Alþýðublaðið - 16.11.1940, Blaðsíða 1
C!
RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ARGANGUR
Alþýðusambandsþingið:
Síðari umræða um skipu-
lagsbreytinguna hóf st í dag.
----4---
Atkvæðagreiðsla f er f ram á morgun
SÍÐARI UMRÆÐAN um frumvörpin til laga fyrir Al-
þýðusambandið og Alþýðuflokkinn hófst á Alþýðu-
sambandsþinginu eftir að fundur var settur klukkan hálf
tvö í dag. Er búizt við, að henni verði lokið í kvöld eða
á morgun og því næst gengið til atkvæða um frumvörp-
Guðm. Jónsson frá Narfeyri,
2. varaforseti sambandsþings.
Runólfur Pétursson.
m.
Fyrri umræðu um frum-
vörpin lauk í gær kl. 5 og hafði
hún þá staðið í ' tæpar 14
klukkustundir.
Fóru umræðurnar mjög vel
fram, en að þeim loknum, fór
fram atkvæðagreiðsla um dag-
skrártillögu Magnúsar H. Jóns-
sonar, þess efnis, að vísa málinu
frá, og var hún felld að við-
höfðu nafnakalli með 71 at-
kvæði gegn 6, en 22-fulltrúar
voru ekki viðstaddir, þegar at-
kvæðagreiðslan fór fram.
Var frumvörpunum vísað til
nefndar, frumvarpinu til laga
fyrir Alþýðusambandið til sam-
bandslaganefndar og frumvarp-
inu til laga fyrir Alþýðuflokk-
inn til flokkslaganefndar, og
störfuðu þær báðar í gærkveldi,
langt fram á nótt.
Eftirtaldir fulltrúar tóku þátt
í umræðunum í gær:
Jón Sigurðsson (Verkalýðsf.
Hólmavíkur), Hálfdan Sveins-
son (Verkalýðsfél. Akraness),
Ólafur H. Einarsson (Iðja),
Iroðaleo loftárás á Coven-
try á Enfllandl í fyrrinátt.
Stórbrunar á mörgum stöðum og áætlað
að 1000 maims hafi farizt eða særst.
EINHVER HRYLLILEGASTA LOFTÁRÁSIN, sem.gerð
hefir verið í stríðinu hingað til, var gerð af Þjóðverj-
um á ensku iðnaðarborgina Coventry, suðaustur af Birm-
ingham, í fyrrinótt og stóð óslitið alla nóttina.
' Sprengjuflugvélarnar komu í mörgum hópum og er
talið, að samtals hafi um 500 flugvélar tekið þátt í árás-
inni. Þungum sprengjum og eldsprengjum var varpað á
víð og dreif yfir borgina, og stóð hún á mörgum stöðum
innan skamms í björtu báli. Var eldbjarminn svo mikill
yfir borginni, að tunglið bliknaði.
Ógurlegt tjón varð af árásinm. Áætlað var í gærkveldi, að
um 1000 manns hefðu farizt eða særst, Og fjöldamörg íbúðar-
hús, verzlunarhús, sjúkrahús og kirkjur brunnu til kaldra kola
eða stórskemmdust, þar á meðal gamalt bænahús frá 14. öld.
Sprengjuf I ugvélar Pjóðverja,
sem samkvæmt þýzkum tilkynn-
ingum vörpuðu hver um sig nið-
Frh. á 3. síðu.
Arngrímur Kristjánsson (Alþ.-
flokksfél. Rvíkur), Kjartan Ól-
afsson (Alþ.fl.fél. Sauðárkr.),
Ólafur Friðriksson (Sjóm.fél.
Rv)., Haraldur Guðmundsson
(Alþ.fl.fél. Rv.), Kristján Guð-
mundsson (Verkamf. Báran,
Eyrarb.), Stefán Stefánsson
(Alþ.fh’fél. ísafj.j, Guðm. Jóns-
son (Alþ.fl.fél. Stykkish.), Al-
exander Guðmundsson, Sigríð-
ur Hannesdóttir (Vkf. Fram-
sókn), Runólfur Péturs. (Iðja),
Jónas Guðmundsson (Alþ.fl.fél.
Rv.), Magnús H. Jónsson (Hið
ísl. prentarafélag).
Fnlltrúarnir.
Alþýðusambandsþingið er nú
fuillskipað, og eiga eftirfarandi
fulltrúar sæti á þvi:
Aðalheiður S. Hólm, Starfs-
stúlknafélagið Sókn.
Agnar Gunnlaugsron, Vlf. Víðdæl.
Ágúst Elíasson, Vlf. Bolungav.
Ágúst Hóhn, Sjómf. Reykjavíkur.
Alexander Guðjónsson, Iðja, Rvík.
Anna Karlsdóttir, Sveinaf. hárgr.
Arrigrímur Kristjónsson, Alþflf.
Reykjavíkur.
Arnmundur Gíslason, Vlf. Akran.
Ásbjörn Guðmundsson, Bifr. Hr.
Ásgeir Ásgeirsson, Stúdf. Alþfl.
Ásgeir Torfason, Sjómf. Rvíkur.
Axel Oddsson, Bifr. Hreyfill.
Bjarni Siefánsson, Sjómf. Rvíkur.
Björn Guðbrandsson, Verkalýðs-
og sjómannafélag Keflavikrir.
Björn Bl. Jónsson, Alþf. Eskifj.
Emil Jónsson, Alþf. Hafnarfj.
Einar M. Jóhannéss., Alþf. Húsav.
Finnur Jónsson, Vlf. Baldur, ís.
Gíslína Magnúsdótlir, Vkf. Frains.
Guðgeir Jönsson, Bókbf. Rvíkur.
Guðjón Baldvinsson, Alþf. Rvk.
Guðjón Bjarnason, Vlf. Bolungav.
Guðm. I. Guðmundsson, Alþf. Rv.
Guðm. Helgasom, Sjómf. Jötunn.
Guðm. Jóhannsson, Blikksm. Rv.
Guðm. Jónsson, Alþf. Stykkish.
Guðm. Kristjánsson, Vlf. Bald. Is.
Guðm. R. Oddsson, Alþf. Reykjav-
Guðm. Kr. Ólafsson, Vlf. Akran.
Guðm. Þ. Sigurgeirsson, Verklfé!.
Kaldranairesshrepps.
Guðrún Sigurðard., Vkf. Frams.
Guðrún Sigurðard., Vkf. Fram-
tiðin, Hafnarfirði.
Guðrún Nikulásd. Vkf. Framt- Hf.
Frh. á 4. síðu.
LAUGARDAGUR 16. NÓV. 1940.
272. TÖLUBLAÐ
KEITEL.
BADOGLIO
Er ný sókn nMuh
veManna í aðsigi ?
Keitel og Badoglio yfirhershöfðingjar
þeirra á ráðstefnu i Innsbruck.
Tyr ARGT þykir nú benda til þess, að nýir stórviðburðir
^ séu í aðsigi í stríðinu, og að möndulveldin séu að
undirbúa nýja sókn, ef til vill á fleiri en einum stað.
Það þykir benda mjög í þessa átt, að Keitel marskálkur,
forsetinn í herforingjaráði Þjóðverja, og Badoglio marskálkur,
forsetinn í herforingjaráði ítala, komu saman á ráðstefnu í Inns-
briick í Tyrol í gær ásamt mörgum aðstoðarmönnum sínum.
Líklegt þykir, að þeir séu að
ráðgast um, hvað gert skuli
suður á Balkanskaga, þar sem
styrjöldin milli Ítalíu og Grikk-
lands hefir nú staðið í þrjár
vikur, án þess ítölum hafi orð-
ið nokkuð ágengt, nema síður
sé. Er búizt við að svo geti far-
ið á hverri stundu, að Þjóðverj-
ar skerist þar í leikinn til hjálp-
ar ítölum. En mögulegt, og
meira að segja sennilegt, er tal-
ið, að ítalski herinn í Lybiu
verði um leið látinn hefja hina
margumtöluðu sókn gegn
Egyptalandi.
Suner í annað sinn i
leið til Berllnar.
Þá er einnig uppi orðrómur
um það, að þýzk árás sé í und-
irbúningi á Gibraltar, hið ram-
byggða hamravígi og herskipa-
lægi Breta þar.
Suner, hinum nýja utanrík-
ismálaráðherra Spánar,' héfir
veríð boðið til Berlínar af Rib-
bentrop utanríkismálaráðherra
Hitlers, og fór hann yfir landa-
mæri Frakklands og Spánar í
gær, á leið þangað. Það er í ann-
að.sinn, sem Suner fer á þessu
hausti til Berlínar, og er þessi
nýja för hans sett í samband
við orðróminn um væntanlega
árás á Gibraltar.
Það vekur líka mikla eftir-
tekt, að ameríksku fréttastof-
unum Associated Press og Uni-
ted Press hefir verið bannað af
spænsku stjórninni að senda
eftirleiðis fréttir frá Spáni.
Nýja kirkjan á Ak-
nreyri vgð á morgnn
VÍGSLA hinnar nýju Akur-
eyrarkirkju fer fram á
morgun og framkvæmir Sigur-
geir Sigurðsson biskup vígsl-
una.
Byrjað var á gruuiiii kirkjurmar
í september 1938, og unnu aðal-
lega skólapiltar verkið í ákvæðis-
vinnu. Guðmundur Ólafsson bygg-
imgarmeistari byggði uindiirsitöður
og kjallara. En aðalbygginguna
,tóku í ákvæðisvinnu byggingar-
meistaramir Ásgeir Austfjörð,
Þiorsteinn Þorstednsson frá Lóni
og Bjarni Rósantsson. Indriði
Helgason rafvirkjameistari hafði
umsjón með raflögnum. Raftækja-
verksmiðja Hafnarfjarðar sá Um
hitunartækiu. ósvald Knudsen
málarameistari lannaðist máln.iingu.
Bekki smíðaði Kristján Aðal-
steinsson húsgagnameistari, en
Ólafur Ágústsson húsgagnameist-
ari smíðaði altari og kórumbún-
að. Lágmyndir á söngloftsgafli
gerði Ásmundur Sveinsson mynd-
höggvari. Guðjón Samúelsson,
húsameistari rikisins, gerði upp-
drætti að kirkjunni og hafði yfir-
umsjón smíðinnar. Formaður
sóknamefndar, Kristján S. Sig-
urðsson, hafði og umsjóin með
verkinu.
---------:---------------------1
Rögnvaldur Sigurjónsson
píanóleikari spilar á morgun kl.
3 í Gamla Bíó á vegum Tónlistar-
félagsins fyrir styrktarfélaga þess.