Alþýðublaðið - 02.12.1940, Page 1
XXI. ÁRGANGUR
MÁNUDAGUR 2. DES. 1940.
284. TÖLUBLAÐ
RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
Hátíðahöldin sýndu einingu
og samheldni þjóðarinnar.
Brezka útvarpfð: „Heimurinn yrði fátækari
ef islenzka þjóðin glataði sjálfstæði sínu.“
/
Th. Stanning $ Það er trú min og vissa, að is-
lenzka þjóðin komi heil ut úr þessum hildarleik“
T T RAGLANDAVEÐUR var í gær á fullveldisdaginn.
-“■ Það varð þó ekki til þess, að gera hátíðahöldin minni
en undanfarin ár.
Sjaldan eða aidrei hefir skrúðganga stúdenta verið
jafn f jölmenn, enda stóðu nú að þeim þætti hátíðahaldanna
öll æskulýðsfélög höfuðstaðarins.
Bar skrúðgangan svip þess ástands, sem nú ríkir hér
á iandi — og mátti „glöggt merkja alvöru yfirstandandi
tíma í svip þátttakendanna — og ekki einungis þeirra,
heldur og allra þeirra, sem voru áhorfendur og biðu við
Austurvöll, en þar var mikill mannf jöldi.
Fremst í skrúðgöngunni gekk
Lúðrasveit Reykjavíkur og lék
ættjarðarlög — en síðan kom
fylking ungra manna með fána,
sem söng við raust.
Klukkan um 2 hóf Ólafur
Thors atvinnumálaráðherra
ræðu sína af svölum Alþingis-
hússins. Var aðalefni ræðu
hans, að fullvissa landsmenn
um þá skoðun sína, að aðstaða
lands vors væri þrátt fyrir allt
góð og það væri í raun og veru
engin skynsamleg ástæða fyrir
því að óttast um sjálfstæði okk-
ar eftir þann hildarleik, sem nú
geisar.
„Við höfum heiður hins
mikla brezka heimsveldis að
veði fyrir því að þau loforð,
sem brezka stjórnin gaf okkur
er herinn hertók landið, verði
haldin,“ sagði atvinnumálaráð-
herra.
Ráðherrann talaði djarflega
um málefni þjóðarinnar nú og
hvatti til einingar og samheldni
um þýðingarmestu málin.
í gærkveldi flutti Hermaiin
Jónasson , forsætisráðherra á-
varp til þjóðarfhnar í útvarpið.
Var raeða hans um aðstöðu
þjóðarinnar nú, ekki einungis
vegna hertökunnar, heldur og
atvinnulega. Sagði hann að af-
koma manna væri tiltölulega
góð — og landsins í heild, en
ekki mætti gleyma því, að mik-
ið og margt þyrfti að gera að
stríðinu loknu, endurnýja fram
leiðslutæki, byggja ný heimili
o. s. frv. Hin góða afkoma nú
verður til lítils gagns ef við
eyðum því meiru. Nú reynir á
það, hvort við verðum þrælar
eða herrar gullsins. Þá minnt
ist hann á lausn sjálfstæðis-
málsins og hvatti til einingar
um það mál. Munu menn og
taka undir það, að þetta' mál
megi ekki verða að bitbeini eða
yfirborðsmáli milli flokkanna.
Auk þessa var haldið upp á
fullveldisafmælið á ýmsan ann-
an hátt hér í bænum, með sam-
komum í samkomuhúsunum,
skemmtunum og danssamkom-
um. Alþýðuflokksfélag Reykja-
víkur hafði samkomu í Alþýðu-
húsinu og Félag ungra jafnað-
armanna hafði dansleik í Iðnó.
Þá var allmikið um hátíðahöld
úti um land.
Stjórn brezka setuliðsins
sýndi þjóðinni þá kurteisi í gær,
að gefa skipun til hermannanna
um að halda sig inni á heimilum
sínum þennan hátíðisdag þjóð-
arinnar, og sást varla hermað-
ur úti. Hurfu foringjar úr sam-
komuhúsum t. d. Hótel Borg kl.
7 og allir hermenn áttu að vera
komnir í náðir kl. 10.
Aðeins nokkrir brezkir lög-
regluþjónar sáust úti að störf-
um.
Fullveldisias minnst i
Danmðrku og Eiglaidi.
Danska útvarpið helgaði
hluta af dagskrá sinni í gær
fullveldisafmæli okkar.
Th. Stauning forsætisráð-
herra talaði fyrstur. Lét hann í
ljós þá von sína og trú, að ís-
land og íslenzka þjóðin kæmu
heil út úr þeim hildarleik, sem
nú skekur löndin, enda kvað
hann íslenzku þjóðina hafa sýnt
það í baráttu sinni undanfarna
áratugi, að hún kynni að taka
á móti erfiðleikum og stýra
gegnum hættur. Að ræðu Stau-
nings lokinni talaði Jón Krab-
be, sendifulltrúi. En síðan las
Jbrh. á 2. síðu.
Juféslavfa bbd i
verja hlnílejrsi siítj
PÁLL ríkisstjóri í Júgó- !
slavíu lýsti því yfir í !
gær, að Júgóslavar myndu !
ekki hika við að grípa til ;
vopna og herjast, ef ráðist J
yrði á landamæri þeirra. ;
Þá sagði ríkisstjórinn, að ;
Júgóslavar óskuðu einskis ;
annars frekar en að lifa í j
friði við alla nágranna !
sína. ' !
Neyðarmerki í
Faxaflóa?
EnnDá er ekki vitað frá
hvaða skipi pað var.
T GÆRKVELDI harst
A Slysavarnafélaginu til-
kynning um, að sést hefðu ljós-
merki, sem álitið var, að væru
neyðarmerki frá skipi, hér úti
í flóanum.
Var það í stefnuna „norð-
norð-vest“ frá Akranesi.
Jón Bergsveinsson náði þeg-
ar sambandi við lögreglustjór-
ann á Akranesi. Sagði hann, að
kl. 20 mínútur fyrir 6 í gær-
kveldi hefði sést frá Akranesi
flugeldi skotið úti í flóanum. Kl.
20 mínútur eftir 6 sást öðrum
flugeldi skotið. Ennfremur þótt-
ust menn á Akranesi hafa heyrt
neyðarmerkið S.O.S., en það
heyrðist ekki á loftskeytastöð-
inni hér, og var þó hlustað sér-
staklega eftir því.
Um hádegi í dag hafði enn
ekki frétzt til Slysavarnafélags-
ins, hvaðan þessi dularfullu
ljós hafi starfað. En í gærkveldi
þóttust menp sjá frá Akranesi,
að skip væri að leita með ljós-
kösturum í flóanum. Þess skal
getið, að eftirlitsskip Breta hér
fyrir utan nota stundum „rak-
ettur“ er þau eru að stöðva
skip.
ítalska þjóðin er farin að krefja hann reikningsskapar,
Óslgrar italska hersins
valða élgn helma fyrir.
----*—---
Grikkir eru ullsstaöar f sdkn. Um
helgfima tékn peir Pogradec.
liarðir bardagar um Argyrocastro.
-------♦------
"C1 RÉTTIR, sem hafa bor-
■“■ izt til London frá Ítalíu
og herstöðvum ítala í Alban-
íu, herma að vaxandi óá-
nægjá sé meðal ítalskra her-
manna og ítölsku þjóðarinn-
ar. Segir í þessum fregnum,
að þjóðin sé orðin sannfærð
um að þátttaka ítala í styrj-
öldinni sé aðeins æfintýri,
sem Italir hefðu getað kom-
izt hjá að lenda í.
Þá er það og orðin útbreidd
skoðun, að ítalir séu ekki að
heyja stríð fyrir sjálfa sig,
heldur hina þýzku yfirdrottn-
unarstefnu.
Gangur styrjaldarinnar upp
á síðkastið eykur þessa óá-
nægju með hverjum degi.
ítalski flotinn hefir beðið
ægilegt tjón hvað eftir annað,
og er nú ekki orðinn annað en
svipur hjá sjón á móts við það,
sem áður var.
Graziani situr fastur í Afríku
með hersveitir sínar og fær
ekkert að gert,’ en Bretar loka
öllrfm samgönguleiðum til
þessara hersveita.
Og síðast en ekki sízt hafa ó-
sigrar úrvalshersveitanna í Al-
baníu komið eins og reiðarslag
yfir ítölsku þjóðina. Jafnframt
þessu tilkynna Bretar, að þeir
muni herða baráttuna gegn ít-
ölum með hverri viku, sem líð-
ur.
Þá þrengir mjög að ítölsku
þjóðinni með skorti á nauð-
synjum og gífurlega vaxandi
dýrtíð. '
ðtl&kir hafa tekið Po-
gradec.
Gríska herstjórnin tilkynnti
á laugardagskvöld, að hersveit-
ir hennar hefðu tekið borgina
Pogradec, sem er 25 mílur
norður af Korftza, og væri þeg-
ar hafin ný sókn út frá þeirri
borg. ítölsku hersveitirnar
vörðu þessa borg af mikilli
grimmd, en Grikkir tóku hana
með byssustingjaáhlaupi.
Pogradec var stærsta birgða-
stöð ítala á þessum slóðum, eft-
ir fall Koritza, og vár hún ram-
lega víggirt. Um leið og Pogra-
dec tóku Grikkir mikið af föng-
urn og herfangi. Segja fréttir
frá vígstöðvunum, að hinar
flýjandi hersveitir hafi skilið
eftir á flóttanum um 80% af
vopnum sínum og öðrum út-
búnaði.
í morgun sögðu fréttir frá
Grikklandi, aí grískar hersveit-
ir væru í sókn á öllum víg-
stöðvum og sums staðar í mjög
Frh. af 2. síðu.