Tíminn - 06.04.1963, Blaðsíða 3

Tíminn - 06.04.1963, Blaðsíða 3
HYGGST SKREFA KRUSTJOFF NTB-London, 5 apríl Hughie Green, sjónvarpsma'ður- inn brezki, sem varð fyrir árás sovézkra orrustuflugvéla, þegar hann var á leið til Berlínar í einkaflugvél sinni á þriðjudaginn, hefur nú tilkynnt, að haiin ætli að skrifa Krustjoff fotrsætisráð- herra Sovétríkjanna bréf og skýra honum frá atburðinum. Green hyggst einnig skrifa Mac Millan bréf um málið, og fara þess þar á leit, ag loftferðayfirvöld Bretlands gefi ekki fleiri brezkum þegnum leyfi til að fljúga til Berlínar. Green hefur áður skýrt írá því, að kúlurnar frá sovézku ílugvélunum hafi aðins farið þrjá metra fyrir framan vél hans. — Flugleyfi eins og það, sem ég fékk, sagði Green, kemur öllum, sem í vélinni eru, í bráða lífs- hættu. Eg sótti um leyfi um hálfs mánaðar fyrirvara og var þá beð- inn að skýra frá öllum atriðum í sambandi við ferðina, svo að hægt væri að sækja um leyfi til þeirra, sem loftferðayfirvöldin kölluðu rétta aðila. 28. marz fékk ég svo tilkynningu um, að leyfi væri feng ið til flugsins, og það skildi ég þannig, að auk Breta vissu Frakk ar, Bandaríkjamenn og Rússar um íerðir mínar. í dag.komst ég hins vegar að því, að Rússum var ekki skýrt frá ferðum mínum fyrr en 45 mínútum áður en ég kom inn á flugleiðina yfir Austur- Þýzkalandi, en samt var ég ekki búinn að vera nema tíu mínútur yfir austur-þýzku landi, þegar tvær MIG-þotur komu mjög ná- lægt mér og héldu því áfram í þrjá stundarfj órðunga. Green fór heimlciðis til London með venjulegri farþegaflugvél. Einkaflugvél sína skildi hann eft- ír í Berlín og hyggst sækja hana, þegar tryggt verður að hann geti flogið burt án áreitni. Hughie Green Fjarritasamband milli Kennedy og Krustjoffs K ■*$ * ' NTB-Geneve og Vashnigton 5. apríl Tsarapkin, fulltrúi Sovétríkj- anna á afvopuunarráðstefnunni í Geneve, lýsti því yfir þar í dag, að ( Sovétríkin væru samþykk því, að komið yrði á beinu sambandi milli Eins og áður hefur verið skýrt frá í Tímanum, hefur kápu- teikning á síðustu bók sænska rithöfundarins Ivar Lo-Johan- sons vakig nokkra athygli í Noregi, en höfundur krafðist þess, að skipt yrði um mynd, þar eð sú sem valin var, væri ósiðsamleg. Forlagið varð við óskinni, en gaf um leig út yfir lýsingu o.g tók þar fram, að það sæi ckkert athugavert við fyrirhugaða mynd, sem gerð var af ágætum listamanni, en teldi hins vegar ckki annað unnt en fara að orðum höfund ar, sem hefði skipt við forlagið í aldarfjórðung. Nú hefur okk ur borizt mynd af myndinni og geta þá lesendur sjálfir dæmt um það, hvor fari með réttara mál, Norðmaðurinn eða Svíinn. (Polfoto). AUKIÐ EFTIRLIT MED KOBUUTLÖGUM NTB-Washington, 5. apríl. I um eru 17 kúbanskir flóttamenn,! Æfingasveitir bandarískra flug- sem sluppu frá bandarískri strand j véla og gæzluskipa liafa nú verið gæzluflugvél í nótt. Bátnum var) sendar til Florida til ag hafa eftir- j sleppt frá Nassau á fimmtudag, en véla og gæzluskipa hafa nú verið | þangað hafði brezka freygátan scndur til Florida til að hafa cftir- i Londonderry farið með hann. — lit með kúbönskum útlagaflokk- j Vopn eru þar enn um borð, en um, sem kynnu að reyna hemaðar : öll skotfæri voru gerð upptæk. aðgerðir gegn Kúbu cða skipum á j Haft er eftir Kúbumönnum á leið þangað'. ! Florida, að Violynn III. hefði feng Bæði skip og flugvélar leita nú ið skipun um að taka skotfæri úr hraðbátsins Violynn IIL, en í hon öðru skipi útlaga. EFTIRMAÐUR ADENAUERS ÁKVEÐINN EFTIR PÁSKA Kremlar og Ilvíta liússins til að draga úr ófriðarhættunni. Segir í Washington, að sambandið verði fjarritasamband en ekki talsíma- lina, og muni komið fyrir annað bvort í utanríkisráðuneytinu eða landvarnarráðuneytinu, cn ckki í Hvíta húsinu sjálfu. Fulltrúi Bandaríkjanna í Gene- ve, Charles Steele, lýsti sig ánægð an með þessa ákvörðun Sovétríkj- anna, og sagði að Bandaríkin myndu nú befja einkaviffræður við Sovétríkin um málið og stefna að því að gera samning um það. Bandaríkin báru fram tillögu um að koma á þessu beina sambandi milli ríkisstjórna landanna í íyrra, og á þaff ag miffa að því að draga úr þeirri hættu, að ófriður skelli á af mistökum eða fyrir handvömm í Geneve cr talið aff líkur séu Framhald á bls. 6. Vinsæídir for- setans minnka NTB-París 4. apríl Vinsældir de Gaulles foiseta hafa farið öij minnkandi meðal frönsku þjóffarinnar þann rúma rnánuð, sem verkföll námuntanna hafa staðig yfir. í Gallup-könnun sem gefin var út í dag, sögðust 42% affspurðra vera ánægðir með stefnu forsetans, en 40% voru óánægðir. 18% höfðu ekki skoðun á málinu. 1. marz, daginn, sem verkfallið hcfst, voru samsvarandi tölur 55% ánægðir, 27% óánægðir og 18% skoðanalausir, en í janúar l voru tölurnsr 64 — 22 — 14% Blóítapsmælir íundinn upp NTB—Bonn, 5. apríl. Strax eftir páska verður fast- ákveðið hver tekur við af Aden- auer sem kanslari Vestur-Þýzka- lands, en kristilegir demókratar vilja taka þá ákvörðun áður en komig er of nálægt kosningum, sem fram eiga að fara í Neðra Saxlandi 19. maí. Þingflokkurinn mun koma sam an til fundar í Bonn 23. apríl á- samt bróðurflokknum CSU — kristilega sósíalflokknum. Flokk- arnir hafa þegar komið sér saman um, að Ludwig Erhard sé ákjósan legastur sem forsætisráðherra, NTB—Osló, 4. apríl. Herman Rustad, dcildarlækn ir viff Ríkissjúkrahsúiff í Osló hefur fundiff upp tæki, sem getur fylgzt nákvæmlega með blóðtapi sjúklinga, sem verið er ag skera upp. Tæki af þcssu tagi hefur ekki verið til áður, og læknar því orðið að vega og meta blóðtap ið, þ.e. gizka á það, en með aðstoff þessa nýja tækis er hægt að fylgjast nákvæmlega með blófftapinu og því hægt að dæla nákvæmlega sama magni í sjúklinginn og þannig halda blóðmagninu stöðugu. Tæknilegu hliðina við smíði tækisins hefur sænskur verk- fræðingur annazt og það er smíðað af fyrirtæki í Stokk- hólmi. Nú er þetta tæki á sýn- ingu í London og hefur þar vak ið mikla athygli. Tækig hefur þegar verið selt til sjúkrahúsa í Frakklandi, Vestur-Þýzkalandi og Bretlandi. Tilraunir með tækið hafa far ið fram á Rikissóúkrahúsinu í Osló, og tók fyrst þrjú ár að finna þaff upp, en síðan hefur þag verið reynt í eitt ár, bæði þar og í sænskum sjúkrahús- um. Tækið starfar sjálfkrafa o,g er þannig útbúið, að það mælir magn rauðu blóffkornanna, en tekur ekkert tillit til annarra líkamsvökva. Allt, sem notað er við uppskurð, og blóð hefur komizt í, er látið í sérstakan geymi á tækinu, en í honum er fyrir vatn og sérstakt efni. sem sprengir rauðu blóffkornin þannig að litarefniff blandast vökvanum. Rafmagnsauga í tæk inu mælir síðan litarmettun vökvans og þannig er hægt að reikna út blóðmagnið. TIMINN, laugardaginn 6. apríl 1963 a

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.