Alþýðublaðið - 23.08.1940, Blaðsíða 1
XXI. ÁRSAN6UR
FÖSTUDAGUR 23. ágúst 1940.
193. TÖLUBLAÐ
RITSTJÓEI: STEFÁN PÉTURSSON
! Síðustu fréttir:
■4 ■
Bretar einiii fari
ir að shjóta yfir
I Eraarsud!
AÐ var tilkynt í
Lundúnaútvarpinu
j| eftir hádegið í dag, að
■!: Bretar væru nú einnig
j: byrjaðir að skjóta af
1; langdrægum fallbyssum
j: yfir Ermarsund á víg-
stöðvar Þjóðverja á
i Frakklandsströndinni.
Trotzhi verður jarð-
aðnr á rihishostnað
vestur f Mexíhé.
CARDENAS, ríkisforseti í
Mexikó, tilkynnti í gær, að
stjóm hans hefði ákveðið að sjá
wm útför Trotzkis og bera'allan
kostnað af henni.
Oliver Lodge iátinn.
HlNN heimsfrægi vísindamað-
ur Sir Oliver Lodge lézt á
’heimili sinu í Ljúnd|3tn' í gær tæp-
lega níræður að aldri.
Hann var fyrir aldamótin lang-
• an tima prófessor í eðlisfræði
við háskólann í Liverpool.
Á síðari árum gaf hann sig
aneira og meira að spirtisma.
Þjóðverjar, byrjuðu í gær
að skjóta yfir Ermarsund.
---♦—■—
Eo ekki nema télf fallkyssukúlur
náðu ensku ströndinni hjá Dover.
T-x IÓÐVERJAR byrjuðu allt í einu í gær að skjóta af lang-
drægum fallbyssum yfir Ermarsund.
Hófst skothríðin kl. 11 árdegis og var þá beint gegn brezk-
um kaupskipaflota, sem sigldi undir herskipavernd norður
sundið skammt fyrir sunnan Dover, þar sem það er mjóst,
eða aðeins 37 km. Engin kúlan hitti. Þær féllu allar í sjó-
inn, enda voru kaupskipin þegar í stað hulin reykjarmekki
af herskipunum og komust þau öll heilu og höldnu í gegn-
um sundið.
Skothríðin stóð í þetta sinn ekki nema hálfa klukku-
stund. En klukkan 9 í gærkveldi hófst hún á ný og var þá
skotið alla leið yfir á Kentströndina umhverfis Dover. Sá-
ust blossarnir, þegar skotið var, yfir á Frakklandsströndinni,
hálfri annarri mínútu áður en kúlurnar sprungu umhverfis
Dover.
Aðeins 12 kúlur komu þó niður á ensku ströndinni og
ollu nokkru tjóni á mönnum og mannvirkjum. Eftir þrjá
stundarfjórðunga þagnaði skothríðin á ný.
Bretar svara með loftárás.
--------4-------
Meðan skothríðin stóð yfir í gærkveldi sást allt í einu mik-
ill eldbjarmi yfir frönsku ströndinni og skothríð úr Ioftvarna-
byssum heyrðist alla leið til Englands. Talið er víst, að brezkar
sprengjuflugvélar hafi verið að verki, og hafi skotluíð Þjóðverja
yfir Ermarsund verið svarað með loftárás á fallbyssustæðin á
frönsku ströndinni.
If tepnd orasín
flugvéla.
Hraðfleygari en þekkst
hafa hingað til.
FREGNIR hafa borizt
frá Los Angelos í
Kaliforníu um nýja gerð
orustuflugvéla, sem fer
með 750 km. hraða á
klukkustund, eða meiri
hraða en nokkrar orustu-
flugvélar hingað til, og er
húin einni hríðskotabyssu
og 5 litlum vélbyssum.
Flugvélar þessar nefnast
F—38.
600 slíkar flugvélar
verða smíðaðar og kostn-
aðurinn áætlaður 50 millj-
ónir sterlingspunda.
I Los Angeles hefir einn-
ig verið smíðuð flugvél,
sem getur flogið viðkomu-
laust þaðan til Evrópu og
til baka.
■tíacw/cb.
Cáiais',
BRUSSL
:,BEL6/
LzHavre
REIMS
NKRÍ6
KORT AF ERMARSUNDI
Það er skotið á 37 km færi milli
Calais og Dover.
Loftvarnasjálfboða-
LIÐI í úthverfi í London
vax fyrir nokkru að tala við
koniu, sem stóð með bam sitt í
dynum á húsi einu þegar hann
heyrði að sprengja féll skammt
Hann reyndi að fá konuna til
að leggjast niðux, en hún vildi
það ekki. Þreif hann þá af henni
Frh. á 4. sí&u.
Unferöstjðraaðeinaklnkkn
stnnd eftir enskna reglnm
-----4----
Misskilningur í gær, sem hefði hæg-
lega getið valdið slysum og tjóni.
Loftárás á London
snemma i morgnn.
-----4-----
Toluverf tjéaa varð af árásinni.
-----4-----
AÐVARANIR UM LOFTÁRÁS voru gefnar í London
snemma í morgun. Skömmu seinna flugu þýzkar flug-
vélar inn yfir borgina, þó fáar saman eða ein og ein, og
vörpuðu niður sprengikúlum á nokkrum stöðum áður en
tekizt hafði að hrekja þær á hrott.
í einu úthverfi varð kvikmyndahús fyrir sprengikúlu
og hrundi og miklar skemmdir urðu á húsum í öðru úthverfi.
Um manntjón eru engar tilkynningar komnar enn.
SÁ ATBURÐUR gerðist
hér í hænum í gær, sem
hefði getað valdið miklum ó-
þægindum og tjóni fyrir veg-
farendur og bifreiðaeigend-
ur, ef illa hefði farið.
Brezkur lögregluþjónn tók
;allt í einu stjórn umferðar um
gatnamót Bankastrætis, Aust-
urstrætis og Lækjargötu í sín-
ar hendur. Var þetta klukkan
-4. Eins og kunnugt er, er nú
góð samvinna milli hinna
brezku og íslenzku lögreglu-
manna, en um þetta sneri
brezka lögreglan sér alls ekki til
íslenzku lögreglunnar og kom
þetta því hinni síðarnefndu al-
gerlega á óvart.
Þetta þurfti þó ekki að vera
neitt hættulegt, ef brezki lög-
regluþjónninn hefði stjórnað
umferðinni samkvæmt settum
reglum, en þetta gerði hann
ekki.
Hefði það getað haft þau á-
hrif, ef slys eða árekstrar hefðu
orðið, að tryggingarfélög bif-
reiða hefðu með fullum rétti
getað neitað að greiða trygg-
ingar — og skilja menn hvílíkt
tjón hefði getað orðið af þessu.
Fulltrúi lögreglustjóra, ásamt
yfirlögregluþjóni, fóru í bifreið
um þessi gatnamót eftir settum
umferðarreglum, en voru stöðv-
aðir. Fulltrúinn spurði þá lög-
regluþjóninn hver hefði gefið
honum fyrirskipun um að taka
Frh'. á 4. síðra.
^ Fjöldi fólks var saman kominn
á ströndinni iwnhverfis Dover
bæði fyrripartinn í gær ®g í gær-
kveldi til þess að horfa á bloss-
ana yfir á Frakklandsströnldinni
og sjá fallbyssukúlur Þjóðverja
springa. í árásinni á skipaflotann
mynduðust ógurleigir vatnsstrók-
ar, þegar kúlurnar skullu í sjó-
inn, en tjón varð ekkert af þeim.
Loftárás á eftir.
Þegar fallbyssuskothríðinni var
lokið á skipaflotann, án þess að
nokkurt skipanna hefði verið
hæft, komu þýzkar flogvélar á
vettvang og hófu loftárás á þau.
En það fór á sömu leið. Engin
sprengikúlan hitti. Ein þýzka
flugvélin var sfcotin niður. Hinar
lögðu á flótta fyrir sfcothríðinni
úr loftvarnabyssum herskipanna.
Hitler andvíflor of-
beldi eins og fiandhi!
BERLÍNARÚTVARPIÐ sagði
tvisvar í gær í útsend-
ingum, sem ætlaðar vom fyrir
Indverja og fóm fram á hln-
Frh. á 4. siðu.
Þegar aðvömnin var gefin um
loftárásina héldu borgarbúar
skipiulega og rólega til loftvarna-
byrgjanna.
Sfcofið var af loftvarnabyssum
á árásarflugvélarnar, og var skot-
hriðin svo áköf í einu "‘hverfi
borgarinnar, að flugyélarnar
urðu þar strax frá að hverfa.
Loftárásir á Bretland voru með
minnsta móti í gær. Alls voru
iskotnar niður sjö þýzkar flug-
vélar og fjórar brezkar. Flug-
menn úr tveimur brezkum flug-
vélum björguðust.
Italskar flugvélar gerðu árás á
lAlexandría í morguu. Hver flug-
vélafylkingin kom á fætur ann-
ari, en flugvélarnar flugu mjög
hátt og misstu því margar af
sprengjunum marks.
Sigurgeir Sigurðsson
biskup hefir verið kjörinn heið-
ursfélagi Sambands íslenzkra
karlakóra. Áður hafa verið kjörnir
heiðursfélagar sambandsins þeir
söngstjórarnir Jón Halldórsson,
Sigurður Þórðarson, Sigurður
Birkis söngkennari og Sigfús heit-
inn Einarsson tónskáld.