Alþýðublaðið - 11.10.1940, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 11.10.1940, Blaðsíða 3
FÖSTUDA6UR 11. OKT. 1§46 ALÞYÐUBLAÐIÐ -----------ALÞÝBÖBIABIB ---------------------* Ritstjóri: Stefán Pétursson. Ritstjórn: Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. Símar: 4902: Ritstjóri. 4901: Innlendar fréttir. 5021: Stefán Pét- ursson (heima) Hringbraut 218. 4903: Vilhj. S. Vilhjáms- son (heima) Brávallagötu 50. Afgreiðsla: Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. Símar: 4900 og 4906. Verð kr. 2.50 á mánuði. 10 aurar í lau t ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN «--------—-----------------------------------♦ Eftir hvaða iðgmáli bækkaði salthpti? Ó að meirihluti kjötvcrð- lagsnefndar gæfi það mjög Ötvírætt í skyn í yfirl/ýsi'ng'u sinni í útvarpinu á dögunum, að neyt- endur kjötsins í bæjunum væru yfirlieitt brjálaðir menn, þá virð- ist nú svo, að hann hafi síðan k-omizt á þá skoðun, að Við- kunnanlegra sé að ávarpa þá sem viti borna menn. Að minnsta kosti hefir Páll Zophoníasson for- maður kjötverðl'agsnefndar og mjólkurverðlaigsnefndar nú sent frá sér nýtt plaigg, svokallaða ,rgreinargerð“ um kjöt- og mjólk- urverðið, sem tvo undanfarna daiga hefir verið að birtast í Morgunblaðinu, og er þar með skírskotun í alls konar tölur og vísindaleg lögmál reynt að sann- færa hina brjáluðu um það, sem ekki tókst að sannfæra þá um með dólgslegu orðbragði einu í yfirlýsingunni í útvarpinu. Pað verður ekki annað sagt, en að það sé virðingarverð framför. Þvi vferður að minnsta kosti ekki neitaið, að J>að er sitt hvað að vera boðið á Klepp og vera leidd- Ur inn í musteri vísindanna. En hvað er þá það, sem for- maður kjötverðlagsnefndar og mjólkurverðlagsnefndar hefir að bjóða okkur upp á á þessum vettvangi? ! fyrsta lagi j>að, að þegar vísindin iog Jögmálin, séu ann- arsvegar hafi neytendur í bæj- unum ekki neinn rétt til þess, að vitna í neitt samkomulag milli stjórnarfliokkanna uim kjöt- og mjólkurverðið. (Þar með er Fram sóknarflokkurinn svo að segja „vísindalega" afsakaður fyrir pað, að hafa svikið það samkomu- lag, sem gert var um að kjöt- iog mjólkurverðið skyldii ekki hækka meira á innlendum mark- aði, en kaupið!) Því að, það „vár og er“, segir Páll Zophoní- assion, „ekkert vit, að hugsa sér, að milli kaupgjalds annarsvegar og verðs á vörum, sem ek'ki eru eingöngu seldar á innlendum markaðr, geti gilt sama hlutfaU flrá ári til árs. Það eru: ólik at- riðii, sem hafa áhrif á það, hvað hægt e-r að borga í kaup hér í Reykjavík log hvað t. d. Eng- lendingar eða Niorðmenn vilja gefa fyrir kjöt eða osta. Kauipið og vöruveröið hækkar og liækk- ar ekki ’eftir saiua lögmáli eða lögmálum, og getur því ekki fylgst að“. Þannig farast Páli Zophonías- syni orð. Og hvað vilja menn nú vera herma loflorð upp á Framsóknarflokkinn, þegar lög- málin eru annars vegar? En þá vérður okkur brjáluðum neytendum á að spyrja: Hvar var þessi respekt Páls Zophoní- assonar og Framsóknarflokksins fyrir „Iögmáiunum“ árið 1934? Hversvegna mátti grípa framfyr- ir hendur blindra tilviljanam'ark- aðarins þá, ef ekki má gera það nú? Þá var kjötverðið svo lágt á erlendum markaði, að til vand- ræða horfði fy-rir bændur. En það vildi þeim til bjargar, að Framsóknarfl'Okkurinn kærði sig þá koilóttan um Iögmálin og AI- þýðuflokkurinn og neytendafjöldi sá íbtejunum, sem á bak við hann stóð, var fús til þess að rétta bændum hjálparhöpd. Framsókn- arflokkurinn fór frarri á það, að kjötið væri selt hærra verði á innlendum markaði, en hægt var að fá fyrir það samkvæmt lög- málum markaðarins erlendis. Og Alþýðuflokkurinn, sem aldrei hef- ir verið þeirrar skoðunar að mennii’nar eigi að lát.a stjórnast af blindum lögmálum, sem þeír þó geta ráðið vib, ef þeir hafa vilja, försjá og samvinnu til þess, taldi sjálfsagt að hlaupa undir slíkum kringumstæðum undir bagga með bændum og gerði með atkvæði sínu Framsóknar- fliokknum unnt að fá kjöt- og mjólkurlögin samþykkt á alþingi. Og að þeim lögum hafa bændur búið síðan. En nú neitar Framsóknarflokk- urinn að sýna verkamönnum sania tiilit,' þegar dýrtíðin kreppir að þeim úr öllum áttum, ánþess að þeir geti fengið hækkað kaup til að vega, nema að litlu leyti upp á móti henni. Og ekki að- eins það. Hann beitir brögðum til þess að hliðra sér hjá því, að halda hið upjrhaflega samkoma- lag stjórnarflokkanna um að kjöt- ið og mjólkin skyldi ekki hæ:kk- uð meira í verði á innlendum markaði, en kaupið, samkomulag, sem enginn, að minnsta kosti utan Framsóknarflokksins, vissi til skamms tíma annað en að væri í fuliu gildi, þó að það væri florm- lega fellt niður úr gengislögun- um, þegar þau voru endurskoð- |uð í vetur. Því að Framsóknar- menn á þingi létu engan anmað á sér skilja, en að það væri ætlun þeirra að standa við það þrátt fyrir það. En nú vitum við tii hvers, refarnir voru skornir1. Nú segja þeir að lögmálin skuii gilda, og verkamenn, sem ekki hafa fengið nema 27«/t>' kauphækk- un, skuli kaupa mjólkina 43wo og kjötið 67—72 o/o dýrara en fyr- ir ári síðan! Það eru þakkirnar, sem verkanienn fá frá Framsókn- arflo'kknum fyrir hjálparhöndina, sem þeir réttu bændum árið 1934. En látum „lögmál" Páls Zop- honíaðsonar gilda! Aðeins laingar okkur þá til að fá að vita, 'sam- kvæmt hvaða lögmáli saltkjötið hefir nú verið hækkað í verði um ennþá meira en nýja kjötið, sem selt er til útlanda, eða Um hvorki nteira né minna en 72»/o? Er j>að máske af því, að Norð- menn g<?fi okkur svo mikið meira fyrir saitkjötið í ár, eða einhver annar erlendur markaður? Það >OöOOOOQöOöC< Munið hina miklu fflutafélagið Mímir hefir gefið út stefnu á son skáldsins. míns“, sagði Már. „Mér kom ekki Hlutafélagið mím- IR hefir stefnt Má Benediktsson, syni Einars skálds Benediktssonar. Ástæðan fyrir þessari stefnu er sú, að Már Benediktsson gerðist kostnaðarmaður að út- gáfu á úrvalsljóðum föður síns rétt eftir lát hans s.l. vetur. Var þessi útgáfa prentuð í Isafold- arprentsmiðju og er einn Íiður- inn í skrautútgáfu úrvalsljóða íslcnzkra þjóðskálda. Jónas Jónsson alþiingismaður valdi ljóðin í þessa útgáfu fyrir son skáldins og er það dómar flestra að valið hafi tekist mjög veh til hugar að h.f. Mímir myndi stefna út af útgáfunni — enda hafði ég lögfræðing í ráðuim með mér áður en ég réðist í hana. — Ég vil taka það frarn, að til- gángur minn með því að ráðast f þessa útgáfu var alls ekki sá að græða fé á henni. Ætiunin er að stofna sjóð af ágóðanum af útgáfunni. Ég vona líka að einhverjar sættir takist í málinu áður en það fer Jengra", sagði Már að lokum. Þessi bök er m}ög glæsileg og áreiðanlega bezta úrvalið af ljóðum, sem hér hefir komið út. á sykri og kornvörum. Gjörið haustinnkaupin yðar í BREKKU Asvallagötu 1. Símt 1678 TjaraarbHöin Sími 3570. )OOOOOOOOOC<X SKÓLAFÖTIN úr FATABÚÐINNI. Almennur æskulýðsfundur í Gamla Bíó á sunnudamnn - ---♦--- Hlutafélagið Mímir telur að Már Benediktsson hafi ekki haft rétt til útgáfunnar, þar sem j>að eitt hafi útgáfuréttinn á þéssum verkum Einars. Er það færtfram þessu til stuðnings að kvæðin hafi verið valin úr bókum, sem Guðmundur Gamalíelsson hafði gefið út og keypt útgáfuréttinn að, en eitthvað af Upplaginu er enn óselt. I hlutafélaginu Mímir eru: Helgi Hermann Eiriksson, Hall- dór Stefánsson forstjóri, Guð- mundur Gamalíelsson >pg ef til vill fleiri. Alöýðublaðið hafði í miorgun samtal við Má Benediktsson um þetta mái. „Mér þykir ákaflega leitt, ef til málaferia kemur út af þessari útgáfu á úrvalsljóðum föður væri þá óneitanlega fróðlegt, að fá að heyra hvar sá markaður væri. Geti formaður kjötverðlags- nefndar og mjólkurverðlagsnefnd ar hinsvegar ekki komið með neina ,greinargerð“ fyrir því, verður að öllu athuguðu að á- líta, að heppilegra hefði verið fyriir hann að mæta gagnrýni neytenda á verðhækkun kjötsins eftir sem áður með ^ í að bjóða þeim á Klepp eins og hann og félagar hans gei’ðu í yfirlýsingimni í útvarp- inu á dögunUm, heldur en að hætta sér inn í völundarhús vís- indalegra lögmála. Því að þau lögmál, sem fonuaður kjötverð- lagsnefndar og mjóikurverðlags- nefndar flaggar með þar, eru fyrir löngu1 orðin svo götótt, að nekt Framsöknarflokksins verður aldrei hulin með þeim. Og meðal annarra orða: Hvaða „lögmáh* eru það, sem kaup verkamanna fer eftir? Hvers vegna er það hugsanlegt að þaö sé bara ákveðið með réttum >og sléttum lögum, án nokkurs tillits til hinna vfsindalegu „lögmáia"? Það skyidi þó aldrei vera að for- maður kjötverðlagsnefndar gæti einnig fundið eitthvert lögmál fyrir því, að kaup verkamanna skuli ekki hækka nema um 27«/«, þegar kjötið hækkar ujn 67— 72°/o? ASUNNUDAGINN kemur verður haldinn almennur æskulýðsfundur í Gamla Bíó til þess að ræða og taka afstöðu til þess ástands, sem skapazt hefir við hernám landsins. Fundarboðendur eru eftir- farandi 14 f^lög: Kvenskátafélag Reykjavíkur, íþróttafélag kvenna, knatt- spyrnufélögin Fram, K.R., Val- ur og Víkingur, Félag ungra jafnaðarmanna, Félag ungra Framsóknarmanna, Félag ungra Sjálfstæðismanna, Heimdallur, - * Iþróttafél. Reykjavíkur, Skáta- félag Reykjavíkur, Ungmenna- fél. Velvakandi, Glímufélagið Ármann og Farfugladeild Reykjavíkur. Stjórnir þessara félaga hafa að undanförnu undirbúið fund- arhald þetta, en formenn þeirra hafa svo sameiginlega unnið að undirbúningi þess. Hefir það verið einhuga álit allra félagsstjórnanna, að und- antekinni stjórn eins íþróttafé- lagsins, er ekki hefir svarað bréfum um þessi efni, að nauð- syn bæri til þess að félögin mörkuðu sameiginlega afstöðu sína til þeirra nýju vandamála, sem skapazt hafa við hernám- ið, ekki hvaö sízt fyrir æsku- lýðinn. Á fundinum verða lagðar fram ályktanir í þeim efnum, er stjórnir þessara 14 æskulýðs- félaga hafa undirbúið, en Lúðrasveit Reykjavíkur leikur íslenzk þjóðlög í fundarbyrjun. Sprengikðla kom siðnr á háaltarið i Pálsklrkf- nnni. AÐ var kunnugt í London í gær, að Pálskirkjan heimsfræga hefir orðið fyrir skemmdum af völdum loftárás- ar. Fór sprengja niður um þak- ið og lenti á háaltarinu og eyði- lagðist það svo og kross, sem á því var, en Kristsmynd, sem hékk fyrir ofan altarið, skemmdist ekki. Nokkrar skemmdir urðu aðrar, en ekki verulegar. Árásin á dómkirkjupa mælist mjög illa fyrir bæði í brezkum löndum, Bandaríkjunum og víðar. Samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar verða tveir kvenmenn ráðnir í lögregluliðið í Reykja- vík. Umsóknir ásamt meðmælum og öðrum upplýsingum skulu sendar lögreglustjóranum í Reykjavík fyrir 1. nóv. n.k. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 11 .október 1940. Agnar Koíoed-Hansen.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.