Alþýðublaðið - 10.07.1940, Síða 1
RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ÁSGANGUR MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLI 1940. 156. TÖLUBLAÐ
Floti Itala bjargaði sér á
flótta undan Bretum i gær.
Kort af Ítalíu. Neðst á myndinni
Malta, þar sem við sjóorustu lá
milli Breta og ítala í gær.
Fundmii pslrra foiir aust~
ai wlH Mafita, ©is italskn lierskip
Im IieMii slg refMarsfefl ®§g litsrfsi
---------------------!—❖-------
I GÆR varð brezki Miðjarðarhafsflotinn í fyrsta skipti
var við ítalska flotann síðan Ítalía sagði Englandi stríð á
hendur. Var það austan við Malta. En hin ítölsku herskip
höfðu ekki fyrr komið auga á flota Breta, eri þau voru búin
að mynda reykský og lögðu á flótta.
Bretar veittu þeim þó eftirför og tókst skyttunum á einu
brezka orustusjdpinu að hæfa annað af tveimur orustuskip-
um, sem voru í flota Itala.
ítalir höfðu mörg beitiskip og tundurspilla, en ekki er vitað
annað á þessari stundu en að þau hafi öll komizt undan á flótt-
anum.
Herskip ítala á höfninni í Neapel. Þar eru þau mun öruggari en
úti á Miðjarðarhafi.
Sami mokaflinn af síld;
flœsfa iflaii heflr Dapý frá Iili
firði eða 11 pðsni krónr I islsri
-------<0-------
Triliiibátar frá Mafnarfirði á þorsk-
veiðum hafa fengið 100 kr. Wut á dag
—------ O ....
O A.MI MOKAFLINN af síld er fyrir norðan og austan
^ og koma skipin drekkhlaðin til verksmiðjanna eftir
Já köst.
Sem dæmi um hinn geysimikla afla getur fréttaritari Al-
þýðubíaðsins á Siglufirði þess í skeyti í dag, að vélskipið Dagný,
eígn Sigurðar Kristjánssonar konsúls á Siglufirði, hafi á 12 dög-
um fengið 4500 mál, eða aflað fyrir um 50 þúsund krónur. Það
er sama sem 1000 krónur í hlut þessa fáu daga, en þetta mun
líka vera metafli.
þrær verksmiðjanna eru fullar,
þrátt fyrir látlausa vinnslu nótt
©g dag, og hafa á Siglufirði
jafnvel loftvarnabyrgin verið tek-
in fyrir síldargeymslur. Mun hér
um að ræða ujndirprær.
Veður er svo gott, sem frekast
verður á kosið. í morgun biðu
20 drekkhlaðin skip við bryggjur
á Siglufirði.
Þá getur fréttaritarinn þess, að
9 trillubátar frá Hafnarfirði, sem
stunda nú þorskveiðar frá svo-
nefndu „Anleggi“ á Siglufirði,
hafi mokfiskað undanfarna diagá
og haft upp í 100 króna hlut á
dag.
SUpii, sem hafa landað
i gær n 1 nött-
Þessi skip hafa landað í verk-
smiðjurnar í (gær ,og í nótt:
Birkir 50 mál, Sjöfn 400, Minnie
750, Sævar 500, Keilir 700, Hrafn-
kell goði 350, Gylfi 500, Hrönn
550, Gísli og Vinur 700, Óðinn og
Ófeigur 600, Hilmir 500, Snorri
350, Freyja og Skúli fógeti 600,
Gotta 350, Rúna 700, Sæbjörg
650, Már 750, Elden 1300, Árni
Árnason 550, Helgi 1500, Sigrún
500, Geir goði 550, Þórir 400,
Fyikir 600, Gulltoppur og; Haf-
alda 700, Sæfinnur 1200, Ár-
mann 900, Huginn II. 500, Hug-
inn III. 800, Sigurfari 900, Hvít-
ingur 600, Hjörtur Pétursson 200,
Björninn 600, Mjölnir 1900, Grótta
100, Jakob 600, Gottveig 500, Ás-
björn 600, Málmey 650, Ver, Æg-
ir pg Egill 800, Hjalteyri 550,
Norðurfari 1400, Vísir og Barði
580, Huginn I. 550, Haraldur 500,
Glaður 700, Vestri 400, Olivette
550, Olav 700, Hringur 800, Dag-
ný 1500, Björn austræni 650, Ár-
sæll 500, Stella 800, Keflvíkiriigur
800, Garðar 800, Helga 900, Þor-
geir goði 550, Hannes og Helgi
500, Hrefna 550, Bliki og Muigg-
ur 300, Gunnbjörn 650, Nanna
500, ísleifur 450, Sæborg 700,
Geir 1350, Freyja 1470, Erna 1700
Gunnvör 3000, Pétursey 620,
Sæunn 410, Rafn 144.
Önnur brezk flotadeild fór í<
fyrradag frá Gibraltar í eftirlits
ferðalag um allt vestanvert Mið-
jarðarhaf austur að Malta. En
ekkert ítalskt herskip var sjá-
anlegt á þeim slóðum. Fjórar ít-
alskar flugvélar voru hinsvegar
skotnar niður í ferðinni og að
minnsta kosti sjö aðrar skemmd
ar.
Þá var og ítölsk flugvél skot-
in niður yfir Zula í Austur-
Afríku í gær, önnur hrapaði til
jarðar á Krít, en sú þriðja var
skotin niður yfir Malta.
71 Softárás á Malta síð-
an striðlð hófst.
Njjasta ornstuskip Frakka
gert óskaðlegt af Bretam.
Franska flotadeiidie í Alexandriu gekb
að úrslitakostuimm, sem Bretar settu^
ítalir hafa nú gert samtals 71
loftárás á Malta síðan stríðið
hófst, og biðu 82 borgarar bana
í þeim árásum, en 194 særðust.
Hernaðarlegt tjón er mjög lít-
ið.
Landstjórinn á Malta hefir
farið viðurkenningarorðum. um
samheldni og kjark íl^ianna, —
sem í hvívetna hafi hina beztp
samvinnu við Breta, en megn-
ustu fyrirlitningu á ítölum.
Mr. alexander,
flotamálaráðherra
Breta, tilkynnti í gær, að hið
nýja orustuskip Frakka, „Ri-
chelieu,“ það eina óskemmda
— sem þeir áttu eftir, hefði
nú verið gert óskaðlegt suð-
ur í Dakar, á vesturströnd
Afríku, og svo fyrir séð, að
það lenti ekki í höndum Þjóð
verja.
,,Richelieu“ var 35 000 smá-
lestir að stærð, hljóp af stokk-
unum í ársbyrjun 1939 og lýsti
Mr. Alexander því sem full-
komnasta og rarpmbyggðasta
orustuskipi heimsins. Frakkar
eiga annað orpstuskip í smíð-
Nýlr MUnehensamning^
ar, mm tyrir Rnmeninf
-------
Fulltrúar Ungverja á ráðstefnu í Miinch-
en með Ciano greifa og Ribbentrop.
TELEKI GREIFI, forsætisráð-
herra Ungverjalands, og
Czaky greifi, utanríkismálaráð-
herra, komu til Munchen í morgy
!un, enn fremur Ciano greifi,
ítalski utanríkismálaráðherrann,
— og ræða þeir við von Ribben-
trop, utanríkismálaráðherra
Þýzkalands.
Það var opinberlega tilkynnt í
Budapest í gær, að viðræðurnar
myndu snúast um kröfur Ung-
verja á hendur Rúmenum og
hina nýju skipan á Balkan.
Búlgarar gefa nánar gætur að
því, sem fram fer í Múnchen, og
telja sjálfsagt, að þeir fái aftur
Dobrydsjahérað, og verði kröfur
þeirra ræddar um leið og kröfur
Frh. á 2. síðu.
um af sömu stærð og gerð, —
„Jean Bart,“ en það verður ekki
tilbúið fyrr en eftir nokkra
mánuði.
,,Richelieu“ var elt uppi af
herskipum Breta í hafnarborg-
inni Dakar í Senegal á vestur-
strönd Afríku og gert ósjófært
þar á mánudagsmorguninn eft-
ir að sýnt var, að hinn franski
skipherra vildi ekkert sam-
komulag gera við Breta. Hafði
yfirmaður brezku herskipanna
lagt fyrir hann svipaðar sam-
komulagstillögur. og þær, sem
lagðar voru fyrir franska flota-
foringjann í Oran, að prustu-
skipið-færi til brezkrar 'hafnar
og yrði undir brezku eftirliti
meðan á stríðinu stæði, eða að
því yrði siglt til franskrar hafn-
ar í Vestur-Indíum og afvopnað
þar eða jafnvel afhent Banda-
ríkjunum til geymslu, eða í
þriðja lagi, að það yrði afvopn-
að í Dakar innan 12 klukku-
stunda. Ef ekki yrði fallist á
eitthvert þessara skilyrða, yrði
skipinu "sökkt innan tiltekins
tíma.
Þegar fresturinn var út runn
inn án þess að svar kæmi, var
skothríð hafin á orustuskipið af
herskipum Breta og flugvélum
þeirra, en að henni lokinni fór
brezkur vélbátur inn í höfnina
og eyðilagði stýrisútbúnað þess
með djúpsprengjum. Hallaðist
skipið þá þegar riijög eftir
Frh. á 4. síöu.