Alþýðublaðið - 08.11.1940, Blaðsíða 2
FÖSTUDAGUR 8. NÓV. 1940.
ALÞÝÐUBLAÐiÐ
i
Sokiii sivaxandl ekln
á skiftimynt skorar Sjúkrasamlagið á með-
limi sína að hafa með sér smápeninga, er
peir greiða iðgjöld sín.
Sjifcrasaaiag Reykjavfkar.
Skrifstofa: Austurstræti 9, Reykjavík.
Opið kl. 10—12 og 2—4. Sími 3652. Pósthólf 313.
lorgnnblaðið ættl
að lita sér nær.
livaö hafa kosninsasmalar
íhaldsins fyrir útborgun launa
i Bretavinnnnni?
UT AF umræðunum um á-
hrif nazista í Sjálfstæðis-
flokknum og daður þessa flokks
xíjð nazistana, grípur Mgbl. til
þess óyndisúrræðis í morgun,
að tyggja upp gamlar kommún-
istalygar um að Alþýðublaðið
hafi náð undir sig fé, sem Dags-
brún hafi borið vegna^greiðslu
vinnulauna í Bretavinnunni.
í sambandi við þetta segir
blaðið, að Dagsbrún hafi sam-
ið við atvinnurekendur hér í
Rvík um að greiðsla vinnulauna
færi fram í skrifstofu hennar
og skyldi félagið fá 1 % af upp-
hæð kaupsins.
Alþýðublaðið spurði formann
Dagsbrúnar, Sigurð Halldórs-
son, um þetta í morgun, en
hann svaraði að Dagsbrún hefði
aðeins samið um þetta við at-
vinnurekendur í byggingariðn-
aðinum og ekki aðra — og Dags
brún hefði aldrei fengið einn
eyri á þennan hátt! Svo fór um
þá sjóferð Mgbl.!
Vitanlega eru það algjör ó-
sannindi, að Alþýðublaðið hafi
haft eða hafi nokkur afskipti
af greiðslu vinnulauna í Breta-
vinnunni. En vegna rökþrota í
málinu sjálfu, sem verið er að
ræða um, grípur Mgbl. til þess-
arar róglyga Moskóvíta.
Væri sæmra fýrir blaðið að
athuga afskipti kosningasmala
íhaldsins af útborgun vinnu-
launanna í Bretavinnunni og
tekjur þeirra af þeim, fyrst að
blaðið telur það sök hjá ein-
stökum mönnum, að hafa af-
skipti af greiðslu þessara launa
til verkamanna.
Og Morgunblaðið hittir
aldrei ritstjórn Alþýðublaðsins
með slíkri ásökun. Hún hefir
engin afskipti haft af greiðslu
launanna í Bretavinnunni á
einn eða annan hátt, þó að
Morgunblaðið sé að dylgja um
það í ráðaleysi sínu.
SKATTFRELSIÐ
Frh. af 1. síðu.
útgerðarinnar. Sem stendur er
ekki hægt að leggja á útgerð-
arfyrirtækin, gróði þeirrajiefir
verið svo mikill og óvæntur, að
það er siðferðileg skylda út-
gerðarmanna að skáka ekki í
skjóli laganna með allan þenn-
an gróða, heldur leggja fé fram
til almenningsþaría eins og aðr-
ir. — Ég tel einkar heppilegt
að stórútgerðin styðja smáút-
gerðina. Hér vantar smábáta-
höfn og virðist vel til fallið að
nota það fé, sem þannig fengizt,
til að byggja smábátahöfn með
viðbótarframlögum annarsstað-
ar frá.
Bjarni Benediktsson og flokk
ur hans gat ekki fallizt á að
samþykkja þessa tillögu og var
henni vísað til bæjarráðs eins
og fyrri tillögunni.
Leiðrétting.
REYKJAVÍKURBRÉFI
Morgunblaðsins 3. þ. m. er
skýrt frá tillögum mínum í
skatta- og tollanefndinni á eft-
irfarandi hátt:
„Fulltnii Alþýðuflokksins
í skattanefndinni hefir svipað-
ar tillögur á prjónunum. Hann
vill að vísu einskorða varasjóði
útgerðarinnar við það eitt, að
þeir fari til nýbygginga á skip-
unum. Hann lokar augunum
fyrir því, að þegar verðfall af-
urðanna dynur yfir, þá verður
kaupgjaldið í fullu ósamræmi
við afurðaverðið, en miðað við
þáverandi dýrtíð. Ef útgerðin
hefir ekki varasjóði til þess þá
að greiða kaup, sem er í ósam-
ræmi við afurðaverðið, þá er
hætt við að framleiðsla stöðv-
ist, fjöldi sjómanna missi at-
vinnu. Þessu gleymir Alþýðu-
flokkurinn. Einkennilegt hve
þeir sósíalistabroddar hafa get-
að orðið tilfinningalitlir fyrir
hag hinna vinnandi manna á
sjó og landi, síðan fáeinir for-
ystumenn flokksins lentu í feit-
um embættum."
Með því að hér er nokkuð
hallað réttu máli, þykir mér
rétt að biðja fyrir leiðréttingu,
enda þótt annars hafi ekki
verið tilætlimin að birta tillög-
urnar á þessu stigi málsins.
Það er ekki rétt, að tillögur
mínar gangi í þá átt að „ein-
skorða varasjóði útgeiðarinnar
við það eitt, að þeir fari til ný-
bygginga á skipunum11, og á-
lyktanir Morgunbláðsins út frá
þessari forsendu geta því tæp-
lega heldur verið réttar.
Auk þess, sem. tillögur mín-
ar gera ráð fyrir að nýbygg-
ingarsjóður útgerðarfyrirtækja
njóti verulegra skatta- og út-
svarsívilnana, fela þær í sér
eftirfarandi tillögur um vara-
sjóðina:
Helmingur þess ágóða, sem
útgerðarfyrirtæki leggja til
hliðar í varasjóð, sé undanþeg-
inn útsvari. Er þetta algert ný-
mæli, því eins og útsvarslög-
gjöfin er nú, má leggja fullt út-
svar á allt það, sem lágt er í
varasjóð. Er hér því um að
ræða mikilsverða vernd fyrir
útgerðina gegn ósanngjarnri
útsvarsálagningu. Auk þess
legg ég til, að þriðjungur þess,
sem útgerðarfyrirtæki leggja í
varasjóð, sé skattfrjáls og er
það til viðbótar því, sem lagt er
í nýbyggingarsjóð.
Vitanlega hefi ég enga ósk
látið í ljós um það, að varasjóð-
irnir verði ekki notaðir til þess
að greiða hinum „vinnandi
mönnum á sjó og landi“ hærra
kaup en afurðaverðið leyfir
þegar. verðfall þeirra dynur yf-
ir, eins og Morgunblaðið telur
rétt að gera.
Að öðru leyti eftirlæt ég les-
endum Morgunblaðsins að
draga sínar ályktanir af tillög-
um mínum og frásögn Morgun-
blaðsins af þeim.
Jón Blöndal.
Leiðréttingu þessa hafði Val-
týr Stefánsson lofað að birta í
Morgunblaðinu, en eftir margra
daga umhugsun er aðeins birt
dálítið hrafl úr henni, þar sem
m. a. er vandlega þagað um
það, sem Mgbl. hafði sagt um
tillögurnar. Sýnir þetta siðferð-
ishugmyndir ritstjóra Mgbl.
um það, hvað sé heiðarleg
blaðaménnska?
J. Bl.
Bóhin nm Wiastoi
Chircliil! konii flt.
W GÆR kom bók á markað-
inn, sem líklegt er að veki
mikla athygli, en það er ævi-
saga Winston Churchills eftir
Lewis Broad.
Vafalaust mún mörgum leika
forvitni á a'ð kynna sér ævisögu
þess manns, sem hefir verið trú-
að fyrir því að halda utn 'stjóm-
artauma brezka heimsveldisins nú
á einhverjum mestu alvörutím-
um þess. Um Winston Churehill
hefir jafnan staðið mikill styr
og ferill hans hinn ævintýraleg-
asti.
1 Ármann Halldórsson hefir þýtt
bókina ágætlega, en útgefandi er
Víkingsprent h.f. Bókarinnar verð
ur nánar getið seinna.
Vetraríbúðin
mín ætlar að verða köld; glugg-
ar eru líka fúnir, hafa ekki verið
málaðir. Lamir vantar á hurðina
Hann Ingjaldur var byrjaður að
laga til, en svo fór hann út í veð-
ur og vind og sagðist koma bráð-
lega aftur, en hann er ekki kom-
inn enn fram né aftur. Ef einhver
skyldi verða Ingjals var, er hann
beðinn að reka hann aftur til mín
á Óðinsgötu 17 B. Símanúmer þarf
ekki á hann. Ef Ingjaldur kemur
og setur á lömina og lagar glugg-
ana og kíttar rúður, gæti ég kann-
ske haldizt þarna við ef ég fæ
tækifæri til að hita plöturnar
mínar og ef ég fæ örorkustyrk.
Stefán ráðherra, sem er með mér,
hefi ég taláð við og er hann nú að
athuga málið. Ég fékk læknisvott-
orð og,allar græjur í Templó, svo
vonandi fæ ég, margskorinn mað-
ur og brjóstveikur, eitthvað úr ör-
yggissjóðnum. Oddur Sigurgeirs-
son, Óðinsgötu 17 B.
GUÐSPEKIFÉL AGIÐ! —
Reykjavíkurstúkan heldur
fund í kvöld kl. 8.30. Ungur fé-
lagsmaður flytur erindi: Úr
verkum P. Bruntons.
xxx>o<x>ooooc<
finlrófnr
afbragðs góðar.
Eyrarbakkakartöflur.
Harðfiskur.
Riklingur.
Ostar. — Smjör.
BREKKA
Ásvailiagötu 1. Shni 1678
Tjanarbúóin
Simi 3570
xxxxx>oooooo<
Þúsundir vita, að gæfa fylgir
trúlofunarhringum frá Sigun*
þór, Hafnarstræti 4.
Ávalt
úrval af:
DILKAKJÖTI,
NAUTAKJÖTI,
HANGIKJÖTI,
SVIÐUM.
Ennfremur allskonar
ÁLEGG.
Jóra Matfeiesen
Símar: 9101 — 9102.
Peísamoíarar.
Farþegar, sem komu með M.
s. Esju frá Petsamo og hafæ
ekki ennþá greitt fargjöld og.
fæði, eru vinsamlega beðnir aö>
snúa sér hið fyrsta til skrifstofu
Gkipaútgerðar ríkisins.
Ensko fataefnin
loiii.
Dökk, falleg,
Fjölbreytt úrval
Gnniar 1. Magnússon
klæðskeri.
Laugav. 12. Simi 5561^
Mýtt
Nautakjöt
¥erzlunin
Simi 3828 og 4764.
Taubútasala. Kápubúðin.
Laugaveg 35.
góðt.st. Freyja nr. 218 hefst
í fiúðtemplarabúsinn í dag kl. @ e.b.
BSarfgt góðra mnna, sem @f
langt er upp að telja.
Ekbert happdrætti.
Styðllð gott málefnl og gleðjið sjáifa
jémr með því að fJBlmenna.