Alþýðublaðið - 26.09.1940, Síða 1
RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ARflANGUR FIMMTUDAGUR 26. SEPT. 1940 222. TÖLUBLAÐ
Mestu húsnæðisvandræði i
Reykjavik í haust síðan á
heimsstyrjaldarárunum.
St ærsti húseigandinn í bænum hetir ver-
ið kærðnr fyrir brot á húsaleigulðgunum
Viðtal við Guðm. R. Oddsson
fulltrúa Alþfl. í húsaleigunefnd.
f> -m ... #
EINS OG ÁÐUR hefir verið minnzt á hér í blaðinu, lítur
út fyrir að mikil húsnæðisvandræði verði hér í haust.
Af þessu tilefni sneri blaðið sér í morgun til Guðm. R.
Oddssonar forstjóra, sem á sæti í húsaleigunefnd.
Hann sagði meðal annars:
„Það er þegar bersýnilegt, að
meiri húsnæðisvandræði verða
hér í bænum í haust en nokkru
sinni áður síðan á heimsstyrj-
aldarárunum.
Þetta stafar vitanlega fyrst
og fremst af því, að svo að
segja engar nýjar byggingar
hafa verið tekiiar í notkun í
liaust eða í sumar, nema þessar
40 íbúðir, sem Byggingarfélag
verkamanna hefir látið reisa í
Rauðarárholti. Það er vitað, að
það þarf að byggja nokkur
hundruð íbúða til að mæta
mannfjölguninni árlega.
Þetta hefir tekizt á undan-
förnum árum nokkurnveginn,
en nú er loku fyrir það skotið í
bili.“
Brezka setuliðið í hús-
uæðisleit.
— En stafa húsnæðisvand-
ræðin þó ekki að einhverju
leyti af því, að brezka setuliðið
hefir fengið leigðar íbúðir?
„Jú, að einhverju leyti. í vor
sögðu margir upp íbúðum,
fluttu úr bænum í sumarat-
vinnu og til dvalar utanbæjar
á heimilum og í sumarbústöð-
um. Margar þessara íbúða var
ekki hægt að leigja í vor og
stóðu því auðar um tíma þá.
Þetta var v'itanlega erfitt fyrir
húseigendur. Það hefir því at-
vikast þannig í sumar, að
brezka setúliðið hefir fengið
margar þessara íbúða leigðar.
Það var upphaflega í skólunum
og mörgum opinberum bygg-
ingum, en til þess að geta rýmt
úr skólunum varð setuliðið að
reyna fyrir sér um að fá íbúð-
arhús til leigu.“
— Hefir húsaleigunefnd ekki
orðið vör við það, að húseigend-
ur hafi reynt að losna við leigj-
endur sína til að geta leigt setu-
liðinu?
,,Það kveður ekki mikið að
því. Hins vegar höfum við orð-
ið varir við eitt tilfelli, þar sem
Bretum hefir verið leigt heilt
hús, án þess að það væri laust
til íbúðar að öllu leyti — og því
Loftárás á Berlfn í nðtt
sem stóð 5 klnkknstnndir.
--------—---------- t
Það er leaigsta árásin á Berlín hingað til
---------+---------
BREZKAR SPRENGJUFLUGVÉLAR gerðu nýja grimmilega
loftárás á Berlín í nótt. Einnig á flotahöfnina í Kiel og
innrásarbækistöðvarnar við Ermarsund frá Dunkerque til Bou-
logne.
Berlínarbúar urðu að dveljast lengur í loftvarnabyrgjum en
nokkru sinni, því að merki um að hættan væip liðin hjá voru
ekki gefin fyrr en kl. 4 í morgun og hafði árásin þá staðið í fimm
klukkustundir.
Hófst hún svo snemma í gær- I voru ekki búnir að taka á sig
kveldi, að margir borgarbúar I Frh. á 2. síðu.
— Hefir húsaleigunefnd orð-
ið að beita hörðu í þessum mál-
um? (Frh. á 4. síðu.)
Ólafur Hákonarson krónprins og kona hans Martha.
Vafalaust telur Hitler sig einnig hafa svipt hann ríkiserfðum.
Landstjári Hitlers í Noregi iýsir yfir að
Hákon konnngnr sjinndi sé settnr af!
-------+—-----
Og alllr stjörnmálaflokkar í Iandinn bannaOir
að nndanteknnm nazistaflokki Quislings.
r i H ERROGEN, landstjóri Hitlers í Noregi, flutti útvarps-
ræðu í Oslo í gærkveldi, og tilkynnti, að stjórnar-
nefndinni, sem starfað hefir þar síðan í vor, hefði nú verið
vikið frá og öllum stjórnmálaflokkum í landinu bönnuð
starfsemi, nema nazistaflokki Quislings, „National samiing“.
Ný stjórn hefir verið sett á laggirnar og eru í henni
13 menn, þar af sex úr „National samling.“ Quisling á ekki
sæti í stjórninni, en hann er áfram leiðtogi flokksins.
Terbogen sagði og í útvarpsræðu sinni, að Hákon kon-
ungur væri ekki lengur við völd í Noregi og ætti þangað
ekki afturkvæmt, og hið sama gilti um stjórn Nygaards-
volds er ekki væri lengur lögleg stjórn Noregs, því að hún
hefði brugðist skyldum sínum.
Það kom glöggt fram í ræðu I stjórnarnefndin var sett af og
Terbogens, að orsök þess, að | (Frh. á 4. síðu.)
Hákon Noregskonungur.
Er hann ekki brosléitur yfir
boðskap Terbogens?
Magnús Þorsteinsson
járnsmiður, Laugavegi 51, var
83 ára í gær.
De Gaulle varð frá
að hverfa hjá Dakar.
----—». --
Hættur við að reyna að setja
lið á land þar í þetta sinn.
-----♦_---
AUST fyrir miðnætti í nótt var birt tilkynning frá
aðalbæðistöð De Gaulle herforingja, leiðtoga hinna
frjálsu Frakka, að hann hefði farið á brott frá Dakar í
Frönsku Vestur-Afríku með lið sitt. (Frh. á 2. síðu.)
ekki haft leyfi til slíkrar leigu.
Þetta teljum við mjög illa við-
eigandi. Það er ekki þjóðrækn-
islegt að haga sér þannig nú í
húsnæðisvandræðunum. Hér er
um að ræða húsið nr. 19 við
Þórsgötu. Þá hafa nokkrir hús-
eigendur reynt að losna við ein-
staka leigjendur til að léigja
setuliðinu, í von um að hafa
meira upp úr því. í flestum af
þessum tilfellum mun vernd
húsaleigulaganna nægja fyrir
leigjendurria.“