Alþýðublaðið - 05.11.1940, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 05.11.1940, Blaðsíða 1
r RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON ÚTGEFANDí: ALÞÝÐUFLOKKURINN XXI. ÁRGANGUR ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓV. 1940. 257. TÖLUBLAÐ Stórorusta 1 Albaniu. * Grikkir skjóta af fallbyssum Þýzka tlugvclin: , „ r. Tflrlfsini H bmta a Korltza!-“al" flyja fcorg,na- setuliðina. ftðisk kersveit nmkringd í fjðllnnnni. STÓRORUSTA er nú að hefjast í grennd við Koritza í Albaníu, þar sem Grikkir eru komnir um 12 km. inn fyrir landamærin. Skjóta þeir af fallbyssum á borgina, en hún er ein af aðalbækistöðvum ítalska hersins, sem átti að sækja fram til Saloniki. Sagt er, að ítalir séu í þann veginn að hverfa burt úr borginni, en að liðstyrkur sé þó á leiðinni þeim til hjálpar. Grikkir hafa umkringt ítalslca hersveit í fjöllunum hjá Koritza, og er ekki annað sjáanlegt, en að hún verði brytj- uð niður eða tekin til fanga. FRÁ stjórn brezka setuliðs- ins hefir Alþýðublaðinu borizt eftirfarandi yfirlýsing: „Stjórn brezka setuliðsins vill benda á, að ástæðan til þess að ekkert loftárásarviðvörunar- merki var gefið, þegar þýzk könnunarflugvél flaug yfir bæ- inn, var sú, að hér var ekki um loftárás að ræða. Ein tveggja hreyfla könnun- arflugvél gæti varla flutt hing- að farm af sprengjum, og var því álitið óþarft að hræða fólk að óþörfu. Strax og flugvélin sást var skotið á hana úr loftvarnabyss- um og hún hrakin ut á sjó. Ein sprengikúla sprakk innan 60 metra frá flugvélinni, og er það álitið nógu nálægt til þess að orsaka skyndilegan flótta. Stjórn brezka setuliðsins þykir leitt að ritstjórar Þjóð- viljans urðu svona skelkaðir, en vonar að þeim líði betur næstu daga, ef engin hætta er á ferð- um.“ Sýtt islenzkt leikrit fromsýnt bráðnm. LEIKRÍTIÐ „ÖIdur“ eftir séra Jakob Jónsson, sem Leikfélagið hefir verið að æfa undanfarið, verður frumsýnt í næstu viku. Frh. á 2. síðu. SjóOTQStan vlð Korfu. Nánari fregnir eru nú komn- ar af sjóorustunni við Korfu í fyrrakvöld. Það var viðureign milli ítalskra og grískra her- skipa í sundinu milli lands og eyjar. ítölsku herskipin reyndu að brjótast inn í sundið, en voru hrakin á flótta af herskipum Grikkja eftir klukkustundar orustu. Einu ítölsku herskipi var sökkt, en annað flýði norður. með strönd Albaníu og stóð í Ijósum logum, þegar seinast sást til þess. ítalir gerðu einnig í fyrradag hverja loftárásina eftir aðra á Korfu og gerðu þeir sér sér- stakt far um að hitta brezka konsúlatið þar, en þar höfðu margir brezkir þégnar leitað hælis. Allmargir þeirra særð- ust. í gærkveldi var tilkynnt í í London, að brezkar sprengju- flugvélar hefðu gert mikla árás á flotahafnir ítala í Bari og Brindisi á austurströnd Suður- Ítalíu, en þaðan fara fram her- flutningar ítala til Albaníu. Bretar gerðu einnig nýja loft árás á Neapel í fyrrinótt .og vörpuðu sprengikúlum bæði á járnbrautarstöð borgarinnar og marga olíugeyma. Skothríðin úr loftvarnabyssum ítala var miklu meiri, en við fyrstu loft- árásina á borgina fyrir nokkr- um dögum síðan. Það hefir nú verið staðfest opinberlega í London, að það var á eyjunni Krít, sem Bretar settu lið á land, og er þar brezk ur landher, flugher og floti. Þá hefir og verið tilkynnt, að tveimur ítölskum kafbátum hafi nýlega verið sökkt. Hafa ítalir nú misst alls 29 kafbáta síðan stríðið hófst, eða um fjórða' hlutann af öllum kaf- bátaflota sínum. Frásögn sjómannanna, er af komust, pegar Bragi fórst. ----4--- Prir i liriliiiil, pegar áFekstnrlsBBi varð. Twefr pelrra f»Jörfljjnðust. Aðeins elnn komst upp úv sklpiuu, ©íi bjaFgjaðist Iiumei a€ kJðlMum. TOGARINN HAUKANES kom í morgun klukkan tæp- lega 11. Með skipinu komu tveir þeirra manna, sem af komust, þegar togarinn Bragi fórst: Þórður Sigurðs- son, 2. stýrimaður og Stefán Olsen, kyndari. Einnig kom lík skipstjórans, Ingvars Ágústs Bjarnasonar. Þegar skipið lagðist upp að Grófarbryggjunni stóð kista skipstjórans á þilfarinu, sveipuð íslenzkum fána, en skammt frá stóðu þeir tveir einir sér, Þórður Sigurðsson og Stefán Olsen. Alþýðublaðið náði strax tali j af báðum þessum mönnum. Þeir tala fátt um þetta hörmu- lega slys og vilja ekkert segja um sjálfan aðdraganda þess, eða hvernig það vildi til að þeirra áliti. Það bíður sjóprófa. Að öðru leyti er frásögn þeirra á þcssa leið: „Við lág'uxn fyrir akkerum og biðum að sigla inn. Svolitill stormur var og svartamyrkur og Frh. á 2. síðu. Frá Tirana, höfuðborg Albaníu. Flnamtlii mHlJénir kjésa I Bandaríkjunúm I dag. . Úrsiit forsetakjörsins verða ekki orðin kunn fyrr en einhverntíma á morgun. P IMMTÍU MILLJÓNIR KJÓSENDA ganga að kosn- ingaborðinu í Bandaríkjunum í dag, til þess að gera út um það, hver vera skuli forseti hins mikla lýðveldis í Vesturheimi næstu fjögur ár. Það er ekki búist við, að fullnaðarúrslit kosningarinnar verði kunnar fyrr en ein- hverntíma á morgun. Því er nú haldið fram fregnum frá Bandaríkjunum, að kosningaúrslitin séu með öllu óviss. Forsetaefni republi- kana, Willkie, hefir ferðast um Bandaríkin svo að segja þver og endilöng og alls staðar flutt ræður. En Roosevelt hefir ver- ið bundinn af stjórnarstörfum lengst af heima í Washington og aðeins getað flutt kosninga- ræður á þremur kosningastöð- um utan höfuðborgarinnar. í gærkveldi dvaldi Roosevelt á sveitasetri sínu á Hudson Valley og safnaðist þangað múgur og margmenni með blys, til að hylla forsetann. Roosevelt ávarpaði mannfjöld- ann og sagði, að þetta væri í síðasta sinn, sem hann yrði í kjöri til opinberra starfa í Bandaríkjunum. Willkie ávarpaði í gærkveldi konur í útvarp og sagðist aldrei mundu senda eiginmenn þeirra eða bræður til vígvalla í öðr- um heimsálfum. Leikfélagið sýnir leikritið Loginn helgi ann- að kgöld kl. 8. Sterkt öl handa setuliðinu. BRÁÐABÍRGÐALÖG hafa verið gefin út um breyt- ingu á áfbngislögunum, sem heimila ríkisstjórninni að Ieyfa bruggun á sterkara öli en áður hefir verið. Til þessa er sú ástæða, að brezka setuliðið hefir sótt það fast að fá sterkara öl. Verður styrkleiki þess eitthvað yfir 2V4%, sem er hámarkið sam- kvæmt áfengislögunum. Verður þetta öl ekki selt al- menningi. Stúdcntaráð hefir nú kosið sér stjórn. Skipa hana Þorgeir Gestsson form., Ein- ar Ingimundarson gjaldkeri og Benedikt Bjarklind ritari. Háskólafyrirlestur á sænsku. Fíl. mag. Anna Ostermann flyt- ur fyrirlestur annað kvöld kl. 8 í háskólanum. Efni: Úr annálum Uppsalaháskóla, í tilefni af Gúst- avs Adolfs-deginum. t

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.