Alþýðublaðið - 26.08.1940, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 26.08.1940, Blaðsíða 1
t XXI. ÁRGANGUR MÁNUDAGUR 26. ÁGCST 1940 195. TLUBLAÖÐ RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON ÚTGEFANDl: ALÞÝÐUFLOKKURINN Englendingar ger a loftárásir á stærstu borgir Þýzkalands ------4------ ÞJóðverJar órisslr nm, hvaða aðferð una skuli beita í árásum á England SMÁTT OG SMÁTT virðist það nálgast, að Bretar taki forystuna í lofthernaðinum. Viðburðir síðustu daga virðast benda til þess, að Þjóðverj ar telji, að fyrri aðferðir þeirra um árásir á England með stór um hópum af flugvélum, hafi ekki borið tilætlaðan árangur. — I stað hinnar fyrri aðferðar hafa þeir nú tekið upp á því að senda tiltölulega minni hópa en áður. . En allt bendir til þess að þessi aðferð dugi ekki heldur, að tjón þeirra sé tiltölulega jafn gífurlegt og árangur af loft- árásum þeirra jafnlítill. Þetta var gert að umtalsefni í hrezka útvarpinu seint í gærkveldi í erindi, er sérfræðingur flutti um þessi mál. Hélt hann því fram, að aðferðir Þjóðverja allra síðustu daga bentu til þess að þeir væru sjálfir óvissir um það hvern- ig þeir ættu að haga árásum sínum. Taldi sérfræðingurinn þetta fyrsta óyggjandi vottinn um að Þjóðverjar væru orðnir fálmandi í lofthernaði sínum. Loftárásir á Berlin og Leipzig Bretar safna nú öllum aluminíumhlutum ,sem þeir geta án ver- ið og bræða f>á upp. Er efnið notað í flugvélar, sem þurfa, eins og kunnugt er, að vera úr afar léttu en sterku efni. Á myndinni sjást birgðir af eldhúsáhöldum o.fl. sem á bræða upp. Síðustu fréttir: Brezkar sprengjuflugvél- ar yfir Wilhelmsstrasse. --------4------- ÞAÐ VAR TILKYNNT í London kl. 1,15 í dag, að brezkar sprengjuflugvélar hefðu flogið í stórum bylgjum yfir Berlínarborg seint í gærkveldi og hefði loftárás þeirra stað- ið yfir í nokkrar klukkustundir. Sprengjnflugvélarnar komust í stórum hópum inn yfir miðja borgina, flugu yfir Wilhelmsstrasse og kanslarabústað- inn þar, en þar hefir Hitler aðsetur sitt, þegar liann er í Berlín. Ameríkskir fréttaritarar í Berlín hafa símað hlöðum sín- unr að ægilegar sprengingar hafi orðið í norðvesturhluta borgarinnar. Fyrst heyrðust 10 sprengingar og siðar fleiri. Scgjast Brcíar hafa sprengt í loft upp miklar hergagna- verksmiðjiír þar. Undlr vernd nasista: Vaxandi atmnuleysi e§ matvæla- skortnr 1 hernnmdn iondunum. Looar upp úr á Balkan? Mikill hernaðarviðbúnaður i dag i Grikklandi, Tyrklandi, Ungverjalandi oíj Rúmenia. FFTir miðjan dag í dag var tiikynnt í brezka útvarp- inu að allt benti til þess að þá og þegar myndi loga upp úr á Balkanskaga. Grikkir hafa lagt tundurdufl- um á siglingaleiðum sínum við landið. Grísk og brezk herskip hafa tekið sér stöðu á líkum slóðum. Grikkir hafa kailað 4 nýja árganga til vopna. Tyrkland stendur nú að fullu tilbúið til hernaðaraðgerða. Herverðir eru á ölium þýðingar- miklum stöðum og herinn full- búinn. Ungverjar hafa kallað aukið lið til vopna. Rúmenar senda aukið lið til Transsylvan- íu. í gær snjóaði í fyrsta sinn á haustinu á Esju og Skarðsheiði. Steingrímur Arason kennari er farinn vestur um haf til þess að kynna sér nýjungar í skóla- og uppeldismálum í Norður- Ameríku. iinbandi stórskota bríð yfir Ermarsnnd UM helgina hefir iítið Itveðið að stórskota- hríð yfir Ermarsund. Telja Bretar það stafa af því að þeir hafa haldið uppi sí- felldum sprengjuárásum á fallhyssustæði Þjóðverja undanfarin kvöld. Það var tilkynnt í Lond- oii í gær, að Bretar hefðu sett mikinn f jölda af stór- um langdrægum failbyss- um á suðurströnd Eng- lands. Ekki er þó talið að þess- ar miklu fallbyssur á hvor- uga hliðina geti haft mikil áhrif á gang styrjaldarinn- ar. í stærstu þýzku flugvélahóp- unum, sem gerðu árásir á Eng- land í gær, voru um 130 flugvél- ar, en úr þessum síðasta hóp voru skotnar niður 34 flugvélar. Þessi flugvélahópur gerði árás á Dorset hérað á Suður-Eng- landi. Aðrar aðalárásir Þjóðv. voru gerðar á Mið-England og London. Árásin á London mis- tókst algerlega. Ein sprengja lenti kvikmyndahúsi meðan á sýningu stóð og var verið að sýna kvikmyndina „Á hverf- anda hveli“. Rúður brotnuðu í nokkrum húsum og nokkrar skemdir urðu á vatnsleiðslum. Á Mið-Englandi urðu litlar skemdir. Þýzku flugmennirnir skutu meðal annars úr vélbyss- um sínum á kýr og annan bú- pening. Loftárásir Breta á Þýzkaland voru miklu ákafari í gær og í nótt en loftárásir Þjóðverja á England. Samkvæmt fréttum frá Ber- lín voru gerðar loftárásir á Ber- lín, Leipzig, Stuttgart, Frank- furt am Main og Ludwigs- haven. Þessar loftárásir voru gerðar seint í gærkveldi og þögnuðu þýzkar útvarpsstöðvar víða. Samkvæmt fréttum Lund- únaútvarpsins flugu allmargar brezkar sprengjuflugvélar yfir Berlín og samkvæmt óstaðfest- um fregnum urðu miklar sprengingar í norðvesturhluta borgarinnar. Öll umferð stöðv- aðist í borginni meðan á loftá- rásinni stóð og fólk flýði í loft- varnabyrgi og dvaldi þar lengi. í Leipzig var opnuð kaup- stefna fyrir helgina, Hinir mörgu gestir dvöldu megin- hluta síðustu nætur í loftvarna- byrgjum vegna loftárása brezltra flugvéla. Alls staðar vörpuðu brezku flugvélarnar sprengjum sínum á hernaðar- lega mikilvæga staði. Yfir 100 flngvélar skotn ar niðnr é 2 dSgnm. Þá gerðu brezku flugvélarnar loftárásir á yfir 20 flugvelli í Þýzkalandi og löndum, sem Þjóðverjar hafa hertekið. í gær skutu Bretar niður 55 þýzkar flugvélar, en á tveimur dögum hafa þeir skotið niður 105. Sjálfir hafa þeir misst 32 flug- vélar, en 15 flugmenn hafa bjargast af þeim. Brezka flugmálaráðuneytið hefir enn ekki gefið neinar til- kynningar um loftárásirnar á Berlín og aðrar þýzkar borgir, en tilkynning er væntanleg síð- ar í dag. Loks gerðu Bretar miklar loftárásir á Norður-Ítalíu. Bretnr kaupa alla ull Snönr-Afriku «g Astralin. . Bretar ætla að kaupa alla ull- arframleiðslu Suður-Afríku, með an slyrjöldin stendur og eitt ár í viðbót. Áður hefir verið til- kynnt, að þeir kaupi alla ullar- framleiðslu Ástralíu og Nýja Sjá- lands. LÞJÓÐASAMBAND flutningaverkamanna (I.T.F.) birti skýrslu í gær í London, sem sýnir, að lífs- kjör manna fara hraðversn- andi í hinum hernumdu lönd- um Þjóðverja. Matvæla- | skortur eykst, atvinnuleysi o. I s. frv. Alþ jóðasamhand fiutninga- verkamanna hefir gott leynilegt samband við meðlimina í hinum hernumdu löndum, eins og það hefir alltaf getað staðið í sam- bandi við félaga sína í Þýzka- lardi. í skýrslu I.T.F. segir meðal Frh. á 4. slðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.