Alþýðublaðið - 02.08.1940, Page 1
RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ÁRGANGUR
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1940.
176. TÖLUBLAÐ
Myrkvnn bæfarlns mætir ein~
rómn andstiillnll)æjarst|órnar.
Hún telur lögreglustjóra enga heimild hafa
til þeirra ráðstafana, sem boðaðar hafa verið.
Ottö Johansson.
Svíar hafa m skipað
stjóraoiálafnlitrna
bér á landi.
n f] —
Otío Johansson, sem verið hef
ir aðalræðismaðnr, útnefndnr
Chargé d'affaires hér.
SÆNSKA STJÓRNIN hefk
ákveðið að gera Otto Jo-
hanssön aðalræðismann Svía
hér á landi, að Chargé d’affaires
á tslandi.
Með J)essu er honum falið
stjórnmálalegt umboð til pess að
fara með málefni Svía á íslandi,
og hefir Svípjóð þar með bæzt í
tölu þeirra rikja, er hafa stjórn-
málaerindreka hér á landi.
Otto Johansen hefir starfað í
iitanríkismálaráðuneyti Svía frá
árinu 1920 fram að 1937, en þá
var hann gerður að aðalræðis-
manni Svía hér.
Fingniðaðrás á Breta
JÓÐVERJAR hafa byrjað
nýja „sókn” á Bretland.
Hún er framkvæmd þannig, að
Frh. á 4. síÖu.
ÞRÁTT fyrir yfirlýsingar lögreglustjóra virðist nú mjög
vafasamt, að nokkuð verði úr myrkvun höfuðstaðar-
ins þ. 15. ágúst næstkomandi. Eru öll tormerki talin á, að
slíkt sé framkvæmanlegt svo undirbúningslaust. Enn frem-
ur kom það í ljós á bæjarstjórnarfundi 1 gær, að bæjar-
íulltrúar telja þær ráðstafanir, sem lögreglustjóri skýrði
blaðamönnum frá, að væru ákveðnar, mjög vafasamar og
sumar óhæfar, enda hefði lögreglustjóri ekki neina heim-
ild til að fyrirskipa slíkt.
í sambandi við þetta má geta
þess, að það mun kosta hundruð
þúsunda króna að myrkva borg-
ina. Útbúnaður til myrkvunar
mun kosta sum stórhýsin, eins
og til dæmis sjúkrahúsin, marg-
ar þúsundir króna. Líklegt er
talið eftir því, hvernig menn
hafa tekið í þessar ráðstafanir,
að allur þorri íbúðaeigenda
myndi að svo komnu neita að
myrkva hjá sér upp á sinn
kostnað. Stafar það vitanlega af
því, að menn álíta nóg að gera
slíkar varúðarráðstafanir, þeg-
ar hættan er sjáanleg og yfir-
vofandi.
Þá var nokkuð rætt um hinar
flóknu fyrirætlanir loftvarna-
nefndar um flótta úr bænum.
Spurðist Jón Axel Pétursson
fyrir um það,- hvort borgar-
stjóra væri nokkuð kunnugt um
það, að gerðar hefðu verið ráð-
stafanir til þess að útvega fólki,
sem vísað hefði verið á berar
heiðar og hraun utan bæjarins,
eitthvert skjól. Borgarritari
svaraði þvf, að sér væri ekki
kunnugt um, að neinar slíkar
ráðstafanir hefðu verið gerðar.
Jakob Möller, fjármálaráð-
herra, sagði við umræðurnar, að
ummæli lögreglustjóra við
blaðamennina muni hafa átt að
skilja sem tillögur hans til
réttra hlutaðeigenda, en þetta
mun vera rangur skilningur hjá
ráðherranum.
Um þetta mál ræddu á bæj-
arstjórnarfundinum Jón Axel
Pétursson, Bjarni Benediktsson,
Jakob Möller og Tómas Jónsson
borgarritari. Hófust umræðurn-
ar með því, að gerð var fyrir-
spurn til borgarritara, en borg-
arstjóri var ekki mættur, um
það, hvort borgarstjóri hefði
nokkuð verið í ráðum um þess-
ar ráðstafanir. Borgarritari
neitaði því og kvað borgarstjór-
ann ekkert hafa vitað um málið
— fyr en hann las um það í blöð
unum. Samkvæmt lögum getur
bæjarstjórn ein álcveðið lokun-
artíma veitingahúsa og annað í
sambandi við þessi mál. Það
kom berlega fram við þessar
umræður, að bæjarfulltrúarnir
álíta þessar ráðstafanir vera
fálm, sem sé aðeins til hins
verra.
Allar þessar upplýsingar
munu koma mönnum mjög á ó-
vart. Menn töldu, eftir ummæl-
um lögreglustjóra við blöðin að
dæma, að myrkvun hefði verið
ákveðin frá 15. þessa mánaðar
og aðeins væri eftir að ákveða,
hvernig myrkvunin ætti að
vera. Sama máli gegndi um tak-
Frh. á 4. síðu.
Molotov.
Sovétstjórnin lofar flitler
ðf rambaldandi vinátta sinnt
ír@íar wllja kaufia síMaraf*
urðir fyrfr 27 milljénir króna.
pví er tallð trygffit, ai hægt sé að
seSja mestan hluta af Iramleiðslu ársins
VIÐSKIPTASAMNINGAR okkar við brezku verzlunar-
sendinefndipa hafa nú borið þann árangur, að Bretar
hafa gert okkur tilboð um kaup á síldarmjöli og síldarlýsi,
25 þúsund tonnum af hvoru. Myndi slík sala nema um 27
milljónum króna.
Ríkisstjórnin hefir mælt með
því, að þessum tilboðum verði
tekið, og má gera ráð fyrir því,
að með þessu sé tryggð sala á
mestallri lýsis- og mjölfram-
leiðslu síldarvertíðarinnar.
Þess ber þó að gæta, að nú er
óvenju góð síldveiði, og má búast
við því, að framleiðslan geti orð-
ið nokkru meiri, en tilraunir
munu verða gerðar til að selja
Bretúm meira af þessum afur.ð-
um.
Verðið, sem fæst fyrir mjölið,
er 18—19 sterlingspund fyrir
smálestina og 23—24 sterlmgs-
pund fyrir smálestina af lýsiinu.
Þá hafa og Bretar tryggt friagt-
ina.
Með þessu er talið tryggt, að.
verksmiÖjumar skaðist ekki á því
að hafa fyrirfram ákveðið að
greiða sjómönnum og útgerðar-
mönnum 12 kr. fyrir hvert síld-
armál. Þó má geta þess, að
vinnslan í verksmiðjunum er nú
nokkru dýrari en ,hún var á-
ætluð, þegar yerðið var ákveðið.
En hefur nú í hótunum við nágranna-
ríkin í VestuivAsíu, Tyrkland og Persiu
---------+---------
FYRSTA stríðsárið er bráðum á enda, sagði Molotov í
langri ræðu, sem hann flutti á fundi æðsta ráðs Sov-
ét-Rússlands í Moskva í gær, en endalok stríðsins eru enn
með öllu ófyrirsjáanleg. Kvað hann nýjan þátt í stríðinu
nú vera að hefjast, þar sem annars vegar myndu standa
Þýzkaland og Ítalía, en hins vegar Bretland, stutt af Banda-
ríkjunum.
Molotov sagði, að Sovét-Rúss-
land myndi halda áfram að
verða hlutlaust, — einnig
í þessum þætti stríðsins, en lagði
áherzlu á, að hin vilisamlega j
samvinna Sovét-Rússlands og
Þýizkalands, sem hafizt hefði j
með vináttusamningnum í
Moskva í fyrrahaust, myndi
halda áfram.
Sérstaka athygli vakti það í
ræðunni, að Molotov fór óvin-
samlegum orðum um nágranna-
ríki SoVét-RússIands í Vestur-
Asíu. Sakaði hann Tyrkland um
að hafa tekið þátt í árásarfyrir-
ætlunum gegn Sovét-Rússlandi,
og Persíu (Iran) um að hafa
leyft brezkum hernaðarflugvél-
um að fljúga yfir land sitt. Var-
aði hann bæði þessi lönd við að
láta slíkt koma fyrir aftur, ef
þau vildu halda vináttu við Sov-
ét-Rússland og þykja ummæli
Molotovs henda til, að sovét-
stjórnin ætli sér í framtíðinni
að hafast eitthvað meira að í
þessa átt, en hingað til.
f ræðu sinni sagði Molotov enn
fremur, að Þjóðverjum og Rúss-
u:m hefði brðið mikill hagnaður
að vináttusáttmálanum, sem gerð-
Ur var í Moskva í fyrra. Þjóð-
verjar liefðu fengjð tryggan frið
á austurlandamærum sinum, en
Rússar hefðu getað kornið fram
nauðsynlegum breytingum að
því er snertir vesturlandamæri
sín.
Inönii Tyrklandsforseti.
Tilraunir kvað Molotov hafa
verið gerðar til þess að spilla
sambúð Þjóðverja og Rússa, og
vísaði hann öllu slíku á bug með
fyrirlitningu.
HGldalep orð i garð Breta
ob Bandarikjanna.
Miolotov taldi sambúð Breta og
Rússa engum verulegum breyt-
ingum hafa tekið, en það, að Sir
Stafford Cripps hefði verið skip-
aður sendiherra í Moskva, sýndi
ef til vill, að brezka stjómin
Frh. á 4. síðu.