Alþýðublaðið - 27.11.1940, Side 1

Alþýðublaðið - 27.11.1940, Side 1
r .í«r XXI. ÁRGANGUR MIÐVIKUDAGUR 27. NÓV. 1940. 280. TÖLUBLAÐ v * Badoglío marskálkur á að stöðva flótta ítala i Albaniu! " Grikkir sækja ört fram frá Koritza áleiðis til strandar. Og hafa sett lið á land að haki Ítðlum beint á móti Korfu. GRIKKIR sækja nú ört fram nyrzt á vígstöðvunum í Albaníu, frá Pogradec í norðvesturátt, áleiðis til El- bazan, sem liggur um það bil í miðju landinu, og frá Ko- ritza í vesturátt áleiðis til strandar. Eru hersveitir þeirra þegar komnar meira en 50 km. vestur fyrir Koritza. Ákafar orustur standa enn yfir syðst og vestast á víg- stöðvunum, við Argyrokastro, þar sem ítölum hefir borizt verulegur liðsstyrkur. Þeir hafa borgina enn á sínu valdi. En það var tilkynnt í Aþenu í gærkveldi, að grískt lið hefði verið sett á land á ströndinni að baki ítölum, beint á móti Korfu, og að aðstaða þeirra við Argyrokastro hefði versnað stórum við það. Hve alvarlegum augum ítalir líta á ástandið í Albaníu má marka af því, að Mussoljni hefir nú sent Badoglio mar- skálk, yfirmann alls ítalska hersins, þangað til þess að reyna að stöðva flóttann. Pétnr Hallðórs- son borgarstjórl andaðist í gær. Hann varð aðeins 53 ára gamall. PÉTUR HALLDÓRSSON borgarstjóri og alþingis- maður lézt í Landakotsspítala í gær kl. 3V2. Pétur Halldórsson haf5i verið sjúkur um langt skedð, lá hann - fyrst á heiirdli sínu, en nú síðast í Landakotsspítala. Fékk hann við og við nokkurm bata, en sló allt af niður aftur. Talið er, að banamein hans hafi verið mein- semd í lungum. Pétuir Halldórsson hefir um fjölda ára skeið verið forystu- maður Sjálfstæðisflokksiins í bæj- armálefnum Reykjavíkur, fyrst sem bæjaTfulltrúi og síðan, að Jóni Þorlákssyni látnum, sem boTgarstjóri. Alþingismaður hefir hann verið hin síðari ár. — Pétur Halldórsson var fæddur 26. apríl 1887 og varð pví rúmlega 53 ára gamall. Alþýðuflokkurinn boðaði til opinbers landsmálafundar í Vest- manneyjum í gærkveldi. Var fundurinn vel sóttur og umræður fjörugar. Fundar- stjóri var Guðmundur Helga- son, formaður Sjómannafélags- ins, en málshefjandi var Har- aldur Guðmundsson alþingis- maður, sem dvelur í Vestmanna eyjum um þessar mundir. Talaði Haraldur í rúma klukkustund og talaði aðallega um skattamál, dýrtíðina og varnir gegn henni og kaup- gjaldsmál. Var ræðu Haralds tekið mjög vel. Engir ræðumenn voru frá Sjálfstæðisflokknum eða Fram- sóknarflokknum, en kommún- istinn ísleifur Högnason talaði Lðtlansar loftárásir Breta á her ítala. Sprengjuflugvélar Breta halda uppi stöðugum loftárás- um á her ítala á undanhaldinu svo og á allar aðalborgir lands- næstur á eftir Haraldi og hafði vitanlega allt illt á hornum sér. Áttust þeir nokkuð við Harald- ur og kommúnistinn og reynd- ist það ójafn leikur, enda fór og eftir málstaðnum. Bretar flnna ó- löglegan póst. jO REZKIR eftirlitsmenn, sem voriu að leita hér í skipi, sem Var að fara til Ameríkiu í fyrrakvöld, fandu sendibréf hjá þpemsir skipsmömwim. Það er stranglega bannað, að sjómenn taki með sér sendibréf eða böggla til útlanda, og getur það haft alvarlegar afleiðingar. ins, Tirana, Durazzo og Valona. Á veginum milli Pogradee og Elbazan var ítelskri hersveit, sem send hafði verið til þess að stöðva flótta ítala þar, sundrað með 'sprengikúlnaregni úr loft- inu. Á Argyrokastro gera flugvél- ar Breta einnig hverja loftárás- ina af annarri, og hafa kveikt þar í stórum birgðaskemmum ítala. .Aðstaða ítala í loftstríðinu hefir nú versnað stórkostlega við það, að Bretar og Grikkir hafa náð á sitt vald tveimur flugvöllum þeirra í landinu, við Koritza og Pogradec, og hafa ítalir nú ekki nema þrjá flug- velli þar’ við Tirana, Durazzo og Valona. í sókninni vestur af Koritza hafa 6 ítalskar flugvélar fallið í hendur Grikkjum á jörðu niðri. Höfðu þær verið yfir- Frh. á 2. síðu. BADOGLIO Alnýðiflokknrinn boðaði til Mar f Vestm.epm i gær Har. Guðimindsson hafði framsögu um skattamál, dýrtíðina og kaupgjaidsmál. Kort af Albaníu, landinu, sem barizt er um. Sókn Grikkja held- ur áfram í norður og vestur á allri herlínunni frá landamærum Júgóslavíu til Adríahafs. \ ' Brezka stjórnin bjðst til að ábyrgjast fnilveldi Búlgaria Ef Búlgarar gera ekki bandalag við óvini Breta eða ráðast á bandamenn þeirra. BUTLER aðstoðarutanríkis-* málaráðherra Breta las í gær upp yfirlýsingu í hrezka þinginu varðandi Búlgaríu, sem mikla athygli vekur hvarvetna um heim í sambandi við við- burðina á Balkanskaga. Var yfirlýsingin gefin í tilefni af fyrirspurn, sem komið hafði fram í þinginu. Hún var á þá leið, að brezka stjórnin væri fús til að ábyrgj- ast, að fullt tillit yrði tekið til sjálfstæðis og fullveldis Búlg- aríu við væntanlega friðar- samninga, svo fremi að Búlgar- ar gerðu ekki bandalag við ó- vini Breta, veittu þeim lið á beinan eða óbeinan hátt eða réðust sjálfir á einhvern af bandamönnum Breta. Það þykir augljóst, að þessi yfirlýsing hafi verið gefin til þess hö stappa stálinu í Búlgara, sem nú virðast hafa horfið frá því með öllu, að gera bandialag við Þýzkaland, og fá þá til þess að verja hendur sínar, ef Þjóðverjar skyldu reyna að fara með her gegn um land þeirra til árásar á Grikki. | Stúdeotaóelrðir 1 Sofia. Óeirðir urðu í Sofia, höfuð- borg Buigaríiu1, í gær, milli naz- istiskra og frjálslyndra stúdenta. Fóru nazistastúdentarnir með kröfuspjöld um göturnar og heimtuðu landvinninga á kostnað Grikklands og Júgóslavíu. Lög- reglan skarst í leikinn og tvístr- aði stúdentunum; þrír þeirra særðust. Alnennt nanntal á landinn n.k. nðnnd. N-ESTKOMANDI mánudag fer fram almennt mamital um allt land, en manntal hefir ekki vterið tekið hér á landi síð- ast liðin tíu ár. i Um leið og manntalið verður tekið, verður safnað húsa- og bæjaskýrsluim. ! kaupstöðum annast bæjar- stjórnir manntalið, en annars staðar prestar með aðstoð hrepp- stjóra og hreppsnefnda. Verður hverjum kaupstað eða prestakalli skipt í svo mörg um- dæmi eða hverfi, að einn maður komist yfir það á einum degi, að afla þaðan þeirra upplýsinga, sem krafizt er. Nær manntalið ekki til setu- liðsins hér og ekki til erlendra skipa á höfnum landsins. Að öðru leyti nær manntalið til erlendra manna, sem dvelja hér manntals- daginn, og enn frernur til er- lendra flóttamanna, sem kunna að dvelja hér. í íslenzkum skipum, sem koma hér að landi eftir 2. dezember, er tekið manntal, þegar þau koma í höfn. 1 Úthlutun á kaffi og- sykurseðlum fyrir mánuðina des., jan. og febr. stendur nú yfir. Þegar hafa verið afhentir 17.400 seðlar. Úthlutun- in fer fraifi daglega • þessa viku í Tryggvagötu 28. Afgreiðslutíminn er frá kl. 10—21 f. h. og 1—6 e. h.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.