Alþýðublaðið - 30.12.1940, Síða 1
RITSTJORI: STEFAN PETURSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XI. ARGANGUR
M/ NUDAGUR 30. DES. Í940.
307. TÖLUBLAÐ
Fnll dýrtíðarupp-
böt verkamaona
f mjélkarstUinni
SamQingur undlrritaður.
SAMNINGANEFND
Dagsbrúnar hefir nú
undirritað samning við
mjólkursölunefnd, en und-
ir hana heyrir stjórn
m j ólkurstöðvar innar.
Samkvæmt þessum
samningi verður grunn-
kaup verkamanna óbreytt,
en þeir fá framvegis dýr-
tíðina að fullu bætta, sam-
kvæmt vísitölu. — Þó er
það ákvæði í samningn-
uni, að ef Dagsbrún kom-
ist að betri samningum
við aðra atvinnurekendur
skuli verkamenn mjólkur-
stöðvarinnar ekki sæta
lakari kjörum.
Einstaklr atvinnnrekendur vilja fallast á
álksins, en halaekki fengið
fyrir Vinuuveifendatélaginu.
’Vr MS VERKALÝÐSFÉLÖG hér í Reykjavík og í sjáv-
-*■ arþorpunum í nágrenninu héldu fundi í gær til að
ræða kröfur sínar og horfur í kaupgjaldsmálunum.
Á öllum þessum fundum ríkti alger eining og ákveðinn
vilji til að str.nda fast við þær kröfur, sem gerðar hafa
verið til atvinnurekenda.
Nokkur þessara félaga, sem höfðu haft viðræðufundi með
atvinnurekendum, gerðu saniþykktir um úrslitaboð. Þó að ekki
sé hægt að þessu sinni að benda á nein sérstök dæmi þess, að
sainan dragi með einstökum verkalýðsfélögum og atvinnurek-
endum, þá mun þó raunin vera sú. Virðist að lítið sé til fyrir-
stöðu að saman dragi hjá nokkrum minni félögunum — cinnig
utan Reykjavíkur..
AtvhmurekenduT hafa óskað | eftir því að sáttásemjari tsdti upp
vinna
segir
SI
oosevelt
Bandaríkin ma^n taalda áfrana ad stjfHJa Breta
og bandamenn þeirra af ðlinm mœtti.
Bandaríkjaforsetinn flutti útvarpsræðu klukkan 2 í nótt.
R
OOSEVELT Bandaríkjaforseti flutti útvarpsræðu
klukkan 2 í nótt,. þar sem hann lýsti því yfir, að
Bandaríkin myndu halda áfram að styðja lýðræðisríkin,
með Bretland í broddi fylkingar, í stríðinu við einræðis-
ríkin, eins og þau hefðu gert upp á síðkastið.
Forsetinn sagði, að Bandaríkin gætu ekki beitt sér fyr-
ir því, að friður væri saminn, fyrr en kúgun einræðisríkj-
anna hefði verið niður kveðin. Það hefði ekki verið farið
fram á það, að Bandaríkin gengju formlega í stríðið með
Bretlandi og lýðræðisríkjunum, heldur aðeins, að þau létu
þeim í té eins mikið af vopnum og unnt væri, og það myndu
Bandaríkin gera.
Nazistar munu að minnsta kosti ekki vinna sigur í þessu
stríði, sagði Roosevelt. Það veit ég af viðtölum við sérfræð-
inga á sviði hernaðarins. Og við getum gert okkur góðar
vonir um það, að því ljúki með fullum sigri lýðræðisins.
Sazistar hafa augastað
á Suðnr-Amerlku.
Roosevelt byrjaði ræöu sína á
því, hvernig möndulveldm og Jap
an hefðu geTt samtök með sér,
hinn svokallaða þriveldasáttmála,
sem beinlínis væri stefnt gegn
Bandaríkjumim.
Hann sagði, að stríðið, sem
nú stæði yfir, væri úrslitaátök
milli tveggja lífsstefna, lýðræðis-
ins óg nazismans. Hvert ríkið
eftir annað 1 Evrópu hefði verið
kúgað af nazismanum. Hingað til
hefði tekist að bægja stríðinu
frá ströndum Ameríku, en enginn
gæti sagt, hvort það yrði hægt
til lengdar.
Það hefði líka verið sagt af
nazistum, sagði forsetinn, að rikj-
unum á meginlandi Evrópu væri
engin hætta búin, en viðburð-
imir hefðu sýnt, hve mikið væri
upp úr yfirlýsingum þeiiTa leggj-
andi. Það væri líka vitaö, að
nazistar hefðu auigtastað á
Suður-Ameríku og hugsuðu sér
hána sem stöklqmll til árásar á
Bandaríkin.
'Bandaríkin, sagði forsetinn,
gérðu sér þetta fuilkomlega ljóst
og myndu halda áfrarn að styðja
hina fráekilegu baráttu Breta og
bandamanna þeirra af öllum þeim
kröftum, sem þau ættu yfir að
ráða. Uin. frio gæti aldrei oröið
að ræða fyrT en kúgun einræðis-
ríkjanna væri að fullu niður
kveðin.
Ræða Roosevelts hefir fengið
hir.ar beztn undirtektir í Ameriku
og hvarvetna í brezka heimsveld-
inu.
Á Þýzkalandi og italíu hefir
hún ekki verið birt enn.
Irðs á brezka skipa-
lesí á Morðor-Atlímts
hafi á jáladasiac.
ÞAÐ var tilkynnt í London
í morgun, að þýzkt her-
skip hefði gert árás á hrezka
skipalest á Atlantshafi á jóla-
dag, en lagt á flótta þegar það
Frh. á 4. siðu.
samkomulagstilraunir fyrir þeirra
hönd við Dagsbrún, en þegar Al-
þýðublaðið fór í prentun hafði
Frh. á 4. siðu.
Sveinafélag mirara
angijrsir nýjaa taxta
SVEINAFÉLAG múrara aug-
lýsir hér í blaðinu í dag
nýjan kauptaxta fyrir meðlimi
sína-
Samkvæmt honum er ákveðið
að kaup múrara verði kr. 2,25
í dagvinnu (var áður kr. 1,90) og
full dýrtíðaruppbót að auki.
Hækkar tímakaupið þiannig vegna
þess að vinnudagur er styttur
úr 10 klst. i 9. Þá hækkar eftir-
vinnukaup um 50o/o og nætur-
og helgidagavinna um 100 °/o.
Brezkt skip strandar
á Meðallandssðndum
Allir skipverjar, 34 að tölu, björguðust
s
NEMMA í gærmorgun
strandaði allstórt brezkt
skip á Meðallandssöndum.
Þoka var, er skipið strand-
aði. Allir mennirnir björguð-
ust í land og voru á leið til
bæja, þegar fólk kom á
strandstaðinn.
Snemma í gærmorgun fékk
Slysavarnafélagið tilkynningu
um það frá Kirkjubæjar-
klaustri, að stórt skip væri
strandað á Meðallandssöndum.
NánaTÍ lýsing á atburðinum var
þiá ekki fyrir hendi. Þoka var
mikil og sýndist skipið því stæria
en seinna kom í ljós að vax.
Menn fóru strax til strandar
til þess að veita hjálp. Björg-
unardeild úr slysavarniafélaginu
er til fyrir austan og hefir hún
línubyssu undir höndum. Fór hún
á strandstaðinn.
Klukkan 2 í gær fékk Slysa-
vamafélagið aftur fréttir að oust- \
an. Voru mennimir komnir í land
í skipsbát og voru á leið til
byggða.
Ekki gat Slysavamafélagið feng
ið að vita með vissu, hvað skip-
ið héti, né hve stórt það væri,
þn á því voiu 34 menn og kom-
ust þeir allir heilu og höldnu til
byggða.
íélbáturiBB „Goða-
foss“ strandar á
Garðskaga.
V
ÉLBÁTURINN „Goðafoss“
síðastliðinn laugárdagsmorgun
á svonefndum „Flasarhaus“ á
Garðsskaga. Skipshöfnin komst
í iand heilu og höldnu.
Frh. á 4. síðu.
Tllraun til að kveikja I
CftyiLondonigærkveldl
Fiugvélar Þjóðverja vörpuðu niður
íkveikjusprengjum af handa hófi en
voru hraktar á flótta af Bretum.
ARÁSARFLUGVÉLAR ÞJÓÐVERJA gerðu tilraun til
þess að kveikja í City í London í gærkveldi.
Þær vörpuðu íkveikjusprengjum af handahófi yfir þennan
heimsfræga borgarhluta í London með þeim árangri, að stór-
brunar urðu á mörgum stöðum og fjöldi bygginga, sem enga
hernaðarlega þýðingu hafa, eyðilögðust eða urðu fyrir skemmd-
um, þar á meðal gömul kirkja. Ráðhúsið í London er ein af þeim
stórbyggingum, sem fyrir alvarlegum skemmdum urðu.
Manntjónið er sagt hafa orð-
ið furðn lítið, en í morgun log-
aði enn þá víðs vegar í húsa-
rústum, þegar borgarbúar voru
að fara til vinnu sinnar.
Árásin stóð ekki lengi. Brezk-
ar orustuflugvélar lögðu til at-
Frti. á 4. síðu.