Tíminn - 18.05.1963, Side 16

Tíminn - 18.05.1963, Side 16
MTOI' t Laugardagur 18. maí 1963 110. tbl. 47. árg. 6,9 millj. kr. tap á innanlandsflugi UNGA FÓLKIÐ DANSAR Á SKEMMTUN FUF f SKÝRSLU Flugfélags fslands um starfsemi þess árið 1962 kem- ur fram sú staðreynd, að halli hefur orðið á rekstri félagsins, sem nemur 2,7 milljónum kr., en þá höfðu eignir þess verið af- skrifaðar um 14,9 milljónir kr. Taprekstur á innanlandsflugi nam 6,9 milij. kr. Félagið hefur nú endurnýjun innanlandsflotans í athugun. Aðalfundur Flugfélags íslands var haldinn í fundarsal Hótel Sögu ‘ dag. Áður en gengið var til dag- skrár minntistörn Ó. Johnson hins hörmulega slyss, er millilandaflug- vélin Hrímfaxi fórst xið Oslo á páskadag og með henni sjö far- þegar og fimm manna áhöfn. — Vottuðu fundarmenn hinum látnu virðingu sina og aðstandendum þeirra samúð, með því að rísa úr sætum. Forstjóri félagsins, Öm Ó. John son, flutti síðan skýrslu um starf- semi félagsins á liðnu ári. Flutningar með flugvélum fé- iagsins höfðu aukist mikið á ár- inu 1962 miðað við árið 1961. — Alls voru fluttir 104.043 farþegar t.en 77.894 árið 1961). Vöruflutn- mgar námu 1396 lestum (1123) og póstur 199 lestum (164). Milli ís- lands og útl. voru fluttir 22.184 íarþegar, milli erlendra borga HKL A DÖNSKU Tímanum hefur borizt rit gerðjasafn það á dönsku, sem Gyldendal hefur gefið út eftir Halldór Laxness. Safn- ið kom út í gær, föstudag. Þetta er myndarlega útgefin bók, tvö hundruð blaðsíður að stærð, en í henni eru birtar nítján ritgerðir og greinar eftir nóbelsskáldið. Greinar þessar hefur HKL ýmist skrifað á dönsku, ensku eða íslenzku, og þær eru frá ýmsum tímum. Hann hefur sjálfur þýtt greinarn- ar á ensku og íslenzku yfir á dönsku. Ritgerðasafnið aefnist á dönsku „De is- landske sagaer og andre essays“ Þéttsetlð var við öll borð á skemmtun F.U.F. á 'Hótel Sögu s.l. fimmtudags- kvöld. Ræðu Elnars Ágústssonar var mjögi vel teklð, skemmtiatriðin vöktu fögnuð, og að lokum var stigiiín dunandi dans. — (Ljósm.: TÍMINN,—GE) HAFNIR Kjósendafundurinn í Höfnum hefst kl. 16.00 á morgun, sunnudaglnn 19. maí. Frummælendur: Jón Skaftason, alþm. og Valtýr Guðjóns son, framkvæmdastjórl. Framlagsskyld ræktun hefur dregizt saman 5.76Ö og í leiguferðum milli landa og innanlands í Grænlandi 8000 farþegar. Á flugleiðum innanlands voru fluttir 68.091 farþegar og er það 40,7% aukning frá órinu áður. Fjölfarnasta flugleiðin inn- anlands var leiðin milli Reykja- víkur og Akureyrar með 22.854 farþega. Vöruflutningar innan- lands námu 1.110 lestum og póst- flutningar 127 lestum. Heildartekjur af millilandaflugi árið 1962 námu 114,2 millj. kr. en af innanlandsflugi 31,5 millj. eða alls 145.7 millj. kr. Heildar- rekstrarkostnaður nam 148,4 millj Framhald á 15. sfðu. HEFUR JÁ TAÐ IGÞ-Reykjavík, 17. maí. Lögreglan hefur haft upp á manninum, sem aðstandendur tveggja níu ára telpna kærðu fyr- ir ósæmilegt athæfi að morgni 7. maí siðastliðinn, er hann bauð þeim upp í híl og ók með þær upp að Árbæ, þar sem hann lét þær fækka fötum og hneppti sjálfur frá sér, án þess að aðhafast meira. Maðurinn hefur nú viðurkennt athæfi sitt. Hann er tuttugu og sjö ára að aldri og ók í bíl frá bílaleigu. Sakborningur segir, að þegar telpurnar hafi farið að gráta, hafi sér fallið allur ketill í eld. Maður þessi er búsettur hér í Reykjavík. Framburður hans og telpnanna er samhljóða í öllum aðalatriðum. Þá gerðist það síðastliðið sunnu dagskvöld, að maður beitti átta ára telpu ósæmilegu athæfi á sal- erni í kjallara í húsi einu í austur bænum. Mun hann hafa skaddað telpuna lítillega. Þrjátíu og þriggja ára maður er grunaður um þetta athæfi. Hann hefur ekki játað og situr nú í gæzluvarðhaldi. Báðir þessir menn eru ókvæntir. MB-Reykjavík, 17. maí. Það kemur fram í ræðu, sem Pálmi Einarsson landnámsstjóri flutti á fundi ráðunauta í Reykja- vík, þann 11. marz s. 1. og birt er í Frey, 9. tbl., að framlagsskyld ræktun hérlendis hefur dregizt mikið saman árin 1961 og 1962 og að ræktunin næstu ár þyrfti að vera a. m. k. helmingi meiri en framlagsiskyld ræktun þessi tvö ár, ef halda á í horfinu. Frá árinu 1957 hefur framlags- skyld ræktun, samkvæmt ákvæð- um landámslaga, fram til ársloka 1961, numið 7043,85 hekturum og, skipzt þannig á einstök ár: 1957 1330.67 ha 1958 1540.59 — 1959 1695.61 — 1960 1363.75 — 1961 1113.23 — Landnámsstjórinn telur, að enda þótt 'öll kurl séu ekki komin til grafar hvað árið 1962 áhrærir, þá sé sennilegt, að ræktunin það ár verði álíka og árið 1961. . Þá vikur landnámsstjóri nokk- uð að ásetningi og fóðurþörf og Framh. á bls. 15. Aukinn útflutn- ingúr freðfisks Freðfiskútflutnimgur Sjávaraf- urðardeildar S.Í.S. var 830 tonn- um meiri fyrstu fjóra mánuði þessa árs heldur en á sama tíma- bili árið 1962. Langmest aukning varð á útflutnjngi til Bandaríkj- anna, eða rúmlega 1200 tonn. Mikil á'herzla var lögð á að senda freðfisk út til Bandaríkj- anna á bezta sölutímanum, sem er fyrstu mánuðir ársins. Annars varð útflutningur þessa fyrstu fjóra mánuði ársins sem hér seg- ir: 1963 1962 Jan.-Apr. Jan.-Apr LÖND: Tonn Tonn Bandaríkin 3.557 2.346 Rússland 790 789 Framhald á 15. sföu. Stjórnin svar- ar sjálfri sér Mbl. segir: Gylfi segir: Það er fátt, sem „viðreisnar“ stjórnln er sjálfu sér samkvæm í, og hefur það hvergi komið betur í ljós en í Efnahagsbanda Iagsmálinu. Þar segir stjómin og málgögn hennar eitt í dag og annað á morgun. Gott dæmi um þetta er telknimynd í Morg- unblaðinu, sem segir: Eysteinn krefst fullrar aðild- ar að EBE. Eysteinn krefst aukaaðildar að EBE. Eysteinn krefst tollasamnings. Á sama túna og Morgunblað- ið ber þetta á borð fyrir Ies- endur sína, liggja fyrir orð eins ráðherrans í „vlðreisnar“-stjórn Inni um sannleiksást Mhl. í þessu máli. Orðrétt tekið úr ræðu ráð- herrans frá 2. apríl s.l.: „Það er alveg rétt, sem hátt virtur formaður Framsóknar- flokksins heldur fram hér og skal ég me® ánægju staðfesta það, að hann hefar frá upphafi talið að tolla- og viðskiptasamn ingsleiðin værl eina leiðin, sem hentaði íslendingum í þessu máll. Það kom fram í fyrsta samtalinu, sem við áttum um málið. Á þv> hefur aldrei verið nokkur vafi í mínum huga, að háttv. fyrsti þingmaður Aust- firðlnga, Eysteinn Jónsson, hef- ur haft þessa skoðun, þó að ég hafi hins vegar talið á sín- um tíma, að í upphafi hafi hún ekki verið nægilega vel rök- studd, en það er annað mál“. I

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.