Alþýðublaðið - 11.02.1941, Qupperneq 1
RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXII. ÁRGANGUR ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBR; 1941 36. TÖLUBLAÐ
iUtitetV;
Brezkir hermenn stíga á land í Port Said á Egyptalandi
Hin fyrirhugaða árás Þjóð^
verja á Búlgariu nú í aðsigi?
Iratar slíta $t|órniBiálasan)baBdi við Múmenfn.
ÞAÐ var tilkynnt í London í gærkveldi, að Bretland
hefði nú slitið öllu stjórnmálasambandi við Rúmen-
íu og að sendiherra Breta í Búkarest, sir Reginald Hoare,
hefði krafist vegabréfs síns af Antonescu, forsætisráðherra
Rúmeníu í gær.
Búist er viö, að sendiherrann muni fara frá Búkarest með
fylgdarliði sínu ekki síðar en á laugardag í þessari viku.
Þessi fregn hefir á ný dregið
athyglina að því, sem fram er
að fara á Balkanskaga.
í London er bent á það, að
%
Sendinefnd Hnf-
að frá Færeyjum.
Tll að ræða ura samvlnnu
f úlgerð oo verzlun.
S
ENDINEFND frá Fær-
eyjmn er væntanleg
hingað næstu daga.
Mun hún ætla að ræða
við okkur íslendinga um
verzlunar- og viðskipta-
mál með það fyrir augum
að ná samvinnu við okk-
ur í þessrnn málum.
Nefndin mun vera skipuð
fulltrúum útgerðar, verzl-
unar og amtsins og munu
vera í henni 7 menn.
Ekki er vitað hve lengi
nefndin muni dvelja liér.
Að sjálfsögðu væri það
okkm- mikið gleðiefni ef
við gætum á einhvern hátt
greitt fyrir þessum ágætu
frændmn okkar.
i
ekki hafi verið lengur hægt að
halda stjórnmálasambandi við
Rúmeníu eftir að Þjóðverjar
höfðu raunverulega hernumið
landið og gert hana að bækistöð
fyrir árás á Grikkland suður
yfir Búlgaríu.
Því hefði verið haldið fram,
þegar þýzkar hersveitir byrjuðu
að streyma til Rúmeníu, að þær
kæmu aðeins í því skyni að æfa
rúmenska herinn, en nú hefðu
þær kcmið sér fyrir um allt
landið, og tekið alla hernaðar-
lega þýðingarmikla staði þess í
sínar hendur, án þess að stjórn-
in í Búkarest hafi svo mikið
sem mótmælt því.
En það er þó ekki talin nein
tilviljun, að stjórnmálasam-
bandintt milli Bretlands og
Rúmeníu hefir verið slitið ein-
mitt nú og ekki fyrr en nú.
Þeim fregnum fer stöðugt
fjölgandi frá Balkanskaga, að
Þjóðverjar séu nú að undirbúa
árás frá Rúmeníu á Grikkland
yfir Búlgaríu, og er mikill þýzk-
ur liðssafnaður sagður fara
fram á no^ðurbökkum Doriár,
þar sem hún rennur á landa-
mærum Rúmenu og Búlgaríu.
Þá er og sagt, að þýzkir her-
menn haldi áfmm að streyma frá
Rúmeníu til Búlgaríu í ferða-
manhabúningi, og er jafnvel full-
yrt, að þeir séu farnir að koma
fyrir þýzkum loftvarnabyssum í
landinu.
Það lítur út fyrir, að anótspyma
búlgörsku stjórnarinnar gegn
þessum yfirgangi og undirbún-
ingi Þjóðvefja fari minnkandi.
Það er t. d. bent á þáð i jLiondon,
að útvarpið í Sofia -hafi fellt
niður úr endursögninni á ræðu
Churchills alla þá staði, . sem
höfðu aðvaranir inni að halda
með tililiti til hinnar yfir\'ofaudi
þýzku árásar á Búígaríu.
Jafnframt berast fregnir af því,
að búlgarska stjómiu neitinúöll-
um tilböðum Tyrkja um sam-
vinnu gegn hinni sameigmiegu
hættu, En Tyrkir hafa eins og
kunnugt er, lýst þvi yfir, að þeir
muni ekki sitja hjá, ,ef ráðist
verði á Grikkiand gegn unr Búlg-
aríu.
Svíkja Mmv bæði
§ Biiipra «| Tpki?
•
Þá vekur það og gífurlega
eftirtekt, að fréttastofan Associ-
ated Press telur sig hafa fengið
j vitr.skju am það, að Sobolev,
fulltrúi sovétstjórnarinnar í
Sofia, hafi tiikynnt búlgiirsku
stjórninni, að sovétstjórnin
hefði fyrir sitt leyti fallist á
það við þýzku stjórnina, að
jþýzkur her yrði fluttur yfir
Búlgariu til árásar á Grikkland.
En taiið er, að búigarska stjórn-
in hafi í iengstu lög gert sér von
nm það, að sovétstjórnin myndi
(Frh. á 2. síðu.)
Bretar hafa nú einiig brot
izt inn í Eritren að norðan.
-----.»---
Og sækja hratt fram á stroad
Rauðahafsins i áttina til Massaira
D RETAR hafa nú hafið sókn á nýjum stað gegn nýlendu-
ríki ítala í Afríku. Þeir hafa brotizt inn í Eritreu að
norðan og sækja þar hratt suður með ströndinni við Rauða-
haf til móts við brezka herinn, sem er á leiðinni að vestan
þvert yfir landið.
Bretar hafa þegar tekið tvo smábæi á ströndinni, um 45
og 60 km. sunnan við landamærin, og eru frá syðri hafnarbæn-
um ekki nema tæpir 200 km. til aðalhafnarborgarinnar, Massava.
Frá Kenya berast þær fréttir, •
að sókn Suður-Afríkuhersins í
Suður-Abessiníu miði nú einnig
ört áfram og sé hann kiominn
75 km. inn fyrir landamEeri Abess
iníu.
Fregnir frá Kairo hemia, að
sir Maitland Wilson, einn af að-
alhershöfðingjum Breta í sókn-
inni í Libyu, hafi nú vedð skip-
aður landsstjóri í Cyrenaica.
Nánari fríegnir hafa nú boristaf
komu brezka hersins til Beng-
hazi. Er sagt, að íbúar borgarinn-
ar hafi fjölmennt á móti honttm,
þegar omstinni var lokið um
borgina, hrópað: „Lifi lýðræðið",
Frti. á 2. síðu.
Darlan á að verða
eftirmaður Pétains.
Ósigur Lavals fullkominn.
ATÖKUNUM um endurskip-
un Vichystjórnarinnar
virðist nú vera lokið í bráð
með fullkomnum ósigri Lavals.
Eftir að það varð kunnugt á
laugardagskvöldið, að Laval
gerði sig ekki ánægðan með að
ganga í stjórnina aftur upp á
þá skilmála, sem Pétain mar-
skálkur bauð honum — sem
ráðherra án stjórnardeildar —
voru í gær gefin út lög í Vichy
Frh. á 4. síðiu.
Hviksaga am
flugvéla veknr
kúp pýzkra
mikiBD útta.
Fr©pin kom austan ár Álftaveri,
en f lugvélarnar reyndust hreskar
------+------
Ailir lögregluþjónar voru kvaddir út.
RETT eftir kl. 3 í gær
gaus sá kvittur upp hér
í bænum, að hópur þýzkra
flugvéla væri á leið til
Reykjavíkur. Skapaði fregn-
in mikinn ótta meðal bæjar-
búa og linnti ekki upphring-
ingum til Alþýðublaðsins
allt til kl. 7 um þetta.
Alþýðublaðið snéri sér strax
og því barst þessi kvittur til
formanns loftvarnanefndar,
Agnars Kofoed Hansens lög-
reglustjóra og fékk eftirfarandi
upplýsiugar:
Laust fyrir kl. 3 var hringt
til landssímans frá Kirkjubæj-
arklaustri og tilkynnt, sam-
kvæmt upplýsingum frá bónda
í Álftaveri, að hann hefði séð
hóp þýzkra flugvéla fljúga all-
hátt suður yfir landið, en
landssíminn tilkynnti þetta
tafarlaust til loftvarnanefndar
og hún tilkynnti það síðan
brezka setuliðinu. Samtímis
kallaði lögreglustjóri alla lög-
regluþjóna til að vera viðbúna,
ef óvæntir atburðir bæru að
höndum.
Þá símaði formaður loft-
varnanefndar austur að Kirkju-
bæjarklaustri og spurði nánar
um fregnina og fékk þá þær
upplýsingar, að flugvélarnar
hefðu aðeins verið tvær og væri
engin vissa fyrir um það, hvort
þær hefðu verið þýzkar.
Eftir að þeta var vitað, hóf
setuliðið rannsókn á því, hvort
Frh. á 2. síðu.