Tíminn - 20.04.1963, Qupperneq 9
*
Friðrik Olafsson skrifar um
SKÁKÞING ÍSLANDS 1963 var
baldið núna um páskana og var
teflt í fjórum flokkum. Úrslit í
landsliðsflokki srðu þessi: 1. Ingi
K. Jóhannsson 9 vinninga. 2. Jón
Kristinsson 8V2 vinning. 3. Magn-
ús Sólmundarson 7 vinninga. 4.—6.
sæti, Benóný Benediktsson, Frey-
steinn Þorbergsson, Jónas Þor-
valdsson 6 vinninga. 7. Helgi Ól-
afsson 5% vinning, 8.'—11 sæti,
Bragi Kristjánsson, Gylfi Magnús-
aon, Jón Hálfdánarson og Björn
5'orsteinsson 4 vinninga. 12. Bragi
Björnsson, 2 vinninga.
Ingi vann þarna öruggan sig-
ur og má segja, að hann hafi gert
út um mótið þegar í upphafi, því
að hann vann fimm fyrstu skák-
imar og var þá svo langt fyrir
ofan aðra keppendur, að hann gat
leyft sér að gera nokkur ódýr jafn
tefli í lokaumferðunum.
Þetta er í fjórða sinn, sem Ingi
hlýtur sæmdarheitið „Skákmeist-
ari íslands" og óskar þátturinn
honum hér með til hamingju með
afrekið. Jón Kristinsson, sem hlaut
annag sætið þama, tókst nú loks-
ins að gera hæfileikum sínum
verðug skil og náði sínum bezta
árangri til þessa. Hann mætti Inga
í 3ju umferð og má í rauninni
segja, að úrslit mótsins hafi ráð-
izt í þeirri umferð. Jón átti kost
á jafntefli í skákinni, en gerði sig
ekki ánægðan með það og fór svo
að . lokum að hann laut í lægra
haldi fyrir hinum reyndari and-
stæðingi sínum. Eftir það héldu
Inga engin bönd og Jóni tókst
ekki að minnka bilið, sem var á
milli þeirra fyrr en í síðustu um-
ferðunum. Jón getur verig mjög
ánægður með þessa frammistöðu
sína og á hann nú einungis eftir
að setja punktinn yfir i-ið, þ. e.
síaðfesta, að frammistaðan hafi
ekki verið nein tilviljun. Það ætti
honum varla að veitast mjög erfitt.
Magnús Sólmundarson, sem kem-
ur í þriðja sæti, IV2 vinning á eft-
ir Jóni, getur einnig verið ánægð-
ur með árangur sinn. Hann byrjaði
fremur illa, en tók svo snarpan
endasprett og tókst að tryggja
sér öruggt sæti í landsliði fyrir of-
an reynda skákmenn, eins og Frey-
stem, Benóný og Jónas. Þetta er
bezta frammistaða Magnúsar til
þessa og sýnir hún, að hann er
mjög vaxandi skákmaður. Þeir
kapparnir Benóný, Freysteinn og
Jónas deildu með sér 4.—6. sæt-
inu. Þar sem aðeins fjórir efstu
menn í mótinu vinna sér rétt-
indi til þátttöku í næstu landsliðs-
keppni, munu þeir þremenning-
arnir verða að tefla um 4. sætið sín
á milli og er ekki að efa, að sú
viðureign verður hörð. Verður að
álíta Freystein þar sigurstrang-
legastan, enda þótt Benóný og
Jónas séu hættulegir andstæðing-
ar, sem ekki, munu láta í minni
pokann. fyrr en í fulla hnefana. —
Helgi Ólafsson var nálægt því að
geta blandað sér í stríðið um 4.
sætið og má hann vel við sinn
hiut una. Hins vegar má ætla, að
þeir Björn, Jón og Bragi Krist-
jánsson séu ekki að ráði ánægðir
með frammistöðu sína, a. m. k.
Björn, sem oft hefur séð sinn fífil
fegurri. Hann hefur með árangri
sinum á undanförnum árum gefið |
góð fyrirheit, en virð/st nú í ein-
hverjum öldudal.
Um Braga og Jón er aftur á I
reóti það að segja, að þá skortir I
enn keppnisreynslu í svo sterkum
mótum sem þessu og missa þeir
oft út úr höndum sér vænlegar
stöður, þegar á reynir. En þetta
er nokkuð, sem hendir alla unga
upprennandi skákmenn og þurfa
þeir félagarnir ekki að hafa mikl-
ar áhyggjur, þótt illa hafi tekizt
til að þessu sinni. Þeir hafa nægan
tima til ag bæta úr þessum ágalla.
— Útkoma Gylfa er heldur lakari
en í fyrra, — en Bragi Björnsson
hefur aldrei teflt í landsliði áður
og virðist ekki öllum hnútum
kunnugur enn þá. — Skákir frá
Skákþinginu munu birtast í næstu
þáttum.
★ HEIMSMEISTARA-
EINVÍGIÐ.
Petrosjan tók forystuna í ein-
viginu um heimsmeistaratitilinn
með því að bera sigur úr býtum í
7. skákinni. 8. og 9. skákin urðu
jafntefli, svo að leikar standa nú
5.4, Petrosjan í hag. í dag verður
birt hér í þættinum 6. skákin.
★ 6. SKÁKIN.
Byrjun þessarar skákar teflist
á sama hátt og 2. skákin í einvíg-
inu, en í þeirri skák tókst Bot-
vinnik að byggja sér upp vænlega
stöðu, eins og við munum minn-
ast. Petrosjan hefur að sjálfsögðu
ekki í hyggju hér að endurtaka
taflmennsku sína þar og breytir
hann út af, er leiknir hafa verið
8 leikir. Eftir 18 leiki er staðan
nokkuð í jafnvægi, en þá verður
Botvinnik á smávægileg óná-
kvæmni, sem gefur Petrosjan
írumkvæðið. Petrosjan tekst þó
að hagnýta sér ögn skárri stöðu
sina og í 27. leik semja keppend-
ur um jafntefli.
Hvítt: Botvinnik.
Svart: Petrosjan.
Móttekið drottningarbragð.
1. d4, d5. 2. c4, dxc4.
(í annarri skákinni eru ýtarlegar
skýringar við þessa byrjun'. Er
því ekki ástæða til að endurtaka
þær hér).
3. Rf3, Rf6. 4. e3, e6. 5. Bxc4,
c5. 6. 0-0, a6. 7. a4, Rc6. 8.
De2, Be7.
; (Fram að þessu hefpr skákin teflzt
| ó sama hátt og önnur skákiri, en
hér breytir Petrosjan til. Áfram
haldið i 2. skákinni varð 8 —,
cxd4. 9. Hdl, Be7. 10. exd4, 0-0.
11. Bg5, með frjálsari stöðu fyrir
hvít).
9. dxc5, —
(Það væri fróðlegt að sjá, hvernig
svartur hefði svarað 9. Hdl).
9. —, Bxc5.
(Samkvæmt grundvallarlögmálum
skákarinnar er þetta leiktap, þar
eð biskupnum hefur verið leikið
tvisvar í.röð. Þetta kemur þó ekki
að sök hér, því að uppbygging
stöðunnar er fremur hægfara).
10. e4, Rg4.
(Nýstárlegur leikur, sem hefur það
markmið, að ná valdi yfir e5-
reitnum).
11. Bf4, Df6.
(Nú er útséð um, að svartur hef-
ur borið sigur úr býtum í barátt-
unni um e5-reitinn. Hvítur verður
því að leita á aðrar vígstöðvar).
12. Bg3, Rg5. 13. Rxe5, Rxe5.
14. Rd2, —
(Botvinnik er nokkuð á undan í
hðskipan sinni og gefur hann því
biskupinn eftir af fúsum vilja.
Virðist þetta í alla staði rökrétt
og eðlileg hugmynd).
14. —, 0-0. 15. Hadl, bí. 16.
Dh5, Rxc4. 17. Rxc4, a5.
18. Re5 (?).
(Með þessum leik og þeim næsta
fer Botvinnik inn á varhugaverð-
ai brautir. Vænlegasta áframhald-
ið hér virðist hafa verið 18. Be5,
De7. 19. Bd6, Bxd6. 20. Rxd6, með
heldur rýmri stöðu fyrir hvít).
18. —, De7. 19. Hd2, —
(Eftir þennan leik fær svartur
betri stöðu, en hvítur átti í raun-
inni erfitt um vik eftir síðasta
leik sinn. Hann gat þó reynt strax
19. Rd3).
19. —, f6. 20. Rd3, e5.
(Nú kemur upp staða með mislit-
um biskupum, en sá svarti er marg
Leikfélag Akraness:
GILDRAN
sakamálaleikur eftir Roberf Thomas.
/
PýSirgs Gunnvör Braga SigurSardóttir.
Leikstfóri: Höskuldur Skagfjörö.
Á undanförnum árum hefur
Leikfélag Akraness verið mjög
starfsamur félagsskapur. Það hef-
ur sýnt mörg leikrit, oft fleiri en
eitt á vetri, og sízt ráðizt á garð-
inn, þar sem hann er lægstur hvað
leikritaval snertir.
Nú í ár sýnir það okkur Gildr-
una eftir Robert Thomas. í leik-
skrá segir, að leikritið hafi verið
sýnl á þrem stöðum hérlendis og;
hlotið „mjög góða aðsókn og góða'
dóma“, og skal það ekki í efa'
dregið. Hitt er svo annað mál, að
leikritið er langt frá því að vera
bókmenntaverk, þó að bersýnilegt
sé, að höfundurinn kann vel til
verka. Þetta er víst ósvikið ,,saka-
málaleikrit"; engin persóna sér-
staklega eftirtektarverð mann-
gerð, nema ef tU vill umrenning-
urinn, Brissard Poul. Bygging
leikritsins er hins vegar listilega
gerð, persónurnar allar að „leika“
í sjálfum leiknum. Enginn kemur
til dyranna eins og hann er klædd
ur fyrr en í lei'kslok. Er það í
sjálfu sér íhugunarefni, en höf-
undurinn virðist ekki ætlast til,
að það hafi nein sérstök áhrif ti’l
aukins skilnings á persónunum.
Virðist mér sem honum sé nægi-
legt að þetta bragð hans verði
áhorfendum undrunarefni, og er,
það að sjálfsögðu í samræmi við
gerð leikritsins Tilgangurinn er
sem sé hinn sami og reyfarans:
að fanga hug áhorfandans án þess
að gera kröfu til þess, að nokkuð
það sé sagt eða gert, sem á erindi
við mennskt fólk, skírskotar- til
sammannlegra vandamála.
Máltækið segir, að fleira sé mat
ur en feitt kjöt, og á það vel við
um leikrit þetta, því að það er
vel þess virði, að horft sé á það
eina kvöldstund, þó að efnið sé
léttvægt. Þetta er eins og hag-
lega gerð dægradvöl, rímþraut eða
krossgáta: maður gleymir lausn-
inni um leið og hann hefur fundið
hana. — En atburðarásin er þann
ig, að leikurinn heldur hug okkar
föngnum, meðan á er horft.
Framhaíd i . 3 síðu.
falt sterkari, þar sem áhrifamætti
þess hvíta eru miklar skorður sett
ar. Botvinnik verður að tefla mjög
varlega í framhaldinu til að kom-
ast hjá áföllum).
21. Rxc5, Dxc5. 22. Ddl, —
(Nú hefur vörn verið snúið upp
í sókn).
22. —, Be6. 23. Hel, Hac8.
24. h3, Db4. 25. He3, Hc4.
26. b3, Hc6.
(Petrosjan geðjast greinilega ekki
að áframhaldinu: 26. —, Hxe4. 27.
Hxe4, Dxe4. 28. Hd6 og b-peðið
svarta fellur).
27. Kh2, b5.
(Keppendur sömdu jafntefli hér).
Botvinnik á leið á keppnisstað.
Ljósmynd: TASS
Sjötug er 1 dag heiðurskonan frú
Margrét Karlsdóttir frá Bjargi í
Miðfirði, V Hún. Eg vil með ör-
íáum línum senda henni mínar
beztu árnaðaróskir í tilefni áf-
mælisins.
Frú Margrét Karlsdóttir er fædd
20. apríl 1893 að Bjargi í Mið-
ftrði, (jóttir merkishjónanna Karls
Sigurgeirssonar og Ingibjargar
lóhannesdóttur. Karl var Þingey-
:ngur að ætt, faðir hans Sigurgeir,
fluttist frá Svartárkoti í Bárðardal,
vestur að Þíngeyrum í Húnaþingi
og bjó hanr, þar um skeið. Síðar
íluttist hann að Víðidalstungu og
ioks að Skarastöðum í Miðfirði.
Þá var han’i orðinn aldraður mað-
ur, er hanri brá búi og fluttist til
Ameríku. Þar lifði hann allmörg
ár og var kominn yfir nýrætt er
hann dó, Sigurgeir var héraðs-
höfðingi hvar sem hann fór.
Karl á Bjargi faðir Margrétar
var stór maður og glaésilegur svo ■
af bar göfugmenni hið mesta, sem 1
öilum þótti vænt um, sem kynnt-
usf honum eitthvað.
Bjargsheimilið var mannmargt
eg þar var ætíð mikið um glað-
værð. Hjómn bæði sérlega söng-
elsk og frú Ingibjörg spilaði á
hljóðfæri og þá sungu allir. Þetta
erfði Margrét í ríkum mæli, því
Framhald á 13. siðu.
TÍMIN'N, laugardagiinn 20. apríl 1963 —
9 í