Alþýðublaðið - 01.05.1941, Síða 1

Alþýðublaðið - 01.05.1941, Síða 1
RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON. ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XXII. ÁRGANGUR FIMMTUDAGUR 1. MA! 1941. 102. TÖLUBLAÐ verkalýðsins í HMMTUDAOUR Næturlæknir er Axel Blöndal, Eiríksgötu 31, sími 3954. Næturvörður er í Reykjavíkur- og Iðunnarapóteki. ÚTVARPIÐ: 12—13 Hádegisútvarp. 15,30— 16 Miðdegisútvarp. 19,30 Hljóm- plötur: Norræn lög. 19,40 Lesin dagskrá næstu viku. 20 Fréttir. 20,30 Útvarpshljómsveitin leikur ættjarðarlög. 20,40 Ræða: Ármann Halldórsson magister. 21 Söngur. — Takiö undir! 21,20 Upplestur: Kvæði (Pétur Pétursson banka- ritari). 21,40 Útvarpshljómsveitin leikur íslenzk alþýðulög. 21,50 Fréttir. 22 Danslög. 23 Dagskrðr- lok. FÖSTUDAGUR: Næturlæknir er Björgvin Finns- son, Laufásvegi 11, sími 2415. Næturvörður er í Reykjavíkur- og Iðunnarapóteki. ÚTVARPIÐ: 19,25’ Þingfréttir. 20 Fréttir. 20,30 Kvöld Skógræktarfélags ís- lands: a) Valtýr Stefánsson: Um skemmtigarða í bæjum. b) Hákon Bjarnason: Friðun skógarleifa í Elliðavatns- og Hólmslandi. c) Guðmundur Marteinsson. Um skógræktarfélög. d) H. J. Hólm- járn. Ábúð og örtröð. e) Helgi Tómasson: Er hægt að rækta barr- skóga á íslandi? 21,50 Fréttir. — Dagskrárlok. Tvö blöð koma út dag. af Alþýðublaðinu í Spellvirkjarnir heitir myndin, sem Nýja Bíó sýnir um þessar mundir. Er það ameríksk kúrekamynd frá Co- lumbiafilm. Aðalhlutverkið leikur Charles Starrett. Verkalýður Reykjavíkur! í dag er 1. maí, dagur verkalýðsins. Um margra ára skeið hefir hann verið haldinn hátíð- legur hér í höfuðstaðnum. Þennan dag hefir verkalýðurinn farið hópgöngur um göturnar þús- undum saman, fagnað og glaðzt yfir fengnum sigrum og strengt ný heit um nýja baráttu, nýja áfanga. Hátíðahöldin 1. maí hafa jafnan eflt haráttuvilja fólksins og treyst samtök þess. Nú verða hátíðahöldin með nokkuð öðrum hætti en undanfarin ár. Hinn ægilegi hildar- leikur, sem nú geisar úti í löndunm og úti á höfunum, hefir einnig teygt skugga sína yfir land okkar. Útisamkomur og hópgöngur verða því eigi haldnar, ien eins og þið þekkið, hafa það jafnan verið áhrifamestu liðirnir í hátíðahöldum verkalýðsins 1. maí. En þótt annar svipur hljóti óhjákvæmilega að hvíla yfir hátíð okkar nú, en að undanfömu, ber alls ekki að líta svo á, að J. maí hafi þess vegna misst gildi sitt fyrir alþýðusamtökin. Þvert á móti, 1. maí skal enn sem fyrr vera dagur verkalýðsins öðrum dögum fremur, og hann skal verða lialdinn hátíðlegur innan þeirra takmarka, sem sett hafa verið. Fjölbreyttar samkomur verða í húsum inni og rnerki dagsins verða seld á götunum. Er hér með eindregið skorað á almenning að sækja samkomur þessar og að kaupa merkin og 'greiða fyrir sölu þeirra. Á slíkum tímum sem nú eru, er verkalýðnum hin mesta nauðsyn að standa einhuga saman um hagsmunamál sín og treysta samtök sín. Fullkomin óvissa ríkir um atvinnu og afkomu í framtíðinni. Atvinna er að vísu nægileg nú sem stendur, en ekki má okkur eitt andartak gleymast það, að sú atvinnuaukning skapast af óeðlilegum ástæðum og getur þurkast út fyrr en varir. Og skyndivexti atvinnunnar fylgir dýrtíð og verðbólga. Það er eigi á okkar valdi, að sjá fyrir hverjar verða eftirhreytúr yfirstandandi styrjaldar, en hitt vitum við og þekkjum af sögunni og reynslunni, að stríð getur aldrei haft góðar afleiðingar. Kreppur og afleiðingar styrjalda koma alltaf harðast við alþýðuna. Minnumst þess í dag, 1. maí 1941! Slíkum vágestum verður verkalýðurinn að mæta einhuga og vel undirbúinn. Sam- tökin eru öflugasta vopn hins vinnandi lýðs. Verkamenn og konur! Látið þennan 1. maí verða dag nýrra heita og nýrra átaka. í dag treystum við samtökin, eflimi eininguna og búum okkur sem bezt undir framtíðina, hvað sem hún kann að bera í skauti. Sameinuð stöndum við, sundruð föllum við. 1. maínefnd Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna. F. h. Sjómannafélags Reykjavíkur. Ásgeir Torfason. Karl Karlsson. F. h. Iðju, félags verksmiðjufólks: Runólfur Pétursson. F. h. Félags járniðnaðarmanna: Þorvaldur Brynjólfsson. F. h. Verkakvennafélagsins Framsókn: Jóhanna Egilsdóttir. Hólmfríður Ingjaldsdóttir. Úr Hinu íslenzka prentarafélagi: Baldur Eyþórsson. Úr Dagsbrún: Þórður Gíslason. Torfi Þorbjarnarson. 1. maí Mtlðahold Fulltrúaráðs- ins og AlMðuflokksfélagsins. ( ♦ -------- í Iðnó og Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu FULLTRÚARÁÐ verka- Iýðsfélaganna og Al- þýðuflokksfélags Reykjavíkur efna til ,hátíðahalda í kvöld hvort í sínu lagi, Fulltrúaráðið í Alþýðuhúsinu Iðnó og Al- þýðuflokksfélagjð í Alþýðuhús- inu við Hverfisgötu. Hátíðahöld Fulltrúaráðsins hefjast kl. 8Y2 með ræðu, sem Haraldur Guðmundsson flytur, þá syngur söngfélagið Harpa nokkur lög, en síðan verður dansað. Aðgöngumiðar að þessum há- tíðahöldum eru seldir í Iðnó. Þá heldur Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur skemmtun í Al- þýðuhúsinu við Hverfisgötu og hefst hún kl. 9. Verður þar margt til skemmtunar. Sigurður Einarsson dósent flytur ræðu, söngfélagið Harpa syngur nokkur lög og Lárus Ingólfsson leikari skemmtir, en síðan verður dansað frá kl. 11. Aðgöngumiðar að þessari skemmtun verða seldir í Al- þýðuhúsinu eftir kl. 8 annað kvöld. Að öðru leyti vísast til auglýsinga hér í blaðinu um skemmtanirnar. Þá verður 1. maí-blaðið selt á götunum og er það mjög vandað að öllum frágangi. Hafnarfirði gangast fyrir há- tíðahöldum í dag. Hefjast þau með guðsþjónustu í þjóðkirkj- unni kl. 11 f. h. Síra Jakob Jónsson prédikar. Kl. 9 um kvöldið verður skemmtun í Hótel Björninn. Ólafur Þ. Kristjánsson setur skemmtun- ina. Einar Sturluson syngur. Finnur Jónsson flytur ræðu, Alfred Andrésson syngur gam- anvísur, en síðan verður dans- að. 1. maí blaðið. 1. Alþýðusambandsfélögin MAIBLAÐ gefur Alþýðu- flokkurinn út í ár eins og undanfarin ár. Hefst ritið á kvæði eftir Ragnar Jóhannesson og nefnist það „Þeir munu sigra ..“ Jón- as Guðmundsson ritar grein, sem nefnist: Framtíð alþýðu- í 1 samtakanna. Forseti S.U.J., Friðfinnur Ólafsson, skrifar og grein, sem nefnist: „Hvað nú, ungi maður?“ Ragnar Jó- hannesson ritar grein, sem heit- ir: Þetta er okkur fyrir mestu. Ólafur Friðriksson: Framtíðin og framleiðslan. Að lokum þýddur sögukafli: Réttvísin gegn .... Þá er mikið af myndum í rit- inu. 1. maf merkið Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna lætur í dag selja 1. maí- merki á götunum. Merkið er hringmyndað með íslenzku fánalitun- um, en innan í hringnum er rauður fáni. Kaupið þetta merki og berið það í dag. Afmælissoodmót Ægis í gærkfðii. AFMÆLISSUNDMÓT Ægis fór fram í Sundhöllinni í gærkveldi. Áhorfendur voru allmargir og fóru keppnirnar hið bezta fram. í mótið voru skráðir 67 kepp- endur frá fjórum félögum og hefir eitt þeirra, í. R„ ekki keppt í sundmótum um langt skeið og er það góðs viti, að fé- lagið er aftur tekið að iðka sund. 200 m. frjáls aðferð karla: 1. Stefán Jónsson, Á. 2:35,5 mín., 2. Logi Einarsson, Æ. 2:36,0, 3. Kristinn Magnússon, K.R. 2:50,0. 50 m. frjáls aðf. stúlkna innan 15 ára: Erh. á 3. síðu. AlDJftöasamfíand flntnl ingavertamanna ávarp ar ve Alþjóðasamband flutningavérka- manna, (I. T. F.), sem nú hefir aðsetur sitt í Lond- on, gaf í gærkveldi út á- varp til verkamanna í öll- um löndum, í tilefni af 1. maí, og ^skoraði á þá að halda áfram þretlausri baráttu gegn þýzka naz- ismanum og ítalska fas- ismanum þar til yfir lyki og fullur sigur frelsisins og lýðræðisins væri tryggður. Alþýðiiflokksfélag Reykjavíknr 1. mal skemmtun í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu hefst kl. 9tyá. SKEMMTIATRIÐI: 1. Söngur: Söngfélagið Harpa. 2. Ræða: Sigurður Einarsson. 3. Óárus Ingólfsson skemmtir, gamanvísur og fleira. 4. DANS frá kl. 11. Aðgöngumiðar frá kl. 8 um kvöldið í anddyri hússins og við innganginn.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.