Alþýðublaðið - 11.09.1940, Síða 1

Alþýðublaðið - 11.09.1940, Síða 1
ííITSTJÓEI: STEFÁN PÉTURSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XXI. ÁRGANGUR MIÐVIKUÐAGUR 11. SEPT. 1940 209. TÖLUBLAÐ. Múgur og margmenni úti fyrir kanzlarahöll Hitlers í Wilhelms- strasse í Berlín. BarnsmeðlSg hækka iraðasf hvar á landinu. Hér í Reykjavík hækka meðlögin um 20' ------♦----- Samtal wIH féflagsiMálaráHIierra. EFTIR AÐ HÆKKUNIN á slysabótum, örorkubótum og ellilaunum hafði verið ákveðin fyrir nokkru síðan, .spurðu margir, hvort meðalmeðlög með óskilgetnum börn- um myndu ekki hækka. Þessi hækkun á meðalmeð- lögunum hefir nú verið á- kveðin eftir að félagsmála- ráðuneytið hefir fengið til- lögur, eins og lög mæla fyrir um; frá öllum sýslunefndum og bæjarstjórnum á landinu. Hækka meðalmeðlögin um allt að 20%. Mest hækka þaú hér í Reykjavík. Ákvörðun þessi gildir fyrir tímabilið frá 14. maí s.l. til 14. maí n.k., en til þss að hægt sé að fram- kvæma hana þarf lagabreyt- ingu, og verður frumvarp um þetta efni lagt fyrir næsta þing. Alþýðublaðið hafði í morgun; samtal við Stefán Jóh. Stefáns- son félagsmálaráðherra um þetta mál og skýrði hann svo frá: „Samkvæmt lögum, sem sett voru 1935 á upphæð me'öalme'ð- laga að ákveðast af ráðuneytinu, að fengnum tillögum frá sýslu- nefndum og bæjarstjómum, fyrir hvert sveitar- eða bæjarfélag um 3 ára tímabil í senn. Nú lá fyrir að ákveða meðal meðJög um landið allt frá 14. maí s. 1., en tillögur sýslur nefnda óg bæjarstjöma bárust ekki til ráðuneytisins fyrr en um mánaðarmótin júlí—ágúst. Frh. á 2. isíðú. Potsdamer BahnEaol f báll, Brandenburger Tor hrnn" ið, himlnhálr logar viðs« vegar yfir miðri borginni —-------♦í------ A ÐALFRÉTTIRNAR í morgun eru ekki af loftárás Þjóð- verja á Londori, þó að fjórða næturárásin í röð væri gerð á hana, heldur af loftárás, sem Bretar gerðu á Berlín í nótt og er sú langægilegasta, sem sú borg hefir orðið fyrir í stríðinu. Fréttirnar af henni eru birtar með risastórum fyrirsögnum á forsíðum allra blaða í Englandi og Ameríku í morgun. Loftárásin hófst rétt fyrir miðnætti og stóð til klukkan hálftvö. Hinar brezku sprengjuflugvélar brutust inn yfir miðja Berlín og létu sprengjum af stærstu gerð rigna yfir hana. Eftir árásina stóð Potsdamer Bahnhof, ein aðal- járnbrautarstöðin, í björtu báli, Brandenburger Tor, hið fræga hlið fyrir vesturendanum á aðalgötunni, Unter den Linden, var hrunið í rústir, svo og fjöldi opinberra bygg- inga, en himinháir reykjarmekkir og logar voru víðs vegar yfir borginni. Ógryuí af íbððarMsnm i rústnm. ---------4--------- Árásinni var strax beint að miðbænum, og var fyrsta áhlaup- ið gert á járnbrautarstöðina á Potsdamer Platz. 40 þungar sprengjuflugvélar komust inn yfir járnbrautarstöðina á meðan or- ustuflugvélar þær, er fylgdu þeim, glímdu við þýzkar orustuflug- vélar yfir úthverfunum. Byrjað var á því að varpa niður ljósblysum, og þegar þau voru komin niður undir jörð, var hnitmiðað á járnbrautarstöðina og kasíað yfir hana mörgum smálesíum af þungum sprengjum og fleiri hundruð eldsprengjum. Stóð hún von bráðar í Ijósum loga. 1 Við elda þá, er upp komu, var síðan miðað á aðra staði, og segir amerískur fréttaritari, að það hafi verið stjórnarskrifstofur, verksmiðjur, sjúkrahús, eitt listasafnið, aðallögreglustöð borgar- innar við Alexanderplatz og ýmsar opinberar byggingar vði Tier- garten og Wilhelmsstrasse. Hið fræga hlið Brandenburger Tor við endann á götunni Unter den Linden hrundi í rústir, og margar býggingar þar í nánd skemmdust meira eða minna. Er til dæmis fullyrt, að hallir þeirra Gvórings og Hitlers hafi báðar laskazt. Ógrynni af húsum einsíakra manna hrundi einnig í rústir. Bretar nota nýtt íhveibjnfopn. Það kviknar i pvl af sjálfn sér, Þ@gar Það felinr niður. ILOFTÁRÁSUM sínum á Þýzkaland síðustu daga hafa Bretar notað nýtt vopn, sem kallað er á ensku „self igniting leaf“ —hlaðið, sem kviknar í af sjálfu sér — og ef til vill mætti kalla íkveikjuband. Er það eixma líkast filmu og er ekki nema þriggja til fjögra sentimetra langt, en í því eru efni, sem gera það að verkum að það kviknar í því við Ioftþrýstinginn, er það fellur til jarðar, og kemur upp allmikill logi þar sem það fellur. Með þessu vopni er hægt að eyðileggja skóga, birgða geymslur og marga hluti, sem hafa hernaðarlega þýðingu, en það er svo létt í meðförum, að hægt er að hafa ógrynni uf því með hverri flugvél. I Loftðrðsin ð Loiðon ninBi enn ndiBfui ar ÞJOÐVERJAR HELDU uppi loftárásum á London í nóít með svipuðum hætti og undanfarnar þrjár næt- ur, en yfirleitt voru árás- irnar ekki eins harðar. — Sprengjunum var kastað niður af handahófi um öll hverfi Lundúnahorgar, en þó einna mest ýfir Thamesárbakka. Á- rásir voru einnig gerðar á borg- ir í Wales, við Bristoiflóa og víð- ar um England. Manntjón hefir í nótt áreiðanlega orðið minna en undanfarnar nætur. Erlendúm blaðamöumum Var léyft aft fara allra sinna ferða Frh. á 2. síðu. Þegar nokkuð leið á árásina,* þögnuðu loftvarnahyssur í mið- borginni, og gafst þá hinum brezku árásarflugvélum 30 mín- útna tóm til þess að fljúga mjög lágt og láta sprengjum rigna yf- ir þá síaði, sem æskilegastir þóttu íil árásar. Um það leyti, sem brezku flugvélarnar voru að hverfa frá, brunnu ógurlegir eldar víðs vegar um allan miðhæinn og stigu himiriháir reykjarmekkir upp af eldunum. Grænn logi geisaði eftir götunni Unter den Linden, og er það ætlun manna, að það hafi verið gaslogi. Frh. á 2. síðu. Aipýðnfiokkurinii og JUpýðQsam- bandið kreíjast fnlKnægjandi rann sðknar á sjöðpnrðinni I Dagsbrún. -----♦-—■— ÍTILEFNX af þeim dylgjum, sem komið hafa fram í tveimur blöðum og einnig hefir orðið vart við í tali manna á meðal um Alþýðuflokkinn og Alþýðusambandið í sambandi við sjóðþurrðarmálið í Dags- brún hefir Stefán Jóh. Stefáns- son fyrir hönd Alþýðuflokksins og Alþýðusambandsins sent sakadómara eftirfarandi bréf: „Eftir því, sem opinberlega liggur fyrir frá rannsókn yðar, Frh. á 4. sí&u.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.