Alþýðublaðið - 11.09.1940, Side 1
ííITSTJÓEI: STEFÁN PÉTURSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ÁRGANGUR
MIÐVIKUÐAGUR 11. SEPT. 1940
209. TÖLUBLAÐ.
Múgur og margmenni úti fyrir kanzlarahöll Hitlers í Wilhelms-
strasse í Berlín.
BarnsmeðlSg hækka
iraðasf hvar á landinu.
Hér í Reykjavík hækka meðlögin um 20'
------♦-----
Samtal wIH féflagsiMálaráHIierra.
EFTIR AÐ HÆKKUNIN á slysabótum, örorkubótum og
ellilaunum hafði verið ákveðin fyrir nokkru síðan,
.spurðu margir, hvort meðalmeðlög með óskilgetnum börn-
um myndu ekki hækka.
Þessi hækkun á meðalmeð-
lögunum hefir nú verið á-
kveðin eftir að félagsmála-
ráðuneytið hefir fengið til-
lögur, eins og lög mæla fyrir
um; frá öllum sýslunefndum
og bæjarstjórnum á landinu.
Hækka meðalmeðlögin um
allt að 20%. Mest hækka þaú
hér í Reykjavík. Ákvörðun
þessi gildir fyrir tímabilið
frá 14. maí s.l. til 14. maí n.k.,
en til þss að hægt sé að fram-
kvæma hana þarf lagabreyt-
ingu, og verður frumvarp um
þetta efni lagt fyrir næsta
þing.
Alþýðublaðið hafði í morgun;
samtal við Stefán Jóh. Stefáns-
son félagsmálaráðherra um
þetta mál og skýrði hann svo
frá:
„Samkvæmt lögum, sem sett
voru 1935 á upphæð me'öalme'ð-
laga að ákveðast af ráðuneytinu,
að fengnum tillögum frá sýslu-
nefndum og bæjarstjómum, fyrir
hvert sveitar- eða bæjarfélag um
3 ára tímabil í senn.
Nú lá fyrir að ákveða meðal
meðJög um landið allt frá
14. maí s. 1., en tillögur sýslur
nefnda óg bæjarstjöma bárust
ekki til ráðuneytisins fyrr en um
mánaðarmótin júlí—ágúst.
Frh. á 2. isíðú.
Potsdamer BahnEaol f báll,
Brandenburger Tor hrnn"
ið, himlnhálr logar viðs«
vegar yfir miðri borginni
—-------♦í------
A ÐALFRÉTTIRNAR í morgun eru ekki af loftárás Þjóð-
verja á Londori, þó að fjórða næturárásin í röð væri
gerð á hana, heldur af loftárás, sem Bretar gerðu á Berlín
í nótt og er sú langægilegasta, sem sú borg hefir orðið fyrir
í stríðinu. Fréttirnar af henni eru birtar með risastórum
fyrirsögnum á forsíðum allra blaða í Englandi og Ameríku
í morgun.
Loftárásin hófst rétt fyrir miðnætti og stóð til klukkan
hálftvö. Hinar brezku sprengjuflugvélar brutust inn yfir
miðja Berlín og létu sprengjum af stærstu gerð rigna
yfir hana. Eftir árásina stóð Potsdamer Bahnhof, ein aðal-
járnbrautarstöðin, í björtu báli, Brandenburger Tor, hið
fræga hlið fyrir vesturendanum á aðalgötunni, Unter den
Linden, var hrunið í rústir, svo og fjöldi opinberra bygg-
inga, en himinháir reykjarmekkir og logar voru víðs vegar
yfir borginni.
Ógryuí af íbððarMsnm i rústnm.
---------4---------
Árásinni var strax beint að miðbænum, og var fyrsta áhlaup-
ið gert á járnbrautarstöðina á Potsdamer Platz. 40 þungar
sprengjuflugvélar komust inn yfir járnbrautarstöðina á meðan or-
ustuflugvélar þær, er fylgdu þeim, glímdu við þýzkar orustuflug-
vélar yfir úthverfunum.
Byrjað var á því að varpa niður ljósblysum, og þegar þau
voru komin niður undir jörð, var hnitmiðað á járnbrautarstöðina
og kasíað yfir hana mörgum smálesíum af þungum sprengjum
og fleiri hundruð eldsprengjum. Stóð hún von bráðar í Ijósum
loga. 1
Við elda þá, er upp komu, var síðan miðað á aðra staði, og
segir amerískur fréttaritari, að það hafi verið stjórnarskrifstofur,
verksmiðjur, sjúkrahús, eitt listasafnið, aðallögreglustöð borgar-
innar við Alexanderplatz og ýmsar opinberar byggingar vði Tier-
garten og Wilhelmsstrasse.
Hið fræga hlið Brandenburger Tor við endann á götunni
Unter den Linden hrundi í rústir, og margar býggingar þar í
nánd skemmdust meira eða minna. Er til dæmis fullyrt, að hallir
þeirra Gvórings og Hitlers hafi báðar laskazt. Ógrynni af húsum
einsíakra manna hrundi einnig í rústir.
Bretar nota nýtt
íhveibjnfopn.
Það kviknar i pvl af sjálfn
sér, Þ@gar Það felinr niður.
ILOFTÁRÁSUM sínum
á Þýzkaland síðustu
daga hafa Bretar notað
nýtt vopn, sem kallað er á
ensku „self igniting leaf“
—hlaðið, sem kviknar í af
sjálfu sér — og ef til vill
mætti kalla íkveikjuband.
Er það eixma líkast filmu
og er ekki nema þriggja til
fjögra sentimetra langt, en
í því eru efni, sem gera það
að verkum að það kviknar
í því við Ioftþrýstinginn,
er það fellur til jarðar, og
kemur upp allmikill logi
þar sem það fellur.
Með þessu vopni er hægt
að eyðileggja skóga, birgða
geymslur og marga hluti,
sem hafa hernaðarlega
þýðingu, en það er svo létt
í meðförum, að hægt er að
hafa ógrynni uf því með
hverri flugvél.
I
Loftðrðsin ð Loiðon
ninBi enn ndiBfui
ar
ÞJOÐVERJAR HELDU uppi
loftárásum á London í
nóít með svipuðum hætti
og undanfarnar þrjár næt-
ur, en yfirleitt voru árás-
irnar ekki eins harðar. —
Sprengjunum var kastað niður
af handahófi um öll hverfi
Lundúnahorgar, en þó einna
mest ýfir Thamesárbakka. Á-
rásir voru einnig gerðar á borg-
ir í Wales, við Bristoiflóa og víð-
ar um England. Manntjón hefir
í nótt áreiðanlega orðið minna
en undanfarnar nætur.
Erlendúm blaðamöumum Var
léyft aft fara allra sinna ferða
Frh. á 2. síðu.
Þegar nokkuð leið á árásina,*
þögnuðu loftvarnahyssur í mið-
borginni, og gafst þá hinum
brezku árásarflugvélum 30 mín-
útna tóm til þess að fljúga mjög
lágt og láta sprengjum rigna yf-
ir þá síaði, sem æskilegastir
þóttu íil árásar.
Um það leyti, sem brezku
flugvélarnar voru að hverfa frá,
brunnu ógurlegir eldar víðs
vegar um allan miðhæinn og
stigu himiriháir reykjarmekkir
upp af eldunum. Grænn logi
geisaði eftir götunni Unter den
Linden, og er það ætlun manna,
að það hafi verið gaslogi.
Frh. á 2. síðu.
Aipýðnfiokkurinii og JUpýðQsam-
bandið kreíjast fnlKnægjandi rann
sðknar á sjöðpnrðinni I Dagsbrún.
-----♦-—■—
ÍTILEFNX af þeim dylgjum,
sem komið hafa fram í
tveimur blöðum og einnig hefir
orðið vart við í tali manna á
meðal um Alþýðuflokkinn og
Alþýðusambandið í sambandi
við sjóðþurrðarmálið í Dags-
brún hefir Stefán Jóh. Stefáns-
son fyrir hönd Alþýðuflokksins
og Alþýðusambandsins sent
sakadómara eftirfarandi bréf:
„Eftir því, sem opinberlega
liggur fyrir frá rannsókn yðar,
Frh. á 4. sí&u.