Alþýðublaðið - 12.11.1940, Side 1

Alþýðublaðið - 12.11.1940, Side 1
RITSTJORI: STEFAN PÉTURSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XXI. ÁRGANGUR ÞR ÐJUDAGUR 12. NÓV. 1940. Sextá ins sett i og breylingar á sklpnlagi samtakanna. 16. aniim. ÞAÐ ER NÚ talið fullvíst, að vélbáturinn „Hegri“ frá Hrísey, sem ekkert hefir frétzt til síðan fyrir mánaðamót, hafi farist. Með honum voru fimm menn. Var þetta 10 smálesta bátur, smíðaður í Hrísey. Átti að gera hann út frá Hafnarfirði og var hann á leiðinni suður. Kom báturinn við á Hofsósi í suðurleið og tók þar mann, síðan hefir báturinn ekki komið fram. Á bátnum voru þessi menn: Jón Sigurðsson vélasmiður og útgerðarmaður í Hrísey, sem var eigandi bátsins að hálfu. Hann var 57 ára, tvíkvæntur. Frá fyrra hjónabandi eru tvö börn á lífi, frú Anna, kona Torfa Hjartarsonar bæjarfógeta á ísafirði, og Skafti stýrimaður, Frh. á 4 .síðu. ÞING ALÞÝÐU S AMB ANDS ÍSLANDS verður sett í dag kl. 5 í Alþýðuhúsinu Iðnó. — Þetta þing er haldið á merkilegum tímum og mun líka marka þýc- ingarmikil tímamót í baráttusögu íslenzkrar alþýðu í verkalýðsmáluín og stjórnmálum. -— Munu verða lögð fyr- ir þingið tvö frumvörp, annað um skipulagsbreytingar á Alþýðusambá'ndinu og hitt um lög fyrir Alþýðuflokkinn. Auk þessara skipulagsmála tekur þingið vitanlega til um- ræðu dýrtíðar- og kaupgjaldsmálin, og má líta á þessi mál sem aðalmál þingsins, enn fremur skattamálin og atvinnu- málin og öll önnur hagsmunamál verkalýðsins. Um nefndum. Þá mun og veröa útbýtt frumvörpum þeim, sem get ið er hér að framan. Enn eru ekki nærri allir full- trúar á þingið komnir til bæjar- ins .Nokkrir fuiltrúanna að vest- an kom'u á sunnudag, og hinir tnunu koma í dag eða á morgUn. Sama er að segja um marga full- trúa að norðan og austan; þeir munu komia i dag eða á morgun. Aðalstörf þingsins munu því bíða vegna - þess, að allmargir fulltrúanna em ekki komnir. í kvöld fer aðeins fram setining þingsins, og mun forseti Alþýðu- sambandsins, Stefán Jóh. Stefáns- son, flytja ræðu um leið og hann setur þingið. Á morgun fer fram kosning á starfsmönnum þingsins og föst- Brezbar loítáráslr zis siður ú ----------------------*------- Og um sarna leyt* suður í Albaníu BRETAR hafa aldrei gert loftárásir eins víða á meginland Evrópu og síðustu tvo sólarhringa. I fyrrinótt gerðu þeir fyrstu loftárásina í stríðinu á Dan- zig, og urðu flugvélar þeirra að fara 3000 km. leið til þess. En sömu nótt gerðu þeir loftárásir á marga aðra staði á Þýzkalandi og ströndum hinna herteknu landa í Vestur-Evrópu, alla íeið suður að Biscayaflóa, þar á meðal á Kruppsverksmiðjurnar í Essen og Fokkersflugvélaverksmiðjurnar í Amsterdam. Siðastliðna nótt gerðu brezkar sprengjuflugvélar ógurlegar loft- árásir á Durazzo og Valona í Albaníu, og sáust bálin, sem upp komu við sprengingarnar, í mörg hundruð kílómetra fjarlægð. 13 Oízkar og 13 ítalsksr skotnar niður á Englandi Loftárásir Þjóðverja á London voru með allra minnsta móti í gærkveldi, og voru á enda kl. 9. Frá þeim tíma og þar til ki. 6 í morgun varð ekki vart við neina þýzka flugvél yfir borginni. í gær voru hins vegar háðir harðir loftbardagar yfir Englandi og við Englandsstrendur. Skutu Brelar niður 26 flugvélar, og voru 13 af þeim ítalskar. Sjálfir segjast Bretar ekki hafa misst neina 2 flugvélar. ' Það er í fyrsta sinm, sem ítalsk- j ar flugvélar virðast hafa tekið verulegan þátt í loftárásum á Engiand. En sú þátttaka varð þeim strax dýr. Frumvarpið um breytingar á skipu'agi Alþýðusambandsins var upphaflega samið af fúlltrúum helstu stéttafélaganna en síðan var það tekið til athugunar í sambandsstjóm. Þrátt fyrir það þó að ýmsar ástæður væru fyrir hendi til þess að þetta sambandsþing yrði fá- ment, er þegar sýnt að það verð- ur allfjölment. Að þessu sinni hefir sama og enginn flokkadráttur verið u;n kosningu fúlltrúa á þingið i flélög unurn og er langt síðan að s\ o hefir ekki verið. Þá er ákaflega mikil vinna á flestum eða öllum stöðum úti um land og verka- rnenn eiga því mjög erfitt með að fara frá vinnu í ferðalag hingað ti! Reykjavíkur, sem tekur a .n. k. hálfan mánuð. Loks eru sam- göngur, meðal annars vegna ár> tímans, erfiðari en nokkru simii Þrátt fyrir þetta eru þegar margir full'rúar komnir víðsvegar utan af landi og fleiri koma í dag og á morgun. Terkalýðsfélag stoínaö. SÍÐASTLIÐIÐ laugardags- kvöld var stofnað verka- lýðsfélag á Brúarlandi í Mos- fellssveit. Félagið hlaut nafnið ,,Esja“. Starfssvæði þess er: Mosfells-, Kjalarness- og Kjósarhreppur. Stofnendur voru 33. Á stofn- fundinum voru lög samþykkt og samþykkt að ganga í Al- þýðusamband íslands. í stjórn voru kosnir: Formaður: Brynjólfur Guð- mundsson, Miðdal, Kjós. Ritari: Njáll Guðmundsson, Miðdal, Kjós. Gjaldkeri: Gunnar Þorvarðs- son; Bakka, Kjalarnesi. 268. TÖLUBLAÐ HITLER MOLOTOV Molotovkom til Ber- llsa snemma i morpn -----^------ Hakakrossfánar og sovétfánar með hamri og sigð á götum borgarinnar. - --r-------- ■jV/í OLOTOV, forsætisráðherra og utanríkismálaráðherra ■ú sovétstjórnarinnar, kom til Berlín í morgun ásamt föruneyti sínu, 32 háttsettum rússneskum embættismönn- um, og tók Ribbentrop, utanríkismálaráðherra Hitlers, með mikilli viðhöfn á móti þeim á járnbrautarstöðinni. Á götum Berlínar, sem Molotov fór um frá járnbrautarstöð- inni til sendiherrabústaðar Rússa við Unter den Linden, blöktu hakakrossfánar og sovétfánar með hamri og sigð hlið við hlið. Það er búizt við að Molotov fari á fund Hitlers strax í dag, og verði ekki í Berlín nema til fimmtudags. Þ«ssi för sovétráðherrans til höfuðborgar þýzka nazismans vek- ur að vonum mikið umtal um allan heim. I Bandaríkjunum er látin í ljós mikil undrun á fram- komu Rússa og hún b'Orin sam- an við afstöðu Bandarikjamanna „Bandaríkin ætla sér ekki -að fara í stríðið“, sagði Knox flotamála- láðherra í gærkvel-di, þegar hann ge:ði Berlínarför Mo'o ovs að um- talséfni við blaðamenn. „En hlut- leysi þeirra mun aldrei verða byggt á ragmennsku og van- særnd". Þýzku blöðin fara mörg- um lofsorðum um hina vaxandi samvinnu Þjóðverja og Rússa. En blöðin í Moskva virðast vera eitt- hvað feimin við það, að skrif-a um ferða’ag Moloíovs. Þess var fekki getið í gær í aðalblaði rúss- J neska k-ommúnistaflokksins, j „Pravda", n-ema í eiinum þremur | málsgreinum neðst á síðu. Um tiii pésnnd dauðir eða særðir iRúmeniu? Tjónið af jarðskjálftuniim er miklu meira en áætlað var í fyrstu. TJÓNIÐ af jarðskjálftunum í Rúmeníu er nú talið hafa orðið miklu ægilegra en áætlað var í fyrstu. Hvað- afæfa að úr landinu koma skýrslur um drepna og særða. Alls er nú álitið að beðið hafi bana eða sæst um 10 þúsund manns. I Búkarest varð björgunariiðið að hætta starfi á stóru svæði l gær, þar sem víst þykir að fjöldi fólks sé enn grafinn undir rúst- um. Ástæðan til þess, að stöðva varð björgunarstarfið, v-ar sú, að það kviknað-i í olíugeymum og varð af ægi’.egt bál. Margir björg- unarmannanna brunnu til bana. Enn hefir ekkert veriö látið ná- kvæmlega uppi urn tjónið á olíu- Frh. á 4. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.