Tíminn - 21.06.1963, Blaðsíða 3

Tíminn - 21.06.1963, Blaðsíða 3
Keeler hótað lífláti — lögregla á stáfana NTB-Lundúnum, 20. júní f gærkvöldi gerði brezka lög- reglan víðtækar öryggisráðstafan- ir til verndar hinni frægu og margumtöluðu Ijósmyndafyrár- sætu, Christine Keeler, eftir að henni höfðu borizt með skömmu millibili í gegnum síma, þrjár líf- látshótanir. Talsmaðui brezku lögreglunn- ar sagði í dag, að full ástæða væri til að ætla, að alvara væri á bak við þessar hótanir og líf ungfrúar- innar væri raunverulega í hættu. Einkennis- oig borgaralega klæddir löigreglumenn tóku sér viarðstöðu á götunum í kringum húsið, þar sem Keeler býr ásamt vinkonu sinnj og starfssystur, Paula MarshalL Lögreglan skipaði ungfrúnni að hialda siig innian dyra, þar til talið yrði, að hættan væri liðin hjá, en ef hún þyrfti nauðsynlega að fara út, mætti hún það ekki nema í löigreglufylgd. Þá var henni sagt að vera á varðbergi gagnvart öUum, sem leið ættu fram hjá húsinu cig bæru einhverja pinkla eða yfir- hafnir, sem vopn gætu verið fal- in í. f morgun var ekki vitað um, hvort eindhverjir hefðu verið handteknir í siambandi við málið. HVITA HUSIÐ 0G KREML FJARSKIPTASAMBANDI! NTB—Genf, 20. júní. Klukkan fjögur í dag undir- ritut'u fuUtrúar stjórna Banda- ríkjanna og Sovétríkjainna samn ing tun að kom'ið verðl á beinu fjarskiptasambandi miUi Hvíta hússins í Washington og Kreml í Moskvu. Tilgangiu-inn með þessu be'nna sambandi mlUi æðstu manna stórveldanna tveggja er aS gera þeim kleift að ná tafarlausu sambandi hvor við annan á hættutímum, svo sem ef útlit yrði fyrir styrjöld eða önnur vopnaviðskipti, þótt í minni mæli væru. Viðræður hafa lengi staðið yfir um slíkt símasiamtoand milli Moslrvu og Washington, og í fyrrasumar var allt útlit fyrir samnmtg þar að lútandi, en ekki varð af. Samningurinn í dag var und- irrita'ður af fuMtrúum rlkjanna á afvopnunaráðstefnunni i Genf, þeim Charles Stelle fyrir hönd Bandarikjanna og Semjon Zarapkin af hálfu Sovétríkj- anna. Má raunar segja, að þessi samningur sé eina málið, sem endiamlega hafi fengið af- greiðslu á afvopnunarráðstefn unni. Fjarskiptaisambandið liggur um Lundúni, Kaupmannahöfn, Stokkhólm og Helsingfors. Er um tvöfalt kerfi að ræða og verður hægt að ná sambandi hvenær sem verkast vill á sólar hringnum. Á endastöðvunum í báðum ríkjum verða alls konar tæki, m.a. upptökutæki, ritsíma stöð og verður auk þes® mögu- legt að snúa á skömmum tima orðsendingum af rússnesku yf- ir á emsku og öfugt. Hvor aðili um sig stendur straum af kostn aði við endastöðina í sínu ríki. Haft er eftir sérfræðimgum við alþjóðlegu fjarskiptastöðina í Genf, að hægt verði að koma þessu saanbandi á á skömmum tíma, í mesta lagi nokkrum vik um. Frá Lundúnum berast þær fréttir, að Bretar séu mjög óá- nægðir yfir þessu samkomulagi oig geri sér vonir um að fá að vera mieð, þótt ekki verði það strax. Fréttaritarar segja, að hér sé um mikilvægam' samnimg að ræða, sem geti flýtt fyrir samn ingum í áföngum um algera af- vopnun. INNRAS GERÐ A KUBU? NTB-Miami, 30. júní. Talsmaöur byltingarráös kúbanskra útlaga skýrði frá því, að innrás hefði verið gerö á Kúbu, og hefðu fyrstu innrásar hersveitirnar fengið góðar móttökur h]á bændum við landgöngustaöina. HBWHHamMmBgT'' —ia«iM»Bamii«awa Talsmaður byltingarráðsins gaf ekki frekari upplýsingar, en sagði, að innrásarherirnir hefðu tekið land á tveim stöðum. Heimildir frá Kúbu herma, að í innrásarliðinu séu 500 hermenn. í tilkynningunni frá byltingar- ráðinu segir, að hermenn hafi gengið á land á mörgum stöðum á eyjunni og stæðu bændur með iinnrásarmönnum. Frá því er enn fremur skýrt, að næst muni byltingarráðið senda út tilkynningu um ástandið annað kvöld rétt fyrir kl. 8. Framhald á 15. síðu. NTB—Beirút, 20. iúní. — Fjórlr stiórnarmeðiimir í írak hafa sagt af sér, vegna aðgerSa stjórnarinnar gegn Kúrdum í fjallahéruðum Norð ur-fraks. Þessir fjórir ráðherrar tóku allir bátt í vlðræðum við foringja Kúrda, Mustafa Al Barzani, í fyrra. — Moskvublaðið Pravda gaf í skyn í dag, að Sovétstjórnln mundl senni lega hætta fjárhagsaðstoð við írak, ef stjórnin þar létl eldci af aðgerð- um sínum gegn Kúrdum. NTB—Rabat, 20. júní. — Fjöldi Bandaríkjamanna, sem vinna við amerísku flotastöðina I Lyaute, sem er um 40 km. frá Rabat í Marokkó, hafa verið handieknir, grunaðir um að hafa látið marokkönskum borgur um vopn í té. Nöfn hinna handteknu verða ekki gefin upp fyrr en ýtar- leg rannsókn hefur farið fram. NTB—Vientiane, 20. júní. — Her- sveitir Pathet-Lao-kommúnista gerðu í dag harða árás á bæinn Attopeu, skammt frá landamærunum við S- Vietnam, og stóðu bardagar milli þeirra og hermanna hægrislnna, undir stjórn Poumi Nosavan, í hálfa klukkustund. — íbúarnir, sem eru um 5000 talsins, flýðu flestir heim- ili sín. NTB-Lundúnúm, 20. júní. f neðrj deild brezka þingsins var í daig samþykkt einróma til- laga frá íhaldsforingjanum Ian Macleod um harðar vítur á fyrr- verandi hermálaráðherra Breta, Prefumo, fyrir að hafia gefið ranga yfirlýsingu í þinginu hinn 22. marz um samiband sitt við gleðikonuna Christine Keeler, en þessa yfirlýsimgu tók Profumo aft- ur, ei,us og kunnugt er, og baðst um leið lausnar. Eins og áður segir var tillagan borin fram af íhaldsmönnum, en þingmenn Verkamannaflokksins samþykktu hana einróma. í dag ræddi Macmillan, forsæt- isráðherra við Harold Wilson, formann Verkamannaflokksins um, hvernig haga bæri framhalds rannsókn á Profumo-málinu með sérstöku tilliti til þeirra atriða, er varða öryggi ríkisins. Ekki náðu þeir samkomulagi, og munu því hittast aftur innan tíðar, að því er áreiðanlegar fréttir herma. Reuter skýrir svo frá, að Verka- mannflokkurinn hafi krafizt þess, að skipuð verði sérstök nefnd, sem hafi fulla heimild til að kalla hvern sem er til yfirheyrslu um atriði, er varða Profumo-málið, jafnvel forsætisráðlverrann sjálf- Við umræður um málið í þing- inu sagði George Brown, þing- maður Verkaman'naflokksins, að sum atriði þessa máls væru raun- verulega of andstyggileg til þess að hægt væri að hreyfa við þeim, en þrátt fyrir það yrði þingið að ; láta kryfja mál'ið til mergjar. MONTIN! OG LERCAR NTB—Róm, 20. júní. Tvisvar í dag steig svartur reykur upp af reykháfnum á Sixtinsku kapellunni í Vatikan inu, þar sem 80 kardínálar em innilokaðir, þar td þeir hafa kosið nýjan páfa. Reykmerkin í dag þýða, að kardínálarnir hafa ekki orðið sammála um kjör nýs páfa og endurtaka því atkvæðagreiösl- ur þar til einn hefur fengið nægan meirihluta. Fjöldi manns hafði safnazt saman fyr ir utan kapelluna tii að fylgj- ast með framvindu mála. Þótt ekki sé neltt óeð'lilegt a3 atkvæðagreiðsla fyrsta dag 3nn hafi ekki borið árangur, ei það samt mál manna, að nú sé sýnt, að hvorkl Montini né Lercaro, erklbiskupar, sem tald ir voru standa næst kjöri, verði fyrir valinu, þar sem ekki hafi myndazt um annan hvor»t þeirra meirihluti í fyrstu Iotu. Telja nú margir, að atkvæðl kunni að falla á einhvern þriðja mann, sem gengið gæti milli veg mllll hinna tveggja stríð- andi fylkinga meðal kardínál anna, hægri og vinstrl. Þessi mynd gæti verií tákn þeirrar baváttu, sem háð liefur verið fyrir jafnrétti blökkumanna við livita Bandaríkjunum. Hið nýja t'rumvarp Kennedys felur i tunverulega í sér alger jafnréttis stöðu svertingja, en þrátt fyrir góða viðleitni forsetans er ekki vitað. hvei örlög frumvarpsins verða cg er þegar ijóst, að hörð barátta verður um það í þinginu og hafa nokkrir þingmenn demó- kivta úr Siiðiiri-íkjunum I'óh'>ð rnálþófi á O.ngi sil ag hindra fram- gang frumvarpsiins. T í M I N N, föstudagurinn 21. júni 1963. — 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.