Alþýðublaðið - 09.04.1941, Blaðsíða 4
KDViftUDAGUR 9 APRIL 1941
AIÞYÐDBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR
Næturlaéknir er Gunnar Cortes,
Eiríksgötu 11, sími 5995.
Næturvörður er í Laugavegs- og
Ingólfsapóteki.
ÚTVARPIÐ:
20,30 KvÖldvaka: Upplestur: Á-
rásin á Noreg, eftir C. Hambro
(Guðni Jónson magister). Sigurð-
ur Bjarnason og Hjálmarskviða,
100 ára minning: a) Jón Jóhann-
eeson: Um Sigurð Bjarnason. b)
Kvæðalög: Kjartan Ólafsson og
Jóhann Garðar kveða úr Hjálm-
arskviðu. c) Hljómplötur: íslenzk
sönglög. 21,50 Fréttir. Dagskrár-
lok.
SKÍRDAGUR:
Helgidagslæknir er Kristjón
Hannesson, Mímisveg 6, sími 3836.
Næturlæknir er Daníel Fjeld-
»ted, Laugaveg 79, sími 3272.
Næturvörður er í Laugavegs- og
Ingólfsapóteki.
ÚTVARPIÐ:
20,30 Um daginn og veginn (síra
Jakob Jónsson). 20,50 Einleikur á
lllkið úrval af
kven- silklsokknm og
sokkabandabeltnm.
FREYJUPUNDUR á föstudag-
inn langa kl. 8 e. h. 1. Ávarp.
2. Upplestur úr ljóðaflokkn-
um „Friður á jörðu“ eftir
Guðmund Guðmundsson. 3.
Guðsþjónusta: Jón Kr. ís-
feld stud. theol. prédikar.
Söngflokkur I.O.G.T. aðstoð-
ar. Öllum er heimill aðgang-
ur meðan húsrúm leyfir.
Fólk er beðið að hafa með sér
sálmabækur.
Æðsti templar.
píanó (Emil Thoroddsen): a) Bal-
lada í As-dúr og 2 Mazurkar í cis-
moll og f-moll, eftir Chopin. b)
Ung. Rhapsodie No. 11, eftir Liszt.
21,10 Upplestur: „Friður á jörðu“,
kafli úr kvæðaflokki eftir Guðm.
Guðmundsson (Edda Kvaran).
21,30 Hljómplötur: Kantata nr.
152, eftir Bach. 21,50 Fréttir. Dag-
skrárlok.
FÖSTUDAGURINN LANGI.
Helgidagsíæknir er Theódór
Skúlason, Vesturvallagötu 6, sími
3836.
Næturlæknir er Eyþór Gunn-
arsson, Laugaveg 98, sími 2111.
Næturvörður er í Laugavegs- og
Ingólfsapóteki.
ÚTVARPIÐ:
11 Messa í dómkirkjunni (síra
Friðrik Hallgrímsson). Sálmar nr.
148, 150, 152, 157. 12,10—13 Há-
degisútvarp. 14 Lítúrgisk messa í
þjóðkirkjunni í Hafnarfirði (síra
Garðar Þorsteinsson). 19,30 Hljóm
plötur: Kirkjulög. 20 Fréttir. 20,20
Ræða (síra Sigurbjörn Einarsson).
20,40 Sálumessa (Requiem) eftir
Verdi (hljómplötur). 21,55 Frétt-
ir. Dagskrárlok.
MESSUR:
í dómkirkjunni: Skírdag kl. 11
síra Bjarni Jónsson (altarisganga).
Föstudaginn langa kl. 11 síra Frið-
rik Hallgrímsson, kl. 5 síra Bjarni
Jónsson.
Hallgrímsprestakall. Skírdag kl.
11 f. h. hámessa í fríkirkjunni.
Altarisganga. Sr. Jakob Jónsson:
Á föstudaginn langa kl. 11 há-
messa, síra Sigurbjörn Einarsson,
altarisganga.
í fríkirkjunni: Skírdag kl. 2 sr.
Árni SigurðSson (altarisganga).
Föstudaginn langa kl. 5, sr. Árni
Sigurðsson.
Dönsk guðsþjónusta í Trefoil
Sailors home: Á skírdag kl. 5 og
föstudaginn langa kl. 5. Biering
Prip prédikar.
í kaþólsku kirkjunni. Skírdag:
Biskupsmessa og krismuvígsla kl.
9 árd. Bænahald og prédikun kl.
6 síðd. Föstudaginn langa: Messa
hins forvígða guðslíkama kl. 10
árd. Prédikun og krossganga kl. 6
síðd.
í Mosfellsprestakalli. Á skírdag
kl. 14: Viðey. Á föstudaginn langa
kl. 15: Þingvellir.
f Útskálaprestakalli. Skírdagur:
Hvalsnesi kl. 1. Föstud. langa:
Keflavík kl. 1 %, Útskálum kl. 4
og Sandgerði kl. 6 (barnaskólan-
um); síra Eiríkur Brynjólfsson.
Kaþólska kirkjan í Hafnarfirði.
Á skírdag: Hámessa kl. 9, bæna-
hald kl. 6 síðd. Á föstudaginn
langa: Kirkjuguðsþjónusta kl. 9,
prédikun og krossganga kl. 6 síðd.
í Nessókn: Skírdagur: Barna-
guðsþjónusta kl. 10 í skólahúsinu
í Skildinganesi. Á föstudaginn
langa: Messað í Mýrarhúsaskóla
kl. 2%.
í Hafnarfjarðarkirkju á skírdag
kl. 2 altarisganga, föstudaginn
langa kl. 2, síra G. Þ.
Trúlofun
sína hafa opinberað ungfrú
Bergþóra Sigmarsdóttir, Ránar-
götu 21, og liutenant William Cook.
Alþýðublaðið
kemur næst út á laugardag.
Vopnin kvödd
heitir nýútkomin bók eftir Ern-
est Hemingway. Er þetta af mörg-
um talin éinhver bezta bók þessa
heimsfræga höfundar. Halldór Kilj
an Laxness hefir íslenzkað bókina
og ritað formála að henni. Útgef-
andi er Mál og menning.
„Allir hugsa um sig —
það er bara ég, sem hugsa um
mig“ heitir nýútkomin bók eftir
Sigrid Boo. Steinþór Guðmunds-
son hefir þýtt bókina, en útgef-
andi er Söguútgáfan á Akureyri.
Happdrættið.
í dag er síðasti söludagur. Dreg-
ið verður á laugardag.
Goðafoss
er kominn úr utanlandssigling-
um.
Ný bók, sem marg-
ir hafa beðið eftir.
F YRIR nokkmm dögum kom
á bókamarkaðimi ný bók
eftÍT Jón bisklip Helgason. Er
það æfisaga Tómasar Sæmiunids-
sonar og nefnlst „Tómas Sæm-
tundsson. Æfiferill hans og œfi-
starf“.
Er þetta mikið rit, 261 blaðsíða
IIH GAMLA Bion ws nýja bió mm
Stúlkan frá Kentucky. Dndir snðrænni sól
(The Lady’s from Kentu- Ameríksk kvikmynd frá
cky)). Universal Pictures, er ger-
Aðalhlutverkin leika: ist að mestu leyti í Rio de
GEORGE RAFT, Janeiro í Suður-Ameríku.
ELLEN DREW og — Aðalhlutverkin leika:
HUGH HERBERT. BASIL RATHBONE,
Aukamynd: VICTOR McLAGLEN
Merkustu viðburðir árs- og norska leikkonan
1 ins 1940. SIGRID GURIE.
S Kvikmyndir af þeim og <• Sýnd klukkan 7 og 9.
1 skopteikningar. 'ij Börn innan 16 ára fá ekki
1 Sýnd kl. 5, 7 og 9. I aðgang.
Dinssýning
nemenda og
Lohadansleiknr
verður haldinn í Iðnó í kvöld
kl. 8.30. — Aðgöngumiðar
verða seldir í Iðnó frá kl.
5—6 í dag og við inngang-
inn.
Bára Sigurjónsdóttir.
Innilegar þakkir færi ég öllum samsveitungum mínum,
nemendum og öðrum vinum, er heiðruðu mig með gjöfum,
samsæti og heillaóskum á sextíu og fimm ára afmæli mínu.
Vestri-Skógtjörn, 8. apríl 1941.
KLEMENS JÓNSSON.
‘í stórtu broti, sem auk æfisög-
Unnar hefir inni að halda for-
mála eftir höfundinn, inngang um
ætt Tómasar, yfirlit yfir heim-
ilditr og nafnaskrá. Bókin er einn-
ig prýdd nokkrum ágætum mynd-
Uim. Útgefandi er Isafoldarprent-
srniðja.
Það var vitað fyrir nokkru,
að Jón biskup Helga&on, hinn
tnikilvirki æfisagnaritari, var að
ljúka við þessa æfiisögu Tómasar
SæmUndssonar, afa síns, og hafa
margir beðið hennar með mik-
illi eftirvæntingu.
Bókarinnar mun verða nánar
getið hér í blaöinu síðar.
102 THEOÐORE DREISER;
JENNIE GERHARÐT
Mydgely, maður Imogene, var enniþá deildarstjóri
þar, og áð hann bjó í Evanston. Vegna missættis
hans við ættingja sína gat hann ekki komist á snoðir
um það strax, hvernig öllu var varið. En hann frétti
það skömmu seinna.
Maðurinn, sem færði honum fréttina, var enginn
annar en Henry Bracebridge frá Cleveland, sem
hann hitti eitt kvöldið í Union Club, iþegar hann
hafði verið heima í mánaðartíma.
— Ég hefi frétt, að þú sért kominn út úr^gamla
fyrirtækinu, sagði Bracebridge og hrosti kurteislega.
— Já, svaraði Lester — ég hefi sagt skilið við það
fyrirtæki.
— Hvað tekurðu þér nú fyrir hendur?
— O, ég hefi nú ýmislegt á prjónunum. Ég er að
hugsa um, að stofna fyrirtæki sjálfur.
— Þú ætlar vonandi ekki að fara að keppa við
bróður þinn? — Það var góð hugmynd hjá honum að
stofna kaupsýsluhringinn.
— Það hefi ég ekkert frétt um. Ég er nýkominn
heim frá Evrópu.
— Þá er sennilega bezt fyrir þig að fara að vakna
af ferðavímunni, sagði Bracebridge. Hann er búinn
að ná tökum á öllum stærstu fyrirtækjunum í sinni
framleiðslugrein. Mér datt ekki annað í hug, en að
þú vissir, að sex stærstu vagnaframleiðslufyrirtækin
eru raunverulega undir stjórn hans. Bróðir þinh var
kosinn framkvæmdastjóri kaupsýsluhringsins. Og
það mætti segja mér, að hann hafi grætt fáeinar
miljónir á því viðskiptaibragði.
Lester starði á hann og hann varð hörkulegur á
svipinn.
— Jæja, það var heppilegt fyrir Robert, það gleður
mig.
Bracebridge sá, að hann hafði fært honum slæma
frétt.
— Jæja, vertu sæll, gamli vinur. Þegar þú kemur
til Cleveland verðurðu að heimsækja okkur. Þú
veizt, að konunni minni þykir gaman að sjá þig.
— Ég veit það, sagði Lester. — Vertu sæll.
Hann gekk hægt inn í reykingaslinn, en þessi frétt
hafði svipt hann allri hrifningu á þessu fyrirtæki,
sem hann hafði ætlað að bjóða aðstoð sína. Hvernig
skyldi fara fyrir litla fyrirtækinu hans, þegar bróð-
ir hans væri orðinn framkvæmdastjóri kaupsýslu-
hrings? Hamingjan góða! Á einu ári hafði Róbert
komizt fram fyrir hann. Lester hafði alltaf dreymt
um íþað sjálfan að stofna framleiðsluhring. Nú hafði
bróðir hans framkvæmt áformið.
Eitt er að hafa æskuþrek og hugrekki til iþess að
bera af sér þau högg, sem örlögin greiða mönnum
stundum. En það er annað að finna fimmtugsaldur-
inn nálgast, sjá efnahaginn þrengjast og öll sund
lokast. Allt varð nú til þess að svifta hann hug-
rekkinu. Hann reyndi að halda jafnvæginu — og
honum fannst sér hafa hepþnazt það hingað til,
en þessi síðasta frétt hafði fengið mjög á hann.
Þegar hann kom heim um kvöldið var hann mjög
daufur og niðurbrotinn. Jennie varð þess vör. Hán
hafði fundið á sér allt kvöldið, að eitthvað óþægi-
legt væri á seiði. Hún hafði verið örvæntingarfull.
Þegar hann kom sá hún strax, að eitthvað hafði
komið fyrir. Hana langaði til að spyrja: — Hvað
er að, Lester? En svo datt henni í hug að láta sem
ekkert væri, þangað til hann segði henni frá því
sjálfur, sem þjáði hann. Hún reyndi að leyna hann
því, að hún hefði orðið þess vör, að eitthvað amáði
að honum. Hún reyndi að tala við hann, án þess að
láta á nokkru bera.
— Vesta var ánægð með sjálfa sig í dag, sagði
hún, til þess að hafa af fyrir honum. — Hún fékk
svo góða einkunn í skólanum.
— Það er gott, sagði hann alvarlegur.
— Og hún er farin að dansa svo vel. Hún sýndi
mér fáeina nýju dansana í kvöld. Þú veizt ekki, hvað
hún er orðin fim að dansa.
— Það er gleðilegt, sagði hann. — Ég hefi alltaf
ætlazt til þess, að hún lærði að dansa. Nú fer að
verða tími til þess, að hún verði send í góðan kvenna-
skóla.
— Og pabbi er svo reiður. Ég gat ekki varizt
hlátri. Hún gerir svo mikið gys að honum, litla tát-
an. í gær bauðst hún til þess að kenna honum að
dansa. Hann hefði hýtt hana, ef honum þætti ekki
svona vænt um hana.
— Það hefði mér þótt gaman að sjá, sagði Lester
og brosti. — Gerhardt dansa! Það hefði verið spaugi-
legt.
— Og hún lætur sér á sama standa, hvað hann
segir.
— Það þykir mér vænt um að heyra, sagði Lest-