Tíminn - 27.08.1963, Síða 14

Tíminn - 27.08.1963, Síða 14
I Í64 ÞRIÐJA RIKID WILLIAM L. SHIRER bardögum ætti Þýzkaland aftur að' verða val.damikið: 1. Baráttunni við hinar vinnandi stéttir — Hitler hefur sigrað 'hér. 2. Baráttunni gegn kaþólsku kirkj- unni eða ef til vill nánar til tekið þeim, sem styðja algjör yfirráð páfans, og 3. í baráttunni við Gyðingana. Við stöndum nú í miðjum þess- um bardögum, og sá við Gyðing- ana verður erfiðastur. Ég vona, að all'ir geri sér grein fyrir því, hversu flókinn þessi bardagi er. Þegar styrjaldarskýin fóru að dökkna 7. ágúst 1939, skrifaði hann enn tU barónessunnar: „Fyr- ir mig verður aldrei neitt hlutverk í Þýzkalandi Herr Hitlers, hvorki á friðar- eða ófriðartímum. Ég mundi einungis fylgja eftir her- deild minni sem skotmark, þar sem ég get ekki haldið kyrru fyrir !heima.“ Þetta var það, sem hann gerði. Hann hafði verið gerður ofursti yfir herdeild sinni 11. ágúst 1938, 13. stórskotaliðsdeildinni, en þetta var aðeins heiðursnafnbót. Hann varð síðan skotmark pólskrar skyttu úti fyrir hinni umkringdu Varsjá 22. september 1939, og fjórum dögum síðar var hann jarð- settur samkvæmt ströngustu her- regl'um í Berlín á köldum og dimm um rigningarmorgni, emhverjum drungalegasta degi, sem ég nokkru sinni upplifði í höfuð- borginni samkvæmt dagbók minni. Með því að setja Fritsch af sem æðsta yfirmann þýzka landhersins, tuttugu mánuðum áður, hafði Hitler unnið algjöran sigur y-fir síðasta aridstöðuvirkinu innan Þýzkalands, hinni gömlu, vana- föstu liðsforingjasveit landhers- ins. Og vorið 1938 hafði ihann enn styrkt aðstöðu sína yfir hernum með hinu velheppnaða hernám' Austurríkis, og með því að sýna hugdjarfa forystu og leggja á- herzlu á, að hann einn myndi taka allar ákvarðanir um utanrikis- stefnuna, og það væri hlutverk hersins að leggja til valdið eða ógnunina um valdbeitingu. Þar að auki hafði hann veitt hernum bætta hernaðarlega aðstöðu án þess svo mikið sem fórna einum manni, og þetta hafði gert Tékkó- slóvakíu óverjandi frá hernaðar- legu sjónarmiði. Það mátti engan tíma missa, áður en þessarar að- stöðu yrði neytt. Ellefu dögum eftir Nazista-þjóð- aratkvæðagreiðsluna í Austur- ríki, þ.e. 21. apríl, kallaði Hitler Keitel hershöfðingja til sín, æðsta yfirmann herstjórnar herjanna, til þess að ræða hernaðaraðgerð- ina, „Grænt.“ LeiSih til MUnchen „Grænt“ var dulnefnið á áætlun um óvænta árás á Tékkóslóvakíu. Áætlunin hafði fyrst verið gerð 24. júní 1937, af von Blomberg marskálki, og Hitler hafði farið um hana mörgum orðum í lestri sínum yfir hershöfðingjunum 5. nóvember, og þá áminnti hann þá um það, að „árásin á Tékka“ yrði að vera framkvæmd „með leiftur- hraða“ og vel gæti verið, að hún yrði gerð „þegar á árinu 1938“. Auðvitað gerði hinn auðveldi sigur yfir Austurriki „Áætlun grænt“ áríðandi. Fara yrði að nýju yfir hana, og byrja yrði á undirbúningi að því að fram- kvæma hana. Það var af þessum ástæðum, sem Hitler kallaði Kei- tel til' sín 21. april 1938. Næsta dag útbjó Rudolf Schmundt majór, og hernaðarlegur aðstoðarmaður formgjans, yfirlit yfir viðræðurn- ar, og var því skipt í þrjá kafla: „stjórnmálahorfur“, „hernaðarleg- ar niðurstöður" og „áróður“. Hitler hafnaði algjörlega „hern- aðarárás, sem kæmi eins og þruma úr heiðskíru lofti án ástæðu eða möguleika til þess að réttlæta hana“ vegna „óvinveittrar afstöðu heimsins, sem síðan gæti leitt til alvarlegs ástands". Hann áleit, að annar kosturinn; „aðgerðir eftir að diplómatískar viðræður hefðu staðið um nokkurn tíma, en leiddu síðan smátt og smátt til alvarlegr- ar misklíðar og styrjaldar“ væru „óæskilegar, því að Tékikar (,,Grænt“) myndu grípa til ör- yggisráðstafana sinna, áður en þetta yrði.“ Foringjanum leizt bezt á þriðja kostinn, þegar hér var komið sögu: „Leifturárás, vegna atviks (til dæmis morðs á þýzka sendiherranum á meðan á and-iþýzkum mótmælaaðgerðum stæði). Slíkt „atvik“, eins og við munum, átti einu sinni að réttlæta innrás Þjóðverja í Austurríki, og þá átti Papen að véra fórnarlamb- ið. í hinni þýzku glæpamanna- veröld Hitlers máttu sendiherr- arnir sannarlega missa sig. Þýzki herkonungurirn, sem hann var nú orðinn — eftir að hann hafði sjálfur tekið að sér yfirherstjórnina — lagði á það mikla áherzlu við Keitel hers- höfðingja, að hraðinn yrði sem mestur í aðgerðunum. — Fyrstu fjórir dagar hernað- araðgerðanna skipta öllu máli, stjórnmálalega séð. Á meðan ’ckki er hægt að tala um stórglæsileg- an hernaðarsigur, er hætta á því, að til átaka komi í Evrópu. Full- gert verkið verður að fullvissa er- lend ríki um gagnsleysi þess að grípa til hernaðaraðgerða gegn Þjóðverjum. Enn var ekki kominn tlmi til þess að kalla á Göbbels í sambandi við áróðurhlið styrjaldarinnar. Hitler ræddi aðeins lauslega um bæklinga „um framferði Þjóð- verja í Tékkóslóvakíu" og um aðra, sem áttu að innihalda' „hót- anir ætlaðar lil þess að hræða Tékka.“ Lýðveldið Tékkóslóvakía, sem Hitler var nú ákveðinn í að leggja í rúst, var sköpunarverk friðar- sáttmálanna, sem Þjóðverjum var svo óumræðilega illa við eftir fyrri heimstyrjöldina.- Lýðveldið var einnig handaverk tveggja^ merkilegra tékkneskra vitsmuna- munamanna, Tomás Garrigue Masaryk, sjálfmenntaðs sonar öku manns, sem varð að þekktum frelsara og fyrsta forseta landsins, og Eduard Benes, bóndasonar, sem vann fyrir sér, á rneðan hann siundaði nám við Háskólann í Prag og þrjár æðri menntastofn- anir í Frakklandi, og varð annar forseti landsins, þegar Masaryk hætti 1935, en fram til þess hafði hann næstum óslitið verið utan- ríkisráðherra landsins. TékkcsTó- vakía, sem skorin hafði verið út úr Habsborgara-ríkinu, en því hafði áskotnazt Konungdæmið Bæ heimur á sextándu öld, hafði nú þróazt í að verða eitthvert lýð- ræðislegasta, framsæknasta, upp- lýstasta, og bezt megandi ríki í Mið-Evrópu, eftir að það var stofn að árið 1918. En vegna þess að það var mynd að af allmörgum mismunandi þjóðernum, hafði það allt frá upp- hafi verið undirlagt af innanríkis- vandamálum, sem því í meira en tuttugu ár hafði ekki tekizt að leysa. í landinu voru ein milljón Ungverja, hálf milljón Rutheni- menn og þrjár milljónir og 250 þúsund Súdeta-Þjóðverja. Þessar þjóðir horfðu löngunaraug- um í áttina til „föður“landa sinna, Ungverjalands, Rússlands og Þýzkalands, eftir því sem við átti, enda þótt Súdetarnir hefðu aldrei tilheyrt Þýzka ríkinu (nema hluti af hinu losaralega Heilaga róm- verska ríki), heldur aðeins Aust- urríki. Að minnsta kosti óskuðu þessir minnihlutar eftir meira sjálfsforræði, en þeir þegar höfðu. Jafnvel Slóvakarnir, sem voru einn fjórði hluti þessara tíu millj- óna Tékkóslóvaka, vildu fá ein- hvers konar sjálfstjórn. Þrátt fyr- ir það, að Slóvakarnir væru mál- farslega og kynþáttalega náskyld- ir Tékkum, höfðu þeir þróazt á 5 henni fyrir, horfðl hún á hendur hans og ímyndaði sér þær láta vel að sér. Þegar hann brosti horfði hún á varir hans og ímyndaði sér þær þrýstar að munni sínum. Ef svo vildi til, að hann straukst við hana 1 ganginum, Jannst henni sem rafstraumur færi um sig alla. Hún elskaði hann ofsalega og á- stríðuþrungið. Hún hefði logið og svikið; hún hefði jafnvel framið morð vegna hans. í huga hennar var hann elskhugl hennar. í huga Gails var hann „Gamli, góði doksi,“ þrátt fyrir það, að hann var enn ekki þrítugur að aldri. Gail kom inn í skrifstofuna með nokkur spjöld. Mildred vélritaði þar í óða önh. — Hæ, Mildred, sagði Gail. — Er ekki dásamlegt að fá að fara til Hong Kong? — Ferð þú líka, systir? Gail brosti alúðlega. — Þú get- ur reitt þig á að ég fer líka Mdd- red! Þetta er stórkostlegt tæki- færi. — Eg hef aldrei verið utan- lands áður. En þú? Skuggi leið yfir fallegt andlit Gails. — Eg fæddist í Hong Kong. — Er það satt? Mildred var mjög undrandi. — Þá ertu sannar- lega heppih — þú hlýtur að eiga marga vini þar. Þú reynir náttúr- lega að ná sambandi við þá aftur, og þeir munu verða stórhriínir að fá tækifæri til að sýna þér allt mögulegt ög skemmta þér. Það kenndi öfundar í rödd hennar. Hún var alltaf Öfundssjúk út í Gail. — Það er aðeins einn vinur, sem mig langar að ná sambandi við í Hong Kong, sagði Gail hljóð- látlega. Hún notaði orðið vinur, en svo einkennilegri röddu, að hjarta Mildred sló örar. — Þú átt viö að þú eigir ein- hvern sérstakan vin þar? Rödd hennar var áköf. GaU vissi upp á hár um hvað stúlkan var að hugsa og hvað hún vonaði — að vinurinn væri karl- maður, sem beina mundi athygl' hennar frá Raeburn. — Já, sérstak ur vinur, samsinnti Gail. — Mig langar til að hafa samband við hann, en ég veit ekki fyrir víst, hvernig ég á að hafa upp á honum. — Áttu við að þú vitir ekki heimilisfang hans? Gad hristi höfuðið undir hvít- um kappanum. — Nei, ég veit ekki heimilis- fangið. Þau höfðu pantað flugmiða til Hong Kong síðasta fimmtudaginn í næsta mánuði. Veturinn hafði verið langur og kaldur; það yrði dásamlegt að komast á burtu og í hlýjuna og sólskinið þar austur- frá. Gail hafði gengið milli búða og eytt eins miklu og hún hafði efni á í léttan klæðnað, þótt hún hefði verið vöruð við og henni sagt að föt væru miklu ódýrari og auk þess sum saumuð eftir máli á svip- stundu í Hong Kong, En þegar svona ferðalag var í vændum ,var erfitt að hlíta ráðleggingum. Það var svo frelstandi að kaupa falleg föt, sem henni fannst eins og gerð handa sér. Undir venjulegum kringum- stæðum hefði frænka hennar saumað flest föt hennar, en frænka hennar var langt frá því að vera heilsuhraust, og Gail hafði áhyggjur af henni. Jean frænka var komin frá Blrmingham og hafðl setzt að hjá þeim. Hún svaf á bedda, sem þær settu upp handa henni í dagstof- unni. Hún flögraði um eins og fugl, frá sér numin af hrifr.ingu að vera í London, frá sér mumin að vera hjá þeim, frá sér numin af öllum sköpuðum hlutum. Gail og frænka hennar litu oft hvor á aðra og brostu ástúðlega yfir Jean. En tveim dögum áður en Gail skyldi leggja af stað, veiktist frænkan hastarlega um miðja nótt. Hún sagði stynjandi við Gad að sér liði eins og tuttugu hnífar skærust inn 1 magann á sér. Gail kvaddi lækni þegar á vett- vahg, og þangað til hann kom, gerði hún það, sem hún gat og áralöng reynsla hennar hafði kennt henni. Hún var þegar 1 stað flutt á sjúkrahús og gerður á henni uppskiirður, en líf hennar hékk á bláþræði í nokkra daga. Gail neitaði eindregið að fara frá London fyrr en frænka sín væri úr allri hættu. Þegar tekið var tillit til alls þess, sem varð að gera á síðustu stundu, var Grant óvenjulega mannlegur og hjálpfús. Hann vitj- aði frænku hennar tvisvar og ræddi við nokkira starfsbræður sína um vcikindi hennar. Bobby var eins hjálpfús og hann gat. Hann varði öllum tíma sínum aunaðhvort með Gail eða á sjúkra- húsinu. Þegar' hún spurði hann, hvort hann þyrfti ekki að ganga frá farangri sínum, yppti hann öxlum og sagði: —0, það skiptir engu máli. Hún brosti með sjálfri sér og sá hann fyrir sér grýta fötum og föggurii ofan í tösku og; setjast á þana ef hún vildi ekki lokast með góðu móti. Gail ætlaði að fljúga til Hong Kong og hitta þau þar jafnskjótt og frænka hennar hefði náð sér ögn. — Eg mun sakna yðar, systir, sagði Grant. — En ég skil fullkom- lega. Auðvitað verðið þér að vera hjá frænku yðar fyrst svona stend- ur á. — Eg þakka yður fyrir hvað þér eruð skilningsríkur, doktor. Hann leit á hana og brá fyrir brosi á andliti hans. — Þér hafið ekki búizt við að ég gæti verið skilningsríkur, eða hvað? Stundum held ég að þér teljið mig ekki mennskan mann, systir. En ég er það nú samt; og þér eigið samúð mína óskipta. En hann sagði þetta ópersónulegri röddu — talaði í sama tón og þegar hann sagði henni að hún væri of falleg og lét hana lofa sér að ganga ekki í hjónaband næstu tvö árin. T í M I N N, þriðjudagurinn 27. ágúsf 1963, —

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.