Tíminn - 06.04.1963, Page 8

Tíminn - 06.04.1963, Page 8
Friðrik Ólafsson skrifar um skák: Einvígið um heimsmeistaratitilinn NÚ ER lokið 6 skákum í ein- vígi þeirra Botvinniks og Petrosj- ans og standa leikar nú jafnir, þar sem Petrosjan gekk með sigur af hólmi í 5. skákinni. Allar hafa skákir þessar verið tefldar af mik- illi hörku og er ljóst, að hvorugur keppenda hyggst láta sinn hlut, fyrr en í fulla hnefana. Verður einvigið vafalaust tvísýnt allt til loka og má segja, að hin gaman- sömn ummæli sem núverandi Sovétmeistari, Korchnoj, lét hafa eftir sér, hafi við nokkur rök að styðjast. Hann komst þar svo að orði um viðureign þessa, að hún væri líkust því sem „ómótstæðileg um krafti væri beint að óbifanleg um hlut“! En snúum okkur nú að skákun- um. 2. SKÁKIN. Hvítt: Botvinnik. Svart: Petrosjan. Drottn ingarbragð. 1. d4, d5. 2. c4, dxc4. (Eitthvert traustasta varnarkerfi, sem svarti stendur til boða gegn drottningarbragði). 3. Rf3, Rf6. 4. e3 — (Hér er einnig oft reynt 4. Da4f ásamt —, Dxc4 síðar meir, en sú leið þykir ekki valda svarti mikl- um erfiðleikum). 4. —, c5. (Skemmtilegur möguleiki er -hér 4. —, Bg4. 5. Bxc4, e6. 6. Db3, Bxf3 7. gxf3, Rbd7. Hv. getur nú tekið peðið á b7 með drottningunni, en svartur fær þá góð færi eftir 8. —, c5. Petrosjan vill hins vegar ekki rasa að neinu og velur öruggustu leiðina). 5. Bxc4, e6. 6. o-o, a6.7 . a4, — (Venjulegt framhald er hér 7. De2, b5. 8. Bb3„ Bb7, en Botvinnik vill koma í veg fyrir, að andstæðingur hans fái losað um sig á þennan hátt. Hann hefur líka í huga sér- staka áætlun, sem gefur a4-leikn- um sjálfstætt gildi). 7. —, Rc6. 8. De2, cxd4. 9. Hdl, Be7. 10. exd4, o-o. (Við skulum nú doka við um stund og sjá, hvernig málin standa: Hvíti hefur tekizt að hindra, að drottningarbiskup svarts komist út með eðlilegum hætti, en í staðinn hefur hann orðið að veikja drottningarvæng sinn og taka á sig stakt peð á d-línunni. Þessir veikleikar eru ekki alvarlegs eðl- is að svo komnu máli, en mundu vega þungt, ef til endatafls kfemi. Hvítur verður því að gæta þess vel, að svartur nái ekki stórfelld- um uppskiptum, nema það leiði einnig til röskunar á peðastöðu ,hans. ( Þetta kemur fram, er svartur neyðist til að drepa með e-peði sínu á d5). Að hinu leytinu er það ljóst, að hvítur mundi ekki taka þessa veikleika á sig af fús- um vilja, nema eitthvað komi í staðinn. Hlunnindin eru fólgin í því, að staða hans er mun rýmri, athafnafrelsi manna hans meira og hann á tiltölulega auðvelt með að fylkja liði sínu til sóknar á kóngs- vængnum. Eftir gangi skákarinn- ar að dæma virðast þessi síðast- nefndu atriði vega meira en veik- leikarnir og Petrosjan lendir brátt í krappri vörn, enda þótt staða hans virðist bæði traust og óá- rennileg). 11. Bg5, — (Það er vert að veita því athygli, að Botvinnik er ekkert að flýta sér að koma drottningarriddara sinum í gagnið og leikur honum svo alls ekki til c3, eins og flestir mundu gera undir þessum kring- umstæðum. Tilgarigur hans með þessu er að halda þriðju reita- röðinni opinni fyrir drottningar- hróki sínum, eins og brátt kemur á daginn). 11. — , Rd5. (Uppskipti eru svarti í hag sbr. athugásenid áð framáh). 12. Bxe7, Rcxe7. 13. Re5, — (Nú er ekkert því td fyrirstöðu að drottningarhrókurinn geti rennt sér yfir á kóngsvænginn). 13. — Bd7. 14. Rd2, Bc6. 15. Re4, Rf4. (Svartur grípur hvert tækifæri, sem hann fær til uppskipta). 16. Df3, Bxe4. 17. Dxe4, Rfd5. 18. Ha3, — (Eftir þennan leik verður Ijóst, að a4-leikurinn hafði ekki einung- is þann tilgang að hindra — b7- b5). 18. —, Hc8. 19. Hh3, Rg6. (Það er hyggilegt hjá Petrosían að veikja ekki kóngsstöðu sína með peðsleikjum (— h6? eða g6?). 20. Bxd5, — (Botvinnik sér riú, að kóngssókn- in á erfitt uppdráttar og snýr sér því að öðrum verkefnum. Hann grípur tækifærig til að bæta að- stöðu sína á miðborðinu). 20. —, exd5. (20. —, Dxd5 virðist liggja beinna við, en Petrosjan hefur sennilega ekki gétizt að möguleikanum 21. Dxd5, exd5. 22. Rd7, ásamt 23. Rc5). 21. Df5, Dd6. 22. Hb3, — (Þessi hrókur unir sér vel á þriðju reitaröðinni og gerir Petro- sjan lífið brogað). 22. —, Hc7. 23. g3, b6. (Einfaldara hefði verið 23. —, Rxe5. 24. Dxe5 (betra en 24. dxe5, De6), Hd8. 25. a5. Hvítur hefur þá að sönnu skárri stöðu, en vörn in er mun auðveldari fyrir svart en verður í skákinni). 24. Hel, Re7. (Nú gengur hins vegar ekki 24. —, Rxe5, þar eð svartur mundi tapa peði eftir 25. Dxe5). 25. Df4, Hc2. 26. Rd3, Dd8. (Nú hafa orðið hlutverkaskipti með aðilum, hvítur leitar upp- skipta, en svartur forðast þau). 27. Dg5, Rc8. (Svartur verður nú að ganga inn á uppskipti, þar eð 27. —, f6 mundi veikja e6-reitinn alvarlega). 28. Dxd8, Hxd8. 29. a5, — (Botvinnik gerir nú síðustu atlög- una, en Petrosjan er vel á verði og tekst ag komast heill úr raun- inni). 29. —, bxa5. 30. Hb8, Hf8! 31. Hal, Re7. 32. Hxf8t, Kxf8. 33. Hxa5, Hd2. (Nú leysist staðan upp í jafntefli). 34. Hxa6, Hxd3. 35. Ha8f, Rc8. (Hér bauð Botvinnik jafntefli, sem Petrosjan að sjálfsögðu þáði. Eftir 36. Hxc8f, Ke7 fellur d-peð hvíts og er þá komið á jafnvægi í stöð- unni). í næstu skák fékk Petrosjan betri stöðu strax upp úr byrjun- inni og túkst að mynda ýmsar ved- ur í peðafylkingu andstæðingsins eftir að drottpingarkaup höfðu átt sér stað á fremur óheppilegu augnabliki fyrir Botvinnik. Petro- V ■■ - Fyrrverandi helmsmeistari Mikael TAL, útskýrlr þrlðju einvígisskákina fyrir blaðamönnum, (Ljósm.: TASS). I Heimsmeistarinn BOTVI'NNIK þungt hugsi í 3. skákinni. (Ljósm.: TASS). sjan tókst að auka yfirburði sína jafnt og þétt og vann peð rétt áð- ur en skákin fór í bið. Við athug- un sína á biðstöðunni fann Bot-! vinnik hins vegar snjalla leið til að halda jafnvægi í stöðunni og enda þótt Petrosjan legði sig all- an fram tókst honum aldrei að villa um fyrir andstæðingi sínurn. 3. SKÁKIN. Hvítt: Petrosjan. Svart: Botvinnik. Drottnlngar-indversk vöm. 1. d4, Rf6. 2. Rf3, e6. 3. g3, b6. (Liðlegasta svarið). 4. Bg2, Bb7. 5. c4, — (Til að geta svarað 5. —, c5 með 6. d5, exd5. 7. Rh4 o. s. frv.). 5. —, Be7. (Einnig kom til greina 5. —, Bb4. 6. Bd2, Bxd2f. 7. Dxd2, o-o, o. s. frv.). 6. o-o, o-o. 7. Rc3, Re4. (Hvítur hótaði að leika 8. Dc2 og j taka öll ráð á miðborðinu í sínar ! hendur með 9. e4. Þetta verður svartur að koma, í veg fyrir með j öllum tiltækum ráðum og þykir leikur Botvinniks traustari en 7. ! d5). 8. Rxe4, — (Öllu venjulegra er 8. Dc2) 8. —, Bxe4. 9. Rel, — (Með þessum uppskiptum reynir Petrosjan að færa sér í nyt rýmri miðborðsstöðu sína). 9. —, Bxg2. 10. Rxg2, d5. (Hindrar 11. e4). 11. Da4, c5. 12. Be3, Dd7(?). (Meg þessum leik tekur Botvinn- ik á sig töluverðar kvaðir, eins og ljóst verður í framhaldinu. Traust- ara virðist 12. —, cxd4. 13. Bxd4, dxc4. 14. Dxc4, Dc8. Svartur ætti ekki að vera í miklum vandræðum meg þessa stöðu). 13. Dxd7, Rxd7. 14. cxd5, exd5. 15. Rf4, Rf6. 16. dxc5, bxc5. (Svartur á nú tvö samstæð peð á miðborðinu, en þau hljóta fremur að teljast veikleiki en styrkleiki, þar eð hvítur á auðvelt með að sækja að þeim eftir opnum c- og d-línunum). 17. Hacl, d4. (Svartur kemst ekki hjá því að leika þessum leik fyrr eða síðar). 18. Bd2, a5. (Það er nauðsynle^t fyrir svart að geta komið þessu peði til a4, áður en hvítur nær að festa stöð- una með b2-b3 ásamt Rf4-d3-b2- a4). 19. Rd3, Rd7. 20. c3, dxc3. 21. Bxe3, — (Eftirleiðis verður c-peðig svarta skotmark hvítu mannanna). 21. —, Hfb8. (Svarta c-peðið er nú óbeint var- ið). 22. Hfdl, a4. 23. Kg2, h6. 24. Hd2, - (Valdar b-peðið og hótar að hremma c-peðið) 24. —, Hb5. 25. Rf4, Rf6. 26. Kf3, Hab8. Framh á 13 síðu T-íMIN N , laugardaginn 6. apríl 1963 —j

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.