Alþýðublaðið - 31.10.1940, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 31.10.1940, Blaðsíða 1
Tegarinn Bragi férst við vestnr strðnd Englands i gærmorgnn. --4-- Aðeins þrír af þrettán manna áhðfn togarans komnst Ififs af, hlnir tfiu fárust með skipinu. Samtal við utanrikismálaráðherra Sendifnlltrðannm i Lendon falið að aðstoða iandana prjá -----». Brezki sendiherrann hefir lofað að biðja um að rannsöknunum verði hraðað. ALÞÝÐUBLAÐIÐ hafði í morgun samtal við ut- anríkismálaráðherra um brottflutning íslendinganna þriggja, sem komu með Esju. — Hvað hefir ríkisstjórn- in gert í málinu? „Til þess að skýra málið betnr skal ég taka það fram að í bxéfi breafea sendiherrans frá 5. sept. þar sem endanlcga var tilkynt urn lcyfi brezku ríkisstjómarinn- lar tmi héimflutning landanna frá Norðnrlðndum með Esju, varþað tekið fram, að brezk rannsókn á farþegnnum væri skilyrði og ef einhverjir farþegar kæmu með skipinu, sem herstjóminni þættu grunsamlegir, yr'ði þeim ekki leyft að fara til landsins. \ Pað var eins og kunnugt er, j gert ráð fyrir þvi, að aðalrann- sóknin á farþegunum færi fram í Kirkwall, en svo varð ékki held- lu>r hélt skipið áfram hingað með Jítilli töf í Kirkwall oig hér fór aðalrannsóknin svo fram. Eins og öllum er knnnugt leiddi sú rannsókn til þess, að setja varð tryiggingu fyrir land- göngu tveggja farþeganna. en þrír þeirra, tveir sjómenn frá Nonegi, er fóru um borð í Esjtu í rt>ánd- heimi, er þjóðverjar tóku haina þangað og Bjami Jónsson Iækn- ir, fengu ekki landgöngUleyfi hjá herstjóminni og voru fluttir út til framhaldsrannsóknar. Ríkisstjórnin gerði allt, sem hægt var til að hindra að þessir menn yrðu sendir út og átti Sveinn Bjömsson sendiherna og ég ítrekuð samtöl við sendiherra Breta um málið, og var allt gert til þess að fá breytt ákvörðun brezku herstjómarinnar um þetta atriði, en það stoðaði ekki. Hins- vegar lýsti sendiherra Breta yfir því, að hann myndi skrifa út til Utanríkismálaráðuneytisins brezka og óska þess að framhaldsrann- sókn á þessum mönnum færi fram sem allra skjótast og þeir yrðu Frh. á 4. síðu. npOGARINN „BRAGI,“ eign Geírs Thor- •** steinsson, fórst snemma i gærmorgun af völdum áreksturs, við vesturströnd Eng- lands, skammt undan Fleetwood. Aðeins þrír af þrettán manna skipshöfn komust lífs af. Hinir 10 fórust. Fréttir af þessu hörmulega slysi eru enn af skornum skammti. Geir Thorsteinsson hefir aðeins borizt eitt skeyti um slysið, í gærkveldi, og segir þar, að skipið hafi farizt við áreksturinn, en hvernig hann hafi orðið, er ekki sagt. Skipið, sem sigldi á „Braga“ eða hann rakst á, heitir „Duke of York“, er flutningaskip og 3743 tonn að stærð. „Bragi“ mun hafa sokkið á örskammri stundu. Þá eru og í skeytinu talin upp nöfn þeirra þriggja manna, sem af komust, en þeir eru: Guðmundur Einarsson, 1. vél- stjóri. Stefán Olsen, kyndari. Þórður Sigurðsson, 2. stýri- maður. lelr, sem firut. Þeir sem fórust með skipinu, voru: Ingvar Ágúst Bjarnason, skipstjóri, Öldugötu 4, f. 3. ág. 1892; kvæntur og átti 5 börn, öll innan 15 ára. Sigurmann Eiríksson, fyrsti stýrimaður, Barónsstíg 43, f. 17. okt. 1899; kvæntur og átti 2 börn. Lárus Guðnason, háseti, Kárastíg 11, f. 16. júlí 1895; kvæntur og átti 2 börn. Elías Loftsson, háseti, Skóla- / Bretar haf a keypt 14 pusund flugvélar í Bandarikjunum! —--♦-- Bandarfkin verda komin i strið við Þýzkaland f marz9 ef Roosevelt sigrar, segir Willkie. ROOSEVELT BANDARÍKJAFORSETI skýrði frá því í kosningaræðu, sem hann flutti í gærkveldi, að Bretar hefðu þegar keypt 14 000 hernaðarflugvélar í Banda- ríkjunum síðan stríðið byrjaði og beðið um 12 000 í viðbót. Forsetinn nefndi ekki, hve mikið af þessum flugvéla- fjölda væri komið til Betlands, en sagði þó, að Bretar hefðu nú miklu fleiri flugvélar heldur en þegar loftárásirnar byrjuðu á Bretland í sumar. Flugvélaframleiðslan í Banda | ríkjunum hefir nú aukizt svo mjög, að með þeim hraða, sem nú er á henni, myndu verða smíðaðar 15 000 flugvélar á ári. En afköst framleiðslunnar eru stöðugt að vaxa. Wendell Willkie, forsetaefni republikana, flutti einnig kosn- ingaræðú í gærkveldi. Hann hélt í henni uppteknum hætti Frh. á 4. síðu. vörðustíg 35, f. 29. ág. 1906; kvæntur og átti 1 barn. Sveinbjörn Guðmundsson, háseti, Njálsgötu 56, f. 23. apr. 1901; kvæntur og átti 1 barn. Ingimar Kristinsson, háseti, Hafnarfirði, f. 6. marz 1900; ó- kvæntur. Ingimar Sölvason, loftskeyta- maður, Njálsgötu 84, f. 20. des. 1910; kvæntur og átti 1 barn. Þorbjörn Björnsson, mat- sveinn, Laugavegi 20 B, f. 11. okt. 1902; kvæntur og átti 2 börn. Stefán Einarsson, kyndari, Sólvallagötu 21; kvæntur og átti 3 börn. Ingvar Júlíus Guðmundsson, annar vélstjóri, Spítalastíg 1, kvæntur og átti 5 börn. Þetta er fyrsta íslenzka skip- ið, sem ferst í utanlandssigling- um síðan styrjöldin brauzt út. Eins og áður er sagt, er ekki vitað með hvaða hætti ár^kst- urinn hefir viljað til, en hann hlýtur að hafa orðið mjög skyndilega og verið geysimik- ill. Aðra skýringu er varla hægt að gefa á því sem stendur, hve margir hafa látið lífið af skipshöfninni. Togarinn ,,Bragi“ hét áður Grímur Kamban. Hann var byggður 1918 og var 321 tonn að stærð. Kosningá Sambandsging Verkialýðsfélag Bolungavíkur hefir kosið á sambandsþing þá Guðjón Bjamaison, Ágúst Elías- son og Jóhann G Eyfirðing. Sjó- þiannafélagið Jötuin í Vestmanna- eyjum hefir kosið þá Guðmund Heligason og Kristján Thorberg Tlllaga nm afnám skatt frelsisins ná lögð fram. Nýbygglngarsjóðor útgerdarfiwnar* FULLTRÚI Alþýðuflokks- ins í milliþinganefttdinni í skatta- og toliamálum, Jón Blöndal, hefir nú, að þvl sem Alþýðublaðið hefir frétt, lagt fram fyrir nefndina ákveðnar tillögur sem grundvöll fyrir umræður um að skattfrelsi út- gerðarinnar verði afnumið og að nokkurar aðrar breytingar skuli gerðar á skattalöggjöf- inni í því sambandl. M. a. leggur Jón Bíöndal til að stofnaður yerði sérstakur “ýbyggingarsjóður til þess aS tryggð verði endurnýjun skipa- stólsins og njóti hann verulegra ívilnana um skattgreiðslur. Á þessu stigi málsins vildi Jón Blöndal ekki gefa frekari upplýsingar um tillögur sínar, sem eru þær fyrslu, sem lagð- ar hafa verið fram í nefndinní, varðandi endurskoðun á á- kvæðunum um skattfrelsi út- gerðarinnar. ftðlnmmlðar taægt áfram. Eru að leita að veikiim punktí á herlinu Grikkja. ENGIN stórtíðindi virðast hafa gerzt á vígstöðvun- um við norðurlandamæri Grikklands. ftalir segja áð ber- sveitum þeirra hafi miðað um 7—8 km. vegarlengd áfram á vesturströndinni, norðan við Janina, þar sem þeir hafa tveimur herfylkjum á að skipa. Annars staðar virðist aðeins vera um skærur að ræða. Það iítur út fyrir að ítalir séu að leita að veikum punkti á her- línu Grikkja, áður en sóknin hefst, eins og Þjóðverjar í Pól- landi og Frakklandi. Orðrómur hefir borizt um það, að sex þýzk herfylki séu í Albaníu og eigi þau að taka þátt í árásinni á Grikkland. Ciano greifi er sagður kominn til Tir- ana, höfuðborgarinnar í Alban- íu. Brezka flotamálastjórnin hef- ir tilkynnt, að Korinthuflóa, sem borgirnar Patras og Kor- intha liggja við, og Aeginaflóa úti fyrir Aþenu, hafi verið lok- að með tundurduflum. Þá var og tilkynnt í gær- Frh. á 4. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.