Alþýðublaðið - 30.11.1940, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 30.11.1940, Blaðsíða 1
RITSTJORI: STEFAN PETURSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XXI. ARGANGUR LAUGARDAGUR 30. NÓV. 1940. 183. TÖLUBLAÐ Rúmenar óttast blóðug hryöjn- verk í Búkarest á morgun. ----4.-- Þúsundir Járnvarðliðsmanna komnar þangað til ,minningarathafnar‘ um ,foringja‘ sinn Codreanu Halvdan Koht. Breytiiiar ð norskn stjórniani i tondon. Halvdan Koht tekur sér hvild, Tryggve Lie utanrikisráðherra. ÞAÐ var tilkynnt í norska útvarpinu í London í gær, aS Halvdan Koht prófessor hefði fengið þriggja mánaða frí frá störfum sem utanríkismála- ráðherra norsku stjórnarinnar í London. Við embætti hans tek- ur Tryggve Lie, sem einnig er Alþýðuflokksmaður. Tryggve Lie var áður félags- málaráðherra. Tekur Árne Sunde við embætti hans, einnig Alþýðuflokksmaður. Gðbbels í Noregi. Samkvæmt annari útvarpsfregn frá Londioh, í morgun, er Gðbb- els út^neiðsiiimálará&herra Hitl- ers nú kominn til Noregs. Sagt er aö hann eigi að skipuleggja þar undirró&ursstarfi'ð fyrir þýzka nazismann, sem hefir lítinn á- rangur borið hjá Norðmönnium hingað til. \ STANDIÐ í Rúmeníu verður með degi hverjum alvar- legra. Járnvarðarliðsmenn vaða uppi og víðs vegar hefir komið til blóðugra átaka milli þeirra og rúmenska hersins. Stjórn Antonescus virðist ekki ráða við neitt og ekki heldur þora að taka opinberlega afstöðu á móti óald- arflokknum. Menn reikna með þeim möguleika, að borg- arastyrjöld brjótist út í landinu þá og þegar. - I • . . . ■ Sérstaklega veldur dagurinn á morgun mönnum mikl- um kvíða í Búkarest. Járnvarðarliðsmenn hafa ákveðið að halda minningarathöfn um „foringja“ sinn Codreanu, sem grafinn var upp á dögunum og á nú að jarða á ný á morg; un. Þúsundir Járnvarðarliðsmanna eru komnar til Búkar- est til þess að vera viðstaddir þessa minningarathöfn, og óttast menn, að þessi lýður muni nota tækifærið til þess að gera upp gamlar væringar við andstæðinga sína. Hitler sendir tvo fulltrúa! Það hefir verið tilkynnt, að tveir þekktir trúnaðarmenn Hitl- ers, Baldur von Schirach, „foringi" Hitlersæskunnar“ og Ernst von Bohle, sem áður hefir verið yfirmaður allra þýzkra naz- ista utan Þýzkalands, muni mæta við minningarathöfn Járnvarð- liðsmannanna á morgun, og telja menn, að Hitler hefði ekki á óskammfeilnari hátt getað lýst yfir samúð sinni með hryðju- verkunum í Rúmeníu en gert er með því. Almenningur í Rúmeníu lætur í ljós meguustu fyrirlitningu á níðingsverfeum J ámvarðarliðsins og sýnir andúð sina á margvís- legan hátt. Sex þúsundir manna söfnuðúist saman í gær, til þess að vera viðstaddar jairðarför Jorga prófessors, sem myrtur var. Loftvarnaæfi ngin: „Beykvikingar blýddn ákaflega vel,“ segir for maðar ieftvariaaefidar. ----4.-:- Götumar urðu auðar á svip- stundu og fólk fór í byrgin. LOFTVARNAÆFINGIN í morgun tókst að því leyti betur en æfingin s.l. sumar, að fólk hvarf fljótar af götunum en þá. Að öðru leyti tókst hún ekki eins vel. Loftvamamerkin voru ekki gefin samtímis; síminn hringdi ekki fyrr en 2—3 mínút- um eftir að heyr&ist í „sírenun- um“ — og er það óskiljanlegt seinlæti, því að síminn virðist vera eitt bezta loftvamamerkið. Pá kemiur enn sami gallinn í ljós og í sumar, að hljóðin í „síren- unum“ eru allt of dauf. Aðeins mjög dauf hljóð heyrðust inn í húsin í miðbænum. Verður að bæta úr þessu þegar Frh. á 2. síðu. Morðið á Jorga hefir vakið mesta andstyggð af þeim hryðju verk'um, sem uninin hafa verið. Hann var ekki aðeins einn af þekktustu stjómmálamönnum landsins, heldur og einn af viður- kenmdustlu fræ&imönnum þess og rithöfundum á sviði bókmennta- sögunnaT, og er sagt, að þrátt fyrir alla ritskoðun í Rúmeníu upp á síðkasti'ð, hafi engum yfir- vöidum tjióað að fetta fingur út í það, sem hann skrifaði. Pá er sagt, að innbyrðis deilur séu nú komnar upp meðal Járn- varðarliðsmannanna sjálfra, og hiki þeir ekki við að reyna að myrða hverir aðra, tiil þess að út- kljá þær. Þannig hefir það nú vitnast, að fyrir nokkmm dögum var gerð tiLraun til að myrða Sima, núverandi foringja Járn- varðliðsins, sem á sæti í stjóm Antonescus, og þeim ofsafengn- ustu þykir ékki ganga nógu iangt í því, að ofsækja hina sameigin- Jegu göimlu andstæðinga. Sima slapp ómeiddur, en þrír aðrir Jámvarðliðsmenn voru drepnir af félögum sínum við það tækifæri. Skíðafélag Reykjavíkur ráðgerir að fara Skíðaför upp á Héllisheiði næstkomandi sunnu- dag, ef veður og færi leyfa. Lagt'á stað kl. 9 árdegis frá Aust- urvelli. Farmiðar hjá L. H. Múll- er til kl. 6 í kvöld. Vélbátnrinn ,Bggert‘ er ná talinn af. Með honum fórast 7 ungir menn. ELBÁTURINN „Eggert“ frá Keflavík er nú talinn V af. Með vélbátnum fórust 7 korn- ungir menn: Þorsteinn Eggertsson, Kefla- vík, formaður, 35 ára, kvæntur og átti 2 börn. Gunnar Haraldsson, vélstjóri, Skeggjastöðum, Garði, 23 ára, ókvæntur. Jón Guðbrandsson, Reykja- vík, 42 ára, kvæntur og átti 1 barn. Eiríkur Guðmundsson, Kefla- vík, 32 ára, kvæntur og átti 1 baFrv Arnar Árnason, Landakoti, Miðnesi, 22 ára, ókvæntur. Karl Celin, Keflavík, 27 ára, kvæntur og átti 2 börn. Ragnar Einarsson, Haga, Miðnesi, 23 ára, ókvæntur. Rekald hefir fundizt úr bátn- um í Garðsjó. Hann var 22 smá- lestir að stærð og tíu ára gam- all. Óskar Sæmundsson. Öskar Sœmmdssoi lætnr af störfnm hjá Albýðnsambandinu. Helir verið frarakvæmdastjóri pess í nærri þrjú ár’ OSKAR SÆMUNDSSÓN, sem verið hefir framkvæmda- stjóri' Aiþýðusambamds íslands, lætUT af störfum í dag. Hann var ráðinn framkvæmda- stjóri sambandsinp i fehrúar 1938. og tók því við þessum þýðingar- miklu störfum ó þeim tímum, sem einna hættulegastir hafa reynzt í sögu samtakanna síðan til þeima var stofnað, vegna ólgu og sundrungeir. ! j Hefir óskari tekizt að leysa hin vandasömu störf sambaindsins af hendi á þessum timum svo vel, að varla myndi öðrum hafa betur tékizt. Óskar Sæmundsson hefir skap- að nýtt bókhald hjá sambandinn og kornið öllum skrífstofustörf- Frh. á 4. síðu. Argyrokastro nú nmkringd af Grikkjnm á prjá vegn. > — En vörn ftala fer mjög harönandi SÍÐUSTU FREGNIR frá Albaníu herma, að Grikkir haldi áfram sókn sinni víðast þvar á vígstöðvunum. En það er þó viðurkennt, að vörn ítala fari nú stöðugt harðnandi, og að þeir séu byrjaðir að gera gagnáhlaup á mörgum stöðum. Grikkjum hefir enn miðað nokkuð áfram við Argyrocastro. Hafa þeir nú allar hæðir sunnan og austan við borgina á sínu valdi, svo og þjóðveginn þaðan vestur til sjávar. En ítalir verj- ast enn í borginni sjálfri. Miklir loftbardagar hafa ver- ið yfir Albaníu þrjá síðustu sól- arhringana, og skutu Bretar nið- ur tíu ítalskar flugvélar á mið- vikudag og fimmtudag. Á mið- vikudag lenti þeim saman við 20 ítalskar Caproniflugvélar og skutu 8 af þeim niður. Hinar tvær voru skotnar niður á fimmtudaginn. Bretar héldu í gær uppi grimmilegum loftárásum á bækistöðvar ítala í St. Guar- anta, Elbazan og Durazzö, og tvístruðu 6 ítölskum tundur- spillum, sem gerðu árás á eyj- una Korfu. ítalir halda uppi stöðugum loftárásum á grísk þorp og borgir. Það var nú loks viðurkennt í gær í þýzka útvarpinu, að Ba- doglio marskálkur væri kominn til Albaníu, en í ítalska útvarp- inu er því enn liarðlega neitað.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.