Alþýðublaðið - 03.05.1941, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 03.05.1941, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XXn. ARGANGUR LÁUGARDAGUR 3. MAI 1941. : 105. TÖLUBLAÐ Sjðklæðagerðin brann i gær á einni kinkknstnnd. ----»...— Eitf mesta eldliaf, sem sésf taef^ lr taér i Reykjavík I seinni tíð. Bretar taka til sinna ráða gegn uppreisnarforingjannm í írak Hann bað Hitler um hjálp samtimis því, að hann lofaði að halda samninginn við Bretland 'T'IL ALVARLEGRA ÁTAKA hefir nú dregið í írak ♦ milli Rasjid Ali, flugumanns möndulveldanna, sem brauzt til valda þar á dögunum, og brezka herliðsins, sem sent var til landsins til þess að gæta hagsmuna Englands, samkvæmt samningi, sem verið hefir í gildi milli landanna árum saraan. N Harðir bardagar eru háðir í grennd við flugvöllinn Habbania, sem Bretar hafa byggt og er ein þýðingarmesta lendingarstöð á loftleiðinni ( frá Evrópu til Indlands og Austur-Asíu. Það voru hersveitir Rasjid Ali, sem hófu vopnavið- skiptin. .4|j|i Það vakti töluverða athygli úti um heim fyrir nokkru, þó að þýðing þess væri mönnum ekki fullkomlega ljós í fyrstu, þegar iþað fréttist, að upp- reisn hefði verið gerð í Irak, í Vestur-Asíu, hinni löglegu stjórn landsins steypt og upp- reisnarforinginn, Rasjid Ali, sezt í sæti hennar. ers og beðið hann um hjálp. Bretar tóku þá það ráð, að senda her til Irak, sjóleiðina til Basra við Persíuflóa, til þess að vera við öllu búnir. Var ekki amast við því á yfirborð- inu af stjórn Rasjid Ali, til að byrja með, en þegar Bretar (Frh. á 2. síðu.) Brelar oera gaga- árás við Tobroak. Bardagernir balda áfram. KKERT LÁT virðist enn vera á bardögunum um Tobrouk. Það er barizt í virkja- línunni utan um borgina. En í tilkynningu frá Kairo í gær-> kveldá var skýrt frá því, að Bretar hefðu gert mikla gagn- árás á hersveitir Þjóðverja og ítala og eyðilagt fyrir þeim ellefu skriðdreka. í tilkynningum Þjóðverja og ítala hefir enn ekki verið minst á áhlaup þeirra í Tobrouk, að- eins þess getið, að loftárásir hafi verið gerðar á borgina. HÚS Sjóklæðagerðar ís- lands h.f., Reykjavík- nrvegur 29 í Skerjafirði, brann til kaldra kola á einni klukkustimd í gærkveldi. Kom eldurinn upp kl. rúm- lega 9 og varð húsið alelda á svipstundu. Engu varð bjargað úr húsinu og brunnu þarna miklar vörubirgðir, allar vélar og öll áhöld. Tvisvar sinnum varð spreng- ing í húsinu meðan eldurinn geisaði, end var þarna mikið af éldfimum efnum í tunnum, ol- íum o. s. frv. Þegar eldurinn kom upp, voru tveir menn í húsinu, eftir- litsmaðurinn Matthías Eyjólfs- son og Sveinn Jónsson af- greiðslumaður. Það voru brezkir hermenn, sem kölluðu til þeirra Sveins og Ásmundar og sögðu þeim að eldur væri, í þakhæð húss- ins. Matthías stökk þegar upp, en varð að hörfa undan, svo magnaður var eldurinn þá þeg- ar orðinn. Slapp Matthías með naumindum út um aðaldyrnar. Sveinn hörfaði og undan eldin- um og ætlaði út um aðaldyrn- a'r, en komst ekki. Var reykur ægilegur og eitraður, og bjarg- aði það lífi Sveins, að hann náði í grímu og varði sig með henni. Komst hann síðan út um bakdyr hússins. Það skal tekið fram, að rétt áður en vart varð við eldinn hafði eftirlits- maðurinn farið um húsið og ekkert fundið athugavert. V Slökkviliðið kom mjög fljótt á vettvang, en þá var húsið orðið alelda og var bersýnilega ekki hægt að bjarga því. Snéri slökkviliðið sér því að því að verja næstu hús og tókst það, þrátt fyrir mjög mikla erfið- leika. Voru slökkviliðsmenn í „asbest“-hlífðarfötum, enda hefði ekki verið hægt að vinna þetta björgunarstarf án þeirra. Sjóklæðagerðin var mikið fyrirtæki og unnu í henni um 70 manns. Var aðalbyggingin úr timbri 12x20 metrar að stærð. Tvær viðbyggingar voru við aðal- bygginguna, önnur 9x14 metr- ar, en hin 7X14 metrar. ■ Mjög lítið var um vatn og torveldaði það björgunarstarf- ið. Þá safnaðist þarna saman á skömmum tíma mikill mann- Frh. á 2. síðti. Það vakti þess vegna athygli, að allir vissu, hve þýðingar- mikið land Irak er í þessari styrjöld með hinum auðugu ol- íulindum við Mosul. Og það var einnig vitað, að Irak hafði samning við England, sem veitti því heimild til þess að nota samgönguleiðir landsins og flytja herlið um það í ófriði. Sá grunur kom því fljótt upp, að möndulveldin stæðu á bak við uppreisnina, enda er það nú komið á daginn. Uppreisnarforinginn, Rasjid Ali, lýsti því að vísu hátíðlega yfir, eftir að hann hafði brot- ist til valda, að hann myndi halda samning þann, sem Irak hafði við England. En samtím- is fengu Bretar njósnir af því, ^að hann hefði snúið sér til Hitl- ♦- Skattamálin á alþingi: Sami persónflírádráttnr fyrir sveit ir og kanpstaði ntan Reykjavíknr. ------4---„- íhaldsmenn, kommúnistar og Framsókn sýna kaupstððunum fádæma frekju. QKATTALÖGIN voru til 2. umræðu í neðri deild í gær og í dag kl. 11 f. h. voru þau á dagskrá til 3. um- ræðu. Við 2. umræðu lágu allmargar breytingartillögur frá fjárhagsnefnd deildar- innar, og voru þær flestar samþykktar ágreiningslítið. Auk þess lágu fyrir ýmsar breytingartillögur frá einstök- um þingmönnum, meðal ann- ars um persónufrádráttinn, sem allmiklar deilur hafa orðið um í þinginu. írak er þýðingarmikið land í þessari styrjöld. Olíulindirnar suðaustur af Mosul eru meðal þeirra auðugustu í heimi og næstar ófriðarsvæðinu við austanvert Miðjarðarhaf. Olían er flutt í pípum 1100 km. leið tun eyðimerkur frá Mosul til hafnarborgarinnar Haifa í Pales- tínu, sem er ein af aðalbækistöðvum brezka flotans við austanvert Miðjarðarhaf. Efri deild breytti frv. þann- ig, að persónufrádráttur í kaup- stöðum, öðrum en Reykjavík, og sveitum er ákveðinn hinn sami um land allt, en áður hafði verið gerður nokkur greinar-- munur á sveitum og kaupstöð- um, þó hvergi nærri eins mik- ill, eins og vitanle^t er, að munurinn á framfærslukostn- aðinum er. Er það hið mesta ranglæti, að eigi sé tekið tillit til dýrtíðarinnar í kaupstöðun- um, þar sem persónufrádráttur- inn á að vera miðaður við nauð- synlegastan framfærslukostn- að, sérstaklega þar sem - vitað er, að skattalögin eru mjög vil- holl sveitunum að öðru leyti, þegar reiknaðár eru út skatt- skyldar tekjur. Þ.eir, sem í efri ‘deild samþykktu þetta ranglæti v | Frh. á 2. siðu. ;

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.