Alþýðublaðið - 12.09.1940, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 12.09.1940, Blaðsíða 1
íííTSTJORI: STEFAN PETURSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XXI. ÁRGANGUR FIMMTUDAGUR 12. SEPT. 1940 210. TÖLUBLAÐ Georg Bretakonungur og Hérbert Morrison, hinn þekkti forvígisinaður brezkra jafnaðar- manna, sem nú er hergagnamá laráðherra, á götu í London. Myndin var tékiin þégár þeir voru . að koma frá því að skoða eina vopnaverksmiðjuna. Nóttin var sú hávaðasamasta hingað til, af völdum þeirra, en tjónið var minna en undanfarið —t-----<>------ NÓTTSN í nótt var sú hávaðasamasta, sem Lundúnabúar hafa enn lifað. En það kom ekki til af því, að sprengju- regn þýzku árásarflugvélanna væri svo ógurlegt, heldur af því, að loftvarnabyssur borgarinnar héldu upp svo magn- aðri skothríð á þær, að annað eins hefir aldrei heyrst. Var það í morgun upplýst, að nýjar ióftvarnabyssur voru að verki, sem aidrei hafa verið notaðar áður. Áttu árásarflugvélar Þjóðverja í vök að verjast, og þegar þær höfðu sig á brott, sem var með fyrra móti, eða um klukkan hálf sex í morgun, kom í ljós, að tjónið af árás- inni var miklu minna en undanfarnar nætur. Enn hafa þó ekki verið gefnar út neinar tölur um það, en í gærkveldi var upplýst, að í árásinni á London í fyrri- nótt hefðu 80 manns verið drepnir og 380 særst. Oprlegloftornsía yfir Tbames í gær ---------------------«------- Grimmileg loftorusta var háð á fjórða tímanum síðdegis í gær yfir Thamesá austur af London, og reyndu hundruð þýzkra árás- arflugvéla að brjótast þar í gegn í þeim augljósa tilgangi að ráð- ast á borgina. En sú tilraun mis- tókst. Árásarflugvélarnar voru stöðvaðar af loftvarnabyssum og orustuflugvélum Breta, og því næst hófst hin ógurlegasta viðureign í loftinu. Loftorusíur voru einnig háð- ar fyrir sunnan London, þar sem árásarflugvélar Þjóðverja gerðu aðra tilraun til að kom- ast inn yfir borgina. En þar fór á sömu leið. Flugvélatjón Þjóðverja í þessum loftorustum í gær var með mesta móti. Bretar segjast hafa skotið niður fyrir þeim 89 flugvélar, en sjálfir ekki hafa misst nema 24. Ný loftárás á Berlis. Bretar gerðu nýja loftárás á Berlín í nótt. Stóð árásin yfir í 92 mínútur og var hin ákafasta. í Berlín er lítið gert úr tjóninu, en Bretar segjast rólegir bíða fregnanna þangað til hinar brezku flugsveitir hafi gefið skýrslur sínar, í þeirri vissu, að almenningi í Þýzkalandi sé nú orðið það fullljóst, að brezki loftherinn er prýðilega fær um það að veita Berlín hin alvar- legustu áföll. í>ýzka útvarpið segir, að varpað hafi verið sprengjum yf- ir ýms íbúðahverfi borgarinn- ar og yfir Tiergartenhverfið, sem er í miðri borginni. Arásin í fírriiétt Nánari fregnir eru nú komn- ar af loftárásinni miklu á Ber- lín í fyrrinótt og koma þær frá brezka útvarpinu, þýzka út- varpinu og fréttariturum er- lendra, hlutlausra blaða í Ber- lín. Auk járnbrautarstöðvarinnar við Potsdamer Platz og Bran- denborgarhliðsins er það nú viðurkennt, að aðallögreglu- stöðin við Alexanderplatz og innanríkismálaráðuneytið hafi orðið mjög hai't úti. Þá segja einnig Þjóðverjar að ríkisþing- húsið hafi orðið fyrir sprengi- kúlu, einnig hið risavaxna hús þýzkra verkfræðinga, ,,Haus der Technik“ við Friedrichs- strasse, listaakademíið við Pa- riser Platz, rétt innan við Bran- denborgarhliðið, og einnig, að því er virðist af fréttunum, vérkfræðingaháskólinn í Tier- garten. Sagt er að sprengja hafi einnig komið niður rétt fyrir Frh. á 4, síðu. Útvarpsræða Churchills í London i gær --------«--------- - , CíIURCHILL, forsætisráðhérra Breta, flutti ræðu í neðri mál- stofu brezka þingsins í gær, sem útvarpað var um allt Breta- veldi og Bandaríkin. Churchill sagði, að sér væri kunnugt um það, að undirbún- ingur Þjóðverjá undir innrás í .Engiajid væri nú í fullum gangi, og yrði henni ekki lengur frestað, ef meiningin væri að reyna hana á annað borð, sem ómögulegt væri að segja um með neinni vissu. „Næsta vika,“ sagði Churchill, „mun verða mjög örlagarík í sögu okkar.“ Ræða Churchills var á þessa leið: „Þegar ég lét svo um mælt í þessari málstofú fyrir skemmstu, að ég teldi ólíklegt að loftárásir óvinatma í soptem- ber myndu verða nema sem svarar þrisvar sinnum harðarien í ágúst, bjóst ég ekki við, að vqn værí á himun villimannlegu á- rásum á almennmg í London, scm gerðar hafa verið undan- farna daga. Ég átti við stórar loftorustur í svipuðum stíl og þær, sem þá höfðu verið háðar 'inilli orustuflugvéla vorra og á- rásarflugvéla Þjóðverja. Baiáttai um yflrráðin i Churchill. pr Engiaoos. Yður er öllum kunnugt, að hve- nær, sem veður er sæmilegt, koma fylkingar af þýzkuim flugvélum í förum nteð árásarflugvélum inn yfir land vort, oft 3—400 í einu, með það fyrir augum, að gqra árásir á hemaðarstöðvar, verk- smiðjur og samgöngumiðstöðvar í þesstt landi. Þetta var það, sem ég miðaði við, þegar ég lét' f^yrri tunmæli mín falla. Á Frh. á 2. síðu. Varaformaðnr Siiarður Hallððrsson tekur við stðrfnm formauus, ea ráðsmaður verðnr Bjarni Stefiusson. ------------------------«.------- STJÖRN Verkamannaféíags- ins Dagsbrún hefir nú ver- ið endurskipulögð, svo og skrif- stofa félagsins. Hefir varaformaður félagsins, Signrður Halldórsson, sem var einn af fulltrúum Sjálfstæðis- ftokksins í stjóm félagsins tekið við fonnennsku í stjórninni í stað Einars Björnssonar, eins og lög standa til. En við ráðsmanns- sfarfinu tekut' Bjarni Stefánsson, sem er Alþýðuflokksmaður, en sainkomulag var um það, fyrir síðustu toosningu í Dagsbrún, að Alþýðuflokksmaður skyldi ráðinn í það starf. Hinsvegar Itefir einnig verið ráð inn annar fastur starfsmaður á skrifstofu félagsins, Alfred Guð- mundssion, sem unidanfarið hefir unnið á skrifstofunni, og mun hann framvegis sjá um bókhald fyrir félagið. En ráðsmaðurinin sér, eins og áður, um að samningar við fé- lagið séu haldnir, heldur uppi stöðugu sambandi við félagsmenn ina og sér um ininheimtu félags- gjalda. Sem fimmti maður í stjóm Dagsbrúnar hefir tekið sæti Jón S. Jónsson verkamaður, sem var fyrsti varamaður Alþýðuflokks- ins.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.