Alþýðublaðið - 24.10.1940, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 24.10.1940, Qupperneq 1
ÚTGEFANDI RITSTJORI: STEFAN PETURSSON XXI. ÁRGANGUR FIMMTUDAGUR 24. OKT. 1940 247. TÖLUBLAÐ Hitler vill fá bæði Frakk- land og Spán út í stríðið. -----*>--- Hann iiiffi Franeo við landamæri Frakklands og Spánar í gærdag. ----*-:-:- Og talið líklegt að hann hitti Pétain í dag. ÞAÐ er lítill efi talinn á, að Hitler sé að reyna að fá .bæði Frakkland og Spán út í stríð Þýzkalands og ít- alíu við England. • , Það er nú kunnugt, að Hitler hefir eftir fund þeirra Lavals í París í fyrradag, farið suður til landamæra Frakk- lands og Spánar og hitt Franco þar í gær í járnbrautarvagni skammt frá San Sebastian. Viðstaddir þann fund voru einnig utanríkismálaráðherrar þeirra, Ribbentrop og Suner. Þetta var tilkynnt opinberlega bæði í Berlín og Madrid í gær- kveldi, en ekkert látið uppi um það, hvert viðræðuefni fund- arins hefði verið, og hver árangur hefði af honum orðið. í London er hinsvegar bent á það, að það sé nú af, sem áður var, þegar Hitler boðaði þjóðhöfðingja og stjórnmála- rnenn til Berchtesgaden til þess að kúga þá. Nú -verði hann að heimsækja þá sjálfur til þess að reyna að vinna þá til ♦ fvlgis við sig. Fregnir frá Frakklandi í morgun herma, að flogið hafi fyrir, að Hitler muni einnig hitta Pétain marskálk á þessu ferðalagi sínu og yrði það þá sennilega í dag. Yfimaðnr norska hersins flnítnr í flngvél til Berlin. AÐ var skýrt frá því í Lundúnaútvarpinu í gær- kveldi, að Ruge, yfirmaður norska hersins í Noregi, hefði verið fluttur með valai til Ber- lín í þýzltri flugvél, vegna þess að hann hefði neitað að sverja JÞjóðverjum nokkra trúnaðar- eiða. Það e;r sama sagan og iim Win ck e 1 man n, yfirhershöfðingja, Hollendin,ga, sem fiuttur var sem fangi til Pýzkalands í sunnar. EFTIR uppgjöf Júgóslavíu fyrir möndulveldunum ■óttast menn að sú móíspyrna, sem Búlgaría hefir sýnt þeim hingað til, og. Boris konungur virðist hafa haft aðalforystuna fyrir, sé nú í þann veginn að bila. Það er talið, að stjórnarskipti séu í aðsigi í Biilgaríu, og að núverandi landbúnaðarmálaráð herra, Bagrianoff, verði falið Laval mætir harðri mðt- spyron i Vichy. f sambandi við þessa síðusíu frétt er skýrt frá því í fregnum ameríkskra fréttaritara, að La- val, sem fór til Vichy í gær, hafi í morgun komið aftur til Parísar, og sé það altalað, að hann hafi mætt harðvítugri mótspyrnu innan Vichystjórn- arinnar. Pétain marskálkur, Huntziger hershöfðingi, sem tók við hermálaráðherraemb- ættinu af Weygand, og margir að mynda nýja stjórn. Hann er sagður mikill vinur möndul- veldanna og var nýlega í heim- sókn bæði í Berlín og Róma- borg. Fullyrt er að möndulveldin hafi lofað Búlgaríu löndum á kostnað Grikklands, allbreiðu eiði suður að Eyjahafi, þar á meðal hafnarborginni Saloniki, ef hún snúist til fylgis við fyr- irætlanir þeirra á Balkanskaga. ráðherrar aðrir, vilji ekki láta ginna sig út í neinar f jándsam- legar athafnir gegn Englandi, en Baudoin, uíanríkismálaráð- herrann, og Darlan aðmíráll, flótamálaráðherrann, styðji til- lögur Lavals um að fallast á ráðabrugg þeirra Hitlers. Til viðbótar við þá skilmála Hiílers fyrir formlegum friði og hernaðarbandalagi við Frakkland, sem ameríkska fréttastofan Associated Press birti í fyrrakvöid, hefir nú spurzt, að Frakkland eigi að láta nokkurn hluta af Marokko af hendi við Spán, og alla Ka- merun af hendi við Þýzkaland. Hins vegar eigi Ítalía ekki að fá nema nokkurn hluta af Tu- nis. Hinum hlutanum eigi Frakldand að fá að halda, á- samt Algier og partinum af Marokko. * Bretlaod ylAMII, Irval sem fyrir kemur. 1 neðri málstofu brezka þings- ins var Butler aðstoðarutanrí'kis- málará&herra spurður að því í gæ,r, hvort Bretland myndi ekki gera gagnráðstiafanir gegn Joft- árásuni þeiim, sem franskar flug- vélar hefðu þegar gert á Gi- braltar. Butler svaraði því, að þingið þyrfti engan kvíðboga að bera fyrir því, að Bretland væri ekki Frh. á 4 .síSu. Sagt að hemii hafi verið .lofað hlíði gegnum Grikkland suður að Saioniki. Franco og utanríldsmálaráðherra hans, Suner filæsileg afmælistaátfð Félagið - hjrlt af mlirgMsii stétt* arfélðgiaBM og eímstakllngBim'. 2® Bnenn gerðir Eielðursfélagar. ----------«--------- AFMÆLISHÁTÍÐ Sjómannafélags Reykjavíkur fór fram í gær í aiþýðuhúsinu Iðnó. Hátíðin var mjög glæsileg og fór fram með hinni mestu prýði. Á hátíðina höfðu verið boðnir allir stofnendur félags- ins, sem hafa verið óslitið í félaginu, stjórn Alþýðusam- bands íslands og formenn margra stéttarfélaga sjómanna. Björn Blöndal Jónsson stýrði hátíðinni og bauð hann gesti velkómna fyrir hönd afmælisnefndarinnar, en síðan tók Sigurjón Á. Ólafsson til máls. Rakti hann í stuttu máli baráttusögu félagsins. Síðan töluðu hver af öðrum:,h Stefán Jóh. Stefánsson, forseti Alþýðusambandsins, sem talaði fyrir minni félagsins, Sveinn Sveinsson, sem ávarpaði for- mann félagsins fyrir hönd fé- lagsmanna, Garðar Jónsson sjómaður, sem ávarpaði stjórn félagsins fyrir hönd sjómanna, Jón Guðnason og Eggert Brandsson, sem töluðu fyrir hönd hinna gömlu félagsmanna, Kjartan Ólafson, sem flutti Sjómannafélaginu kveðju og heillaóskir Arnar Arnarsonar skálds, Magnús H. Jónsson, sem flutti félaginu heillaóskir Prentarafélagsins, Haraldur Guðmundsson, sem flutti félag- inu kveð'jur Alþýðuflokksfé- lagsins og Jón Axel Pétursson, formaður Stýrimannafélagsins, sem flutti félaginu heillaóskir stýrimanna og talaði fyirr minni konu Sigurjóns Á. Ólafs- sonar, Guðlaugar Gísladóttur. Frh. á 2. siðu.. Loftárás bæði á Berlin «g Londen í nétt. PRENGJUFLUGVÉLAR BRETA ©erðu eina loftárás- ina á Berlín í nótt og komu í mönguni bylgj’um inn yfir borg- ina. HiutJaiusir fréttaritarar síma þaðian, að þei'r hafi séð eldia á á möngum stöðum og heyrt mikla skothríð. Brezku fliugvélarnar hefðu flogið lágt yfir borginni. Þjóöverjar gerðu einnig loftá- rás á London í nótt, en tjón af þeim var mikið með minna móti. JirisLjáKtar víðsvegar i Buðnr-Evrópu. Miklir jarðskjálftar hafa orð- Jð í Rúmeníu, Bessarabíu, Ukra- ine og Kákasus. Fjöldi fólks hefir særzt af völdum þeirra.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.