Tíminn - 21.06.1963, Blaðsíða 7

Tíminn - 21.06.1963, Blaðsíða 7
Útgefsndl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Frarakvæmdastjóri: Tómas Árnason. — Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. FulLtrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Frétta- stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórmarskriístofur í Eddu húsinu, símar 18300—18305. Skrif stofur Bankastr. 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523. Aðrar skrifstofur, sími 18300. Áskriftaingjald kr. 65.00 á mán. innan- lands. í lausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. — Hin „heiðarlega“ kosningabarátta Nokkru fyrir seinustu áramót var fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 1963 til umræðu og af- greiðslu í borgarstjórninni. Blöð borgarstjórnarmeirihlut- ans héldu því þá mjög fram, að það bæri vott um góða stjórn borgarinnar, að ekki væri gert ráð fyrir teljandi hækkun á heildarupphæð útsvaranna í fjárhagsáætlunni. Þetta sýndi, að kjósendum væri óhætt að treysta Sjálf- stæðismönnum til góðrar fjárstjórnar. Haldið var svo ospart áfram að hampa þessu fram yfir þingkosningarnar. Nær strax eftir þingkosningarnar, breyttist svo skyndi- lega veður í lofti. Þá eru fyrirvaralítið kallaðir saman fundir í borgarráði og borgarstjórn, þar sem borgarstjóri skýrh* frá því, að nauðsynlegt sé að hækka útsvörin um 30 milljónir kr. frá því, sem fjárhagsáætlunin gerði ráð fyrir. Þetta var svo samþykkt af fulltrúum Sjálfstæðis- flokksins og Alþýðuflokksins. Ástæðurnar, sem voru færðar fyrir þessari útsvars hækkun, voru væntanlegar hækkanh* á launum starfsfólks borgarinnar. Sú hækkun var fyrirsjáanleg, þegar fjár- hagsáætlunin var afgreidd fyrir áramótin, enda bentu full- trúar Framsóknarflokksins þá á, að nauðsynlegt væri að taka tillit til hennar. Á það var ekki hlustað. Um það eitt var hugsað að búa til f járhagsáætlun, sem liti vel út fyrir kosningar. Þetta er eitt af mörgum dæmum þess, hvernig stjórn- arflokkarnir hafa búið til áferðarfallegar áætlanir og skrumauglýsingar fyrir kosningarnar. Eftir þær kem- ur svo raunveruleikinn til sögunnar. Þá fá kjósendur að kynnast því, hvernig þeir hafa verið blekktir. Stjórnar- liðar treysta því hins vegar, að það verði gleymt fyrir næstu kosningar. En málgögn og foringjar stjórnarliðsins halda sig samt áfram við sama heygarðshornið Morgunblaðið og Al- þýðublaðið eiga ekki nógu sterk orð til að lýsa því hve síjórnarflokkarnir hafi háð blekkingalausa, heiðarlega og virðulega kosningabaráttu! Undh* þessa „blekkingalausu“ og „heiðarlegu“ kosn- mgabaráttu flokka stjórnarblöðin vafalaust þessa 30 millj. kr. hækkun útsvara, sem haldið var leyndri fyrir kjós- endum fram yfir 9. júní! tJtsvarsstiginn í blöðum borgarstjórnarmeirihlutans er því nú haldið fram, að það þýði lækkun útsvara, að veittur er 17% afsláttur frá útsvarsstiganum. Hið rétta er, að útsvarsstiginn er miðaður við miklu lægri tekjur en nú. Vegna dýrtíðarinnar hafa laun manna stórhækkað í krónutölu, þótt raunverulegur kaupmátt- ur hafi ekki aukizt. Hækkun launanna þýðir það, að út- svörin, sem leggjast á þau, hækka. þótt kaupmátturinn .itandi í stað. Því mun þetta verða í reynd þannig, að þrátt íyrir 17% afslátt frá útsvarsstiganum, munu t. d. verka- menn greiða hærra útsvar nú en fyrir 2—3 árum, þótt kaupmáttur launanna hafi síður en svo aukizt. Það er því ekkert annað en hrein blekking, þegar stjórnarblöðin eru að gefa í skyn að útsvörin lækki um 17%, eins og menn munu líka sannfærast um næstu daga. Skattseðlarnir munu sýna mönnum. hvernig stjórnar- hðið reynir að blekkja fólk á allan hátt. MJÖG er nú rætt um, að Mac- millan muni bráðlega biðjast iausnar. Sá maður, sem myndi verða álitlegasti eftirmaður hans, er Halisham lávarður, en sá galli er á, að hann má ekki vegna tignar sinnar taka sæti í neðri deildinni. Nú liggur hins vegar fyrir lagafrumvarp, sem myndi leysa hann undan þessari kvöð, ef það yrði samþykkt. Þing ið mun f jalla um það innan fárra vikna og ef til vill frestar Mae- millan lausnarbeiðni sinni á með an. Nýlega var haldln i höfuðborg Ethiopíu, Addis Abeba, ráðstefna 29 þjóðhöfðingja í Afríku, sem talin er hafa stuðlað að aukinni einingu Afríkuríkja. Á myndinni sést Haile Selassie, keisari Ethio- píu, vera að taka á móti Nkrumah, forseta Ghana. Mynd þessi var tekin nú í vikunni af Profumo, fyrrverandi hermálaráðherra Breta, og Valerie Hobson, konu hans og fyrrv. leikkonu, sem staðið hefur örugglega við hlið manns sins að undanförnu, þrátt fyrir þau hjúskaparbrot, sem hann hefur orðið uppvís að. T í M I N N, föstudagurinn 21. júní 1963. — 1

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.