan og til Norðfjarðar. — Þist-
ilfjörður, Bakkafjörður og Vopnafjörður eru svartir af
síldinni og fylla skipin á skömmum tíma.
Munu nú vera komin að landi yfir 100 þúsund mál og
er það miklu meira en á sama tíma í fyrra.
Alls staðar hefir verið unnið mesta aflahrota á svo skömmum
af fullum krafti að löndun, en
þrær em ýmist orðnar fullar eða
eru að fyllast.
Kl. 11 í dag, Jér Alþýðublaðið
hafði samtal við fréttaritara sinn
á Siglufirði biðu 20 skip eftir
löndun þar, en þrærnar voru að
fyllast. Er þetta talin einhver
tíma, sem komið hefir í mörg ár.
Miklu færri skip stunda nú
síldveiðar en undanfarin ár. Eng-
inn togari er á síldveiðum og
fáir línuveiðarar. Vélbátarnir
munu vera álíka margir og í
fyrra. Margir línuveiðarar og
vélbátar eru nú að búast til
veiða, og er nú hafður hraðinn á.
Bretar báast við mis*
knenarlansri umsát.
Teskömmtun foyrjuð og ým&ir matvæla
skammtar mmnkaðir í varúðar skyni.
AÐ var tilkynnt í London í
gær, að teskömmtun yrði
nú þegar hafin í Englandi, þann-
ig, að hverjum manni yrðu út-
hlutaðar 2 únzur á viku hverri.
Sykurnotkun hefir verið tak-
mörkuð enn meira en áður, t. d.
við kökugerð. Bannað er að
framreiða kjöf og fiskrétt í einu
á matsölustöðum.
/
Woolton lávarður, matvæla-
ráðherra hefir gert grein fyrir.
hinum nýju lákvörðunum, og
sagði hann, að þær hefðu verið
fyrirskipaðar í varúðarskyni, en
ekki af þvi, að birgðir væru tak-
markaðar. Þjóðverjar munu nota
hvert tækifæri til þess að sökkva
skipum vorum, sagði hann, og
þótt vér vonum, að unt verði að
halda uppi flutningum, verðum
vér að gera ráð fyrir miskunar-
lausri umsát, og allir verða áð
vera við því búnir, að leggja hart
að sér. Ég hefi áður tilkynnt,
sagði hann, að ég mun fyrirskipa
frekari takmörkun, ef þörf kref-
ur„ og gera það án þess að biðj-
ast afsökunar.
Sjö þýzkar flugvélar voru
skotnar niður við Bretland í
fyrradag og sex í gær. í loft-
árásum Þjóðverja á England í
gær varð nvorki mikið eigna-
eða manntjón.