Alþýðublaðið - 19.11.1940, Side 1

Alþýðublaðið - 19.11.1940, Side 1
r i RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XXI. ÁRGANGUR ÞRIÐJUDAGUR 19. NÖV. 1940 274. TÖLUBLAÐ Alþýðusambandsþingið: Álit verkalýðsmálanefndar: Verkalýðurinn verður að fá dýrtíðina að fullu bætta. -----♦---- Nauðsynlegt að viuna Jafnframt að pví að baupgjald um land alltverði samræmt VERKALÝÐSMÁLANEFND Alþýðusambandsþingsins lagði í dag kl. lVz fram álit sitt og tillögur. Jón Sig- urðsson erindreki Alþýðusambandsins var framsögumaður nefndarinnar. Lagði hann tillögur hennar fram og gerði grein fyrir þeim. Síðan hófust umræður. þessa og samþykkir því, að öllum félögum innan sam- bandsins beri skylda til að senda sambandsstjórn til á- lits og athugunar uppkast að Jón Sigurðsson erindreki. Maðnr bfðer bana af sljsfðrae. IFYRRINÓTT andaðist á Landsspítalanum Bjarni Guðnason trésmiður, Hallveig- arstíg 9. Hafði hann meiðst inn- vortis og beið bana af. Varð slysið með þeim hætti, að Bjarni var að flytja peninga- skáp í útvegsbankamim nýlega og klemdist hann undir skápnum. Bjarni hefir Um undanfarin ár unnið hjá Leikfélagi Reykjavíkur við leiksviðsútbúnað. Var hann vel látinn maður og vinsæll af öllum, sem þekktu hann. Tillögur nefndarinnar eru svohljóðandi: ,,16. þing Alþýðusambands íslands, haldið í Reykjavík í nóvember 1940, samþykkir eft- irfarandi ályktanir: 1. Þingið lítur svo á, að þar sem dýrtíð hefir aukizt svo mjög sem raun ber vitni, og kaup- gjald allt raunverulega mikið lækkað frá því sem gilti og lagt var til grundvallar við útreikning samkvæmt á- kvæðum gengislaganna, heri brýn nauðsyn til að gera all- ar þær ráðstafanir, sem að gagni mættu verða til þess, að verkalýðurinn fái kaup- hækkun, er nemi fyllilega því, sem dýrtíðaraukningin hefir orðið eða kann að verða og þá einnig, að allt verði gert, sem hægt er .til þess að koma í veg fyrir frekari aukningu dýrtíðar. 2. Þingið telur, að þar sem flest öll verkalýðsfélög hafa nú sagt upp .samningum um kaup og kjör, sé tilvalið tæki- færi til þess að samræma kaupgjaldið um land allt meira en unnt hefir verið til OffiIS. Sklpialagsisreytingin var endaii^ lega saBBsjBykÉ ú plfisglnii í fgær. C KIPULAGSBREYTINGIN á Alþýðusambandi íslands ^ var endanlega samþykkt í gær og er þar með gengin í gildi. Um kl. 3% fór fram allsherjaratkvæðagreiðsla um bæði frumvörpin í heild, og voru þau samþykkt af 65 fulltrúum fyrir 5426 félagsmenn, nei sögðu 11 fulltrúar fyrir 968 félags- menn, fjarverandi voru 22 fulltrúar fyrir 1507 félaga og 1 full- trúi fyrir 97 félaga greiddi ekki atkvæði. Hinum síðasta sameiginlega fundi lauk í gær kl. 'ö1/z. T morgun kl. 10 hófst fyrsti fundur flokksþingsins og sátu hann allir fulltrúar á sambands- þinginu, sem eru í flokksfélög- unum. Kl. IV2 í dag hélt Al- Frí. á 4 .sföu. samningum, kaupkröfum og kauptöxtum, áður en lagt er fyrir atvinnurekendur eða auglýst. Þá sé og félögunum óheimilt að ganga endanlega frá samningum við atvinnu- rekendur fyrr en sambandið hefir fyrir sitt leyti gefið samþykki sitt þar til. 3. Þingið ályktar, að útilokað sé- að taka upp samninga við Vinnuveitendafélag íslands á þeim grundvelli, sem boðið er í bréfum þess til Alþýðu- sambandsins. línda telur þingið að ástæðulaust sé að óttast að vinnufriður verði ekki fullkomiega tryggður, ef átvinnurekendur verða' við þeim sjálfsögðu en mjög svo sanngjörnu kröfum um kjarabætur, er verkalýðsfé- lögin koma til með að gera. 4. Þingið felur sambandsstjórn: að gera nú þegar ráðstafanir til þess að hefja samninga við ríkisstjórnina um kjör og kaup við opinbera vinnu og gera sitt ýtrasta til að koma því inn í samningana, að það kaup skuli greiðast, sem á- kveðið er í taxta eða samn- ingum þess verkalýðsfélags, sem næst er þeim stað, sem vinnan er framkvæmd á/ Vinni verkamenn frá tveimur eða fleiri verkalýðsfélögum við framkvæmd verks skal þeim greitt sarnkvæmt taxta eða samningi þess félags, sem hæst hefir kaupgjald. 5. Þingið felur samhandsstjórn að vinna að framgangi þeirra tillagna um verkalýðsmál, er samþykktar hafa verið á und- anförnum þingum samhands- ins, en ekki hafa ennþá náð fram að ganga.“ Vitanlega má gera ráð fyrir því því aö einhverjar breytingar verði gerðar á þessum tillögum. I nefndinni eiga sæti: Sigurðiur Ólafsson (Sjóm.fél. Rv-), Jóhanna Egilsdóttir (V. K. F. Framsókn), frh. á 4. síðu. Bústaður Hitlers í Berchtesgaden. Boris BAlgariukOHDnpr hef ir heimsött Hitler á lann! Stöðugar ráðstefmir í Berchtesgadeu. FREGN, sem í gærkvöldi var gefin út af Stefani- fréttastofunni ítölsku, var því ljóstrað upp, að Boris Búlgaríukonungur hafi fyrir nokkrum dögum komið til Berchtesgaden á fund Hitlers. Þessari för Búlgaríukonungs hefir verið haldið strang- lega leyndri, en samkvæmt hinni ítölsku fregn, er hanh nú kominn aftur heim til Búlgaríu. Hver ráðstefnan rekur nú aðra hjá Hitler og utanríkis- málaráðherra hans, Ribbentrop, og virðist yfirleitt full- komið ráðaleysi ríkja hjá möndulveldunum um það, hvað til bragðs skuli taka. í gær fóru þeir Serrano Sun- er og Ciano greifi á fund Hitlers í Berchtesgaden og átti Hitler fyrst tveggja klukkustunda tal við hvorn þeirra, en. síðan ræddust þeir allir við, að Ribb- entrop viðstöddum. I morgun var tilkynnt í Ber- lín, að Ribbentrop og Ciano greifi væru nú á leið tii Vínar- borgar, en þangað v-æru komnir frá Búdapest Teleki gieifi, for- sætisráðherra Ungverja, og Czaky greifi, utanríkismálaráð- herra hans, til fundar við þá. Ekkert er látið uppi um tilefni eða árangur þessara ráðstefna, en margar kviksögur ganga lum fyrirætlanir möndulveldanna. Liklegt þykir, að för Boris Búl- garíukon'ungs til Berchtesgaden og hinna ungversku ráðherra til Vínarborgar standi í sambandi við einhverjar meiriháttar fyrir- ætlanir Hitlers suður á Balkan- skaga, en það þykir nú augljóst, að þess geti ekki orðið langt að bíða, að Rann skerist þar í leik- inn til þess að hjálpa möndul- bróður sínum Mussolini, sem nú ,á í vök að verjast fyrir Grikkjum við landamæri Albaníu. Skersst Þfsðverjar i leik inn á Balhae ? En ferðalag Suners til Berchtes- gaden þykir henda til þess, að frh. á 2. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.