Alþýðublaðið - 03.05.1941, Page 1
RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXn. ARGANGUR LÁUGARDAGUR 3. MAI 1941. : 105. TÖLUBLAÐ
Sjðklæðagerðin brann i
gær á einni kinkknstnnd.
----»...—
Eitf mesta eldliaf, sem sésf taef^
lr taér i Reykjavík I seinni tíð.
Bretar taka til sinna ráða gegn
uppreisnarforingjannm í írak
Hann bað Hitler um hjálp samtimis því, að
hann lofaði að halda samninginn við Bretland
'T'IL ALVARLEGRA ÁTAKA hefir nú dregið í írak ♦
milli Rasjid Ali, flugumanns möndulveldanna, sem
brauzt til valda þar á dögunum, og brezka herliðsins, sem
sent var til landsins til þess að gæta hagsmuna Englands,
samkvæmt samningi, sem verið hefir í gildi milli landanna
árum saraan. N
Harðir bardagar eru háðir í grennd við flugvöllinn
Habbania, sem Bretar hafa byggt og er ein þýðingarmesta
lendingarstöð á loftleiðinni ( frá Evrópu til Indlands og
Austur-Asíu.
Það voru hersveitir Rasjid Ali, sem hófu vopnavið-
skiptin. .4|j|i
Það vakti töluverða athygli
úti um heim fyrir nokkru, þó
að þýðing þess væri mönnum
ekki fullkomlega ljós í fyrstu,
þegar iþað fréttist, að upp-
reisn hefði verið gerð í Irak, í
Vestur-Asíu, hinni löglegu
stjórn landsins steypt og upp-
reisnarforinginn, Rasjid Ali,
sezt í sæti hennar.
ers og beðið hann um hjálp.
Bretar tóku þá það ráð, að
senda her til Irak, sjóleiðina til
Basra við Persíuflóa, til
þess að vera við öllu búnir. Var
ekki amast við því á yfirborð-
inu af stjórn Rasjid Ali, til að
byrja með, en þegar Bretar
(Frh. á 2. síðu.)
Brelar oera gaga-
árás við Tobroak.
Bardagernir balda áfram.
KKERT LÁT virðist enn
vera á bardögunum um
Tobrouk. Það er barizt í virkja-
línunni utan um borgina. En
í tilkynningu frá Kairo í gær->
kveldá var skýrt frá því, að
Bretar hefðu gert mikla gagn-
árás á hersveitir Þjóðverja og
ítala og eyðilagt fyrir þeim
ellefu skriðdreka.
í tilkynningum Þjóðverja og
ítala hefir enn ekki verið minst
á áhlaup þeirra í Tobrouk, að-
eins þess getið, að loftárásir
hafi verið gerðar á borgina.
HÚS Sjóklæðagerðar ís-
lands h.f., Reykjavík-
nrvegur 29 í Skerjafirði,
brann til kaldra kola á einni
klukkustimd í gærkveldi.
Kom eldurinn upp kl. rúm-
lega 9 og varð húsið alelda á
svipstundu. Engu varð bjargað
úr húsinu og brunnu þarna
miklar vörubirgðir, allar vélar
og öll áhöld.
Tvisvar sinnum varð spreng-
ing í húsinu meðan eldurinn
geisaði, end var þarna mikið af
éldfimum efnum í tunnum, ol-
íum o. s. frv.
Þegar eldurinn kom upp,
voru tveir menn í húsinu, eftir-
litsmaðurinn Matthías Eyjólfs-
son og Sveinn Jónsson af-
greiðslumaður.
Það voru brezkir hermenn,
sem kölluðu til þeirra Sveins
og Ásmundar og sögðu þeim
að eldur væri, í þakhæð húss-
ins. Matthías stökk þegar upp,
en varð að hörfa undan, svo
magnaður var eldurinn þá þeg-
ar orðinn. Slapp Matthías með
naumindum út um aðaldyrnar.
Sveinn hörfaði og undan eldin-
um og ætlaði út um aðaldyrn-
a'r, en komst ekki. Var reykur
ægilegur og eitraður, og bjarg-
aði það lífi Sveins, að hann
náði í grímu og varði sig með
henni. Komst hann síðan út
um bakdyr hússins. Það skal
tekið fram, að rétt áður en vart
varð við eldinn hafði eftirlits-
maðurinn farið um húsið og
ekkert fundið athugavert.
V Slökkviliðið kom mjög fljótt
á vettvang, en þá var húsið
orðið alelda og var bersýnilega
ekki hægt að bjarga því. Snéri
slökkviliðið sér því að því að
verja næstu hús og tókst það,
þrátt fyrir mjög mikla erfið-
leika. Voru slökkviliðsmenn í
„asbest“-hlífðarfötum, enda
hefði ekki verið hægt að vinna
þetta björgunarstarf án þeirra.
Sjóklæðagerðin var mikið
fyrirtæki og unnu í henni um
70 manns.
Var aðalbyggingin úr timbri
12x20 metrar að stærð. Tvær
viðbyggingar voru við aðal-
bygginguna, önnur 9x14 metr-
ar, en hin 7X14 metrar.
■ Mjög lítið var um vatn og
torveldaði það björgunarstarf-
ið. Þá safnaðist þarna saman á
skömmum tíma mikill mann-
Frh. á 2. síðti.
Það vakti þess vegna athygli,
að allir vissu, hve þýðingar-
mikið land Irak er í þessari
styrjöld með hinum auðugu ol-
íulindum við Mosul. Og það
var einnig vitað, að Irak hafði
samning við England, sem
veitti því heimild til þess að
nota samgönguleiðir landsins
og flytja herlið um það í ófriði.
Sá grunur kom því fljótt upp,
að möndulveldin stæðu á bak
við uppreisnina, enda er það
nú komið á daginn.
Uppreisnarforinginn, Rasjid
Ali, lýsti því að vísu hátíðlega
yfir, eftir að hann hafði brot-
ist til valda, að hann myndi
halda samning þann, sem Irak
hafði við England. En samtím-
is fengu Bretar njósnir af því,
^að hann hefði snúið sér til Hitl-
♦-
Skattamálin á alþingi:
Sami persónflírádráttnr fyrir sveit
ir og kanpstaði ntan Reykjavíknr.
------4---„-
íhaldsmenn, kommúnistar og Framsókn
sýna kaupstððunum fádæma frekju.
QKATTALÖGIN voru til
2. umræðu í neðri deild
í gær og í dag kl. 11 f. h.
voru þau á dagskrá til 3. um-
ræðu. Við 2. umræðu lágu
allmargar breytingartillögur
frá fjárhagsnefnd deildar-
innar, og voru þær flestar
samþykktar ágreiningslítið.
Auk þess lágu fyrir ýmsar
breytingartillögur frá einstök-
um þingmönnum, meðal ann-
ars um persónufrádráttinn, sem
allmiklar deilur hafa orðið um
í þinginu.
írak er þýðingarmikið land í þessari styrjöld. Olíulindirnar suðaustur af Mosul eru meðal
þeirra auðugustu í heimi og næstar ófriðarsvæðinu við austanvert Miðjarðarhaf. Olían er
flutt í pípum 1100 km. leið tun eyðimerkur frá Mosul til hafnarborgarinnar Haifa í Pales-
tínu, sem er ein af aðalbækistöðvum brezka flotans við austanvert Miðjarðarhaf.
Efri deild breytti frv. þann-
ig, að persónufrádráttur í kaup-
stöðum, öðrum en Reykjavík,
og sveitum er ákveðinn hinn
sami um land allt, en áður hafði
verið gerður nokkur greinar--
munur á sveitum og kaupstöð-
um, þó hvergi nærri eins mik-
ill, eins og vitanle^t er, að
munurinn á framfærslukostn-
aðinum er. Er það hið mesta
ranglæti, að eigi sé tekið tillit
til dýrtíðarinnar í kaupstöðun-
um, þar sem persónufrádráttur-
inn á að vera miðaður við nauð-
synlegastan framfærslukostn-
að, sérstaklega þar sem - vitað
er, að skattalögin eru mjög vil-
holl sveitunum að öðru leyti,
þegar reiknaðár eru út skatt-
skyldar tekjur. Þ.eir, sem í efri
‘deild samþykktu þetta ranglæti
v | Frh. á 2. siðu. ;