Alþýðublaðið - 19.11.1940, Blaðsíða 4
ÞRÍÐJUDAGUR 19. NÖV. 1940
\
Bókin er
ÞÝDDAR SÖGUR
eftir
11 heimsfræga höfunda.
ALÞT
Bókin er
ÞÝDDAR SÖGUR
eftir
11 heimsfræga höfunda.
ÞRIÐJUDAGUR
Næturlæknir er Gísli Pálsson,
Laugavegi 15, sími 2472.
Næturvörður er í Laugavegs- og
Ingólfsapóteki.
ÚTVARPIÐ:
19,25 Hljómplötur: Lög úr óper-
ettum og tónfilmum.
20.30 Erindi: Frá Vínarborg til
Versala, IV.: Baráttan um
sólskinið (Sverrir Krist-
jánsson, sagnfræðingur).
20,55 Tónleikar Tónlistarskólans:
Tríó í B-dúr, Op. 99, eftir
Schubert.
21.30 Hljómplötur: „Dýrðarnótt",
, tónverk eftir Schönberg.
Einkaleyfi.
Þann 18. desember 1939 sótti
verkfræðingur Axel Sveinsson,
Reykjavík, um einkaleyfi á tæki
til þess að skera neftóbak.
Hallgrímur J. Benediktsson
prentari, Suðurgötu 35, andaðist
í fyrrinótt.
Háskólafyrirlestur á sænsku.
Ungfrú Osterman flytur fyrir-
lestur annað kvöld kl. 8 í 1.
kennslustofu. Éfni: Frá galdra-
lækningum til nútíma heilsuvernd-
ar. Úr sögu sænskrar lækningalist-
ar og hjúkrunarmála. Öllum heim-
ill aðgangur.
ísafoldarprentsmiðja
hefir nýlega gefið út þrjár bæk-
ur: Sumar á fjöllum eftir Hjört
Björnsson frá Skálabrekku, Ára-
skip, bók um fiskiveiðar í Bol-
ungavík fyrir 40 árum, eftir Jó-
hann Bárðarson, með formála eftir
Ólaf prófessor Lárusson, og Bókin
um litla bróður, eftir Gustaf af
Geijerstam. Allra þessara bóka
gerður nánar getið síðar.
i1 ... ——
ÁLIT VERKALÝÐSMÁLA-
NEFNDAR. (Frh. af 1. s.)
Sigurrós Sveinsdóttir (V. K. F.
Framtíðin), Inga Jóhannesdóttir
(V. K. F. Brynja, Seyðisfirði),
Jóhannes Jóhannsson (Verklýðs-
fél. Vestm.eyja), Kristján Guð-
mundsson (Verkl.fél. Báran Eyr-
arbakka), Guðm. G. Kristjánsson
(Verkal.fé). Baldur ís.), Jóhann
Tómasson (Sjóm.féi. Hafnarfirði)
og Jón Sigurðsson erindreki .
FLOKKSÞING OG SAM-
BANDSÞING. ' (Frh. af 1. s.)
þýöusambandsþingið áfram og
mun þá hafa verið tekið til um-
ræðu álit verkalýðsmálanefnd-
ar, en það er aðalmáJ þingsins
eftir skipulagsbreytinguna.
Á fundi þingsins í gær gerð-
ist þetta auk þess, sem að fram-
an getur:
Forseti Menningar- og
fræðslusambands alþýðu, Ár-
mann Halldórsson, flutti erindi
um starfsemi M.F.A. og fyrir-
ætlanir þessj Rakti hann af-
komu sambandsins í stórum
dráttum og skýrði m. a. frá því,
að fyrsta bók sambandsins
myndi koma út innan fárra
daga.
Eftir erindi Ármanns var
samþykkt ályktun, sem fól í sér
þakkir til M.F.A. fyrir gott
starf og stjórn þess lofuð fyrir
ágætar framkvæmdir. — Þá
kaus þingið tvo menn í stjórn
þess, þá Guðm. I. Guðmúnds-
son og Stefán Pétursson.
Þá var kosin nefnd til að
gera uppástungur um menn í
stjórn Alþýðusambandsins. Var
nefndanefnd falið það starf.
Stefán Jóh. Stefánsson vék úr
nefndinni, en í stað hans var
valinn Sigurður Ólafsson (Sjó-
mannafél. Rv.). Aðrir, sem eiga
sæti í nefndinni, eru: Finnur
Jónsson(Baldur, ísafirði), Jón
Sigurðsson (Verkal.fél. Hólma-
víkur), Guðm. Helgason (Jöt-
unn, Vestm.eyjum) og Sveinn
Kr. Guðmundsson (Verkal.fél.
Fáskrúðsfjarðar).
Þessi nefnd mun að líkindum
skila störfum í kvöld og fer þá
fram kosning stjórnar Alþýðu-
sambandsins.
Loks las farmkvæmdastjóri
Alþýðusambandsins, Óskar Sæ-
mundsson, upp reikninga sam-
bandsins, og voru þeir sam-
þykktir eftir nokkrar umræður.
Samsætið i gærMldi.
Samkvæmissalir Alþýðuhúss
Reykjavíkur voru þéttskipaðir í
gasrkvöldi er Alþýðuflokksfélag
Reykjavíkur hélt samsæti fyrir
fulltrúana á þingi Alþýðusam-
bandsins.
Amgrímur Kristjánsson setti
skemmtunina en síÖan fluttu ræð-
ur Stefán Jóh. Stefánsson, Sig-
urður Einarsson, Finnur Jónsson
og Haraldur Guðmundsson. Þá
las Ragnar Jóhannesson upp.
Söngfélagið Harpa söng nokkur
lög við ágætar undirtektir, en
annars var mikið sungið af öll-
um og skemmtu menn sér ágæt-
lega vel fram eftir nóttu.
HÍN nýja j kirkja á Akureyri
var vigð síðastliðinn -
sunnudag með mikilli viðhöfn.
Biskup landsins, herra Sigur-
geir Sigurðsson, framkvæmdi
vígsluna.
Auk biskupanna tveggja vom
viðstaddir vígsluna 10 prestar og
á fimmtánda hundrað manns.
Hófst-athöfnin kl. 12,30 ígömlu
kirkjunni. Var gengið þaðan í
skrúðgöngu til nýjiu kirkjunnar.
Biskup flutti vígsluræðuna, en
Friðrik J. Rafnar flutti prédikun.
Kantökukór Akureyrar söng.
Um kvöldið var samsæti að Hó
tel Gullfoss fyrir forgöngu sókn-
amefndar og Kvenfélags Akur-
eyrarkirkju. Sátu hófið um 70
manns.
Tónlistarfélagið
hélt aðra hljómleika sína á
starfsárinu í fyrradag í Gamla
Bíó. Rögnvaldur Sigurjónsson pí-
anóleikari annaðist þessa tónleika
og voru viðfangsefni hans eftir
Bach, Schumann, Chopin og Liszt.
115. hnodrað nums
við víisln Aknreyrar
kirkjn.
BÍÚ M
VeriO pér m\-
fr, bsrra Cbips,
Heimsfræg Metro Gold-
wyn Mayer stórmynd,
gerð eftir skáldsögu
James Hilton.
Aðalhlutverkin leika:
ROBERT DONAT og
GREER GARSON.
Sýnd klukkan 7 og 9.
NYJA BIO
flæfnstjarun
(MY LUCKY STAR.)
Ameríksk skemmtimynd,
fyndin og fjörug frá byrj-
un til enda.
Aðalhlutverkið leikur
skautadrottningin heims-
fræga Sonja Henie og
og kvennagullið Richard
Green. Aukamynd: Fisk-
veiðar á ófriðartímum.
Sýnd kl. 7 og 9.
—Halló! Hér Kem ég, sko huað éq hef fundið, petta
finnur maður ekki á huerjum degi.
Þetta em helstu foarnafoækurnar í ár«~
amm t
Jarðarför mannsins míns og föður okkar,
Sigurðar Þorsteinssonar,
fer fram frá dómkirkjunni íimmtudaginn 21. þ. m. og hefst með
bæn á heimili okkar, Steinum, Bráðræðisholti, kl. 1 e. h.
Aíhöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Gróa Þórðardóttir, börn og tengdahörn.
ÆflBBtýpá M. C. MDEHSESI í mynduna.
HANS KLAUFI og SVÍNAHIRÐIRINN
30. THEODORE DREISER:
JENNIE GERHARDT
hennar hrökk við, þegar hún heyrði dyrnar opnaðar,
því að hún vissi, að nú myndi óveðrið dynja yfir.
Faðir henn ir mætti henni á þröskuldinum.
— Farðu burt frá augliti mínu, sagði hann æðis-
genginn af bræði. Þú færð ekki að vera einum
klukkutíma lengur í húsi mínu. Ég vil ekki sjá þig
framar. Farðu!
J'ennie stóð fyrir framan hann, föl og þögul. Hún
titraði. Börnin, sem höfðu komið heim með henni,
hnipruðu sig saman óttaslegin og héngu í fötum
hennar. Veronika og Martha, sem þótti mjög vænt
um hana, fóru báðar að gráta.
— Hvað er að? spurði Georg litli gapandi af undr-
un.
— Hún á að fara, endurtók Gerhardt. — Ég vil
ekki, að hún dvelji einni mínútu lengur undir mínu
þaki. Ef hún vill endilega vera götudrós, þá má hún
það. Taktu föggur þínar, þú færð ekki að vera hér
lengur.
Jennie gat engu orði upp komið, en börnin grétu
hátí.
— Þegið þið, sagði Gerhardt — og farið þið út í ,
eldhúsið.
Hann rak þau út og lokaði á eftir þeim.
Jennie gekk hægt upp í herbergi sitt. Hún safnaði
saman föggum sínum og raðaði þeim ofan í koíiort, j
sem móðir hennar hafði fært henni. Martha og Ver-
onika vildu hjálpa systur sinni, en faðir þeirra bann-
aði þeim það.
Klukkan sex kom Bas heim, og þegar hann sá for-
eldra sína áhyggjufulla í eldhúsinu, spurði hann, —
hvað um væri að vera?
— Hann ætlar að reka Jennie af heimilinu, hvísl-
aði frú Gerhardt með grátkæfðri rödd.
— Vegna hvers? spurði Bas og leit upp undrandi.
— Það get ég. sagt þér, sagði Gerhardt æstur. —
Vegna þess, að hún er götudrós. Hún lætur mann,
sem er þrjátíu árum eldri en hún tæla sig. Og nú
fer hún. Hún verður ekki lengur hér.
Bas litaðist um, og börnin skildu ekki, hvað um
var að vera. En þeim var það ljóst, að eitthvað hræði-
legt hafði skeð. Það var aðeins Bas, sem skildi full-
komlega, hvað um var að vera.
— Hvers vegna rekurðu hana út í kvöld? spurði
hann. — Það er ekki heppilegur tími til að reka unga
stúlku út á götuna. Hún getur að minnsta kosti verið
hér til morguns.
— Nei, svaraði Gerhardt ákveðinn.
— Þú mátt ekki reka hana burt í kvöld, sagði
móðirin. ,
— Hún fer strax, sagði Gerhardt. — Við verðum
að binda einhvern enda á þetta.
— Hvert á hún að fara? spurði Bas.
— Það veit ég ekki, sagði móðirin sorgbitin:
Bas litaðist um, en hann hreyfði sig ekki fyr en
móðir hans benti honum að fara inn. Hann gekk inn
og móðir hans fór á eftir honum. Börnin sátu kyr
ofurlitla stund, en svo læddust þau burtu, eitt af
öðru, og Gerhardt sat einn eftir í stofunni. Eftir tölu-
verða stund, stóð hann líka á fætur.
En áður en hann kom inn, hafði móðirin lagt
Jennie lífsreglurnar.
Jennie átti að fara í eitthvert gistihúsið og senda
svo móður sinni heimilisfangið. Þegar faðir hennar
væri að vinna, ætlaði móðirin að heimsækja hana,
ennfremur gæti Jennie þá líka skotist heim.
Þegar Gerhardt kom inn, sagði hann hvatskeyts-
lega:
— Ætlar hún að fara?
— Liggur á7 spurði Bas. En faðir hans hnyklaði
brýrnar, 'og þótti þá Bas ráðlegra að lækka seglin.
Jennie kom nú inn,' klwdd í bezta kjólinn sinn
meo ferðaí' ...u 1 hendinni. Hún var óttaslegin á svip-
inn. Hún kvaddi móður sína með kossi, en tárin
hrundu niður kinnar hennar Svó gekk hún út.
TÍUNDI KAFLI.
í þeim heimi, sem Jennie var nú miskunnarlaust
hrakin úí í, hafði dyggðin barist vonlausri baráttu
frá crófi alda. Því að það er dyggð að óska öðrum
góðs, og sýna öðrum góðgirni. Dyggð er það form.
gjafmilái, sem alltaf vill gera öðrum greiða, Ef menn
selja vinnu sína við lágu verði er traðkað á þeim.
Selji menn vinnu sína við háu verði, njóta þeir virð-
ingar jafnvel þótt þeir séu einkis virði. Þjóðfélagió
vantar gersamlega hæfileikann til að meta rétt. Það