Alþýðublaðið - 24.07.1940, Blaðsíða 1
XXI. ÁRGANGUR
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLl 1940.
168. TÖLUBLAÐ
RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTFRSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
Þýakt valdboð í aðslgl
soðnr á Balkanskaga?
Forsætis- og atanrikisráðherrnm RiIiii-
eníu og Búlgarfa stefnt til Þýzkalands.
BAið að slðtra
helfflinggam af
bústofoi Dana?
Roosevelt banda-
RÍ K J AFORSETI
gerði matvælaskortinn á
meginlandi Evrópu að um-
talsefni í viðtalstíma, sem
hann hafði með ameríksk-
um blaðamönnum í gær.
Hann kvað horfurnar
vera mjög skuggalegar.
Þannig hefði Bandaríkja-
stjórninni borizt vitneskja
um það, að búið væri að
slátra helmingnum af öll-
um svínum, nautgripum
og hænsnum í Danmörku,
aðallega vegna fóður-
skorts.
Það eru afleiðingarnar
af innrás Þjóðverja.
A THYGLIMANNA um allan heim hefir í bili aftur beinzt
að Balkanskaganum við þær fréttir, sem bárust út í
gær, að forsætisráðherrar og utanríkismálaráðherrar Rúm-
eníu og Búlgaríu hefðu verið kvaddir til Þýzkalands núna
í vikulokin.
Hafa ráðherrarnir frá Rúmeníu, Gigurtu forsætisráð-
herra og Manulescu utanríkismálaráðherra, verið kvaddir
á fund Ribbentrops utanríkismálaráðherra Hitlers í Salz-
burg á föstudaginn, en ráðherrarnir frá Búlgaríu, Philoff
forsætisráðherra og Popoff utanríkismálaráðherra, til Ber-
lín á laugardag.
Það þykir mjög líklegt, að þessar utanstefnur rúmensku og
búlgörsku ráðherranna séu aðdragandi stærri tíðinda suður á Balk-
ansskaga og þá sennilega beinna fyrirskipana af hálfu þýzku
nazistastjórnarinnar um það, hvernig gert skuli út um landakröfur
Ungverjalands og Búlgaríu á hendur Rúmeníu, ef samkomulag
skyldi ekki nást um þær. En það eru fieiri, sem eru líklegir til
að hafa hönd í bagga með skipun mála á Balkanskaga, og þá fyrst
og fremst Rússar.
italir aðvara RAssa.
Ýmsar Iregnir eru um þetta allt
birtar og koma fram ýmsar skoð-
anir. Sumir ætla, að Þjóðverjar
Tékkar og Slóvakar mynda
bráðabirgðastjórn i London
----«----
Bretar hafa þegar viðurkennt hana.
Jan Masaryk.
HURCHILL, forsætisráð
^ herra Breta, tilkynnti í
gær, að brezka stjórnin hefði
viðurkennt hráðabirgða-
stjórn, sem stofnuð hefði
verið í London fyrir Tékkó-
Eduard Benes.
slóvakíu undir forsæti Benes
fyrrverandi forseta.
I stjórninni eiga sæti tólf ráð-
herrar, þar af sjö Tékkar og
fimm Slóvakar.
Frh. á 4. síðu.
hafi mestan áhuga á að
treysta viðskiptalega samvinnu
við Rúmena og vilji fá vitneskju
um afstöðu Rússa gagnvart Rú-
menum og ræða pau mál við
Rúmena. Rúmenar sjálfir hyggja,
að Þjóðverjar hafi sagt Ungverj-
um að fara sér hægt. En fregnir
um að Ungverjar og Rúmenar af-
viopni heri sína eru vafasamar, og
senniiega er afvopnunin aðeins á
pappírnum.
Afstaða Róínabiorgarblaðanna
er pann veg, að augljóst er, að
Jtalir gruna Rússa um að hafa
frekari áform í huga á Balkan,
pví að ,.Regima Fascista" varar
Rússa við afleiðingum pess, að
gera neitt í ópökk möndulveld-
anna eða gegn peim, pví að
Þjóðverjar myndu grípa til öfl-
ugra gagnráðstafana.
Knnnnr Bandamannavin-
nr sendiberra Rðmenia i
Meshva?
Ein fregnin hermir, að Gafencu,
kunnur stjórnmálamaður rúm-
enskur og fyrrum utanríkismála-
ráðherra, vinveittur Bandamönn-
um, verði nú sendiherra Rúmeníu
í Moskva. Enn ein fregn hermir,
að Rússar hafi krafizt pess, að
stofnuð verði róttæk stjórn í
Rúmeníu.
Þýzk 12 manna nefnd er komin
til Moskva. Fór hún pangað loft-
leiðis. Hlutverk hennar er að
semja um heimflutning fólks af
(þýzkum uppruna í Norður-Buko-
vinu og Bessarabíu, p. e. héruð-
um peim, sem Rússar tóku af
Rúmenum. Er talið, að hér sé um
100 000 manns að ræða.
Daladier.
Mandel.
Fyrrveraidi frðnskam ráð-
herrum stefnt fyrir rðtt.
Ofsóknir byrjaðar
ekki vildu gefast
gegn þeim, sem
upp fyrir Hitler.
AÐ' vekur mikla athygli,
að tilkynnt hefir nú
verið á Frakklandi, að fjórir
fyrrverandi ráðherrar þar
verði leiddir fyrir rétt, sak-
aðir um að hafa yfirgefið
skyldustörf sín á örlagastund
þjóðarinnar. Þar á meðal eru
Daladier, fyrrverandi for-
sætisráðherra og síðast her-
málaráðherra í stjórn Rey-
nauds, Delbos, sem einu sinni
var utanríkismálaráðherra,
og Mandel, sem var síðast
innanríkismálaráðherra í
ráðuneyti Reynauds.
Það vekur sérstaka eftirtekt,
að þeir, sem kærðir eru, eru
einmitt þeir af stjórnmála-
mönnum Frakka, sem ekki
vildu gefast upp fyrir Hitler og
beittu sér fyrir því, að stjórnin
færi úr landi til þess að halda
stríðinu áfram við hlið Breta.
Þá hefir og stjórnin í Vichy
tilkynnt, að allir þeir, sem fóru
án leyfis frá Frakklandi á tíma-
bilinu frá 10. < maí til 30. júní,
skuli sviptir borgararéttindum.
landi. Og innan skamms verð-
ur hún einnig hafin á ný bæði
á sjó og landi.
Baráttan byrjuð á
segir De öaulle.
De Gaulle hershöfðingi, sem
hefir tekið sér forystu fyrir
þeim Frökkum, sem berjast á-
fram með Bretum frá útlönd-
um, ávarpaði frönsku þjóðina í
brezka útvarpinu í gær og skor-
aði á hana að berjast áfram
gegn óvinunum. Það má aldrei
koma fyrir, sagði hann, að
franskir verkamenn framleiði
vopn, sem notuð yrðu til þess
að drepa landa þeirra. Baráttan
var hafin á ný í loftinu þ. 21.
júlí með þátttöku franskra flug-
manna í loftárásunum á Þýzka-
fitiskemmtnn templ-
ara að Jaðri.
Síðastliðinn sunnudag (21.
þ. m.) héldu Templarar í Rvík
útiskemmtun að Jaðri, en þar
hafa þeir, sem kunnugt er,
numið land til þess að eignast
útiskemmtistað og til ræktunar *
á skógi.
Á skemmtuninni voru á
fjórða hundrað manns, þar á
meðal 20 af 27 félögum stúk-
unnar Sæbjörg í Höfnum.
Kristján Guðmundsson setti
skemmtunina, Guðjón Halldórs-
son flutti ræðu, Hjörtur Hans-
son bauð félaga Sæbjargar vel-
komna, Guðgeir Jónsson, Þor-
steinn J. Sigurðsson og Helgi
Sveinsson fluttu stutt ávörp. Á
milli ræðanna fór fram fjölda-
söngur.
Kaffiveitingar fóru fram í
stóru tjaldi. Síðari hluti
skemmtiskrárinnar voru íþrótta
sýningar og gekkst íþróttafélag
Templara fyrir þeim.
Sýnt var m. a. langstökk og
hástökk, kartöfluhlaup og
eggjahlaup. Þá fór fram reiptog
milli flokka frá nokkrum stúk-
um og bar flokkur stúkunnar
Víkings nr. 104 sigur af hólmi.
Veður var prýðilegt, og fór
skemmtunin í alla staði hið
bezta fram.
3. flokks mótið
hófst í gærkveldi. Valur vann
Víking meS .3 gegn 0 og K.R. og
Fram gerSu jafntefli 3 gegn 3.