Alþýðublaðið - 31.10.1940, Qupperneq 4
FIMMTUDAGUR 31. OKT. 194».
j Bókin er «■» tmm wwwanik OjfiA rn VflHK B6mb er
’ ÞÝDDAR SÖGUR Mi TtalrZI T7P? MXlTXl ÞÝDÐAR SéGWR
eftir JPiliiI?ií tl S1 Inli wt tB h mT efíir ^
1 11 heimsfræga höfunda. Æmmmm & mw Hlfiinv mmdr 11 kehotsfrsega köftmda.
FIMMTUDAGUR
Næturlæknir er Theódór Skúla-
son, Vesturgötu 6, sími 3374.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
og Iðunnar-Apóteki.
Næturvarzla bifreiða: Bifröst,
sími 1508.
ÚTVARPIÐ:
1.8.30 Dönskukennsla, 1. II.
19.00 Enskukennsla, 2. fl.
19.25 Hljómplötur: Píanó-„jass.“
1940 Lesin" dagskrá næstu viku.
20.00 Fréttir.
20.30 Erindi: Booker Washington
og uppeldismál íslendinga,
I. (Hannibal Valdimarsson
— Jens Hólmgeirsson).
20.55 Útvarpshljómsveitin: Þekkt
lög eftir Schubert.
21.15 „Minnisverð tíðindi“ (Axel
Thorsteinsson.).
21.35 Hljómplötur: „Andleg tón-
list.
21.50 Fréttir. — Dagskrárlok.
Kvenfélag Alþýðuflokksins
vill minna meðlimi sína á, að
saumanámskeið félagsins hefst
annað kvöld (föstudag) kl. 8. —
Þær konur, sem þegar hafa gefið
sig fram, sem þátttakendur nám-
skeiðsins, éru beðnar að mæta
stundvíslega.
Menntaskólinn
verður settur á morgun kl. T í
tíátiðasal Háskólans. Þess er
yænst, að foreldrar eða aðstand-
endur nemenda verði viðstaddir.
Afmselishljómleikar
Hljómsveitar Reykjavíkur verða
endurteknir annað kvöld kl. 7 í
Gamla Bíó vegna fjölda áskorana.
Leikfélagið
sýnir leikritið Loginn helgi eft-
ir Somerset Maugham í kvöld kl.
8.
Forðum í Flosaporti
ástandsútgáfan, verður sýnd í
Iðnó annað kvöld kl. 8.30.
Maðurinn með mörgu andiitin
heitir ný mynd frá Paramount,
sem Gamla Bíó sýnir núna. Aðal-
hlutverkin leika Akim Tamiroff,
Lloyd Nolan, Patricia Morrison o.
fl. í í
Kosningin i
Stúdentaráði.
IGÆR fóru fram kosningar
í Háskólanum til Stúdenta-
ráðs Háskólans.
A-listinn, listi Framsóknarstúd'
enta, studdur af Alþýðuflokks-
stúdentum fékk 56 atkvæði og
2 menn kjöma. Telja þeir, sem
að listanum stóðu, að grein, sem
Jónas Jónsson skrifaði i Timann
rétt fyrir stúdentaráðskosningarn-
ar, hafi stórspillt fyrir þeim við
kosningamar.
Af A-listamiim htutu kosningu
Benedikt Bjarklind stud. jur. og
Bergþór Smári stud. med.
C-listi, Sjálfstæðismenn og tíaz-
istar, fékk 137 atkvæði og 5
menn kjöma, þá Þoigeir Gests-
son ,stud. med. Ármann V. Snæ-
varr stud. jur., Gunnar Gíslason
stod. theol., Einar Ingimundarson
stud. jur og Gísla Ólafsson stud.
med.
B-listi, kommúnistar, fékk 47
(atkvæði og 2 menn kosna, Ólaf
Sv. Bjömsson stud. jur. og Skúla
Thoroddsen stud. med.
TONLIST ARFEL AGIÐ.
BARNAVINAFÉLAGIÐ SUMARGJÖF.
Dagheimili
fyrir börn á aldrinum 2l/z—7 ára tekur til starfa á Amt-
mannsstíg 1 í byrjun næsta mánaðar. Einnig verður gerð
tilraun með barnagarð fyrir nokkur 4 og 5 ára börn. Uppl.
gefur Þórhildur Ólafsdóttir forstöðukona í síma 4476, kl.
4—6 næstu daga.
STJÓRNIN.
Samkvæmt lögum um atvinnuleysisskýrslur fer fram
skráning atvinnulausra sjómanna, verkamanna, verka-
kvenna, iðnaðarmanna og kvenna í Góðtemplarahúsinu
við Templarasund 1. og 2. nóv. n.k. kl. 10—8 að kvöldi.
Þeir, sem láta skrásetja sig, eru beðnir að vera við-
búnir að gefa nákvæmar upplýsingar um heimilisástæður
sínar, eignir og skuldir, atvinnudaga og tekjur á síðasta
ársfjórðungi, hve marga daga þeir hafi verið atvinnulaus-
ir á síðasta ársfjórðungi vegna sjúkdóma, hvar þeir hafi
haft vinnu, hvenær þeir hafi hætt vinnu og af hvaða á-
stæðum, hvenær þeir hafi flutt til bæjarins og hvaðan.
Ennfremur verður spurt um aldur, hjúskaparstétt,
ómagafjölda, styrki, opinber gjjold, húsaleigu og um það í
hvaða verkalýðsfélagi menn séu. Loks verður spurt um
tekjur manna af eignum mánaðarlega og um tekjur konu
og harna.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 31. október 1940.
Bjarni Benediktsson.
settur.
Vegna f jölda áskorana verða
AfmælisMjómleikar
Hllónsveltar Reykjavibnr
endurteknir annað kvöld kl. 7
stundvíslega í Gamla Bíó.
Aðgöngumiðar hjá Bókav.
Sigf. Eymundssonar, Sigríði
Helgadóttur og Hljóðfæra-
húsinu.
AÐDRÓTTANIR ÞJ0ÐVILJANS
Frh. af 3. síðu.
hæðir frá Moskva, huodruð þús-
■unda, 1il útgáfu sinoar undanfarin
ár. Maður skyldi því Eetla.aðhann
hefði átt að hafa ásiæðu tþ að
lara varle^a1 i það, að saka’önn-
ur blöð um, að hafa selt s$gr og
sannfæringu sina erlfindu xiki. En
það er engu líkara, en að rit-
stjórar Þjóðviljans séu svo djúpt
sokknir i sinni fjárhagslegu á-
nauð hjá Moskvavaldinu, að þeir
geti heldur ekki hugsað sér
neina heiðarlega og óselda sann-
færingu hjá öðnrm.
VIÐTAL VIÐ UTANRIKIS-
MÁLARÁÐHERRANN
Frh. af i. siðu.
síðan sendir heim ef allt reyndist
í lagi. Utanríkismálaráðuneytið hér
ritaði einnig sendiherranuim og
bar þar fram eindregnar öskir
ríkisstjórnarinnar usn að rann-
sókninni yrði hraðað sem mest og
landamir sendir hið bráðasta
heim aftur. Samtímis var Pétri
Benediktssyni sendifulltrúa í Lon-
don sfanað og lagt fyrir hann
íað setja sig í samband við ís-
lendinga, vinna fyrir þá af öllum
mættx og tilkynna ríkisstjóminni
hvað gerðist í málum jxeirra.
28. þ. m. barst utanríkismála-
ráðuneytinu bréf frá Læknafélagi
íslands þar sem það var beðið
jað gera sitt ítrasta til þess að
Bjarni Jónsson fengi, sem allra
fyrst leiðréttingar imála sinna og
heimfararleyfi.
Diaginn eftir, 29. þ. m. ritaði
svo ráðuneytið brezka sendiráð-
inu og bar fram þessa ósk Lækna
félagsins, en vitanlega mun ráðu-
neytið vinna jafnt fyrir alla hina
B aðila í þessu rnáli".
ROOSEVELT OG WILLKIE
Frh. af 1. síðu.
flokksmanna sinna, að ógna
með ófriðarhættunni, sem af
því myndi stafa, ef Roosevelt
yrði endurkosinn.
Ef Roosevelt sigrar í kosn-
ingunum, sagði hann, verða
Bandaríkin komin í stríð við
Þýzkaland í marz 1941,
Joseph Kennedy, sendiherra
Bandaríkjanna í London, sem
nú er staddur vestra, hefir þeg-
ar lagt lóð sitt á vogarskólina í
kosningabaráttunni og tekið
opinbera afstöðu með Roose-
velt. Wendell Willkie hefir ráð-
izt harðlega á hann fyrir það.
GRIKKLAND
Frh. af 1. síðu.
kveldi að brezkar sprengju-
flugvélar hefðu gert stórkost-
l'ega loftárás á flugvöll ítala
við Maritza á eyjunni Rhodos,
stærstu Dodecaneseyjunni.
SSaOAMLA BðOK 11 ■1 NYJA BIO HR
NaðBriBB me§ mðrgu Slðasta aðföruB
andlttfD. Hr. Noto.
Spennandi og viðburðarík
The Magnifieent Fraud. amerísk leynilögreglumynd.
Ameríksk kvikmynd frá PETER LORRE
Paramont. sem M. MOTO.
Aukamynd:
Aðalhlutverkin leika: ÆFINTÝRI STÓR-
\ AKIM TAMIROFF, FURSTANS.
■ LLOYD NOLAN, Amerísk skopmynd, leikin
PATRICIA MORISON. af -■;,;;„■
Sýnd kl. 7 og 9. ANÐY CLYDE.
Sýnd kl. 7 ©g 9.
Jarðarför mannsins míns og föður,
Hannesar S. Einarssonar,
fer fram frá dómkirkjunni laugardaginn 2. nóvember kl. 11
fyrir hádegi.
Athöfnínni í kirkjunni verður útvarpað.
Guðbjörg Brynjólfsdóttir og dóttir.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR.
99Loginn taelgi46
eftir W. SOMERSET MAUGHAM
Sýning í kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl. I í dag.
f
4
Revyan 194ö-
r
i
ÁSTANDS-ÚTGÁFA
leikið í Iðnó annað kvöld kl. 8.30.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4—7 í dag og eftir
kl. 1 á morgun .— Sími 3191.
s: G. T. eiBflönfln efdrí dansarniy.
verða í G.T.-húsinu laugard. 2. nóv. kl. 10. Áskriftarlisti
og aðgöngumiðar frá kl. 2. Sími 3355. HLJÓMSVEIT S.G.T.
Lðgtak.
Eftir kröfu bæjargjaldkera Reykjavíkur, og að
undangengnum úrskurði, verður lögtak látið fara
fram til tryggingar ógreiddum útsvörum til bæjar-
sjóðs Reykjavíkur, sem lögð voru á við aðalniður-
jöfnun s.l. vor og féllu í gjalddaga að 1/5 hluta
mánaðarlega 1. júní, 1. júlí, 1. ágúst, 1. september og
1. október þ. á., en það eru útsvör allra þeirra gjald-
enda, sem ekki greiða útsvör sín skv. a- og b-lið
1. gr. 1. nr. 32, 12. febr. 1940 um breyting á 1. nr. 106,
23. júní 1936, ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, að
■ átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsing-
ar, séu þau eigi að fullu greidd innan þess tíma.
Lögmaðurinn í Reykjavík.
BJÖRN ÞÓRÐARSON.