Alþýðublaðið - 18.10.1940, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 18.10.1940, Blaðsíða 4
FÖSTUDAGUR 18. OKT. 1940. Hver var að hlæja? Kaupið bókina og brosið með! ALÞTÐUBIAÐIÐ Hver var að hlæja? er bók, sem þér þurfið að eignast. FOSTUDAGUR. Næturlæknir er Halldór Stef- ánsson, Ránargötu 12, sími 2234. Næturvörður er í Reykjavíkur- og Iðunnar-Apóteki. 18.30 19.00 19.25 20.00 '20.30 21.00 21.25 21.50 ÚTVARPIÐ: íslenzkukennsla, 2. flokkur. Þýzkukennsla, 1. flokkur. Hljómplötur; Tatarahljóm- sveitlr leika. Fréttir. ■ - Erindi: Heilbrigði og matar- æði (Jónas Kristjánsson læknir). Tónleikar Tónlistarskólans: Tríó í c-moll, Op. 101, eftir Brahms. Hljómplötur. Fréttir. Dagskrárlok. Herdís Símonardóttir, Vegamótastíg 9 er 75 ára í dag. Herdís var lengi mjög vel starf- andi í Verkakvennafélaginu Fram- sókn og hefir alltaf lifandi áhuga fyrir málefnum gerkalýðsfélag- anna og Alþýðuflokksins. María Hallgrímsdóttir læknir var meðal farþega á Esjunni. VIÐTAL VIÐ FINN JoNSSON Frh. af 3. síðoi. fj'elsið aftur ver&i þess valdaindi að Danir sýni áfram þrautseigju í þessari baráttu. Margir Dan- ir eru alveg hættir að hlusta á danskt útvarp oig lesa dönsk blöð. Hinsvegar hlusta allir sem geta á aðrar stöðvar, sem þeim eru hugþekkari. Fjárhagslegt hrnn. Atvinnu- og fjármálaástandið i Danmörku er mönnum mjög mikið' áhyggjuefni. Mikill hluti danska flotans er á höfum úti, eða Hggur í höfnum eflendis, og fær ekki að koma heim, miklu hefir verið sökkt af skipum og sá hluti danska kaup- skipaflotans, sem eftir er liggur ýmist í höfn heima, eða er í föruim um Eystrasalt með rnjög lágum farmgjöldum. Hráefnaskorturinn er mjög til- finnanlegur fyrir iðnaðinn og fer óðum vaxandi. I áður framleitt sjálfir, en þessi innflutningur verður til þess að auka enn á atvinnuleysi og vand- ræði hjá dönsku iðnaðarmönn- tunum. Verkamannafélögin og atvinnu- rekendafélögin hafa komið sér saman um að setja sérstaka nefnd til þess að ráða fram úr þessum vandræðum og öltum deilum um launakjör, sem upp kunna að koma. Er það einn þátturinn í tiilraunum Dana til þess að reyna að' halda sjálfstjórn sinni. En til þess að svo verði er Dönum Irjóst, að eigi e;r hægt að halda þeim lífskjörum, er þeir áttu við að búa, áður en Þjóðverjar sett- ust aðl í landinu. Það mun vera or&ið augljóst mál að hvort sem mönnum ‘líkar það betur eða ver, þá hljóta þau að laékka óðfiuga á meðan núverandi ástand helst. Má því gera ráð fyrir að andúð Dana gegn Þjóðverjum vaxi að sama skapi. Svikamvlla Þjððverja. SCAAflLA BIO NYM BBO IRENE Ameríksk söngva- og gam- RæniDijaforíBginB CISCO KID. anmynd, gerð samkvæmt (The Return of The Cisco samnefndum söngleik eft- Kid). ir Tierney & McCarthy. Amerísk kvikmynd frá Aðalhlutverkin leika: Fox film. Anna Neagle, Aðalhlutverkið leikur: Ray Milland, WARNER BAXTER. Roland Young og Aukamynd: Billie Burke. I STRÍÐSFRÉTTAMYND. Sýnd klukkan 7 og 9. | Börn fá ekki aðgang. I Sýnd kl. 7 og 9. Tollstjtakrifstofnrnar verða lokaðar á morgun, laugardaginn 19. okt. 1940, vegna jarðarfarar. Starfsmannafélagið „Þór“ tilkynnir: Fundur verður hald- inn í Kaupþingssalnum sunnudag- inn 20. sept. k.l 9 síðd. Til um- ræðu: Ákvörðun um uppsögn samninga. Kosning fulltrúa á Al- þýðusambandsþing og fleira. Mjög áríðandi að félagsmenn mæti. Meðal farþega á Esju var dr. phil Broddi Jó- hannesson, sem undanfarið hefir stundað nám erlendis í sálarfræði og uppeldisfræði. Revyan, Forðum í Flosaporti, ástandsút- gáfan verður sýnd í kvöld kl. 8.30. Dansleik heldur frjáls íþróttaflokkur Ár- manns í Oddfellowhúsinu næst- komandi laugardagskvöld til á- góða fyrir íþróttavallarsjóð fé- lagsins. Dansað verður bæði uppi og niðri. Nánar augl. hér í blað- inu síðar. Slys á Akureyri. Nýlega vildi það slys til á Akur- eyri, að maður féll úr stiga og handleggsbrotnaði og hælbeins- brotnaði. Heitir hann Jónas Gunn- arsson og á heima á Klapparstíg. Utanríkisverzliu'n Dana er að vonum mjög lítil og cingöngu1 bundin við þau lönd, er liggja a>& Eystrasalti. Um iandbúnaiðinn er það að segja, að mjög skortir fóður- (i'örur í Danmörku og verður því að drepa mikið af bústofninum. Af ölM þessu hljóta að leiða óhemjuleg atvinnuleysis og fjár- hagsvandræði og það því frem- ur, sem Danir fá í raun,inni ekki greiiðsiu fyrir nema nokkum hluta af útfiutningsvörum sínum. Þær vöruir, sem til Þýzkalands fara svo sem I an d búna ð arvörur og fiskur eru að nafninu til greiddar mjög háu verði, en greiðslan á að fara frarn með vöruskiptum. Þær vörur, sem Dani vantar mest, svo sem kolog oiíur, geta Þjóðverjar eigi látið af hendi svo neinu nemi. Til þess því að fá eitthvað fyrir útflutniniginn reyna Danir að flytja inn ýmsar iðnaðarvörur svo sem vefnaðar- vörur og skófatnað, sem þeir hafa Svo sem áður er sagt greiða Þjöðverjar vissar útflutningsvör- u.r mjög háu verði, en vegna þess að greiðslan fer fram með vöruskiptum og ekki fást vörur útfluttar úr Þýzkalandi til greiðslu á innfiutningi þangað vex innstæða danska þjóðbank- |ans í Þýzkaiandi mjög hratt, eða sennilega um 90 milljónir króna á mánuði. 8. apríl skulduðu Dan- ir Þjóðverjum verúiega fjárupp- hæð, en 31. ágúst var innstæða þeirra í Þýzkalandi orðin 384 milljónir danskra króna. Meðan ekkert útlit er fyrir að þetta lagist er því útkomán sú, lað' það er í raun og veru þjóð- bankinn danski, sem borgar háa verðið, sem Þjóðverjar teljast greiða fyrir útflutningsafurðirn- ar. Danmörk er því í rauninni í fjárhagslegri svikamyllu, sem viröist, ef framhald verður, enda í gjaldþroti >og fuilkomnum vand- ræðum fyrir þjóðina. leikið í kvöld klukkan 8V2. Aðgöngumiðasala hefst kl. 1 í dag„ Sími 3191. Lækkað verð eftir kl. 3. HLUTAVELTUNEFND s;t. Iþaka nr. 194 biður félagana og aðrai velunnara, sem styrkja vilja hlutaveltuna, að koma munun- urn í vöriugeymsluhús Sameiin- aða (sjávarmegin) á morgun kl« 10—12 og kl. 1—6, eða til- kynna um þá í síma 2840. —- Herðið söfnunina. Fliutt í Franska spítalann við Lindargötu. Gíslína Pálsdóttir. Þrátt fyrir það þó að ríkisstjórn in geri allt, sem í hennar valdi stendur til þess að ráða fram úr örðugleikunum, er ekkert líklegra en að þeir verði henni uim megn þegar fram líða stundir og er það illa farið, ef þessi ájgæta menningarþjóö verður fyrir því að allt þiað sem hún hefir byggt upp með lýðræði og sjálfsstjóm á undanförnum árum verður kram tð í sundur af hálfu nazistanna. (Niánar um ástandið á Nor’ð- urlöndum síðar). 15. THEODORE DREISER: JENNIE GERHARDT — Já, sagði fjölskyldufaðirinn. Hann blygðaðist sín fyrir það, hve hann var fátæklega til fara og vildi helzt sleppa í burtu. — Ég á sex börn — og þau eru ekki orðin fullorðin ennþá. Hún er elzt. Nú kom frú Gerhardt og Gerhardt notaði tæki- færið og sagði: — Þér verðið að afsaka, að ég verð að fara. Sög- in mín brotnaði og ég varð að hætta vinnu. — Já, auðvitað, sagði Brander vingjarnlega. Nú vissi hann, hvers vegna Jennie hafði aldrei viljað segja honum, hver væri atvinna föður hennar. En honum hefði þótt betra, ef hún hefði haft hugrekki til að leyna hann engu. — Jæja, frú Gerhardt, sagði hann, þegar hús- móðirin var búin að fá sér sæti. — Nú megið þér ekki álíta mig lengur ókunnugan mann. Hér eftir hefi ég í hyggju að útvega mér vitneskju um hagi ykkar. Jennie vill ekki segja mér neitt. Jennie brosti. Frú Gerhardt var óróleg í sætinu. Þau sátu þarna stundarkorn og töluðu saman. Svo stóð öldungaráðsmaðurinn á fætur. Segið manni yðar, sagði hann, — að koma í skrif- stofu mína í gistihúsinu á mánudaginn kemur. Ég ætla að vita, hvort ég get gert nokkuð fyrir hann. — Þakka yður fyrir, stamaði frú Gerhardt. — Nú má ég ekki vera að því að slóra hér lengur, bætti hann við. — En munið nú eftir að segja hon- um frá þessu. — Já, já, það skal ég muna, sagði frú Gerhardt,. Hann dró hanzkann á aðra höndina og rétti Jennie hina. — Hún er gimsteinninn yðar, frú Gerhardt. — Verið þér sælar, frú Gerhardt, sagði hann og gekk til dyranna. Hann kinkaði kolli og gekk út, en margir nábú- anna stóðu úti við glugga sína og horfðu á þennan tigna mann ganga út úr húsi þessarar fátæku fjöl- skyldu. ,— Hver skyldi þetta vera? sögðu þeir. — Sko, hvað hann gaf mér, sagði móðirin barna- lega við dóttur sína um leið og gesturinn lokaði hurðinni. Það var tíu dollara seðill. Hann hafði skilið hann eftir í lófa hennar um leið og hann kvaddi hana. FIMMTI KAFLI. Þegar svo var komið, að Jennie stóð í þakkar- skuld við öldungaráðsmanninn, var ekki óeðlilegt, að henni væri mjög vel til hans. Öldungaráðsmað- urinn fekk föður hennar bréf til eins af verksmiðju- eigendunum í nágrenninu, og það varð til þess, að Gerhardt gamli fékk atvinnu. Að vísu var það að- eins næturvarðarstaða, sem hann fékk, en það var betra en ekkert, og Gerhardt var mjög þakklátur. Hann hafði aldrei kynnzt jafngóðum manni. Hann gleymdi ekki heldur frú Gerhardt. Einu sinni sendi Brander henni kjól og í annað skipti. sendi hann henni sjal. Þessar gjafir gaf hann að sumu leyti vegna þess, að hann hafði samúð með fjölskyldunni og að sumu lelyti vegna, þess, að hann hafði ánægju af því að hafa efni á að vera rausnarlegur. En frú Gerhardt fann ekki nema eina ástæðu fyrir gjafmildi hans. Brander öldungaráðs- maður hlaut að vera góðhjartaður maður. Um Jennie var það að segja, að feimni hennar við hinn tigna mann var nú alveg horfin. Þau þvöðruðu saman og hlógu og hann gleymdi því al- veg, að hann var öldungaráðsmaður og stóð henni. miklu ofar í þjóðfélagsstiganum. Eitt kvöldið tók hann utan um hana og þrýsti henni að sér. I annað sinn setti hann hana á kné sér og sagði henni frá lífi sínu í Washington. Hanu kyssti hana og þrýsti henni að sér, en hann var allt- af mjög varkár, því að hann vildi ekki að hún firrtist við sig. Jenni naut þess í sakleysi sínu. Hún bar ekki í brjósti neina þrá til hans, en hún naut þess, að hinn tigni maður skyldi vera félagi hennar og trún- aðarvinur. Eitt kvöldið strauk hún hár hans meðan hún stóð við stól hans, og þar sem hún vissi ekki, hvað hún átti af sér að gerá, tók hún úrið hans upp úr vasa hans« — Langar yður til að eignast úr? spurði hann. — Já, mig langar til þess, sagði Jennie. Daginn eftir stanzaði hann úti fyrir skartgripa- verzlun, fór inn og keypti úr. — Jennie, sagði hann, þegar hún kom næst. —.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.