Alþýðublaðið - 27.06.1941, Page 1
Tnm ÁR/GANGUR FÖSTUÐAGUR 27. JÚNI 1941. 149. TÖLUBLAÖ
Vélahersveitir Þjóðverja komn
ar inn i hið gamla Rússland.
----—■»---
Stefna f áttina til Moskva.
VÉLAHERSVEITIR ÞJÓÐVERJA, sem brutust í gegn
um herlínu Rússa við Vilna, og Baranoviczi virðast
sækja mjög hratt fram, því að í herstjórnartilkynningu
Rússa í gærkvöldi var viðurkennt, að harðar orustur væru
nú háðar á svæðinu umhverfis Minsk, sem liggur við járn-
brautina frá Brest-Litovsk til Moskva, langt fyrir norð-
austan Baranoviczi og alllanga leið fyrir innan hin gömlu
landamæri Rússlands. En á báðum stöðum, þar sem véla-
hersveitir Þjóðverja brutust í gegn, stefndu þær í áttina
til Minsk, á öðrum staðnum í suðaustur og á hinum í norð-
austur. Ógurlegár skriðdrekaorustur eru sagðar vera háðar
vestan við Minsk. Vilna er nú á váldi Þjóðverja.
í herstjórnartilkynningu Rússa, sem barst til Lond-
on í morgun, er einnig talað um hrikalegar skriðdreka-
orustur um 140 km. norðaustur af Lemberg (Lwow) í Suð-
ur-Póllandi, en nánari fregnir af henni eru ókomnar.
Á öllum suðurhluta vígstöðvanna, frá Czernovitz í Buko-
vinu til Svartahafs, hafa Rússar enn hrundið áhlaupum Þjóð-
verja og Rúmena og haldið stöðvum sínum.
virtust sækja fram aðallega á
fjórum leiðum á austurvíg-
stöðvunum.
í fyrsta lagi í norðausturátt
um Lithauen og hin Eystrasalts
löndin í áttina til Lendngrad.
Þar virðast þeir þó enn ekki
vera komnir til landamæra
Lettlands.
í öðru lagi í austurátt um
norðurhluta Póllands í áttina
til Moskva. Þar hafa þeir nú
rofið herlínu Rússa milli Vilna
og Baranoviczi í hinu svo-
nefnda Baranoviczihliði fyrir
norðan Pripetflóana í Austur-
Póllandi og Ukraine. Það er
þessi leið, sem Napoleon fór
sumarið 1812, er hann fór hina
frægu og örlagaríku Rússlands-
för sína.
í þriðja lagi í austurátt um
Suður-Pólland fyrir austan
Lemberg áleiðis til Kiev.
Og í fjórða lagi frá Rúmeníu
í norðausturátt til Bessarabíu
og Odessa.
Hilljðaaherir.
Herstjórnartilkynningar
Þjóðverja eru enn sem fyrr
mjög þögular um það, sem ger-
ist á vúgstöðvunum.
í herstjórnartilkynningunni
í gær var þó sagt, að eftir úr-
slit fjölmargra landamærabar-
daga, sem hefðu gengið Þjóð-
verjum í vil, hefðu skapazt
stórfelldir möguleikar til fram-
haldssóknar.
Talsmaður þýzku stjórnar-
innar sagði í gærkvöldi, að
Þjóðverjar hefðu nú eina milj-
ón manna á vigstöðvunum og
aðra til vara og mxmdi sókn-
inni verða haldið áfram, hvað
sem hún kostaði af hergögnum
og mannslífum.
i '■ ■ .
lelð Napoleoos.
Hernaðarsérfræðingur
brezka útvarpsins skýrði frá
því í gærkvöldi, að Þjóðverjar
Rússar gera loftárás á oiíu-
lindasvæðið mikla i Rúmeníu.
Rússar gerðu stórkostlegar
loftárásir á Rúmeníu í gær, þar
á meðal á olíulindasvæðið
mikla við Ploesti, sem aldrei
áður hefir orðið fyrir loftárás.
Loftárásir voru einnig gerð-
ar á Bukarest, höfuðborg Rú-
meníu, Constanza, flotahöfnina
við Svartahaf, og Jassy. Gífur-
legt tjón er sagt hafa orðið í
loftárásunum, sem búið er að
gera á Constanza.
Þá hafa og Rússar haldið á-
fram loftárásum sínum á finsk-
ar borgir, og er talið, eftir því
sem Stokkhólmsfregnir herma,
að bækistöð hinna rússnesku
flugvéla í þeim árásum sé
Hangö, sem Finnar urðu að
leigja Rússum við friðarsamn-
ingana í fyrra.
; FA. á 2. aíðu.
Fyrsti ríkisráðsfundurinn undir forsæti ríkisstjóra
Fyrsti ríkisráðsfundurinn undir forsæti ríkisstjóra fór fram í morgun og flutti ríkisstjóri
ávarp við það tækifæri, en síðan voru lögin, sem alþingi afgreiddi lögð fyrir hann
til staðfestingar. — Á myndinni, sem tekin var af ríkisráðsfundinum, sjást: Fyrir fram-
an borðið Sveinn Björnsson ríkisstjóri. Á bak við það frá vinstri Eysteinn Jónsson við-
skiptamálaráðherra, Ólafur Thors atvinnuímálaráðherra, Hermann Jónasson, forsætisráð-
herra, Stéfán Jóh. Stefánsson félagsmála- og utanríkismálaráðherra og Jakob Möller fjár-
málaráðherra. Fyrir enda borðsins: Vigfús Einarsson skrifstofustjóri, ritari fundarins.
(Sjá ræðu ríkisstjóra á 3. síðu).
Útsvarsskráin komin:
Togarafélðgunmn hlift vlð út~
svðrum á kostnað almennings.
...♦ —
A€ 9 milljén kréna átsvarsupph»é alls bera pan
ekki nema 2 milljénir, en hefOu átf al fá 5,7 mill~
jénir ef sðmu reglum heféi verié fylgt og viO aéra.
T T TSVARSSKRÁ REYKJAVÍKUR kom út í morgun.4
^ Nemur öll upphæðin, sem jafnað hefir verið niður,
um 9,1 milljónum króna og er það um 3,2 millj. króna
meira en í fyrra.
Þrátt fyrir þessa hækkun heildarupphæðarinnar hefir
útsvarsstiginn verið lækkaður mjög verulega. Útsvör á
öllum almenningi eru því mun lægri en í fyrra og hefðu
þó getað verið miklu lægri, ef lagt hefði verið á stríðs-
gróða togaraútgerðarinnar samkvæmt sömu reglum og lagt
var á aðra gjaldendur.
Togarafélögin, ellefu talsins, bera ekki nema rúmar 2
milljónir króna af allri útsvarsupphæðinni, en hefðu, ef
fullt réttlæti hefði verið viðhaft gagnvart öðrum gjald-
endum, átt að bera 5,7 millj. króna.
Mikill ágreiningur varð í niðurjöfnunarnefndinni út af
þessu. Fulltrúi Alþýðuflokksins, Ingimar Jónsson, lagði til að
3,9 millj. króna. yrðu lagðar á togarafélögin og taldi sig með
þeirri tillögu hafa gengið svo langt í ívilnunum við þau, sem á
nokkurn hátt væri hægt að verja, enda var áður komin fram
Frh. af 2. síöu.
BræðslHSfldarverðið
hefir ifl verið iliei
Té"T2*b. iálið.
Sildarverksmiðjur rikisins
kefja starfsemi 10. júlí.
___ j
RIKISSTJÓRNIN hefir nú fall-
ist á ti'llögiur, sem síjóru
síldarverksini'ðja rikiisins lagði
fyrir hana um starfrækslu veik-
smiðjanna i sianar iOjg sagt var
fná her í blaiðiniu í fyrradajg'. ;
Samkvæmt því byija síldarvetk-
smiðjiur ríbásins. bæði á Sigliu-
firði og Raufarhöfn, að taka á
móti síld þ. 10. júlí eg greiða 12
fcr. fyrir análið. . , . i