Tíminn - 11.06.1963, Page 2
í kringum 1920, þegar Frakk-
ar eru að jafna sig eftir heims-
styrjöldina, er allt í einu sér-
kennilegt glæpamál á döfinni
meðal þeirra. Maður nokkur að
nafni Landru er dæmdur til líf-
láts fyrir að hafa myrt ellefu
konur til fjár. Mál þetta hefur
aldrei gleymzí fullkomlega, því
að' það er svo lifandi dæmi upp
á það, hve auðvelt getur verið
að komast upp með óþokkaskap
þegar nákvæm skipuilagsstarf-
semi tekur við af mannlegum til-
finningum.
Nú hefur vorið gerð kvikmynd
urp þetta mál og hefur Franco-
ise Sagan gei't kvikmyndahand-
rilið og Claude Chabrol stjórn-
að kvikmyndinni. Bæði hafa þau
haldið sér fast við staðreyndirn
ar oig ef einhverju er bætt
inn í, þá eru það atriði, sem vei
gætu hafa átt sér stað.
Kvikmyndahandritið hefur ver
ið' gefið út í bók og eru hér nokkr
ar glefsur úr bókinni, sem jafn-
framt útskýra dálítið eðli máls-
ins.
Landru valdi fórnarlömb sín
mjög vandlega: 45 ára gamall
herramaðiur, ókvæntur og fjöl-
skyidulaus, mikil auðæfi fytrir
utan rentur, óskar eftir hjóna-
bandi með álíka stöndugri konu.
Og það stóð ekki á svörunum:
Kæri herra, bréf yðar hefur
snortið mig mjög. Eg er ekki
einungis á höttumum eftir lífs-
förunauti, heldur og föður fyrir
börnin min sex . . . Sex börn,
hún er bandvitlaus. (Hann kast-
ar bréfinu frá sér og opnar ann-
a'ð). Kæn herra, ég á ekki nema
2000 franka, en hver veit . . .
Og ég sem býð upp á 4000 franka
kemur ekki til mála. (Hann fleyg
ir þessu bréfi og tekur annað).
Kæri herra, af hreinni tilviljun
rakst ég á auglýsingu yðar, ég
er nefnilega ekki ein af þeim
konum, -iem er í ævintýraleit,
en samt veit ég að eimhvers stað
ar er sál, sem einungis bíður
eftir mér, einmanaleikinn hlýt-
ur að taka enda . . . Andskot-
ans skrift er þetta.
Og þannig gengur það, þang-
að til að hann loksins finnur
bréf, sem honum líkar. Þrátt fyr-
ir alla þessa starfsemi vanrækir
hann ekki að heimsækja fjöl-
skyldu sína, eiginkonu og fjög-
ur börn, fyrir utan hjákonuna,
og hann laumar að þeim pen-
ingum, þegar viðskiptin hafa
gengið vel hjá homum.
í eitt skipti sitja þau hjónin
HENRI LANDRU, hinn ófyrirleitni
kvennamorðingi.
heima og frúin kveður upp með
það, hvað það sé hræðilegt, að
10 þúsund manns skuli hafa far-
izt í styrjöldinni. Og Landru svar
ar: Hvað er það svo sem, lífið
er ekkert nema blóð'súthcllingar,
bardagar vina mín. Konan er
hiædd þegar hún eignast son
sinn, og sonurinn er hræddur,
þgar að dauða hans er kom-
ið. Jafnvei böðlarnir eru hrædd-
ir við fórnarlömb sín. Frú
Landru svarar þá og spyr hann,
hvernig hann geti sagt svona
hluti að börnunum viðstöddum.
PRINCE-SYSTUR
Þarna eru PRINCE-SYSTUR staddar vlð höfnina í Reykjavík.
Hótel Borg er mjög vin-
sæll staður hjá unga fólkinu
um þessar mundir og ekki
hafa vinsældirnar minnkað
við það, að þar skemmta nú
fyrsta flokks skemmtikraftar
Prince-systur, og barnum
hefur nýlega verið breytt
mjög mikið til batnaðar.
Prince-systur eru ættaðar
frá Skotlandi, nánar tiltekið
Coatbrigde, sem er rétt fyr-
ir utan Edinborg, og var fað
ir þeirra búktalari, þannig
að þær komust snemma inn
í skemmtanabranzann. Fyrst
í stað sungu þær í skólakór-
um og öðru þess háttar, en
það leið ekki á löngu, áður
en þær fóru að koma fram
opinberlega
Þær komu hingað snöggv-.
ast í fyrra og leizt þá svo vel
á landið, þrátt fyrir vetrar-
veður og kulda, að þær á-
kváðu að koma hingað aftur
og skemmta á Borginni í um
það bil mánuð. Og hingað
komu þær þann 26. marz og
verða að minnsta kosti út
júnímánuð, ef ekki lengur.
Héðan halda þær áfram til
Ítalíu, því næst Kaupmanna-
hafnar, Aþenu og Spánar.
Þær eru mjög hrifnar af
góða veðrinu, sem þær eru
svo heppnar að fá, ís-
lenzka matnum og ekki sízt
íslenzku hljóðfæraleikurun-
um, en þær segja, að hvergi
sé eins mikið úrval af góð-
um hljómlistarmönnum. sem
fást við létta hljómlist.
Annars kunna þær vel við
sig á ferðalagi og áður en
þær komu hingað voru þær
18 mánuði í Kaupmanna-
höfn og svo voru þær í
Malmö og Stokkhólmi í Svi-
þjóð. í ísrael voru þær i tvö
ár og þar höfðu þær m. a.
sin eigin sjónvarpsþátt-
sem þær sáu um að öllu leyti
og urðu þá bæði að syngja
á hebresku og arabisku.
Nú eru þær að æfa sig
að syngja á íslenzku og er
eftir að vita hvernig það
tekst.
Landru á landareign fyrir utan '
París og þangað fer hann með
fórnarlömb sín, enskum hjónum,
sem búa þar rótt hjá, til mikill-
ar óánægju Áhorfendui fá ekki
strax að vita hvernig hann losar
sig við likin, en í hvert skipti,
sem hann er í ástaratriði með ein
hverri stúlku sýnir kvikmynda-
vélin éhorfendunum ensku ná-'
grannana, sem kvarla sáran und
an þessari hryllilegu lykt, sem
stafi frá heimilum Frakkanna.
Það virðist ekki vera einkenni-
legt, þegai kemur upp á daginn,
að Landru brennir allar kvinn-
urnar í stórri eldavél, eina og
eina í einu.
Þrátt fyrir alla varkárni og
nafnabreytingar, hefur lögregl-
an upp á honum einn góðan veð
urdag í gegnum systur eins fórn
arlambsins. Öskuhiúgur með ör-
yggisnælum í og sviðnum manna
beinum eru lagðar fram í réttin
um sem sönnunargögn, en allt
kemur fyrir ekki, Landru neit-
ar öllum ásökunum. En svo fór
þó að lokum, að hann var dæmd-
ur til líflats. Nokkrum mínútum
fyrir aftökuna talast þeir við
Landru og málsverjandi hans:
Henri, segir lögfræðingurimn,
þú veizt, að ég hef varið þig
sem bróður minn. Það veit ég,
svarar Landru, og ég er þér þakk
látur Mer finnst bara leiðin-
legt, að hafa beðið þig að verja
mál, sem hafði svo slæman endi.
Nú þegar þú hefur engu að
tapa, heldur málsverjandinn á-
fram, ættirð'.’. að segja mér
hvort þú drapst þær eða ekki.
Kæri vinur, seegir Landru, það
get ég ekki sagt þér, það verður
að vera mín byrði.
Áðalskoðun bifreiða
í Skagaf jarðarsýslu og á Sauðárkróki
Aðalskoðun bifreiða 1963 í Skagafjarðarsýslu og
Sauðárkrókskaupstað fer fram sem hér segir:
Á Sauðárkróki:
Föstudag 21. júní kl. 10—17
Laugardag 22. júní kl 10—17
Mánudag 24. júní kl. 10—17
Þriðjudag 25. júní kl. 10—17
Skoðunin fer fram við vörubilastöðina á Sauðár-
króki.
í Hofsósi:
Miðvikudag 26. júní ki 10—15.
Fimmtudag 27. júní kl 10—15
Í Haganesvík:
Laugardag 28. júní, kl. 10—13.
Við skoðun ber að sýna skilríki íyrir greiddum bif-
reiðagjöldum og lögboðinm vátryggingu fyrir
hverja bifreið. Þeir, sem haía útvarpsviðtæki i
bifreiðum sínum, skulu við skoðun sýna kvittun
fyrir greiðslu afnotagjalda
Vanræksla á að færa bifreið til skoðunar á hinum
auglýsta tíma varðar ábyrgð skv. umferðarlögum,
svo mega og hlutaðeigendur búast við, að slík bif-
reið verði tekin úr umferð án írekara fyrirvara.
Geti eigandi eða umráðamaður bifreiðar eigi fært
hana til skoðunar á auglýstum tíma, ber honum
að tilkynna það bréflega eða á annan tryggilegan
hátt.
Þetta er hér með tilkynnt ölium þeim, sem hlut
eiga að máli.
Sýslumaðurinn í Skagaf jarðarsýslu,
Bæjarfógetinn á Sauðárkróki,
6. júní 1963
Stakir
STAKAR
DRENGJABUXUR
frá 3—13 ára.
DRENGJAJAKKAFÖT
frá 6—14 ára
GALLABUXUR
unglinga kr. 130,—
ÐRENGJASPORT-
SKYRTUR
HVÍTAR
DRENGJASKYRTUR
DRENGJAPEYSUR
ÆÐARDÚNSSÆNGUR
HANDHREINSAÐUR
DÚNN
DÚNHELT LÉREFT
KODDAR - SÆNGURVER
GÆSADÚNN
ÆÐARDÚNN
HÁLFDÚNN — FIÐUR
PATONSULLARGARNIÐ
að koma ný sending
Póstsendum
Vesturgötu 12. Sími 13570
2
TÍMINN, þriðjndjgtnn 11, fúní 19S3